Alþýðublaðið - 10.05.1977, Page 2

Alþýðublaðið - 10.05.1977, Page 2
2 STJÚRNMÁL/ FRÉTTIR Þriðjudagur 10. maí 1977 'tltgefaadi: Alþýöufiokkurinn. Rekstur: Reykjaprent hf. Ritstjóri og ábyrgöarmaður: Arni Gunnarsson. Aösetur ritstjórnar er f Slðumúla 11, simi 81866. Auglýsingadeild, Alþýöuhúsinu Hverfisgötu 10 — sími 14906. Askriftarslmi 14900. Prentun: Blaöaprent h.f. Askriftarverö: 1100 krónur á mánuði og 60 krónur i lausasölu. HNEYKSLI í ÚTVARPSDAGSKRÁ Um þessar mundir f lyt- ur Ríkisútvarpið í hljóð- varpi „kvöldsöguna" Vor i verum eftir Jón Rafns- son, sem Stefán Ogmundsson les. Jón Raf nsson var á sín- um tíma einn mesti bar- áttumaður íslenzkra kommúnista, sem á þeim dögum voru ófeimnir við að kalla sig þvi naf ni. Var hann virkur í verkalýðs- hreyfingu og stjórnmál- um, og hafa í síðustu viku verið lesnir kaflar úr minningum hans, sem fjalla um veru hans í Alþýðuflokknum árin fyrir 1930, áður en Kommúnistaf lokkur islands var stofnaður. Á þeim árum voru komm- únistar enn í Alþýðu- flokknum og Alþýðusam- bandi islands, sem voru ein og sömu samtökin. Voru þó opin átök milli jafnaðarmanna og kommúnista innan flokksins, og Ijóst að fyrr eða síðar mundi leiðir þessara arma skilja, eins og varð 1930. Ekki verður sagt, að Jón Rafnsson hafi verið hlutlaus maður í verka- lýðs- og stjórnmálastarfi sínu, nema síður sé. AAinningabók hans er opinská og hann segir hiklaust skoðanir sínar á flokkum og mönnum og sparar ekki orðbragð frekar en gert var í hita baráttunnar. Bók hans er því fjarri því að vera hlutlaus, heldur er hún hlutdræg frásögn af flokkum, félögum og ein- stökum mönnum. Það hefði verið óeðlilegt, ef Jón Rafnsson hefði skrif- að bók sína á annan hátt. Af þessu er augljóst, að bókin þverbrýtur lög Rikisútvarpsins um óhlutdrægni, mikilvæg- ustu málsgrein útvarps- laganna, sem hefur stað- ið nær óbreytt f rá stof nun útvarpsins. í 3. grein lag- anna er þessi alkunna setning, sem mótað hefur allt starf útvarps og sjón- varps: „Ríkisútvarpið skal í öllu starfi sínu halda í heiðri lýðræðis- legar grundvallarreglur. Það skal virða tjáningar- frelsi og gæta fylstu óhlutdrægni gagnvart öll- um flokkum og stefnum í opinberum málum, stofn- unum, félögum og ein- staklingum." Hér er um svo augljóst og margfalt brot á þess- ari lagagrein að ræða, að það sætir undrun, að út- varpsráð skuli hafa sam- þykkt þetta efni. Getur verið, að Þórarinn Þórar- insson, formaður, og Ell- ert Schram, varaformað- ur útvarpsráðs, hafi lesið bók Jóns Rafnssonar* Eða að aðrir útvarps- ráðsmenn, sem hljóta að- hafa samþykkt þetta lestrarefni, hafi kynnt sambærilegan hátt eða leiðrétta rangfærslur. Alþýðuf lokkurinn getur þó látið sig þetta mál litlu skipta. Hann hefur lengi þolað árásir kommúnista og mun fyrst hafa áhyggjur, ef þeim linnir. Þótt landslög séu brotin á flokknum með þessu út- varpsefni, skal það látið kyrrt liggja. Hitt er verra mál, að í hlustar stundum á út- varp. Sjálfur hefur hann skrifað endurminningar sínar, þar sem fram kemur það göfuglyndi, að hann talar vel um and- stæðinga sina og hefur fyrirgefið eða gleymt átökum fyrri ára. En nú lætur útvarpsráð lesa yf ir þjóðinni óhróður úr bók Jóns Rafnssonar og ný kynslóð hlýðir á, kynslóð ■ - sér ritið? Getur verið, að útvarpsráðsmenn geri sér ekki Ijóst, hversu gróft brot á lögum stofn- unarinnar þessi lestur er? Hvaða skýring er þá til á því að samþykkja þetta efni? Þekkir ekki Þórar- inn Þórarinsson höfund og efni bókarinnar nógu vel til að vita, að þetta efni þverbrýtur hina gullnu reglu útvarpsins? Á fyrstu árum Rikisút- varpsins héldu ráðamenn þess á óhlutdrægninni á mjög formfastan hátt og varð dagskráin við það snauðaf skoðunum. Síðar hefur f ramkvæmdinni verið breytt til mikilla muna og hún gerð frjáls- legri, eins og rétt er. Þó hefur verið reynt að láta mismunandi stefnur, flokka og stofnanir njóta sannmælis með því að mismunandi skoðanir komi fram í mismunandi þáttum og þetta jafnist á nokkrum tíma. En kvöld- saga er annað mál. Hún er lesin aftur og aftur og það er ekki hægt að koma fram öðrum skoðunum á þessum kvöldsögum Ríkisútvarpsins er ráðizt á einstaka menn, oft á ruddalegan og svívirði- legan hátt. Þetta er gróft óréttlæti, sem útvarps- ráði ber skylda til að bæta úr, enda þótt það hafi gert sig sekt um óskiljan- legt hlutdrægnisbrot í dagskránni. Tökum til dæmis Stefán Jóhann Stefánsson, fyrr- um forsætisráðherra og formann Alþýðusam- bands íslands og Alþýðu- f lokksins. Enginn íslenzkur stjórnmála- maður hefur fyrr eða síð- ar orðið fyrir eins harð- vítugri og samfelldri her- ferð rógs og niðs sem Stefán Jóhann, enda var hann andstæðingur, sem kommúnistum stóð beyg- ur af. Nú eru slíkar árásir lesnar yfir þjóðinni úr bók Jóns Rafnssonar, þar sem hann dregur upp mynd af Stefáni sem svikara við flokk sinn og málstað. Hvers á Stefán Jóhann að gjalda frá Ríkisút- varpinu? Hann býr i Reykjavík háaldraður og sem þekkir ekki þessa at- burði eða þessa menn og telur án efa, að treysta megi efni hins óhlut- dræga Rikisútvarps þjóð- arinnar. Fleiri jafnaðarmenn verða fyrir barðinu á Jóni Rafnssyni en leið- togar kommúnista eru dáðir og vegsamaðir að sama skapi. Allur er þessi lestur til þess fallinn að særa og sverta gamla eða látna menn og með öllu óviðunandi, að slíkt skuli flutt i útvarpi með samþykkt útvarpsráðs. AAeð þessari gagnrýni ætlar Alþýðublaðið sér ekki að kasta rýrð á Jón Rafnsson. Hann var mik- ill baráttumaður, verðug- ur andstæðingur lýð- ræðissósíalista. Það hefur sögulegt gildi, að bók hans er hreinskilin og hispurslaus, en hún á ekkert erindi í útvarp. Á þeim vettvangi taka árásir hans á einstaka menn á sig aðra mynd, enda hefur vafalaust aldrei hvarflað 3ð hon- um, að bókin yrði lesin þar. BGr Formanns- skipti hjá Æskulýðssam- bandinu Ný lög hafa nú tekið gildi fyrir Æskulýðs- samband ísiands, og voru þau samþykkt á 10. þingi sambandsins, sem haldið var sl. laugardag. Þá lét Jónas Sigurðsson af formannsembætti, en við því tók Elias Snæ- land Jónsson, blaða- maður. Megninverkefni þingsins var að fjalla um drög að nýjum lögum fyrir Æskulýðssambandið, og voru þau einróma samþykkt. Gera þau ráð fyrir veigamiklum breytingum á verkefnum og skipulagi sambandsins. Eru þær meðal annars fólgnar I þvl, að ný sambandsstjórn tekur nú við þeim verkefnum, sem stjórn og utanrikisnefnd höföu áður. 011 að- ildarsambönd ÆSÍ, sem nú eru 12 talsins, eiga fulltrúa I sambands- stjórninni, en kjörtlmabil hennar eru tvö ár. í samræmi viö breytt verkefni Æskulýðssambandsins fjölluðu samþykktir þingsins eingöngu um aukin samskipti við hliðstæð samtök I öðrum löndum, og taldi þingið mikilvægt að Æskulýös- sambandið ynni aö því að auka möguleika Islenzks æskufólks á aö taka virkan þátt I norrænu og alþjóðlegu æskulýðsstarfi. —JSS 10 sóttu um stöðu fræðslustjóra Austurlands AAenntamálaráðuneytið auglýsti 6. apríl síðastlið- inn lausa stöðu fræðslu- stjóra í Austurlandskjör- dæmi. Umsóknarfrestur var til 1. maí. Umsækjend- ur voru alls 10. Björn Eiríksson talkenn- ari Reykjavík, Elín Ösk- arsdóttir kennari, Reyðar- firði, Elín Sigurðardóttir kennari Húsavík, Guð- mundur AAagnússon skóla- stjóri Reykjavík, Hermann Guðmundsson skólastjóri Vopnafirði, Jón Ingi Einarsson skólastjóri Vík í AAýrdal, Einar Rafn Har- aldsson kennari Egilsstöð- um, Kristinn Einarsson skólastjóri Reyðarfirði, Sigurður H. Þorsteinsson skólastjóri Hvammstanga og Þórður Kr. Jóhannsson kennari Hafnarfirði. -AB AtA&l'jsenciur! AUGLVSINGASIMI BLADSINS ER 14906 Munið alþjóólest hjálparstarf Rauða krossins. RAUÐI KROSS ISLANDS

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.