Alþýðublaðið - 05.08.1977, Side 9
bU$M Föstudagur 5. ágúst 1977
9
SEK EÐA
SAKLAUS?
eftir: D.Y.Cameron
veginn átti hún auðveldara með
að tala viö sir Malcolm en segja
frk.Maxwell álit sitt.
— Mér skilst, að það hafi dálitið
orðið.. höh.. upp á teningunum.
Það er kominn ungur maður, sem
segist vera unnusti Katy Lights.
Corinne tók eftir, að hann sagði
„segist”. — Já! Hún er hringlaus
og stúlkurnar i hennar deild hafa
aldrei heyrt hana minnast á
nokkurn vin, hvað þá unnusta.
— Nú, jæja, sagði hann. — Já,
sumir vilja halda einkalifi sinu
aðskildu frá starfinu.
Corinne hafði lika hugleitt það,
en hún vissisamt, að það var und-
arlegt, að enginn vissi neitt um
Jack Millar og það sagði hún lika
við sir Malcolm.
— Ég viðurkenni, að mér finnst
það undarlegt, Corinne, en ungi
maðurinn getur nú haft á rettu að
standa, svaraðihann. —Égá við,
að hann kemur of hreint fram til
að annað geti staðist. Það er mjög
heimskur maður eða glæpamað-
ur, sem kemur og heldur þvi
fram, að hann sé unnusti stúlku,
ef ekkert slikt er fyrir hendi.
— Hann er ekki komin enn!
— En þér sögðuð, að hann væri
á leiðinni. Hvað sögðuð þér hon-
um i slmanum?
— Að Katy væri ekki heima.
— Hvað meira?
— Ég man það ekki, en ég sagði
honum, að Katy hefði orðið fyrir
slysi.
— Hvernig brást hann við þvi?
— Hann virtist hryggur og hon-
um varð mikið um.
— Það er eðlilegt.
— Ég sagði honum, að hún væri
meðvitundarlaus.
— Auðvitað! Mér er sagt, að
nóttin hafi verið góð, eða eins góð
oghægt er I hennar sporum. Hann
hallaði sér aftur á bak I stólnum.
— Mér skilst, að þér eigið fri i
næstu viku, Corinne?
— Já!
- Ætlið þér i ferðalag?
Corinnehikaöi. Hún var búin að
segja frk. Maxwell, hvers vegna
hún hafði óskað eftir frii, og hún
var viss um, að sir Malcolm vissi
það vel, en hún svaraði spurningu
hans vingjarnlega og sagöi hon-
um frá heimsókn frænku sinnar.
— Svo að þér verðið hér kyrr?
Þér farið vist með frænku yðar i
ferðir um nágrennið og sýnið
henni alla fallegu staðina hér i
kring, en þér verðið samt i
Pendetruin?
—• Já, svaraði Corinne, en hugs-
aði: Hvað kemur næst?
— Þannig, að þér getið fylgzt
með Katy Light fyrir okkur á
meðan?
— Já, það get ég!
— Við ætlum að hringja til St.
Lukes til að fá læknaskýrsluna,
en þér viljið sjálfsagt heimsækja
sjúklinginn, og... Hann baðaði út
höndunum. — Hafið samband viö
okkur, ef þér getið... — Þannig,
að þér getið fylgzt með Katy
Light fyrir okkur á meðan?
— Já, það get ég!
— Við ætlum að hringja til St.
Lukes til að fá læknaskýrsluna,
en þér viljið sjálfsagt heimsækja
sjúklinginn, og... Hann baðaði út
höndunum. — Hafið samband við
okkur, ef þér getið... hringið i frk.
Maxwell... látið okkur vita, ef við
getum eitthvað gert fyrir frk.
Light.
— Já.
— Ég er hér umbil sannfæröur
um, að við þurfum ekki að óttast
neinn leika, sagði hann. — Það
hefur verið athugað gaumgæfi-
lega, en það væri gott, ef þér gæt-
uð aðgætt samband Jack Millar
og Katy Light, og komist að þvi,
hvort það er eins og hann heldur
fram. Nú reis hann á fætur. — Ég
vona, að vikan með frænku yðar
verði skemmtileg.
Corinne var hálfringluð, þegar
hún fórút,og henni fannst, að það
hefði verið leikið á sig. Fyrst
hafði sir Malcolm gefiö i skyn, að
hann álitið liklegt, að Katy væri
flækt i eitthvað vafasamt, en nU
hafnaði hann þvi nær algjörlega
og lét hana lita eftir sjúkling-
um...
5. kafli.
Sama kvöld kom Harold til
Númer Tiu.
— Er einhver heima? spurði
hann eins og hann var vanur.
— Hérna! hrópaði Corinne úr
eldhúsinu. Hún hafði verið að
baka fyrir næsta dag og nú voru
kökurnar komnar inn f ofninn,
svo að hún gat farið út f garð til
Harolds.
— Afsakaðu, að ég komst ekki
út í gær til að fylgja þér heim.
— Það gerði ekkert til! ÞU
varst að vinna.
— Já, ég var að þvi, og ég vildi
siður láta pabba vera einan um
allt saman.... hann hefði haldið
áfram, þó að ég færi. Hann tók
um olnboga hennar og þrýsti. —
Þetta eru fallegar rósir, bætti
hann við og benti á rósarunna
með ljósrauðum rósum á og þau
gengu um garöinn til að skoða
fallegu haustblómin. Svo sagði
hann henni, hvað hann ætlaði að
rækta í nýja gróðurhúsinu sinu. —
Appelsinur og sitrónur, svo að ég
verð að kynda vel.
Hann stóð við i klukkustund og
hagaði sér, að þvi er bezt varð
séð, alveg eins og venjulega, en
Corinne fann að það var veggur á
milli þeirra, og húnvelti þvi fyrir
sér, hvort hún ætti að spyrja hann
að þvi, hvað væri að, en hún vissi,
hvernig hann gat farið undan i
flæmingi, ef hann vildi ekki svara
einhverju, svo að hún lét það
vera.
Hún kyssti hann ástúðlega þeg
ar hann sagðist vera á förum, og
veifaði til hans, en ánægð var hún
ekki.
Svo kom faðir hennar Ut og néri
saman höndunum.
— Brrr, það er farið að kólna i
veðri. Er Harold farinn?
— Já, hann gat ekki verið leng-
ur.
— Hvað um bréfið, sem þú
vildiraðégskrifaðiTed Drayton?
A ekki að senda umsóknina?
Staðan verður ekki laus um alla
eilifð.
Corinne hló kuldaiega. — Har-
old vill hana ekki.
— NU! Faðir hennar náði i stól
undir eldhúsborðinu og settist á
hann. —Hvers vegna hefur hann
skipt um skoðun?
— Ég veit það ekki! Ég held, að
hann hafi aldrei viljað hana.
Faðirhennarleithvasstá hana.
— En ég hélt, að þið.... svo það
var þin hugmynd, ekki hans?
— Það var það vist aö nokkru
leyti, en hann vssi, að ég var á
höttunum eftir stööu handa hon-
um, og hann sagði aldrei hreintUt
að ég skyldi hætta þvi, og þessi
staða virtist sú eina rétta fyrir
hann.
Faðir hennar setti stút á var-
imar. — Það mætti ætla það, en
rædduö þið málið vel? Hann beið
ekki svars. — Ef þið gerið það
færðu aö vita, hvers vegna hann
vill ekki sækja um stöðuna, og sú
ástæða er sjálfsagt nægileg.
— Hvers vegna segirhann mér
hana þá ekki?
Faðir hennar setti aftur hugs-
andi stút á munninn. — Stundum
finnst öörum ástæður, sem okkur
finnst eðlilegar, óeölilegar. Það
kemur lika fyrir, að fólk gerir
eitthvað af tilfinningalegum or-
sökum, en ekki rökréttum.
Siminn hringdi einmitt, þegar
hún ætlaði aö svara, og nú tók hún
hann.
— Halló?
— Þetta er Tim Masters! Mig
langaði til að spyrja....
— Já? sagði hún uppörvandi,
en mundi svo, að hún hafði ekkert
gert i blómakaupunum, en hann
hélt áfram að tala áður en hú gat
beðið afsökunar.
— Getið þér komið með mér i
St. Lukes i matmálstimanum á
morgun? Ég veit, að ég fer fram á
mikið, en sjúkrahúsið er Truin-
Moors megin við Pendetruin og
við gætum fengið okkur brauðbita
saman.
— Hvers vegna ekki? Ég gæti
verið lengur, ef þannig færi. Hvað
voruð þér að hugsa um?
— Ja, mér finnst svo ópersónu-
legt að hringja, og þar sem ég er
flæktur i málið, ætti ég að sýna
meiri áhuga á liðan Katys Lights.
Það er alltaf sama svarið, ef
hringt er á sjúkrahúsið:
„....henni liður vel eftir vonum”
Svo bætti hann við til skýringar:
— Ég ætlaöi að biða til kvölds, en
það er æfing á skólahljómleikun-
um.
— Og á laugardaginn kemur
Margaret frænka i heimsókn....
— Megið þér ekki vera að þvi
að fara i St. Lukes?
— Jú, jú, ég verð i leyfi i viku,
svoaðéghefnægan tima tilþess.
— Gott! Þá hittumst viö á
morgun!
Þau ákváöu a hittast kl. hálf
eitt, og þau fengu að lita inn til
Katy, þegar þau komu á sjúkra-
húsið. Hún var i einsmannsher-
bergi og afar veikluleg og kyrrlát,
en augun voru opin. Hún leit á
Tim, og þekkti hann auðvitað
ekki, og siðan á Corinne, en það
var ekki unnt að sjá, hvort hún
þekkti hana eða ekki.
— Hún þekkir mig litið, sagði
Corinne við hjúkrunarkonuna.
— Það getur liöið langur timi
þangað til, að hún fær minnið aft-
ur, en hins vegar.... Hjúkrunar-
konan brosti uppörvandi.
Svo sagði Corinne henni frá
Jack Millar.
— Þetta voru góðarfréttir. Þær
munu gleðja hana, þegar hún er
hressari. En sem sagt getur liðið
þónokkur timi þangað til, aö hún
fær minnið aftur.
Corinne og Tim snæddu
morgunverð á svölunum á Creek
Café og sögðu eins og allir aðrir:
— Er veðrið ekki gott fyrir þenn-
an árstima?
— Hafið er hljómkviða Corn-
walls, sagði Tim. — Tónlistin
dunar um strendurnar. Svo leit
hann af sjónurn og byrjaði að tala
um Katy. — Þetta voru nú góðar
fréttir, en ætli ég geti eitthvað
gert fyrir veslings stúlkuna?
— Rannsóknarstöðin sér um
allt, sagði Corinne sannfærandi.
— Engin peningavandræði?
spurði hann.
— Ekki nema hún hafi ein-
hverjum skyldum að gegna, sem
við vitum ekkert um. Hún hugsaði
um stund um einmanalegt lif
Katys, —En maður veit aldrei....
kannski það sé einhver annar auk
Jacks Millars?
— Fleiri unnustar? Hvenær áttu
von á honum?
— Hann ætlaði að koma eins
fljótt og hann gæti, en þar sem
hann er sifellt á feröalögum,
kemur hann varla fyrr en um
helgina. Hún hló við. — Ég ávarp-
aði ókunnugan mann á hæðinni i
gær, þvi að ég hélt, að hann væri
Jack Millar. Nú sagði hún honum,
hvað hefði komið fyrir.
— Veiztu hvað.... Tim leit af-
sakandi á hana. — Ég veit ekki,
hvers vegna, en mér hefur aldrei
komið til hugar, að þú værir trú-
lofuð!
— Ég er meðhring! sagöi hún
og lyfti hendinni.
— Annars er ég ekki vanur að
láta mér yfirsjást um svoleiðis.
Hann útskýrði ekki, aö hann hefði
talað mikiö um Corinne Fearnley
þar, sem hann bjó, og aö Susan
Pentree hafði aðvara hann: —
Farðu nú ekki inn á annarra
svæði. Hún er trúlofuö Harold
Stedham.
Nú sagði Tim hugsandi eins og
hann vildi mynda sér skýrari
mynd af Corinne. — Ertu ekki
fædd og uppalin i Cornwall? Hann
fór að tala um sérkenni þessa
héraðs og venjur þar og skömmu
Útvarp
Föstudagur
5. ágúst
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Frettirkl. 7.30, 8.15 (og forustu-
gr. dagbl), 9.00 og 10.00.
Morgunbæn kl. 7.50. Morgun-
stund barnanna kl. 8.00: Vil-
borg Dagbjartsdóttir les þýð-
ingu sina á „Náttpabba” eftir
Mariu Gripe (10). Tilkynningar
kl. 9.30. Létt lög milli atriða.
Spjallað við bændur kl. 10.05.
Morgunpopp kl. 10.25.
Morguntónleikarkl. 11.00: Sin-
fóniuhljómsveit Lundúna leik-
ur „Ouverture” eftir Georges
Auric og „Parade” eftir Erik
Satie: Antal Dorati stj. Filhar-
móniusveitin í Berlin leikur
„Vorblót” ballettmúsik eftir
Igor Stravinský: Herbert von
Karajan stj.
12.00 Dagskráin, Tónleikar. Til-
kynningar.
12.25 Veöurfregnir og fréttir.
Tilkynningar. viðvinnuma:
• Tönleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Sólveig
og Halldór” eftir Cesar Mar.
Valdimar Lárusson les sögulok
(15).
15.00 Miðdegistónleikar. Kamm-
ersveitin i Prag leikur
„Medea” forleik eftir Luigi
Cherubini: Jiri Ptacnik stjórn-
ar. Pierre Pierlot og Antiqua
Musica Kammersveitin leika
Konsertnr. 12 i C-dúr op. 7 fyrir
óbó og strengi eftir Tommaso
Albinoni: Jacques Roussel
stjórnar. Annie Jodry og Fon-
tainbleau-kammersveitin leika
Fiðlukonsert nr. 4 i F-dúr op. 7
eftir Jean-Marie Leclair: Jean-
Jacques Werner stjórnar.
Enska Kammersveitin leikur
Sinfóniu i B-dúr nr. 2 eftir Carl
Philipp Emanuel Bach: Rey-
mond Leppard stjórnar.
15.45 Lesin dagskrá næstu viku.
16.00 Fréttir. Tilkynningar (16.15
Veöurfregnir).
16.20 Popp.
17.30 „Fjöll og firnindi" eftir
Arna óla.Tómas Einarsson les
um ferðalög Stefáns Filippus-
sonar (9).
17.50 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Byrgjum brunnin. Margrét
Sæmundsdóttir fóstra flytur er-
indi: Börnin og umferðin.
20.00 Sinfóniskir tónleikar. Wern-
er Haas og óperuhljómsveitin i
Monte Carlo leika Konsert-
Fantasiu op. 56 fyrir pianó og
hljómsveit eftir Piotr Tsjaikof-
ski: Eliahu Inbal stjórnar.
20.30 Noregsspjall. Ingólfur Mar-
geirsson ræöir við Kára Hall-
dór leikara.
21.00 Kórar úr operum eftir Web-
er, Verdi, Leoncavailo o.fl. Kór
Ríkisóperunnar I Munchen o.fl.
syngja.
21.30 Ótvarpssagan : „Ditta
mannsbarn” eftir Martin And-
ersen-Nexö. Þýöandinn Einar
Bragi les (16).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Kvöldsagan:
„Sagan af San Michele” eftir
Axel Munthe. Þórarinn Guðna-
son les (24).
22.40 Afangar. Tónlistarþáttur
sem Asmundur Jónsson og
Guðni Rúnar Agnarsson stjórn-
a.
23.30 Fréttir. Dagskrárlok.
Sjónvarp
Föstudagur
5. ágúst
20.00 Fréttir og veöur
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.30 Norðurlandameistaramótið
i skák Umsjá Ingvar Asmunds-
son
20.45 Fljótasta skepna jarðar.
Dýralifsmynd um blettatigur-
inn i Afriku, fótfráasta dýr
jaröar. Þýðandi og þulur óskar
Ingimarsson.
21.10 Skattarnir enn einu sinni
Bergur Guðnason lögfræðingur
stýrir umræöum um skattamál
i tilefni af útkomu skattskrár-
innar 1977.
Þátttakendur: Björn Þórhalls-
son, formaður landssambands
islenskra verslunarmanna, Jón
Sigurðsson ráðuneytisstjóri og
Skúli Pálsson hrl.
22.00 Draugabærinn(Yellow Sky)
Bandariskur vestri frá árinu
1948. Aðalhlutverk Gregory
Peck, Anne Baxter og Richard
Widmark. Bófaflokkur rænir
banka og kemst undan við illan
leik til afskekkts bæjar, sem
kominn er i eyði, og þar er ekki
annað fólk en gamall maöur og
barnabarn hans, ung kona.
Þýðandi Jón Thor Haraldsson.
23.35 Dagskrárlok
n
IM TiHE
BOK 1
--N *—o
1977 bv Chicaqo T'ibune N Y NewsSynd Inc