Alþýðublaðið - 10.05.1977, Page 11
SSia iÞriðjuclagur 10. maí 1977
12 BREZKIR LISTMÁL-
ARAR SÝNA AÐ
KJARVALSSTÖÐUM
Dagana 14. maí-5. júní fer fran-
sýning á verkum listamanna fr£
Bretlandi í vestursal Kjarvals
staöa sem nefnist „12 Breskir
Listmálarar”. Fyrir sýningunni
standa Listráð að Kjarvalsstöö-
um og Arts Council i Bretlandi og
er hún án efa stærsta sýning á
breskri nútlmalist sem haldin
hefur verið hér á landi, — og
fyrstu meiriháttar menningar-
samskipti Islands og Bretiands
eftir þorskastrið. Listamennina
tólf valdi framkvæmdastjóri List-
ráös, Aðalsteinn Ingólfsson, I
samráði við breskan sérfræðing,
Sue Grayson frá Serpentine Gall-
ery í London, en sú stofnun er
rekin af breska listaráðuneytinu.
Mun Sue Grayson aðstoði. við
uppsetningu sýningarinnar.
Verkin eru 100 talsins, allt frá
frummyndum gerðum með blý-
anti, vatnslitum eða krit og upp I
3x4 metra málverk.
Listaínennirner eru allir ungir
að árum, frá 30-37 ára og tiltölu-
lega nýlega farnir að láta bera á
sér með sýningum og annarri
starfsemi, en allir kenna þeir viö
listaskóla I Bretlandi. Þeir voru
ekki valdir með það fyrir augum
aö gefa vitt yfirlit yfir breska
myndlist, heldur þann hluta
hennar sem enn grundvallast á'
notkun málningar og byggir bæöi
á ameriskri arfleifð og enskri
náttúrutúlkun, með snert af
geómetrlu. Listamennirnir eru:
Colin Cina, Julian Cooper, Mike
Crowther, Jennifer Durrant, Paul
Hempton, KnigtonlHosking.Kerry
Kenndy, Barry Martin, Alan Mill-
er, Alex Thomson, David
Whitaker og Tony Wilson, — en I
hópnum eru englendingar, Skot-
ar, Iri og einn Astrallumaður.
1 sambandi við sýninguna mun
Listaráö gefa út vandaða sýn-
ingarskrá, þar sem einn listmál-
aranna, Barry Martin, gerir
grein fyrir viðhorfum sinum og
félaga sinna, en annar listamað-
ur, Colin Cina, mun flytja fyrir-
lestur sunnudaginn 15. mai um
breska málaralist. SÍðar i mánuð-
inum mun Aöalsteinn Ingólfsson
kynna breska málara og högg-
myndalist eftirstriðsáranna og
Hamrahliðarkórinn undir stjórn
Þorgerðar Ingólfsdóttur mun
m.a. flytja breska tónlist.
Sýningin verður opnuð laugar-
daginn 14. mai kl. 16, af Sendi-
herra Bretlands á Islandi, hr.
Kenneth East.
LISTIR/DVIENIMING 11
Fimm nemendur Ijúka burtfararprófi frá Tónlistarskólanum:
Dóra Björgvinsdóttir — Guðný Asgeirsdóttir — Svana Vikingsdóttir — Kolbrún ósk óskarsdóttir
— Lovisa Fjeldsted.
Halda einleikstónleika
næstu tvær vikur
Næstu tvær vikur munu
fimm nemendur Tón-
iistarskótans halda ein-
leikstónleika, sem er liö-
ur í burtfararprófi
þeirra. Þessir nemendur
eru Dóra Björgvinsdóttir
f iöluleikari, Guöný
Ásgeirsdóttir píanóleik-
ari, Svana Vikingsdóttir
pianóleikari, Kolbrún
óskarsdóttir píanóleikari
og Lovisa Fjeldsted selló-
leikari.
Allar stúlkurnar munu halda
sér tónleika, sem fara allir fram
i Austurbæjarbíói. Þeir fyrstu I
kvöld kl. 7,15 slðdegis.
Það er Kolbrún ósk Óskars-
dóttir sem halda mun pinótón-
leika. A efnisskrá tónleikanna
eru verk eftir Mozart.
Chopin, Debussy og Liszt.
Næstu tónleikar verða á
fimmtudaginn á sama tima i
Austurbæjarbiói. Þar leikur
Svana Víkingsdóttir pianóverk
eftir Bartok, Beethoven,
Schumann, Bach, Debussy og
Liszt.
Lovisa Fjeldsted sellóleikari
heldur tónleika næstkomandi
laugardag kl. 2.30 siðdegis, við
undirleik Halldórs Haraldsson-
ar pianóleikara.
A efnisskránni eru verk eftir
Beethoven, Bach,Jórunni Viðar,
Gabrlel Fauré og Schumann.
Næstkomandi mánudag held-
ur Dóra Björgvinsdóttir fiðlu-
leikari sina burtfarartónleika.
Undirleikari er Guðriður St.
Sigurðardóttir.
Dóra mun leika verk eftir
Mozart, Bach, Brahms og Béla
Bartok.
Siöustu tónleikarnir veröa svo
þriöjudaginn 17. mai.
Þá leikur Guðný Asgeirsdóttir
pianóverk eftir Stravinski,
Beethoven, Webern, Brahms og
Bach.
—AB
S ká k
Umsjón: Svavar
Guðni Svavarsson
Taflfélag Reykjavlkur sigraði
á þessu ári I sveitakeppni Skák-
sambands Islands. Skákfélagið
Mjölnir varð aö láta sér nægja
annað sætiö að þessu sinni.
Vissulega hefur sigur T.R. verið
sætur eftir hið herfilega tap i
fyrra fyrir Mjölni. Omurlegt
var þó að sjá Guðmund Sigur-
jónsson tefla fyrir T.R. og fyrst.
hann hefur nægan tlma til sliks
þá tel ég sjálfsagt að athugaö sé
hvort hann hafi ekki tlma til aö
sinna þeirri skákkennslu, sem
viö skattborgararnir erum
látnir greiða honum laun fyrir.
— 0 —
önnur er sú keppni, sem sett
hefur svip sinn á skáklif
Reykjavikur öðrum fremur og
er það keppni verkalýðsfélag-
anna. Aöeins einu sinni, mér
vitanlega, hefur A-sveit Dags-
brúnar tapað leik fyrir öðru
félagi og var þaö fyrir Múrara-
félaginu. Ariö 1971 tefldi á
fyrsta boröi fyrir Dagsbrún hin
þekkta skákkempa Benóný
Benediktsson (Bragi Sigurðsson
hjá Dagblaöinu ritaði ávallt
nafn hans rangt I „society”
spalta sínum og nefndi hann
Benóný Benónýsson. Þessi
spalti var þegar einvigi slav-
anna var á Loftleiðum og viðar.
Bragi var einn hinna útvöldu
skákblaðamanna, sem fékk
ókeypis aðgang, enda kannski
eðlilegt). A fyrsta boröi þetta
sama ár 1971 tefldi Svavar
Guðni Svavarsson fyrir Múrar-
félagið i þessari keppni og
sigraði hann Benóný eftirminni-
lega eins og nú veröur sýnt, en
þetta dró nú dilk á eftir sér eins
og framhaldiö sýnir.
Hvitt: Svavar Guðni
Svavarsson.
Svart: Benóný Benediktsson.
1. Rf3, d5, 2. g3, C5, 3. Bg2, Rc6.
4. 0-0, e5, 5. d3, Rf6. 6. Rbd2,
Be7, 7. c3, 0-0. 8. e4, Bg4, 9. h3.
Bh5,10. Db3, c4? 11. dxc4, dxe4.
12. Rg5, Ra5, 13. Dc2, Be2.
14. Hel, Ðd3, 15. Bxe4, Rxe4, 16.
DxD, BxD. 17. Rgxe4, Í5.18. b4,
Rc6, 19. Rc5, BxRc5, 20. bxBc5,
e4. 21. Rb3, Bxc4. 22. Bf4, Hfe8,
23. Rd4, Re5. 24. Hebl, Bd5. 25.
Rxf5, Rf3+ 26. Kfl, g5, 27. Be3,
Be6. 28. Rd6, Bxh3+ 29. Ke2,
Hf8. 30. Hxb7, Bg4. 31. Rxe4,
Rh2+, 32. Kd2, Had8+ 33. Rd6,
Rf3+ 34. Kc2, a5, 35. Habl, Bh5.
36. Hlb5, a4. 37. Ha7, Bg6+' 38.
Kb2, h5, 39. H5b7, Hb8. 40. Ka3,
HxH, 41. HxH, Bc2, 42. c6, Re5.
43. c7, Re6. 44. c8D, Hxc8. 45.
Rxc8, h4, 46. pxp, pxp. 47. Re7+,
RxR. 48. HxR, h3.49. Bf4, og hér
gaf Benóný.
— 0 —
Ekki var nú sagan öll eins og
ég sagöi áðan. 1 siöustu umferð
varð Múrarafélagiö að klipa
hálfan vinning af Trésmiöa-
félagi Reykjavikur, svo Dags-
brún ynni, annars vann Tré-
smiðafélagið. Ég fann til tölu-
verðrar sektar vegna vinnings
mins gegn Benóný og fann þung
augu á mér hvila. Kom þá
Guðmundur J. Guðmundsson til
mln og lofaöi mér þvi að ég
fengi þá stærstu vindla, sem
fáanlegir væru i Reykjavlk ef ég
bara tapaði ekki á fyrsta borði
fyrir hinum góökunna skák-
manni Ingimar Halldórssyni.
Ég gerði jafntefli við Ingimar
og vann þar meö keppnina fyrir
Dagsbrún þótt ég tefldi fyrir
mitt gamla félag Múrara-
félagið. Greiðslan hefur samt
látið á sér standa. Minnugur
þessa, I febrúar 1975, þegar
fyrsta borðs maður Dagsbrúnar
hvarf skyndilega á braut og
Guðmundur J. Guðmundsson
kom inn á sem varamaður
þakkaði Svavar fyrir sig.
Hvitt: Svavar Guðni
Svavarsson
Svart: Guðmundur J.
Guömundsson
1. Rf3, Rc6, 2. g3, e5. 3. d3, Bc5.
4. Bg2, h6. 5. 0-0, d6. 6. a3, Rf6, 7.
b4, Bb6. 8. Bb2, a6.9. c4, De7. 10.
d4, exd. 11. Rxd, RxR. 12. BxR,
BxB. 13. DxB, Dxe2. 14. Rc3,
Dc2. 15. Hael+, Be6. 16. Bxb7,
Hb8. 17. Bc6+, Kd8, 18. He2,
Df5,19. Hfel, Bd7. 20. BxB, KxB.
21. He7+, Kd8. 22. De3, Kc8. 23.
Rd5, RxR. 24. cxR, Hb5. 25. Da7,
og hér gaf Guömundur og bauð I
nefið, sem var afþakkað, ég
reyki bara vindla og einstöku
sinnum pipu. Þaö hefur ekki
skeð áöur að ég hafi gert eigin
skákum skil hér i þessum þátt-
um, en þessar hafa sögulegt
gildi. Sá, sem svikur einn vesæl-
an verkalýðsmann um vindil
hvað getur hann ekki...!
Meö kærri kveöju Guðmundur
minn.
Rauðhærði hrekkjalómurinn
Jóni L. Arnasyni vil ég óska
sérstaklega til hamingju meö
Islandsmeistaratitilinn og jafn-
framt bróöur hans fyrir hans
frammistöðu og þá einlægu von
i brjósti að þeir séu ekki jafn
taugaveiklaðir og aðrir ungir
skákmenn, sem hafa verið' að
skjótast upp á stjörnuhimininn
ööru hvoru hin slöari ár.
Svavar
Tækni/Visindi
Umræður um bólusetningu
Hinar heitu umræður sem urðu
um þá áætlun — sem nú hefur
verið fallið frá — að bólusetja
150 milljón manna I Bandarlkj-
unum gegn s vinainflúensu
hafa vakiö upp almennar um-
ræður mcöal vlsindamanna um
bólusetningar
8I+-I
Og bóiusetning hefur I fjölmörg-
um tilfellum sannað gildi sitt,
þvi fjölda sjúkdóma hefur veriö
útrýmt á þeim svæðum þar sem
bólusetningu er beitt
Þetta form heilsuverndar sem
beinist að þvi aö varna þvi að
heilbrigt fóik fái einhvern tiitek- /y-
inn sjúkdóm er glfuriega mikil- / //
vægur þáttur I heilsuvernd I R bólusetning getur haft
heiminum i dag. fl hættur I för með sér.
Framhald baráttunnar við einn
algengasta sjúkdóminn sem
hrjáir mannkynið ræðst af
niðurstöðum umræönanna um
bólusetningar....