Alþýðublaðið - 10.08.1977, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 10.08.1977, Blaðsíða 1
MIÐVIKUDAGUR 10. AGUST 1977 — Áskriftar- síminn er 14-900 Niður stigann? Nei, flugvélin er ekki stopp, og maðurinn i dyr- um vélarinnar er ekki að búa sig undir að fara niður stigann sem liggur niður á þilfar varðskips- ins. Hér eru flugmenn landhelgisgæzlunnar að búa sig undir að fleygja pósti niður á þilfar varð- skipsins úr um 500 feta hæð, og flugvélin er á 600 kilómetra hraða. Það er þvi eins gott fyrir varð- skipsmenn að leita skjóls þegar pakkinn lendir, þvi hraði hans mun vera svipaður og flugvélar- innar þegar hann lendir. Ljósmynd Ingólfur Kristmundsson Tek ummæli Ingvars ekki naerri mér — Enda ýmsu vanur segir Karl Ragnars Það vakti talsverða athygli manna að heyra einn Kröflu- nefndarmanna, Ingvar Gíslason, lýsa því yfir i útvarpsþætti Páls Heiðars Jónssonar s.l. sunnudag að eitt aðal vandamálið við Kröflu væri að starfsmenn Orkustofnunar hefðu ekki þá tæknilegu kunnáttu, sem til þyrfti að vinna gufu á háhita- svæði og i stað þess að afla þessarar þekking- ar erlendis væru menn að dunda sér við að þreifa sig áfram. „Ég get ekki lagt dóm á þessi ummæli,” sagði Karl Ragnars hjá Orkustofnun i samtali við Alþyðublaðifí: „Þetta er sjálf- sagt skoðun Ingvars og hvort hún er rett eða röng er ég ekki rétti maðurinn til að dæma um.” En kemur það ekki flatt upp á ykkur að fá sendingu af þessu tagi frá Kröflunefndarmanni? „O, nei, ég tek þetta ekkert nærrimérenda erégýmsu van- ur. Það gefur náttúrlega auga leið að i okkar starfsemi er ým- islegtsem beturmá fara. Þann- ig veit ég um fjölda marga aðila erlendis sem kunna miklu meira fyrir sér i þessum málum en við gerum. Hefði ekki verið æskilegra aö reyna að afla þeirrar þekking- ar? „Jú, jú en er það ekki það sem við erum alltaf að reyna? — GEK Utboð jarðstöðvar í desember Að öllu forfallalausu er áætlað að útboð á fyrirhugaðri jarðstöð Pósts og sima verði auglýst i byrjun desember næstkom- andi, en næstu þrjá mánuði mun Jarð- stöðvarnefndin, sem skipuð var fyrr á þessu ári, vinna að undirbún- ingi útboðsins i sam- vinnu við Svia sem hyggjast reisa sams- konar jarðstöð um svipað leyti og við. Þetta kom fram á fundi sem póst og simamálastjóri og Jarð- stöðvarnefndin efndu til með fréttamönnum i gær. Þar kom einnig fram að áætlaður bygg- ingarkostnaður jarðstöðvar af þeirrigerð, sem reistverður hér er um 3,5 milljónir dollara og er þá ekki talinn með kostnaður við sjálfvirka simsstöð sem reist verður samhliða jarðstöð- inni, en hann er áætlaður um 300 — 400 milljónir króna. Jarðstöðþeirrisem ætlunin er aö reisa hér á landi er fyrst og fremst ætlað að taka strax öll fjarskipti við hin Nörðurlöndin, en þau eru um helmingur sima- viðskiptanna við Evrópu. Þá er einnig sá möguleiki fyrir hendi að taka við sjónvarpssending- um um gervihnetti, en til að svo megi verða þarf að kaupa sér- stakt viðtökutæki og er sá kostn- aður ekki reiknaður með i' fram- angreindum tölum. Byggingartimi jarðstöðvar- innar er talinn verða tvö ár og er stefnt að þvi að fyrsta fulla starfsárið verði 1980 og að það árverði stöðin rekin með 35rás- um. Siðar er ætlunin að f jölga rás- Framhald á bls. 10 Kekkónen i heimsókn í dag: Vel- kominn! Kekkonen Finniandsforseti kenriur i dag i opinbera heim- sókn til tslands og er gert ráð fyrir að flugvél hans lendi á Reykjavikurflugvelli klukkan 11,30 fyrir hádegi. Opinber heimsókn forsetans mun standa i tvo daga, lýkur um tiuleytið á föstudagsmorgun. En siðan mun forsetinn eyða hér tveimur dögum við ferðalög og laxveiðar, en hann er mikili áhugamaður um laxveiöi, eins og itrekaðar heimsóknir hans i þeim tilgangi hingað til lands hafa löngu sýnt. Með Kekkonen er átta manna fylgdarlið, og meðal þeirra er utanrikisráöherra Finnlands, Paavo Vaýrynen og einnig am- bassador Finnlands á Islandi, Lars Lendeman. Sérlegur fylgdarmaður Urho Kekkonens, meðan á dvöl hans hér á landi stendur, verður Guð- laugur Þorvaldsson háskóla- rektor, en fylgdarmaður utan- rikisráðherrans verður Ölafur Egilsson deildarstjóri i utanrik- isráðuneytinu. Alþýðublaðið býður Urho Kekkonen forseta Finnlands velkominn til tslands og vonar að hann njóti dvalar sinnar hér. — hm

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.