Alþýðublaðið - 10.05.1977, Qupperneq 16

Alþýðublaðið - 10.05.1977, Qupperneq 16
GEIR OG ÓLflFUR HÆTTfl VIÐ ÞflmðKU í FUNDUM ERLENDIS vegna kjaradeilunnar Vegna yfirstandandi kjaradeilu hefur Geir ííallgrimsson forsætis- ráðherra hætt við fyrir- hugaða þátttöku i fundi leiðtoga Atlantshafs- bandalagsrikjanna i London 10.-11. mai næstkomandi. Einnig hefur hann ákveðið að hætta við að sitja leið- togafundi EFTA-rikj- ^nna i Vinarborg. Ólafur Jóhannesson viðskiptaráðherra hef- ur að sömu ástæðu hætt við þátttöku sina i siðamefnda fundinum. Einar Ágústsson utanrikisráðherra sem nú er erlendis mun sitja báða þessa fundi fyrir Islands hönd ásamt embættismönn- um. —AB VEIÐILEYFI AÐ MESTU UPPSELD HJÁ STANGVEIÐIFÉLAGINU Salan hefur gengið alveg prýðilega hjá okkur og er nú uppselt i flestar þær ár, sem við höfum á okkar snærum, sagði Friðrik Stefánsson hjá Stanga- veiðifélagi Reykjavikur, þegar Alþýðublaöið ræddi við hann um sölu stangaveiðileyfa. Eftir öllum sólarmerkjum aö dæma, veröur þetta toppsala i ár, þvl hún er mjög svipuð og á sama tima i fyrra og þá var allt selt. — Sagði Friðrik, að nú væri al- veg uppselt i Norðurá, nema hvað örfáar stangir væru eftir i ágúst. t Grimsá væri nokkrum veiðileyfum enn óráðstafað frá 16.—24. júni og svo frá 1,—11 september. Löngu væri uppselt i Elliðaárnar og Leirvogsá, og sama væri að segja um Stóru Laxá i Hreppum að efsta svæöinu undanskildu en þar væri örfáum leyfum óráðstafað. Aðspurður um verö á veiði- leyfum sagði Friðrik, að dagur- inn kostaði 12.-13.000 krónur i beztu ánum, þ.e. Grimsá og Norðurá. Við þetta bættist svo fæði i veiðihúsi og gisting, sem kostaði kr. 6500. — Við teljum að verðinu sé mjögstillti hóf, t.d. samanborið við aðrar ár. Sumir selja leyfið fyrir þetta 25.-30.000 yfir bezta timann og það til Islendinga, ef þeir komast i þær ár á annað borð. OtJendingarnir borga svo enn meira, og ganga fyrir vegan þess. Við höfum stefnt aö þvi að hafa þetta þveröfugt. Við selj- um íslendingunum fyrst og siðan koma útlendingarnir, ef eitthvað er eftir af leyfum. Nei, hér hafa engar fregnir borizt af laxagengd enn, enda ekki við þvi að búast. Hann gengur yfirleitt snemma i Norðurá, og þar hefst veiðin 1. júni'. Flestar árnar eru ekki opnaðar fyrr en 15. júni og þær siöustu þann 20. En það má bú- ast við að fiskurinn fari að dóla i snemmgengu árnar I lok mai, sagði Friðrik Stefánsson. —JSS Lífeyrissj ó ðirn i r: LflN TIL FJÁRFESTINGALÁNA- SJÓÐA JUKUST UM 53% Lánsfjáráætlun stjórnarinnar fór verulega úr böndum______________ Á siðastliðnu ári lánuðu lifeyrissjóðirnir i landinu alls 2.058 milljónir króna til fjár- festingalánasjóða. Á ár- inu 1975 námu þessi lán hins vegar 1.345 milljón- um króna og hafa lán lífeyriss jóðanna til fjárfestingalánasjóða aukizt um 53% á milli ára. Þessar upplýsingar koma m.a. fram i frétta- b r é f i S am. b a n d s almennra lifeyrissjóða. Fyrir árið 1976 námu lán til fjárfestingaiánasjóöa um 25,4% af áætluðu ráðstöfunarfé lifeyris- sjóðanna, en árið áður höfðu sjóðirnir lánað fyrir um 22.4% af ráöstöfunarfé sinu til fjár- festingalánasjóða. 1 upphaflegri lánsfjáráætlun rikisstjórnarinnar var gert ráö fyrir að lifeyris- sjóðirnir lánuðu fyrir nokkru hærra hlutfall af ráðstöfunarfé sinu, eða um 29,5%. Þannig hafði verið gert ráö fyrir, að lán til framkvæmdasjóðs næmi allt að 63% ráðstöfunarfjár lifeyris- sjóðanna, en varö hins vegar ekki nema 36,1%. Þá hafði á lánsfjár- áætlun verið reiknað með 24.6% ráðstöfunarfjár til byggingar- sjóðs, en hlutfallið varð 47.1% af ráöstöfunarfé. Af þessu má vera ljóst, a,ð láns- fjáráætlun ríkisstjórnarinnar fóru verulega úr böndunum á siöasta ári hvað snertir lán lifeyrissjóðanna til fjárfestinga- lánasjóða. Þannig urðu t.d. kaup lifeyrissjóöanna á verðtryggðum skuldabréfum Byggingarsjóðs rikisins um 410 milljónum meiri en gert hafði verið ráð fyrir, en skuldabréfakaup a f lægri en reiknaðhafði verið meö. Framkvæmdasjóði 697 milljónum —JSS. III meðferð á mennta- málum á Alþingi Menntamálaráðherra fékk litlu framgengt og menntamálanefndir störfuðu lítið og illa Mikið hefur verið rætt um það þing, sem sent var heim á dög- unum. Flestir eru sammála um, að ekki hafi það verið afkasta- mikið né litrikt, enda liklega ekki kosningaþing. Einn er sá málaflokkur, sem fékk slæma útreiö á þinginu, en það eru menntamálin. Mennta- málaráðherra starfaði af samvizkusemi, og flutti fjölda merkra frumvarpa. Þeirra á meðal eru frumvörp um fullorðinsfræðslu, leiklistar- lög og Þjóöleikhús,, um kennaraskóla, Skálholtsskóla, námsgagnastofnun og sitthvað fleira. Allt var þetta svæft í nefndum þingsins, og aðeins eitt eða tvö smáfrumvörp frá ráð- herranum uröu að lögum. Menntamálanefnd efri deildar hafði 8 mál til meðferð- ar. Nefndin hélt f jóra fundi i all- an vetur og afgreiddi eitt mál. t neðri deild var ástandið örlitiö skárra. Þar fékk menntamála- nefnd einnig átta mál, hélt sjö’ fundi og afgreiddi ein þrjú mál. Þetta er ill meðferð á mikil vægum málaflokki og sýnir kannski betur en margt annað hve aðgerðarlitið þingiö var. Þá veröur einnig að lfta á þaö sem hreina móögun við mennta- málaráöherra hvernig mál hans voru afgreidd, og er óliklegt að hann sé sáttur við þessa meðferö. ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 1977 alþýöu blaöiö HEYRT, SÉÐ OG HLERAÐ Lesið:Grein i Simablaðinu eftir Jón Kr. Öskarsson. sem hefstá þessum orðum . „Hneyksli. Hvert stefnir? Þetta eru spurningar, sem undirritaður hefur velt fyr- irsér á undanförnum mán- uðum. Tilefni þess eru stöðuveitingar Pósts og sima og tilhneigingar stjórnenda stofnunarinnar i sambandi við mat á störf- um manna er ráðnir eru i störf hjá Pósti og sima.” Jón segir, að á siðustu mánuðum hafi þess gætt i vaxandi mæli aö ráðamenn Pósts og sima gangi fram- hjá góðu og gegnu stárfs- fólki, sem jafnvel hafi starfaði 30 ár, en ráði held- ur fólk, sem unnið hefur i 2, 3 eða 4 ár. Og Jón spyr: Hvers vegna? Tekið eftir: Að fyrir helgi skýrði Alþýðublaðið ná- kvæmlega frá þvi hvernig fara myndi um kjör ungra Sjálfstæðismanna i mið- stjórn flokksins á lands- fundi. Blaðið greindi frá tveimur nýjum miðstjórn- armönnum, og það fór eft- ir. Annars var landsfund- urinn ekki jafn átakalaus og i'haldsblöðin vilja vera láta. Undiralda var þung, ogfyrirfundinn var búið að tryggja kjör a.m.k. eins nýs fulltrúa i miðstjórnina, og er þá unga fólkið ekki talið með. * Frétt: Að Samband is- lenzkra samvinnufélaga sé nú komið i klipu vegna á- kvörðunar ASl um að óska eftir sérstökum og beinum samningaviðræðum við StS. Þótt Sambandið hafi sentfrá sér viljayfirlýsingu um greiðslu lágmarks- launa, eru nokkrir ráða- menn Sambandsins þeirrar skoðunar að samtökin eigi að fylgja Vinnuveitenda- sambandinu eftir i einu og öllu. Þetta gæti valdið tals- verðum ýfingum innan stjórnar StS. * Heyrt: Að Sjálfstæðismenn telja Geir Hallgrimsson, forsætisráðherra, ótviræð- an sigurvegara landsfund- arins. Spáð hafði verið verulegum umbrotum á landsfundinum, en I ljós kom að fulltrúar þjöppuðu sér um forsætisráöherra, og fékk hann mun öflugri stuðningsyfirlýsingu en margir höfðu búizt við. Geir hefur tekizt að standa utan og ofan viö öll átök i hinum ýmsu „deildum” flokksins. Vafalaust er staða hans nú sterkari en hún hefur oftast áður verið.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.