Alþýðublaðið - 10.08.1977, Síða 3

Alþýðublaðið - 10.08.1977, Síða 3
Miðvikudagur 10. ágúst 1977 VINNUSTðBVUNUM FJÖIGMD - EN VINNUSTðÐVUNARDÖGUM FÆKKMN Fyrstu 6 mánuði þessa árs urðu samtals 259 vinnustöðvanir hér á landi. Til samanburðar má geta þess að allt árið í fyrra urðu vinnustöðvan- ir samtals 123 árið 1975 122, og árið 1974 94. Hins vegar hefur vinnustöðvunardögum L__ fækkað mjög verulega og þá ekki sízt ef tekið er til- lit til fjölgunar vinnu- stöðvana. í fyrra voru vinnustöðvunardagar samtals rúmlega 31.000, en fyrstu 6 mánuði þessa árs rúmlega 52.000. Þess- ar tölur eru til marks um breyttar aðferðir laun- þegasamtakanna í vinnu- deilum. Vinna er stöðvuð i tiltölulega skamman tíma í einu, en mjög oft. 1. maí sl. rann á enda gildistími samninga flestra félaga landverka- fólks innan ASÍ. Upp úr miðjum maí hófust síðan skyndivinnustöðvanir á nokkrum vinnustöðum hluta úr degi. Þann 3. júní skall svo fyrsta lands- hlutaverkf allið á, en landshlutaverkföllin urðu alIs 9 talsins, með nær al- gerri þátttöku félags- manna ASÍ. 13. júni hófust siðan starfsgreinaverkföll. Auk þess skall á verkfall við Sigöldu, og rafvirkjar hjá Reykjavíkurborg fóru í verkfall. Þessar upplýsingar komu fram í fréttabréfi Kjararannsóknarnefnd- ar. ES Námskeið í samfélags- fræði og skólastjórn — haldið í Kennaraskóla Íslands Þessa dagana sitja ýmsir kennarar og aðrir skólamenn á skólabekk i Reykjavik og nema- kennslufræði og sitthvaö varð- andi stjórnun skóla. Aðalfyrir- lesarar og leiðbeinendur á nám- skeiðinu, sem raunar er i tveim- ur hlutum, eru bandarisk hjón, Pat og Richard Endsley frá Berkeley i Kaliforniu. Fyrri hluta námskeiðsins er þegar lokið og sóttu hann aöallega kennarar og þeir sem unnið hafa að tilraunakennslu, alls um 30 manns. Var þar aðallega fjallaö um kennslufræði, og þá sérstaklega nýjar hugmyndir um samfélagsfræði, sem mótast hafa að undanförnu i Bandarikj- unum. Fjallað var um þróun kennslu i samfélagsfræðum i Bandarikjunum, stöðu hennar, markmiö og leiðir, einnig um þátt kennara/leiðbeinanda i náminu og margt fleira. A mánudaginn hófst svo siðari hluti námsskeiðsins, og fjallar hann aðallega um vandamál varðandi stjórnun skóla i við- asta samhengi, þátt yfirvalda, nemenda, foreldra og kenn- ara/skólastjóra I henni. Þennan hluta námskeiðsins sækja kenn- arar og fólk sem starfað hefur við skólarannsóknir. Þegar blaöamenn AB komu i húsnæði Kennaraháskólans i gær, voru þátttakendur á námskeiðinu önnum kafnir við úrlausn verk- efna og unnu þeir i starfshópum þá stundina. ARH Frá vinstri: Guftmundur Ingileifsson, námsstjóri f samféiagsfræft- um: Pat I. Endsley, kennslufræftingur frá Brekeley og Richard E. Endsley, kennslufræftingur frá Berkeley. (Myndir: ATA) Hér eru málin vegin og metin i starfshópum. „They are solving a reai problem” sagfti annar leiftbeinendanna vift blaftamann. rnmmmmm.mmmmmm^^^^m^^—mmmm.m—mmmmmJ Veðja á Kortsnoj — segir Friðrik Ólafsson stórmeistari — Ég veðja á Korts- noj, sagði Friðrik Ólafsson stórmeistari, þegar Alþýðublaðið hafði tal af honum i gær og spurði hann álits á áframhaldi áskorenda- einvigjanna og liklegan áskoranda heims- meistarans Karpovs að þeim loknum. — Miðað við taflmennsku þeirra tveggja sem eftir eru, Spasskis og Portish, þá verða þeir að tefla mun ákveðnar ef annar hvor þeirra á að geta unnið Kortsnoj i siðasta ein- viginu. Friðrik sagðist ekki álita að úrslit einvigis- ins milli Polugajevskis og Kortsnojs gæfu rétta mynd af styrkleikamun þeirra. 8 1/2 gegn 4 1/2 væri of mikill munur. — Það er auðséð að Poluga- jevski hefur ekki teflt af fullum kröftum, og einvigiö hefur feng- iö meira á hann en Kortsnoj. Þessi fjandskapur á tvennum vigstöðvum virðist hafa verið meira en hann þoldi. Og þaö er raunar eftirtektarvert, aö þegar fararstjóri hansbrá sérá FIDE- fundinn i Lusenne, þá vann Polugajevski. Og það var I eina skiptið sem hann vann skák i einvi'ginu. Ég held að honum hafi fundizt vera einum of mikið á heröum sér. Raunar tel ég aö einvigi þeirra hafi verið búið eftir 5 eða 6skákir. Þær sem á eftir komu voru i rauninni ekkert annað en tæknilegt „knock out”. — Hvorn telur þú liklegri til sigurs i einvigi þeirra Spasskýs og Portish? — Ég held að Portish standi óneytanlega betur aö vigi þar, miðað við árangur undanfar- inna ára. Spasský hefur ekkert sýnt i 2 til 3 siðustu ár og raunar hefur öll taflmennska hans I ein- viginu við Portish veriö slik, að hann virðist gera sér grein fyrir aö styrkleiki hans er ekki sá sami og hann var. Hann er var- kárari, sýnir ekki eins mikiö kapp og dirfsku og áður. Hins vegar er þvi ekki að neita, að þdtt Portish hafi verið I eilifri framför siðustu árin, þá hefur Spasský mun meiri reynslu i að tefla einvigi, og sú reynsla getur vissulega komið honum tilgóöa.Það gilda nefni- lega allt önnur lögmál um svona einvigi heldur en venjuleg mót, þaö er erfiðara og gerir meiri kröfur til keppenda. Spasský er búinn að vera i slikum einvigj- um allt frá árinu 1965. I rauninni er ákaflega erfitt að gera sér grein fyrir þvi að svo stöddu, hvor þessara manna sigrar, en eins og ég segi, þá teldi ég Portish liklegri, miöað viö árangur undanfarinna ára. — En hvor heldurðu að væri nú heppilegri keppinautur fyrir Kortsnoj, Spasský eða Portish? — Ég hugsa að Spasský yröi honum óþægilegri andstæðing- ur. Bæði er að þeir eru gamlir vinir, og þvi erfiðara fyrir Kortsnoj aö nota þá hörku sem hann hefur notað til þessa við andstæðinga sina. Auk þess þekkir Spasský betur inn á Kortsnoj, hefur teflt oftar við hann og vann hann raunar mjög sannfærandi i sfðasta einvigi, sem þeirháðu, i Rússlandi 1968, 5 1/2 gegn 2 1/2. Auk þess er Spasský einum fimm árum yngri en Kortsnoj. A móti kemur svo hitt, að Spasský viröist ekki vera mikill bógur um þessar mundir og hef- ur sýnt þaö meö varkárri tafl- mennsku sinni. — hm

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.