Alþýðublaðið - 29.07.1977, Síða 3

Alþýðublaðið - 29.07.1977, Síða 3
Föstudagur 29. júlí 1977. 3 Haðið Finnlandsforseti skoðar handrit, þiggur og veitir boð og veiðir lax Eins og skýrt hefur verið frá i fréttum kemur Urho Kekkonen, forseti Finnlands, hingað til lands i opin- bera heimsókn 10. ágúst og mun hann dveljast hér til 12.ágúst. Dagskrá feröarinnar hefur verið ákveðin og mun for- setinn koma flugleiðis til Kefla- vikurflugvallar kl. 11.30 10. ágúst. Meðal anarra atriða i dagskrá forsetans er hádegis- verður með forsetahjónunum fyrsta dag heimsóknarinnar. Siðan mun Kekkonen taka á móti erlendum sendiráðsmönn- um. 11. ágúst mun Finnlandsfor- seti skoða handritin i Arnasafni og heimsækja Norræna húsið. Þá mun hann taka á móti Finn- um búsettum á tslandi, en um kvöldiðhefurhann boð i veitinga- húsinu Þingholti. Hinn 12. ágúst lýkur svo hinum opinbera hluta heim- sóknar Finnlandsforseta er hann kveður forsetahjónin. En þá er hinn óopinberi hluti heimsóknarinnareftir. 12. ágúst snæðir Finnlandsforseti há- degisverð að Þingvöllum i boði islenzku rikisstjórnarinnar. En siðan heldur hann að Laxá i Kjós þar sem hann rennir fyrir lax i boði rikisstjórnarinnar. Að lokinni (vonandi velheppn- aðri) veiði heldur Kekkonen áleiðis til Króksstaðamela þar sem hann mun siðan stunda lax- veiðari Viðidalsá ásamt finnsk- um vinum sinum. Ráðgerter að forsetinn hverfi af landi brott kl. 15.00 sunnudaginn 14. ágúst. Fyrstu 6 mánuði ársins: Vöruskiptajöfnuður óhag- stæður um 6,5 millj. kr. — versnaði um sem svarar 49% frá árinu áður Fyrstu 6 mánuði þessa árs var vöruskipta- jöf nuður íslendinga óhagstæður um sem svarar 6,487 milljörðum króna, en var á sama tíma^ í fyrra 3,965 milljarðar. Sé hins vegar tekið tillit til þess, að meðalgengi erlends gjaldeyris í janúar-júní 1977 er talið vera 9,4% hærra en það var í sömu mánuðum .......... .............. 1976, er vöruskipta- jöfnuðurinn fyrstu 6 mánuðina í fyrra reiknaður á gengi f yrstu 6 mánuði þessa árs óhag- stæður um sem nemur 4,338 milljörðum. Vöruskiptajöfnuðurinn fyrstu 6 mánuði ársins 1977 hefur þvi versnað um sem svarar 49% miðað við sama tima árið áður. Sé reiknað á meðalgengi mánuðanna janúar-júni 1977, hefur verðmæti útflutnings til landsins á þessum sama tima aukizt um sern sVarar 35% miðað við sama tima árið áður. Það sem mestan þátt á i þessum breytingum er aukinn innflutningur skipa, varnings á vegum islenzka álfélagsins og einnig aukinn flugvélainn- flutningur. Hins vegar hefur á þessum 6 mánuðum dregið úr innflutningi á vegum Kröflu- virkjunar og Landsvirkjunar (Sigöldu). Þá hefur útflutningur frá Alfélaginu vaxið nokkuð milli ára. ES I sól og sumaryl Þessi biómarós varft á vegi Ijósmyndarans I góða veðrinu á mið vikudaginn. ABmyndKIE Campari ER sterkt vín Leiðrétting frá Á.T.V.R. Vegna fréttar i Alþýðu- blaðinu i gær, þar sem haldið er fram að létt vin hefðu verið meðal þess sem hækkað var á dögunum, hafði Svava Bene- diktsdóttir, samband við blaðið og bað um að fá að koma á framfæri leiðréttingu. Svava hefur stjórn með innkaupadeildum ATVR. t fréttinni er meðal annars haft eftir skrifstofustjóra ATVR að Campari og Martini væru venjulega talin til léttra vintegunda. Svava sagði þaö ekki rétt. I áfengislögum er markið milli léttra vina og sterkra 21%. Campari er 28,5% og þvi sterkt. Svava vildi einnig taka fram að þar sem i fréttinni er minnst á hækkun á Martini er átt viö Martini bitter, sem er tiltölu- lega nýtt á markaðnum, en ekki þann Martini (vermút) sem flestir kannst við. — Það var leiðinlegt að sjá þetta haft eftir starfsmanni hér, þvi þetta er rangt. Allt starfsfólkið hérna ætti að vita að Campari telst til sterkra vina, en þar sem þessi vissi það ekki, átti hann að visa á einhvern annan, sagði Svava. —AB Loðnan heldur sig enn út af Vestfjörðum Frá miðnætti I fyrrinótt og til hádegis i gær tilkynntu 5 loðnuskip um afla til loönu- nefndar. Það voru Guðmund- ur RE með 600 tonn, sem fara áttu til Keflavikur, Sigurður RE með 550 tonn til Siglu- fjarðar, Eldborg GK með 420 tonn til Siglufjaröar, Loftur Baldvinsson með 270 tonn til Siglufjarðar og Rauösey meö 180 tonn til Siglufjarðar. Skipin voru öll að veiðum á miðunum útaf Vestfjörðum. ES HÓTEL STYKKISHÓLMUR Höfum opnað nýtt og glœsilegt hótel í Stykkishólmi í sumar Óll herbergi sérlega vönduð með baði Útvegum einnig bátsferðir um Breiðafjarðareyjar Einnig er í hótelinu 300 manna danssaiur sem er tilvalinn til ráðstefnu- og skemmtanahalds HÓTEL STYKKISHÓLMUR Stykkishólmi sími 93-8330

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.