Alþýðublaðið - 10.08.1977, Page 5

Alþýðublaðið - 10.08.1977, Page 5
j382í\ Miðvikudagur 10. ágúst 1977 5 SJÓNVARP Jóhanna S. Sigurþórsdóttir j Krummagull í sjónvarpi: Sannaði tilverurétt litlu leikhúsanna 1 fyrrakvöld var Alþýðuleik- húsið frá Akureyri á dagskrá sjónvarps, með leikritið Krummagull, eftir Böðvar Guð- mundsson, menntaskólakenn- ara á Akureyri. Verkið er af töluvert öðrum toga spunnið, en flest önnur is- ( lenzk verk, sem hér hafa verið tekin til sýninga þvi það miðar ekki að þvi, að gefa áhorfendum tækifæri til að hnýsast i fjöl- skyldulíf tiltekinna persóna, eða veltast um af hlátri yfir vita meiningalausum bröndurum. Meginþráðurinn i Krummagulli er nefnilega drottnunarsýki mannsins og fullvissa hans um að enginn sé hinum æðri né full- komnari. Inn i þetta blandast svo ýmsir þættir mannlegra hvata, svo sem gróðrafikn, slægð og tilhneigingar til of beldis. Það sem einkum vakti at- hygli, þegar i upphafi sýningar- innar, var hversu heilsteypt verkið var og atburðarrásin hröð. Ahorfandinn er leiddur beint inn i rás atburðanna, án þess að þurfa að biða og velta fyrir sér, hvað ætli nú eiginlega að verða úr þessu. Tónlistin féll einkar vel að þvi sem fram fór á skerminum, var aldrei of krefjandi, en heldur ekkert um dauða punkta. Sem fyrr sagði er Böðvar Guðmundsson höfundur Krummagulls, og er hann flest- um tslendingum kunnur fyrir ljóð sin, sem hann hefur flutt við ýmis tækifæri. Krummagull sýnir og sannar, að Böðvari er fleira til lista lagt en ljóðagerð. Textinn er á hreinu og kjarnyrtu máli, og oft á tiðum bráð- fyndinn, þrátt fyrir að boðskap- ur verksins sjálfs sé háalvar- legur. Til dæmis dreg ég mjög i efa að venjulegur islenzkur bóndi geti státað af f jölbreyttari orðaforða, en þeim er fram kom, þegar aðalpersónan var að skamma beljuna. Eins voru samtöl Snata og Búkollu mjög góð svo manni gat oft blöskrað trúgirni hundsins og einfeldni, hvort tveggja sprottið af hús- bóndahollustu. Leikendur gerðu verkinu mjög goð skil, og kom það vel út isjónvarpi, þóttætlað sétilsýn- inga i leikhúsum. Kristin Ölafs- dóttir lék beljuna Búkollu lista- vel, og að öðrum ólöstuðum held ég, að hún hafi „átt senuna” i þetta sinn. Arnar Jónsson lét hundinn Snata, af alkunnri snilld, en þó örlaði fyrir ofleik af og til, þó ekki svo að til mikilla lýta væri. Þórhildur Þorleifsdóttir leik- stýrði verkinu og fór jafnframt með þrjú hlutverk. Tókst henni bezti gervihrafnsins. Maðurinn var svo leikinn af Þráni Karls- syni, og túlkar hann vel þá breytingu sem verður á mann- legu hugarfari þegar hugsunin fer að ná lengra en til þess að hafa aðeins i sig og á, þ.e. til gróðvænlegra möguleika. Krummagull er annað tveggja verka, sem Alþýðuleik- húsið hefur sett upp. Hið fyrra var Skollaleikur einnig eftir Böðvar Guðmundsson. Hefur Krummagull verið sýnt viða hér innan lands, auk þess sem, farið var með það til Norðurlandanna og það sýnt þar við góðar undir- tektir. Við það tækifæri var leik- ritið einmitt tekið upp á mynd- segulband I Dramatiska Institu- tet í Stokkhólmi og var það Þráinn Bertelsson, sem stjórn- aði þeirri upptöku, sem svo var sýnd i islenzka sjónvarpinu. Þetta framlag Alþýðuleikhúss ins á Akureyri hefur sýnt og sannað ótvírætt að slik áhuga- mannaleikhús eiga fullan rétt á sér, og vel það. Vitaskuld má alltaf deila um boðskap verka, eins og Krummagulls, enda trúi ég að margir hafa fengið bágt fyrir hjartað undir ádrepunni i fyrrakvöld. En það breytir þvi ekki, að án litlu leikhúsanna staðnar allt leikhúslif meira eða minna. Það er ekki nóg, að geta skroppið„ i stóru leikhúsin 1- 2svar á ári, og horft þar á þung og viðamikil verk eldri meistar- anna. Við þurfum einnig að eignast áhugamannaleikhús þar seni ungir leikarar og óþekktir höfundar geta komið sinu á framfæri. Hins vegar hefur reynzt nær ógjörningur að starfrækja slik leikhús fram til þessa tfma, vegna þess, að opinberir aðilar hafa litið á þau, sem hvern annan óþarfa og synjað um styrkveitingar. Er i þvi sam- bandi er skemmst að minnast Leiksmiðjunnar sálugu, sem stofnuð var á Akureyri fyrir fá- einum árum, en leið undir lok eftir skamman tima af ofan- greindum orsökum. En við skul- um vona, að hið opinbera sjái sóma sinn i þvi, að láta ekki Alþýðuleikhúsið og önnur áhuga mannafélög fara sömu leið, þvi án þeirra getur gróskumikið og fjörugt leikhúslif ekki þrifizt á Islandi. KVIKMYNDIR Einu sinni var...... Stjörnubfó: Hrói og Marion (Robin and Marina) brezk, gerð 1976, litir, breiðtjald, leikstjóri: Richard Lester. Einu sinni var maður að nafni Hrói Höttur. Hann kom úr krossferð og tók upp sitt fyrra líferni. Þegar hann kom úr krossferðinni var hann farinn að reskjast og orðinn gigtveikur. Eitthvað á þessa leið mætti hlaupa á hundavaði yfir sögu- þráðinn i myndinni um Hróa og Marion sem nú er sýnd i Stjörnubió. Þetta er þó hvergi tæmandi og ansi yfirborðskennd skilgreining. Myndin leitast við að túlka söguna um Hróa Hött á mjög svo raunsæjan hátt. Það verður ekki annað sagt en að Lester hafi tekizt það bærilega og ég h'ef ekki i langan tíma skemmt mér eins vel á bió eins og ég gerði undir sýningu á myndinni. Myndin er i alla staði vel gerð og það sem gerir hana góða er að hún er sennileg. Hver man ekki eftir Hróa Hetti og köppum hans ^Jpænklæddum Þorsteinn Úlfar Björnsson ungum og glæsilegum. Svo glæsilegum reyndar að þeir voru yfir það hafnir að pissa hvað þá heldur meir. Ofur- mennin sem allt gátu og aldrei mistókst og i ofan á lag blésu aldrei úr nös eftir erfiðustu þrekraunir. Það er geysilegur munur á strákunum þeim og körlunum sem bjástra á hvita tjaldinu núna. Myndin er vel leikin og er Sean Connery hreint frábær sem Hrói og Audrey Hepburn ágæt sem Marion. Sá albezti fannst mér þó Nicol Williamson sem Litli Jón. Ég mæli hiklaust með myndinni fyrir alla þvi hún er skemmtileg og lætur mann taka þátt I atburðarásinni, auk þess sem hún er vel gerð.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.