Alþýðublaðið - 10.08.1977, Page 12

Alþýðublaðið - 10.08.1977, Page 12
alþýou- blaöiö Útgefandi Alþýöuflokkurinn Ritstjórn Alþýöublaðsins er aö Sföumúla 11, simi 81866. Auglýsingadeild blaösins er aö Hverfisgötu 10, simi 14906 — Askriftarsimi 14900. MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 1977 Byggðastefna stjórnvalda: VANDILANDSBYGGBARINNAR VERÐUR VANDI REYKJAVIKUR Eftir Jóhönnu S. Sigþórsdóttur Stjórnvöld hafa, sem kunnugt er, lagt mikla áherzlu á þróun atvinnu- mála í dreifbýli á seinni árum og hefur árangur þeirrar byggðastefnu orðið vel merkjanlegur á mörgum stöðum úti á landsbyggðinni. Hafa all- margir þéttbýlisstaðir, einkum við sjávarsíðuna, orðið í auknum mæli samkeppnisf ærir um vinnuaf I við Reykjavík og önnur sveitarfélög á höf uðborgarsvæðinu. Miklu fjármagni hefur verið veitt til endurnýjunar fiskiskipa og fiskvinnslustööva#áherzla hefur veriö lögö á bætt vega- kerfi og hafnarmannvirki og siðast en ekki sfzt hefur veriö greitt i auknum mæli fyrir fjár- öflun til aö koma á laggirnar ýmis konar atvinnurekstri úti á landi. Af þessu leiöir, aö tekjur ibúa þessara staða hafa aukizt mjög, svo og tekjur viökomandi sveit- arfélaga. Engu að siöur viröast stjórn- völd hafa sótt aö þessu marki, meira af kappi en forsjá, þvi auk ofangreinds árangurs, hafa afleiöingarnar orðiö býsna al- varlegar fyrir þróun atvinnu- mála i Reykjavik og nágrenni. 1 skýrslu embættismanna um at- vinnumál i Reykjavik, sem ný- lega var lögð fyrir borgarstjórn kemur m.a. fram, aö vegna þess, aö haldiö hefur veriö aftur af þróuninni á Reykjanessvæð- inu, til þess aö hraöa uppbygg- ingu atvinnuvega annars staöar álandinu, hafa ýmsar at- vinnugreinar einkum i Reykja- vik beöiö alvarlega hnekki. Svo hefi veriö skyggt á staö- arkosti höfuöborgarinnar, meö beinum og óbeinum aðgerðum rikisvaldsins áö lykilgreinar i atvinnulifi standist ekki lengur samkeppni hliöstæörar starf- semi annarsstaöar. Vegna mis- ræmis á tekjum hafi dregið mjög úr flutningi fólks til höfuö- borgarsvæðisins, og haldi það nú ekki lengur árlegum hlut siúum 1 fjölgun landsmanna. Tekjuháir einstaklingar á bezta aldri flytji frá borginni, og fækki þannig smátt og smátt meðan eldra fólkiö sitji eftir. Þannig haldi Reykjavikurborg ekki hlut sinum i tekjuöflun landsmanna, en atvinnulif veröi einhæfara með hverju árinu sem liöi, þar sem atvinna aukist fyrst og fremst i þjónustugreinunum. 1 skýrslunni er ennfremur bent á annað atriöi, sem ekki er siður athyglisvert og það er samband byggöastefnunnar og verndunar fiskistofnanna. Um það segir aö sá vandi, sem nú blasiviö, eigi meöal annars ræt- ur að rekja til þess, aö byggða- stefnan hafi stórlega dregiö Jr annars stórkostlegum árangri af viöleitni stjórnvalda til þess, aö draga úr sókninni i fiski- stofnanan, þvi ekki hafi tekizt aö halda aftur af fjárfestingu i sjávarútvegi, sem fariö hefi fram i nafni byggöa- og atvinnu- sjónarmiða. En þarna viröist komin skjTr- ingin á þvf undarlega atferli ráöamanna, aö skrifa undir verndun veiöisvæða meö hægri hendinni.meöan sú vinstri rétti út digra’ sjóöi til skuttogara- kaupa. Fáranlegt, en þó satt. Loks segir i skýrslu embættis- mannanna, að afleiöingar byggðastefnunnar komi einkum fram i fisk iðnaði i Reykjavik og hafi á siðari árum oröiö mikill samdráttur i fiskveiöum og Framhald á bls. 10 Fyrst og fremst sök hrakhólum meö hafnaraðí Byggingasjóðs ,,Það hefur ekki farið fram hjá neinum, sem á annað borð hefur fylgzt með, að öll þessi mikla uppbygging tog- araflotans, sem átt hefur sér stað á siðari árum, hefur verið bundin við landsbyggð- ina og heíur orðéð þar mikil atvinnuleg lyfti- stöng, sagði Kristján Ragnarsson fram- kvæmdastjóri Lands- sambands isl. útgerð- armanna i viðtali við blaðið. Þvi ber ekki að neita, aö Reykjvikingar _ hafa fengið all- marga togara i sinn hlut lika, en þeir hafa verið annarar geröar heldur en þau skip, sem hafa farið út á land, mikið stærri skip, sem ekki hafa verið jafn arðbæroghin. Það má segja, að' Reykjavik hafi einkum liöið fyrir það i þessu efni, að hafa fengið ranga tegund skip. Þá kvað Kristján Ragnársson uppbyggingu einnig hafa verið minni i Reykjavik en annars staöar, ekki vegna þess, að Fiskveiðisjóður hefði gert neinn mun á þvi til hvaöa staöa skipin væru keypt, heldur heföi Byggðasjóöur oft á tiðum ráöiö úrslitum um það aö gera mönn- um úti á landi mögulegt að kaupa skip, sem aö Reykvik- ingar og Suðurnesjamenn hefðu ekki átt kost á i sama mæli. Þetta væri áreiðanlega megin- skýringin. Þvi væri ekki að leyna, að mun betur væri búið að útgerö- inni úti á landsbyggðinni, en i Reykjavik. Einnig væri viða betur búið að þessum málum frá hendi bæjaryfirvalda úti á landi en i Reykjavik, þvi t.d. væru útgerðarmenn á algjörum hrakhólum með hafnaraðstöðu, þarsem höfnin i Reykjavik virt- ist einkum eiga að þjóna kaup- skipúm, Þau væru þar um allar bryggjur og garða, meðan fiski- skipin kæmust hvergi að. Það útaf fyrir sig hefði mjög alvar- legar afleiðingar fyrir Reykja- vik. „Meðan að borgaryfirvöld sýna ekki meiri skilning á þörf- um útgerðarinnar i Reykjavik, en verið hefur á hafnarmálum hennar, verðum við að segja að hér vanti verulegan skilning á þörf þessarar atvinnugreinar fyrir uppbyggingu. Okkur hefur ekki einu sinni fundizt hafnar- yfirvöld sjálf hafa skilning á nauðsyn þess, að lagfæra höfn- ina, sagði Kristján. Reykjavik á nú von á að fá tvo togara sömu gerðar og þá sem bezthafa reynzt á Vestfjörðum.i byrjun næsta árs, auk þess sem nýtt frystihús er að risa hér á norðurgarðinum. Þannig að gagnvart Reykjavik er um að ræða verulega eflingu á næstunni. Hins vegar á ekki það sama við um Suðurnesin, m.a. vegna slæmrar vetrarvertiðar sl. 8 ár Það ræður fyrst og fremst byggðasjóðsfyrirkomulagið, að Framhald á bls. 10 Sveinn Eiðsson sveitarstjóri: Koma skuttogarans bjargaði Raufarhöfn Sveinn Eiðsson, sveitarstjóri á Raufarhöfn kvað staðinn hafa notiö góös af byggöastefnunni og þar heföi veriö talsverð upp- bygging á seinni árum. Fyrst og fremst hefði útgerðin eflzt með þvi að keyptur heföi verið nýr skuttogari, og heföi það orðið þess valdandi, að bú- andi hefði verið áfram á Rauf- arhöfn. Koma togarans hefði þannig skipt sköpum i atvinnu- lifi staðarins. Við skuttogaraútgerðina hefði skapazt þaö mikil vinna i landi, að nóg væri að gera fyrir alla. Þetta væri mikið aflaskip og menn kæmust vel af. Þá mætti nefna saumastofu, sem héfði veriö sett á stofn fyrir stuttu. Þar vinni allmargar kon- ur, sem ættu erfitt með að stunda fiskvinnu. Væri þetta mjög virðingarvert framtak og kæmi öllu atvinnulifi á staðnum til góða. Sveinn Eiðsson kvað ibúa- fjölda á Raufarhöfn hafa aukizt jafnt og þétt á siðari árum og losaði hann nú fimm hundruö. Væri nú talsvert um, að fólk flyttist til staðarins og settist þar aö. Bæri, að þakka þaö komu togarans og þeirri atvinnu sem hann veitti. — Ég verð nú að segja alveg eins og er, að ég brosti bara þegar ég heyrði um niðurstööur skýrslunnar, sagði Sveinn. Þetta er svo furðulegt harma- kvein að maður skilur það ekki sérstaklega þegar maður litur á það, að Reykjavikurborg hefur óskaplega miklar tekjur, vegna landsbyggðarinnar. Nær allar vörur sem fluttar eru inn, fara i gegnum Reykjavik. Maður hefur verið að heyra það, að það sé gert svo mikið fyrir allar hafnir á landinu, nema i Reykjavik. En tekjurnar, sem Reykjavikurhöfn hefur vegna vöruflutninga, eru alveg gifur- legar. Það væri ágætt aö fá svo- litla sneið af þeirri köku. Verður að líta á landið sem heild þegar atvinnumál eru skipulögð — Ég hef litið sem ekkert lesið þessa skýrsluenn semkomið er, en hef aftur á móti i mörg ár haft mina skoðun á þessum málum fyrir hönd Rey kjavikurborgar. Mér finnst að það hafi algjörlega vantað at- vinnustefnu, sagði Haukur Bjarnason framkvæmdastjóri Fé- lags isl. iðnrekenda. Það þýðir aö byggöastefna og önnur pólitik, sem miðaö hefur að þvi, aö byggja upp atvinnu- vegi úti á landi, en hefur minna hirt um uppbyggingu atvinnu- starfsemi hér i þéttbýlinu, hefur verið mjög til óþurftar fyrir Reykjavikurborg. Borgin hefur orðið af allri þeirri uppbygg- ingu, sem þessari byggðastefnu hefur fylgt. Það er ekki fyrr en nú á allra siöustu timum, að þess fer eitthvað að gæta i mál- flutningi forsvara Reykjavikur- borgar, að þeir séu farnir að taka eftir þessu. Þess er skemmst að minnast, að þeir gerðu ákveðiö tilkall til þess að ylræktarver, sem mikið var rætt um, ekki alls fyrir löngu, yrði byggt hér á svæði Reykjavikurborgar. En það voru ýmsir aðrir, sem gerðu ákveöið að þvi skóna, að það yrði byggt utan Reykjavikur. — Menn hafa þá verið farnir að gera sér grein fyrir þessari þróun atvinnumála á höfuð- borgarsvæðinuáður enskýrslan kom út? Já, en þetta hefur aldrei kom- iö eins skýrt fram og nú. Varð- andiaögerðir i þessu sambandi, held ég.aðþað sé ekki nema um eitt að ræða fyrir þessa fá- mennu þjóð, og það er að hún hætti að hugsa um landiö sem skipt i þéttbýli og strjálbýli, menn þurfa að gera sér grein fyrir þvi, að þetta eru 220 þús. manns og þetta er litil eining. Það verður að viöurkenna hana sem slika og það verður að skipuleggja landið bæði i at- vinnulegu tilliti sem og öðru, sem eina heild. Ég held að dreifbýlið þurfi alveg jafnmikið á þvi aö halda að Reykjavik og næsta um- hverfiblómgist og dafni,eins og að dreifbýlið dafni. Ég held að hagsmunirnir fari algjörlega saman. Nú kemur það fram i skýrsl- unni, aö þess eru dæmi, að at- vinnugreinum hafi verið komið á laggirnar þar, sem þær hefðu að öðrum kosti ekki átt heima Framhald á bls.ýlO

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.