Alþýðublaðið - 29.07.1977, Blaðsíða 6
6
Föstudagur 29. }úlí 1977. j.
3d 1 fl lAA imtfir Quíar
ou á LU at iuu ungir ovidr vinnuleysisskrá
ein h liðin á vandamálum æskufólks í Svíþjóð
Kreppan i sænsku
efnahagslifi bitnar
fyrst og fremst á ungu
fólki sem leitar út á
vinnumarkaðinn. Nú er
ástand meðal ungs
verkafólks verra en
nokkru sinni siðustu ár
eða áratugi. Krafan um
aðgerðir stjórnvalda
heyrist æ viðar. Um
þessar mundir eru
32.000 manns undir 25
ára aldri atvinnulaus i i
Sviþjóð. Þetta er um
7.000 manns fleira en á
sama tima i fyrra og á-
standið mun versna
þegar liða tekur á
haustið.
— Við erum mjög uggandi
vegna þróunarinnar, segir Ing-
rid Jonshagen á sænsku at-
vinnumálaskrifstofunni. — Við
munum þvi hefjast handa strax
aö loknum sumarleyfum til að
finna lausn á vandanum.
Hún bendir á að aldurshópur-
inn 16-19 ára veröur einna harð-
ast úti. Flestir á þeim aldri
koma beint úr skólakerfinu án
þess að hafa fengiö neina telj-
andi starfsþjálfun til eins eöa
neins. Þeim er bara hent si
svona út i atvinnulifið. Stúlk-
urnar eru ver settar en piltarn-
ir. 1 flestum tilfellum er þýöing-
arlaust fyrir þær að leita aö
vinnu upp á eigin spýtur og þvi
minni eru möguleikarnir sem
menntun þeirra er minni.
Aöur fyrr tók vefnaðar- og
fataiðnaðurinn við mörgum
ungum i vinnu, en nú er fram-
boð vinnuafls i þeim greinum
einnig meira en eftirspurn.
Uppsagnir og niðurskuröur i
rekstri eru algengari fyrirburö-
ir en nýráðningar. I verk-
smiöjum og á verkstæöum er á-
standið svipað.
Fram til þessa hafa sænsk
stjórnvöld reynt tvær leiðir,
sem báöar eru kunnar, til að
reyna að sporna við atvinnu-
leysiungmenna. Það erreynt að
afla ungu verkafólki meiri
menntunar, og hins vegar er
reynt að setja á fót nýja vinnu-
staöi fyrir ungt fólk.
— Við vonumst til að geta birt
áætlanir um frekari aðgerðir
með haustinu, segir Per Ahl-
mark, vinnumálaráðherra Svfa.
Við álitum vænlegustu .leiðina
þá, aö efla menntunarkerfið
þannig að ungt fólk komi betur
undirbúiöútá vinnumarkaðinn.
Á hverju ári koma 25.000 Svi-
ar út úr skólakerfinu þar, án
þess að hafa öölast eiginleg
þekkingu sem gerir þá færa um
að standa sig á vinnumarkaði.
Sumir reyna að bæta úr skák
með námskeiöum og öðru þvi
liku, en það er sjaldnast nægi-
legttilaö vega uppá móti skort-
inum á þokkalegri reynslu og lé-
legum einkunum.
Starfstrygging
Sænsk stjórnvöld hafa reynt
aö taka upp svonefnda „starfs-
tryggingu”. Sveitarfélögin eiga
þá að bjóöa ungu fólki upp á
möguleika til ráðningar við ein-
hverstörf, nám, þjálfun o.s.frv.
— En þrátt fyrir þessa
„tryggingu”, hafa ekki allir
getað notið góösafhenni.
Það eru mörg önnur vanda-
mál sem setja strik i reikning-
inn. Lauslæti, eiturlyf janeyzla,
áfengisvandamál — allt eru
þetta vandamálsem ungt fólk á
við að glíma. Enginn veit raun-
ar hve mikill fjöldi fólks i Svi-
þjóð það er sem á I erfiðleikum
vegna þessa, en það er álitlegur
hópur.
— Við vitum aö margt af þvi
unga fólki sem við sjáum koma
á atvinnumiðlunarskrifstofurn-
ar hjá okkur er vel þekkt á
skrifstofunum sem annast alls
kyns félagslega aðstoö, segir
talsmaður félagsmálayfirvalda
iSviþjóð. Nærri þvi hver einasti
atvinnuleysingi úr röðum ungs
fólks á við einhvers konar fé-
lagsleg vandamál að striöa.
Per Ahlmark, vinnumálaráð-
herra Svla, lýkur máli sinu með
þessum orðum:
— Atvinnulaust æskufólk er
mesta sóun sem fyrir finnst,
bæði á likamlegum og efnisleg-
um verðmætum.
En þráttfyrir aö allir geti tek-
ið undir með ráöherranum og
þrátt fyrir að allir séu sammála
um að vandamálið sé til staðar
og að finna þurfi lausn á þvi, þá
er staðreyndin sú að það virðist
óhemju erfitt aö ráða við vand-
ann. Hannhefur hins vegar auk-
izt stööugt að umfangi.
EFTIR ÞRIGGJA ÁRA RARÁTTU UM YFIRRÁÐARÉTT YFIR BARNI:
Kemur Súsanna heim til Svíþjóðar á ný?
Fyrir þremur árum
rændi Stanko Vuksan-
ovic litlu dóttur sinni
Súsönnu i miðri Hels-
ingjaborg i Sviþjóð og
flutti hana með sér á
laun til heimalands
sins, Júgóslaviu. Hann
ók á nýja BMW-bilnum
sinum i gegnum eitt
Evrópulandið af öðru,
þar til hann kom heim,
en i aftursætinu lá
þriggja ára gamalt
stúlkubarnið. Hann
staðnæmdist aðeins á
leiðinni i allra brýnustu
erindagjörðum og fór
eins hratt yfir og hann
mögulega gat. Þegar
móðir Súsönnu,
Anna-Lena Körner,
Súsanna hefur verið I þrjú ár i
Júgóslaviu og á að hefja skóla-
göngu i haust. Hún hefur týnt
niður því litla sem hún skildi I
sænsku og eina orðiö sem hún
þekkir er „hej”.
Hin raunverulega móðir,
Anna-Lena Körner 25 ára, ætlar
að berjast svo lengi sem hún lif-
ir fyrir þvi aö endurheimta dótt-
ur sina.
saknaði loks barns
sins, var það og faðir-
inn komin langt frá
landamærum Sviþjóð-
ar.
Allan timann frá þessu sér-
stæða mannráni hefur
Anna-Lena Körner barizt við aö
fá barn sitt aftur. Hún hefur
skrifað Tltó, áttræðum mar-
skálki og forseta Júgóslaviu,-
hún hefur skrifað Olof Palme og
hún hefur hitt að máli Sven
Anderson, fyrrum utanríkisráð-
herra Svia. En allt hefur komiö
fyrir ekki — fram til þessa.
Afskipti dómstóla
Dómstóll einn I Júgóslaviu
hefur fjallað um mál þetta og
komst hann að þeirri niður-
stöðu, að Stanko hafi haft rétt til
að færa Súsönnu með sér heim,
og að það hafi verið barninu fyr-
ir beztu. Einnig sagði I áliti
dómstólsins, að Súsanna hafi
verið svo litil þegar hún yfirgaf
Sviþjóð að hún komi ekki til meö
að sakna sins fyrsta föðurlands!
Anna-Lena Körner hefur nú
fengið þvi áorkað að málið hef-
ur verið tekið til meðferðar á
efri stigum i dómkerfi Júgó-
slaviu og bindur hún miklar
vonir við að þar fái málið aðra
meðferð.
Gagnrýni á niðurstöðu
dómsins
Margir Sviar sem nærri þessu
máli hafa komið, gagnrýna
harkalega niðurstöðu dómstóls-
ins sem fyrr er getið. Ekki slzt
eru starfsmenn sænska sendi-
ráðsins I Belgrad ómyrkir I
máli um dómstólinn. Segja þeir
að móðirin hafi undantekning-
arlaust átt að fá yfirráðarétt yf-
ir barninu, þar sem Anna-Lena
og Stanko hafi ekki veriö I
hjónabandi.
Fyrsti ritari við sænska sendi-
ráðið, Ulf Svensson, hefur mikiö
starf innt af hendi viövikjandi
málinu og hann álitur málið
ekki li?gja ljóst fyrir, fyrr en
æðsti dómstóll i Júgósíaviu hef-
ur fjallað um það.
Anna-Lena Kröner er siður en
Framhald á bls. 10
íl*0’
PðSTSENDUM
TR0L0FUNARHRINGA
Joli.mnts Utnsson
í..ma.iurgi 30
«-mn 10 200
0
Steypustöðin iif
Skrifstofan 33600
Afgreiðslan 36470
Sprengingar
Tökutn að okkur fleygun,
borun og sprengingar.
Véttokni bf.
Simi á daginn
84911 á kvöldin 27924.