Alþýðublaðið - 17.09.1977, Qupperneq 1
NYTT RÆKJUSTRIÐ
í UPPSIGLINGU
— sjávarútvegsráðuneytid gagnrýnt harðlega
— Við erum aðeins að
reyna að auka möguleik-
ana fyrir fólk að setjast
aðá Kópaskeri/ þannig að
þorpið geti t.d. tekið við
því fólki úr sveitunum
sem þar vill setjast að.
Aðgerðir sjávarútvegs-
ráðherra vegna rækju-
veiða á okkar miðum eru
gerðar án samráðs við
okkur og þær stefna
framtíð þorpsins í hættu.
Þetta sögðu þeir Kristján Ar-
mannsson, framkvæmdastjóri
Rækjuvinnslunnar á Kópaskeri,
Björn Guömundsson, oddviti
Kelduneshrepps og Friörik
Jónsson, oddviti Presthóla-
hrepps, á fundi meö frétta-
mönnum i gær. Þar kynntu
Þingeyingarnir sjónarmið ibúa
Kópaskers og págrennis gagn-
vart fyrirkomulagi sjávarút-
vegsráðuneytisins á veiðum á
rækju i öxarfirði og greindu frá
viðskiptum sinum við yfirvöld
og fleiri aðila undanfarið. Þre-
menningarnir sögðu, að Kópa-
skersbúar geröu þá sjálfsögðu
kröfu, að eiga forgangsrétt að
veiðum á rækjunni á þeirra
heimamiðum, svo sem tiökaöist
allt umhverfis landið.
Fyrir ári siðan boöaði sjávar-
útvegsráöuneytið til fundar á
Húsavik, þar sem fjallaö var
m.a. um rækjuveiðar i öxar-
firöi, en þá var tillaga Hafrann-
sóknarstofnunar að veiða mætti
þar 1000 tonn á vertiðinni af átta
bátum. Þá samþykktu Kópa-
skersmenn helmingaskipti á
kvótanum, þar sem þeir töldu
sig ekki hafa möguleika á þvi að
veiða þann afla allan þá. En
jafnframt varskýrt tekið fram,
að þeir teldu sig haia forgangs-
rétt til nýtingar rækjumiðanna i
framtiðinni. Þessu var ekki
mótmæltá Húsavikurfundinum.
Nú hefur ráðherra ákveðiö að á
næstu vertið skuli kvótinn vera
650 tonn og skuli Húsvikingar fá
helminginn, 325, en Kópasker
hinn helminginn. 4 bátar frá
hvorum staö skuli annast veið-
arnar.
— Ef eitthvað annað en per-
sónuleg sjónarmið hafa ráöið
ákvörðum ráðherra, hafa þaö
Frá vinstri: Friðrik Jónsson, oddviti Presthólahrepps, Kristinn Ármannsson, framkvæmdastjóri
Rækjuvinnslunnar á Kópaskeri og Björn Guðmundsson, oddviti Kelduneshrepps.
verið sjónarmið þröngs hags-
munahóps á Húsavik., sjónar-
mið sem ráðherra hefur sett of-
ar sjónarmiðum ibúa við öxar-
fjörð, sem vilja standa gegn
þeirri óheillaþróun, sem verið
hefur i búsetuþróun héraðsins,
og leitt hefur til þess að unga
fólkið hefur neyðst til að leita
sér vettvangs fjarri átthögum,
þar sem atvinnu og félagslega
þjónustu hefur skort i héraö-
inu”, segir i greinargerö þre-
menninganna, sem þeir lögðu
fram i gær.
Þeir sögðust ennfremur telja
að þeir hafi alltaf farið þær leið-
ir i málinu sem þeir hafi taliö
réttar. „Við höfum gengið um
framdyrnar ef svo má segja, en
án nokkurs árangurs, og ráð-
herra hefur kosið að enda sitt
kjörtimabil eins og hann byrjaöi
það: með rækjustriði”.Crdrátt-
ur úr greinargerð þremenning-
anna verður birtur i blaöinu á
þriðjudaginn. — ARH
Bankarnir hafa lánað of mikid á árinu:
Dregid úr útlánum til
áramóta
útlánaaukning við-
skiptabankanna hefur
þegar farið verulega um-
fram þá aukningu sem á-
kveðin var fyrir árið í
heild/ að sögn starfs-
manna Seðlabankans.
Var i upphafi ársins gert
samkomulag um hámark
útlánaaukningar og
skyldi hún ekki verða
meiri en 20%, af frá-
dregnum endurseidum
birgða- og rekstrarlánum
til atvinnuveganna.
Um siðustu mánaöamót
reyndist aukningin hins vegar
vera orðin 26.5% það sem af er
árinu. Bankastjórn Seðlabank-
ans hefur haldið fund um málið
meö bankastjórum viöskipta-
bankanna og fulltrúa sparisjóð-
anna og var rætt um framvindu
mála og horfurnar á þessu sviöi.
Var á fundinum talið óraunhæft
að hækka það útlánamark sem
sett var i upphafi ársins, þótt
likur bendi til meiri verðlags-
hækkana en gert var ráð fyrir
við gerð lánsfjáráætlunar.
Þvi mun útlánastarfsemi viö-
skiptabanka og sparisjóöa við
þaö miðast næstu fjóra mánuð-
' ........... *
Aðbúnaður
við höf nina
Þeir vinna á Eyrinni. Veður-
bitnir menn og kannski dálitið
þreyttir eftir harða lifsbar-
áttu. En hvernig er að þeim
búið á vinnustaðnum? Fyrir
stuttu fengum við á Alþýðu-
blaðinu upphringingu frá
verkamanni við höfnina, og
hann benti okkur á að kynna
okkur aðbúnað hafnarverka-
manna. Til dæmis kaffistof-
una þeirra sem vinna við
gömlu höfnina. ! gær gerðum
við þetta, fórum á staðinn,
ræddum við mennina og tók-
um myndir. (AB-mynd: ATA)
Sjá bls. 7
ína, aö halda útlánaaukningunni
innan þess 20% marks sem sett
var i ársbyrjun. Enda er ekki
útlit fyrir aö innlán leyfi meiri
útlánaaukningu. Þetta þýðir, að
ýmsar lánastofnanir verða aö
minnka útlán sín töluvert þá
mánuði sem eftir lifa af árinu.
„Drauma-
þinglid”
Við bregðum á leik á 5. siðu
blaösins i dag og biðjum les-
endurblaðsinsað aðstoða okk-
ur við gamanið. A siðunni eru
birtir nokkurs konar fram-
boðslistar fyrir alla flokka,
tuttugu þekktir flokksmenn á
hverjum þeirra, og við biöjum
lesendur blaðsins aö velja
„draumaþingið” sitt. Fram-
bjóðendur eru hundraö, —
þingsætin sextiu. Þvl verða
fjörutiu manns aö bita i það
súra epli að komast ekki á
þetta „draumaþing” Alþýöu-
blaðslesenda. Hverjir það
verða er i valdi kjósendanna i
þessari kosningu. Það er
meira aö segja hægt að setja
inn menn i stað þeirra sem eru
á listunum og beita útstrikun-
um eftir þörfum.
Sjá 5. síðu
Hvað borgar fólk í óbeina skatta?
Söluskatturinn er
stærsti liðurinn
— Nú hef ég ekki alveg ná-
kvæmt yfirlit yfir þetta, en ef
við litum á helztu óbeinu skatt-
ana sem fólk borgar og miðum
þetta viö útgjöldin I framfærslu-
visitölukostnaðar sem voru
núna 1. ágúst 2 milljónir og 94
þúsund, þá er aðeins söluskatt-
urinn af þeirri fjárhæð um þaö
bil 242 þúsund krónur —.
Þannig fórust Ólafi Daviðs-
syni á Þjóðhagsstofnun orð,
þegar Alþýöublaðið innti hann
eftir þvi hversu stór hluti tekna
visitölufjölskyldu færi I óbeina
skatta.
Sagði ólafur enn fremur, aö
fleiri liöir væru þarna þungir á
metunum svo sem vörugjaldið,
sem er 18%. Þaö væri sennilega
um 52.000 krónur af tekjum.
Bensingjaldiö sem rynni til rik-
isins væri um 16.000 krónur, og
útgjöld til áfengis- og tóbaks-
kaupa, sem auðvitað væru aö
talsverðum hluta skattur, væru
i visitölunni um 96.000 án sölu-
skatts. Þaö mætti slá þvi fram,
að um þaö bil 56.000 af þessum
96.000 mætti kalla skatt.
— Ef þetta fernt er lagt sam-
an, þá koma út úr þvi 366.000
krónur af þessum 2 milljónum
og 94. þús. krónum. Þá vantar
inn I þetta stóran lið sem eru
tollarnir, en yfir þann liö hef ég
ekki tölur.
Upplýsingar um tollaliðinn
verða birtar eftirhelgi, þar sem
ekki náðist f þann starfsmann á
Hagstofunni em haft hefur með
þá útreikninga að gera, vegna
veikinda hans.
— JSS