Alþýðublaðið - 05.08.1977, Síða 1

Alþýðublaðið - 05.08.1977, Síða 1
FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST_ 155. tbl. —I1977 — 58. árg. Askriftar- síminn er 14-900 Nú er kátt í Eyjum Gott veður og f jöldi manns á Þjóðhátíð Fimmtudagur föstu- dagur og laugardagur eru aðalannadagarnir þegar um er að ræða flutninga á fólki sem ætlar á Þjóðhátið þeirra Vestmannaey- inga, var okkur tjáð á afgreiðslu Flugfélags islands i gær. Fólk hugsar siðan til heim- ferðar á sunnudag og mánu- dag. Fyrri þrjá dagana eru fyrirhugaðar um það bil 24 ferð- ir til Eyja og má þvi reikna með þvi að um það bil 1200 manns fari þangað flugleiðina, þvi all- ar þessar vélar eru svo til full- bókaðar. Siðari dagana eru fyrir- hugaðar um 18 ferðir, en enn mun eitthvað af sætum laust i þær ferðir. Og ekki ættu þeir, sem að hátiðinni standa, að þurfa að óttast um veðrið, þvi að i gær- kvöldi spáði Veðurstofan áframhaldandi góðvirði hér sunnanlands. Alþýðublaðið ósk- ar Vestmannaeyingum og öðrum sem sækja Þjóðhátið þeirra ánægjulegrar helgar. Loðnuaflinn það sem af er vertíðinni: Rúmar 20 þúsund lestir Um klukkan 17 sið- degis i gær höfðu fimm skip tilkynnt um loðnu- afla það sem af var sól- arhringnum, samtals 2480 tonn. Þetta voru Keflavik KE með 240 tonn, Vikingur AK með 1300 tonn, Guðmundur Kristinn SU með 110 tonn, Huginn VE með 500 tonn og Svanur RE með 330 tonn. Loðnuveiðar stunda nú kring- um 25 skip og hafa þau það sem af er vertiðinni, landað rúmum 20 þúsund tonnum. bróarrými þraut á Bolungar- vik i gær eftir að Huginn og Svanur höfðu tilkynnt um afla þangað, en viðast hvar annars staöar var hægt að taka við meiri loðnu. Að sögn Andrésar Kristjáns- sonar er geymsluþol loðnunnar sem nú veiðist mun lélegra en þeirrar sem veiðist yfir vetrar- mánuðina sökum þess að hún er feitari núna og einnig er meiri áta i henni. Þetta þýðir það að raunveru- legt þróarrými verksmiðjanna i landi er minna nú en s.l. vetur, en sem komið er hefur það ekki valdið teljandi vandræðum svo AB sé kunnugt um. — GEK í gær heimsóttublaðamaðurog ljósmyndari Alþýðublaðsins Hjálpartækjabankann. Þessi þarfa stofnun hefur nú verið starfrækt i rúmt ár og ef dæma má eftir aðsókninni i tæki bank- ans hefur sannarlega verið brýn þörf fyrir slika starfsemi. Sjá bls. 6-7 „Esperanto er mitt annað móðurmál”, segir Frakkinn Francois Simonnet, i viðtali við Alþýðublaðið. Simmonet er einn af þátttakendum i alþjóðaþingi esperantista, sem stendur yfir hér á landi um þessar mundir. Hann er kennari að mennt og starfaði meðal annars i Viet-Nam i fimm ár og var þar er stjórnarskiptin urðu i april 1975. Sjá nánar bls. 2 Rannsokn í máli Þjóðverjans á lokastigi Rannsókn i máli þýzka stórþjófsins Ludwig Lugmeier, sem afhjúpaður var fyrir tilviljun siðastliðið föstudagskvöld er nú vel á veg komin. Verður málið væntan- lega sent saksóknara rikisins til ákvörðunar um frekari framhald einhvern næstu daga. Að sögn Baldurs Möller ráðu- neytisstjóra i dómsmálaráðu- neytinu mun ráðuneytið ekki taka ákvörðun um hvaö gert verður við Lugmeier fyrr en saksóknari hefur tekið afstöðu. til málsins og fyrir liggur hvort farið verður fram á frekari rannsókn. Sagði Baldur að þegar afstaða saksóknara lægi fyrir væri fljót- gert fyrir ráðuneytið að taka ákvörðun um það sem að þvi snéri. Ekki hefur borizt formleg beiðni frá þýzkum stjórnvöldum um framsal mannsins, en slika beiðni taldi Baldur i sjálfu sér ónauðsynlega i þessu tilviki þar eð önnur og einfaldari leið væri fyrir hendi, en sú leið væri að visa manninum úr landi. Slikt gæti undir þessum kringum- stæðum talizt fullkomlega eðli- leg ráðstöfun. —GEK Eins og fólk hefur tekið eftir hvar sem er á landinu, er allt morandi af érlendum ferða- mönnum hvar sem maður kemur. Þessa er- lendu ferðamenn hitti ljósmyndarinn niður i bæ i gær, þar sem þau gengu niður Laugaveginn i góða veðrinu með bros á vör. — (AB mynd KIE)

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.