Alþýðublaðið - 06.04.1977, Page 7
Miðvikudagur 6. apríl 1977
Færeyingar auka sókn
í kolmunnastofninn
— sem að dómi fiskifræðinga er
um 6-15 milljónir tonna
Átta færeysk fiskiskip
búa sig nú út á kol-
munnaveiðar. Kol-
munnastofninn er tal-
inn vera, að dómi fiski-
fræðinga 6-15 milljónir
tonna.
Gert er ráð fyrir auk-
inni veiði frá siðast-
liðnu ári, en þá veiddu
Færeyingar 13 þúsund
tonn.
hrygninguna svifar hann litiö
eitt til noröurs fyrst, en heldur
svo suöur fyrir Færeyjar i mai-
mánuöi. Þar dvelur hann ekki
lengi og nú tekur stofninn aö
dreifast.
Verulegur hluti hans fer norö-
ur um Færeyjar og heldur sig
um hriö innan 200 milna mark-
anna. Kvisl úr honum fer á Is-
landsmiö og önnur kvisl lengra
noröur, allt til Bjarnareyjar og
Svalbaröa.
Aöalveiöitiminn er marz,
april og mai, en vafasamt aö
hann veiöist aö marki i júni,
vegna of mikillar dreifingar.
liggja ekki fyrir, en eftir þvi
sem næst veröur komizt nam
heildarveiöin i fyrra 62 þús.
tonnum, og um 50 skip stunduöu
veiöarnar frá 9 rikjum. Norö-
menn voru meö mestan heildar-
afla eöa 23 þús tonn og Færey-
ingar næstir meö 13 þús tonn,
eins og áöur segir.
Sé stærö kolmunnastofnsins
réttilega áætluö, þó ónákvæmt
sé, er sýnt aö stofninn þolir
verulega meiri veiöi, án þess aö
skeröast um of-margfalda árs-
veiöi.
Samt sem áöur eru uppi
áætlanir um aö skipuleggja
sóknina, bæöi skipafjölda og
veiöikvóta. Standa hafrann-
sóknarstofnanir aö þvi og hafa
nokkra samvinnu.
Kolmunninn er flökkufiskur
og talsvert viöförull. Hrygn-
ingarsvæöi hans er nokkuö vest-
an Suöureyja, og þar hrygnir
hann i marzmánuöi. Eftir
60 þúsund tonna
heildarveiði 1976.
Nákvæmar veiöiskýrslur
Danir hyggjast auka
kolmunnaveiðar.
Danir veiddu I f yrra um 3 þús.
Framhald á bls. 12.
Nýjar bœkur
frá I&unni
Þorgeir Þorgeirsson
Uml
Greinar um dægurmál 1974—1977. Hispursiaus bók og
gustmikil um menn og málefni. Þaö veröa sjálfsagt ekki allir
sammála Þorgeiri, en um ritleikni hans eru ekki skiptar
skoöanir.
Emanuel Lasker
Heilbrigð skynsemi í skák
Ný skákbók í þýöingu Magnúsar G. Jónssonar....þessi
litla bók er sígilt rit sem hefur ýmislegt aö bjóöa íhugulum
lesendum. . segir Guömundur Arnlaugsson í formála.
MarkúsÁ. Einarsson
Veðurfar á fslandi
Yfirlit um helstu niðurstöður rannsókna á veöurfari íslands.
Ekki aðeins bók handa áhugamönnum um veöurfar og
náttúru landsins, heldureinnig þörf og tímabær handbókfyrir
verkfræðinga skipulagsfræðinga og náttúrufræðinga.
Dr. Magnús Pétursson
Drög að almennri og íslenskri hljóðfræði
Hér birtast í fyrsta sinn á íslensku helstu niöurstööur dr.
Magnúsar eftir margra ára rannsóknir á myndun íslenskra
málhljóöa. Bókin er fyrst og fremst ætluð kennurum og
kennaraefnum.
Baldur Ragnarsson
Móðurmál
Leiöarvísir handa kennurum og kennaraefnum um íslensku-
kennslu. Ný móöurmálsnámskrá handa grunnskóla er reist á
þeim grunni sem hér er lagður.
Ingólfur R. Björnsson
Setningafræði, málfræði, hljóðfræði
Námsbók handa 9. bekk grunnskóla, þar sem fjallað er um
námsefniö á nýstárlegan hátt. Efnið er sett fram eftir reglum
um þrepanám.
Dr. Gylfi Þ. Gíslason
Þættir úr rekstrarhagfræði
Námsbók handa framhaldsskólum. Áöur eru komnar út
bækurnar Bókfærsla, Þættir úr viðskiptarétti og Bókfærsla og
reikningsskil.
V
Guðni Karlsson
Bíllinn
Bók handa þeim sem vilja fræöast um bílinn og spara
viögeröarkostnaö og eldsneyti. Einnig ætluö sem kennslubók
fyrir bifreiöastjóranámskeiö, iönskóla, bændaskóla og vél-
skóla.
Guðrún Helgadóttir
í afahúsi
Ný útgáfa þessarar frábæru barnabókar, sem seldist ger-
samlega upp fyrir síöustu jól.
Guðrún Helgadóttir
Jón Oddur og Jón Bjarni
Þriöja útgáfa hinnar nafntoguóu bókar um „vinsælustu
stráka landsins."
Pétur Gunnarsson
Punktur punktur komma strik
Þriöja útgáfa þessarar snjöllu 'skáldsögu, sem kom út í
janúar, er nálega uppseld.
Sendum gegn póstkröfu um land allt.
IÐUNN . Pósthólf 5176 . Reykjavík . Sími 12923