Alþýðublaðið - 06.04.1977, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 06.04.1977, Blaðsíða 4
Miðvikudagur 6. apríl 1977 Johanna S. Sigþorsdottir verður brot af hinum „þögla minnihluta”, sem gleymist, nema þegar einhverjir þurfa á þvi aö halda að muna eftir hon- um. Sem betur fer hefur skilning- urinn á þörf þessa fólks til aö komast út i atvinnulifiö þó heldur aukizt, en þessi mál eiga þó langt i land með þaö að komast I viðunandi horf. Söluskattur af afslætti Ekki má láta hjá liöa, að minnast á eitt helzta baráttu- mál Sjálfsbjargar og öryrkja- bandalagsins þ.e. bifreiðakaup öryrkja. Við slik kaup, geta fatl- aðir, sem kunnugt er, fengið hluta af aðflutningsgjöldum, og leyfisgjaldi felldan niður. Sé fólkið bundið viö hjólastól getur afslátturinn numið allt að einni milljón, en að öörum kosti getur hann orðið allt að hálf milljón króna. Þessar tölur segja þó ekki alla söguna eins og hún er, þvi viö- komandi kaupandi verður að greiða bifreiðaumboðinu sölu- laun af afslættinum, þe. fjárhæö, sem hann innir aldrei af hendi. Auk þess er öryrkjum gert að greiöa söluskatt af þeirri niðurfellingu sem þeir fá af toll- um. Þetta virðist ekki alveg i samræmi við reglur sem gilda um leigu- og sendibifreiðar þvi þar þarf ekki að greiða neinn söluskatt af niðurfellingu tolla. Þaö virðist þvi vera um marga galla að ræða, sem lag- færa þarf, til þess eins að öryrkjum séu gefin sömu tæki- færi og öðrum þjóðfélagsþegn- um til að stunda vinnu og njóta þess, sem samfélagið hefur upp á að bjóða. Það er ekki til of mikils mælzt, að þessi hópur hafi sama rétt og sömu mögu- leika og við hin. Af hverju eiga þeir að lifa? Samningaviðræður og; komandi kjarasamningar hafa verið mjög mikið í sviðsljósinu að undan- förnu. Ályktanir funda hinna ýmsu félaga streyma yfir síður blaðanna á hverjum einasta degi, og menn heyrast formæla okkar „ábyrgu" ríkisstjórn fyr- ir þær aðgerðir sem hún hefur haft frammi í efnahagsmálum. Slíkar umræður enda oft með því að „þennan fjanda kjósi menn ekki yfir sig aftur" og nú dugi tæpast annað en verkfall úr því sem komið sé. Það er engin furða þó þessi tónn heyrist oftar og oftar, því það er álíka fyrir alm- enna launþega að ætla að lifa af laununum sínum og hund að elta á sér skottið. Endarnir ná aldrei saman, hvernig sem farið er að. Enn verr settir En þetta leiðir hugann aö þeim, sem aldrei fara í verkfall og hafa enga samninga til aö segja upp, ellilifeyrisþega og öryrkja. Sé aðeins litið á aðstæður hinr\a siðarnefndu, kemur i ljós, að þau kjör sem þeim er ætlað aö búa viö eru vægast sagt skammarleg. Það virðist svo sannarlega hafa gleymzt, allt fjasiö og masið um bætt kjör þessa hóps, sem heyrðist ósjaldan fyrir siðustu kosningar. Og afleiðingarnar eru þær, aö þessi hópur verður að miklu leyti utangarðs i þjóðfélaginu. Hann fær ekki tækifæri til að lifa eðlilegu lifi, og reyndar má oft draga þá ályktun að það sé alls ekki gert ráð fyrir tilveru hans. Nægir i þvi sambandi að benda á ýmsar stofnanir og þjónustumið- stöðvar sem reistar hafa verið i seinni tið. Hver lifir af þessu? En litum nú aðeins á þann lifeyri, semætlaður er öryrkjum til framfærsiu. örorkulifeyrir- inn er nú kr. 23.919 á mánuöi. Viö þaö bætist svo tekjutrygg- ing, sem er að upphæð kr. 20.992. Lifeyririnn miðast við 75% örorku, og tekjutrygging skerö- ist allverulega, ef heildartekjur fara upp fyrir 120 þúsund krón- ur á ári. Ef örorka einstaklings er metin minna en 75%, er lifeyririnn matsatriði hverju sinni. Af þessu sést, að öryrkjar fá hámark kr. 44.911 til fram- færslu. Það væri sannarlega ekki vanþörf á þvi, að fá ein- hvern reiknimeistara rikis- stjórnarinnar til aö sýna alþjóð hvernig hægt sé aö lifa á þessari upphæð i dag. Ástand í atvinnumálum Fötluðu fólki hefur ævinlega reynzt erfitt að hasla sér völl á vinnumarkaðnum. Ekki vegna þess, að þetta fólk hafi ekki get- að innt störf við hæfi vel af hendi, heldur vegna gamal- gróinna fordóma i garð þessa hóps. Auk þess getur það ekki sótt um vinnu nema á einstaka stað, vegna þess að á vinnustöð- um er alls ekki gert ráð fyrir fötluðu fólki. Fram til þessa hefur þvi verið loku fyrir það skotið að öryrkj- ar geti gengið út I atvinnulifið eins og hverjir aðrir þjóöfélags- þegnar. Þetta er aö vonum mjög bagalegt, þegar lifeyrismálum er ekki betur komið en bent var á hér að framan. En það er þó sýnu alvarlegra, að með þessu fyrirkomulegi er þessi hópur svo til algerlega einangraður frá öðrum þjóðfélagsþegnum. Þetta Guðmundur Jónsson F. 4. ágúst 1905 d. 13. marz 1977 MINNING Aöfaranótt sunnudagsins 13. marz sl. andaöist i Borgar- spitalanum frændi minn og vinur, Guömundur Jónsson, eftir erfið veikindi. Var útför hans gerð frá Fossvogskapellu 23. marz sl. Guðmundur var fæddur 4. ágúst 1905 að Arnarnesi i Keldu- hverfi, Norður-Þingeyjarsýslu, sonur þeirra Ólafar Guömunds- dóttur og Jóns Sigurgeirssonar. Föðurætt Guðmundar er mér ekki kunn en Ólöf var frá Leifs- stöðum i öxarfirði. Hann ólst upp með móður sinni en um fjögurra ára aldur flytja þau að Valþjófsstööum i öxarfiröi og siðan að Skógum i sömu sveit. Um tvltugt flytja þau mæðginin til Húsavikur og halda heimili þar. Tekur Guömundur þá aö stunda sjósókn á fiskiskipum. Ólöfu móður sina missti hann árið 1940. Kynni okkar Guðmundar uröu ekki náin fyrr en hann fluttist til Reykjavikur áriö 1942, en þá hófust lika mikil og góð kynni. Minnisstæðast er mér þegar hann réðst til Eimskipafélags Reykjavikur, á Hekluna, sem þá var nýtt skip, með hinum kunna sægarpi Rafni Sigurðs- syni. Sigldi Guömundur meö honum um 10 ára skeið og gerði viðreist mjög enda Heklan viöa i förum. Haföi Guömundur góðan orðsti af feröum þessum og hélzt lengi kunningsskapur og vinfengi með honum og skips- félögum hans á þessum árum. 1 ársbyrjun 1957 réöst Guðmundur til Oliufélagsins hf. Var það happasæl ráöning fyrir báða aðila, þar naut hann sin vel og var sýndur mikill trúnaður af húsbændum sinum, sem hann mat mikils. Um svipað leyti stofnar hann heimili, er hann gengur aö eiga heitkonu sina, Ingibjörgu ólafsdóttur, ættaða úr Strandasýslu. Er þaö góð kona og með þeim hiö mesta jafnræði, á heimili þeirra var ætið gottað koma. Einn son áttu þau, Ólaf, fæddan 16. april 1959, sem nú stundar nám i mennta- skóla. Er þar góður efnismaður á ferð, svo sem hann á kyn til . Ég mun ávallt minnast Guðmundar sem góös manns og vandaðs I hvlvetna. Prúö- mennskan var eitt hans megin- einkenni, hann var góður og gætinn i oröum og talaöi aldrei illt orð til nokkurs manns. Góö- vild og hlýja voru sterkir þættir I skapgerö hans, sem komu glögglega fram i öllum hans samskiptum við annað fólk. — Ég heimsótti frænda minn bæði heima og á sjúkrahúsið eftir aö hann veiktist og aldrei heyröist æðruorö þótt oft væri hann þjáður og vissi að hverju dró. Slikur var kjarkur hans. En ekki væri það I anda frænda mins aö hafa uppi harmatölur og skal það þvl ekki gert, heldur óska honum fararheilla á vit hins óþekkta. Ég vil að endingu flytja honum kveðju og þakkir minar og konu minnar, systkina minna og stórs frændgarös, jafnframt þvi sem ég og við vottum eiginkonu hans og syni einlæga samúð. Blessuð sé minning góös drengs. S.Kristinsson.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.