Alþýðublaðið - 05.08.1977, Page 7

Alþýðublaðið - 05.08.1977, Page 7
Föstudagur 5. ágúst 1977 7 landssamband fatlaðra, hefur gefið út, kemur fram að nær 1/10 hverrar þjóðar kemst ekki óhindrað leiðar sinnar. Engum blöðum er um það að fletta að þessi tala á ekki siður við á Is- landi. Það er kunnara en frá þurfi að segja að hreyfilamaðir eiga mjög erfitt með að komast erinda sinna hér. Byggingar, hvort sem um er að ræða heimili eða opinberar stofnanir, eru ekki hannaðar með það i huga að um þær þurfi að komast fólk, sem ekki hefur tvo fætur heila. Fólk i hjólastólum á erfitt með að komast um, þvi alls staðar eru tröppur, stigar, þröskuldar og annað til hindrunar. Dyr eru viða of mjóar, lyftur of litlar, svo ekki sé minnst á almennngs- salerni, sem yfirleitt eru svo litil að ekki er nokkur vegur að koma hjólastól þangað inn. Samfélag það sem við lifum og hrærumst i gerir ekki ráð fyrir nema alheilum. —AB Auðvitað skemmtilegast að tefla við stórmeistara segir hinn 16 ára Norðurlanda- meistari unglinga í Jón L. Árnason skák- maður er sem kunnugt er, nýkominn heim frá Finn- landi, þar sem hann tók þátt í Norðurlandamótinu i skák. Jón keppti þar bæði í unglingaflokki og karlaflokki og sigraði í þeim fyrri með alls 7 1/2 vinning, og krækti sér þar með í titilinn Norður- landameistari unglinga 1977. Eftir nokkurt tiltal fékkst Jón til að ræða stuttlega við blaða- mann og byrjuðum við á þvi að spyrja hann hvenær áhugi hans á skák hefði fyrst vaknað. — bað var 1972, á heims- meistaraeinviginu, þegar þeir kepptu hér Fischer og Spassky. Ég hafði kunnað mannganginn áður, en ekkert teflt að ráði, sagði Jón. Þá hélt ég með Fisch- er en eftir mótið fékk ég bókina „100 beztu skákir Spassky” og hélt meðhonum eftir það. En þá var þaö bara orðið of seint. Þú hlýtur að hafa æft þig mik- ið síðan, þar sem þú ert orðinn Norðurlandameistari eftir fimm ár? — Já, ég sé það núna, ég hlýt að hafa æft mig mjög mikið. Hvenær og hvernig æfirðu Þ‘g? — Ég æfi mig eiginlega ekk- ert, ég veit ekkert hvernig ég fer að þessu. Annars er það mis- jafnt eftir dögum, bara eftir þvi hvernig liggur á manni. Ég les þó nokkuö af bókum, og svo tefl- um við mikið bræðurnir, ætli við séum ekki álfka góðir, sagði hann þegar við spurðum hvor væri betri. Það var ekki I fyrsta sinn sem þú ferð út? — Nei, eg fór i júli út til Bandarikjanna og keppti þar I móti sem kallast „World open”. Maður er alltaf á flakki. Jón sagðist hafa keppt þar viö stór- menni viða aö úr heiminum, og þegar við spurðum hann hvort ekki væri einhver skákin minnisstæðúst.sagði hann svo ekki vera en hætti viö: — Það er auövitað alltaf skemmtilegast að keppa við stórmeistara. skák Hvað tekur svo við næst? — Ég fer i september út til Frakklands og keppi þar á heimsmeistaramóti sveina yngri en 17 ára. Siðastliöinn vetur stundaði Jón nám i Menntaskólanum i Hamrahlið og sagði hann að þar væri mjög mikill skákáhugi, og skólinn væri Norðurlandameist- ari framhaldsskóla i skák. Auk þess hefur Jón siðastliðin þrjú ár verið i Tónlistarskólanum i Reykjavik og lært á pianó. Þeg- ar viö spurðum hann hvernig honum gengi að samræma allt þetta, skóiann pianónámiö og skákina, yppti hann bara öxlum og sagði það ganga ágætlega, en bætti við aö hann hefði auðvitað engan tima i það, ef blaðamenn væru sifellt að trufia sig. Svo okkur fannst bezt að kveðja i þetta sinn. Að lokum spurðum við Jón hvort hann hugsaöi eitthvað út i atvinnuskákmennsku. — Uss, ég hugsa ekki um svo- leiöis, sagöi hinn ungi Norður- landameistari. —AB Jón L. Arnason nýbakaður Norðurlandameistari unglinga i skák (AB mynd KIE) Hluti þeirra verðlaunagripa, sem Jóni hefur hlotnazt.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.