Alþýðublaðið - 29.07.1977, Blaðsíða 5
Föstudagur 29. júlí 1977. 5
hefur frumkvæðið
um að efla áhuga og áhrif
almennings á stjórnmálum
Alþýðuflokkurinn
Nú hafa próíkjör Alþýöuflokks-
ins verið ákveöin i fimm kjör-
dæmum landsins. t einu kjör-
dæmi, þ.e. Noröurlandskjördæmi
vestra, veröur ekki prófkjör. Þá
hefur einnig veriö ákveöiö próf-
kjör vegna borgarstjórnarkosn-
inganna i Reykjavik. Samkvæmt
þessu er nú einungis eftir aö
ákveöa um prófkjör i tveimur
kjördæmum landsins, þ.e.a.s.
Vesturlandskjördæmi og Austur-
landskjördæmi.
Alþýðublaöiö náöi i gær tali af
formönnum kjördæmisráöa i
nokkrum kjördæmum og for-
manni fulltrúaráösins i Reykja-
vik, og spurðist fyrir um gang
mála.
Alþýðuflokkurinn
í sóknarhug á
Suðurlandi
Þorbjörn Pálsson formaður
kjördæmisráös Suöurlands sagöi
aö búiö væri aö ákveöa prófkjör
10. og 11. september, en fram-
boösfrestur rennur út 2. ágúst.
Þorbjörn sagöi aö prófkjöriö á
Suðurlandi væri að þvi leyti sér-
stakt, að þar yröi kosiö um menn i
þrjú efstu sætin og hefur kjör-
dæmisráö beint þeim tilmælum
til frambjóðendanna, aö þeir gefi
kost á sér i öll þrjú sætin.
„Kosturinn við þetta form er
fyrst og fremst sá, að fólkið ræöur
sjálft hvern þaö kýs i efsta sætiö,
og siöan i næstu sætin þar á eft-
ir,” sagöi Þorbjörn.
Þá má einnig bæta þvi við, aö
kjördæmisráö var áöur búiö aö
samþykkja framboö Magnúsar
H. Magnússonar i 1. sætiö, en
hann óskaöi eftir þvi sjálfur að
prófkjör yröi látiö fram fara eigi
aö siður.
Þorbjörn Pálsson sagði aö þaö
væri mikill hugur i mönnum og
stefnt væri aö þvi aö Alþýöu-
flokkurinn fengi kjördæmakosinn
mann i Suðurlandskjördæmi.
Það verður
mikið unnið á
Vestfjörðum
Agúst H. Pétursson formaöur
kjördæmisráös Vestfjaröa sagöi,
aö þar yröi kosiö um tvö efstu
sætin og mundi prófkjör fara
fram i septemberlok. Framboös-
frestur hjá þeim rennur út 15.
ágúst og sagöi formaöur aö þá
yröi endanlega ákveöinn próf-
kjörsdagur eða dagar.
„Við vitum ekki hve umfangs-
mikið þetta veröur fyrr en fram-
boðsfresturinn er útrunninn, og
þá munum viö miöa prófkjörs-
daginn við það”, sagði Agúst H.
Pétursson á Patreksfiröi.
Umfram þetta vildi Agúst litiö
segja annað en þaö, að menn
væru almennt bjartsýnir og
vonuöust til aö prófkjöriö örvaði
þátttöku almennings og áhuga
fyrir framgangi Alþýöuflokksins.
I Reykjavík
verða tvö
prófkjör
Björgvin Guömundsson for-
maöur fulltrúaráðsins i Reykja-
vik sagöi aö búiö væri aö ákveöa
prófkjör, bæöi vegna borgar-
stjórnarkosninganna og alþingis-
kosninga. „Stjórn fulltrúaráösins
taldi eölilegra aö prófkjöriö
vegna borgarstjórnarkosning-
anna yrði á undan þar sem aug-
ljóst væri aö borgarstjórnarkosn-
ingar yröu á undan þingkosning-
um.”
Björgvin sagöi aö fulltrúaráöiö
mundi siöan kjósa sérstaka kjör-
stjórn til þess að stjórna prófkjör-
inu, og einnig væri eftir aö taka
ákvaröanir um ýmiss önnur atriöi
s.s. utankjörfundaratkvæöa-
greiöslu o.fl.
Prófkjörið vegna borgar-
stjórnarkosninganna veröur 1. og
2. október, en framboösfrestur
rennur út 7. september. Prófkjör-
iö vegna þingkosninganna i
Reykjavik hefur veriö ákveöiö 12.
og 13. nóvember, en framboös-
frestur rennur út 15. október.
Björgvin sagöi aö engar tillögur
um frambjóöendur heföu borizt
enn, enda væri mikill timi til
stefnu. Hinsvegar taldi hann
miklar likur á þvi að ekki mundi
skorta frambjóöendur þegar þar
aö kæmi.
Unnið þétt og
sígandi í Norð-
urlandi eystra
Formaður kjördæmisráösins i
Noröurlandskjördæmi eystra er
Þorvaldur Jónsson á Akureyri.
Þegar Alþýöublaöið náöi tali af
honum, sagði hann aö allt væri
við þaö sama. Þaö væri unniö aö
undirbúningi prófkjörsins, og Al-
þýöuflokksmenn væru yfirleitt
mjög bjartsýnir um árangur.
Prófkjör i Norðnrlandi eystra
veröur haldiö 15. og 16. október,
en framboðsfrestur rennur út 31.
ágúst. Eins og kunnugt er voru
noröanmenn fyrstir til aö taka
ákvöröun um prófkjöriö, og ekki
verður annaö sagt en þeir hafi
gengið af eldmóöi til starfa.
Mikill áhugi
fyrir prófkjörinu
á Reykjanesi
Að lokum hafði Alþýöublaöið
samband við Hrafnkel Asgeirsson
formann kjördæmisráös Reykja-
neskjördæmis, Hrafnkell sagöi aö
stjórn fulltrúaráðsins heföi
ákveöiö prófkjöriö 8. og 9. októ-
ber, en framboösfrestur yröi til
10. september. Þessi ákvöröun
stjórnar kjördæmisráösins verö-
ur siðan lögö fyrir fund i kjör-
dæmisráðinu, sem haldinn veröur
11. ágúst.
Hrafnkell sagöi aö augljóst
væri að áhugi fyrir prófkjörinu
væri mikill en þar veröur kosiö
um menn i tvö efstu sæti listans.
„Takmark Alþýöuflokksins i
Reykjaneskjördæmi er aö endur-
heimta það þingsæti, sem
flokkurinn tapaöi i siöustu kosn-
ingum,” sagöi Hrafnkell. — BJ
Vestfirðir
Septemberlok
7. septemberl—1. 2. október
15. október -—12.13. nóvember
Suðurlam 1 2. ágúst : 10.11 september
Þessitafla sýnir hvenær prófkjör vegna alþingiskosninga veröa haldin I þeim fimm kjördæmum, sem þegar hafa tekið ákvöröun slna. Þá sýnir taflan einnig prófkjör vegna
borgarstjórnarkosninganna IReykjavIk og hvenær framboösfestur rennur út I hverju tilviki um sig.