Alþýðublaðið - 17.09.1977, Page 4

Alþýðublaðið - 17.09.1977, Page 4
4 Laugardagur 17. september 1977 bia&iö1' alþýdU' Ctgefandi: Aiþyöuflokkurinn. Rekstur: Reykjaprent hf. Ritstjóri og ábyrgðarmaöur: Árni Gunnarsson. Aðsetur ritstjórnar er i Siöumúla 11, simi 81866. Auglýsingadeild, Alþýöuhúsinu Hverfisgötu 10 — simi 14906. Askriftarsimi 14900. Prentun: Biaöaprent h.f. Askriftarverö: 1300 krónur á mánuöi og 70 krónur i lausasölu. Hættumerki Ekki eru mörg ár siðan að íslendingar töluðu um málefni geðsjúkra lágum rómi. Geðrænir kvillar voru feimnismál hverrar fjölskyldu og gífurlegt áfall hverjum einstak- lingi, sem varð fyrir barðinu á þeim. Þá var Kleppur nánast skammaryrði og að vera Klepptækur undan- tekningarlaust notað í neikvæðri merkingu. Þeir, sem í það sjúkrahús fóru, voru ekki taldir eiga afturkvæmt þaðan. Undir forystu Tómasar Helgasonar, yfirlæknis á Kleppi, og fleiri mætra manna, var hafin umræða um málefni geð- sjúkra, sem ruddi braut nýjum skilningi á þessum flokki sjúkdóma. Hvers- konar hindurvitnum og fáránlegum kenningum var kollvarpað og huldu- börn hins íslenzka þjóð- félags gátu litið bjartari framtíð. Svo mikil hefur breytingin orðið á afstöðu almennings til geð- og taugasjúkdóma, að það þykir nú vart óeðlilegra að verða fyrir barðinu á þeim en að fá magasár. Segja má, aðá þessu sviði hafi orðið bylting. önnur bylting, svipaðs eðlis, er nú í augsýn. Baráttan gegn áfengis- sýkinni hef ur tekið mark- verðum breytingum. Sú skoðun hefur verið ríkj- andi, að ofdrykkja sé aumingjaskapur og ræfil- dómur, sem beri að uppræta með hörku og lagaboðum. Það er ekki fyrr en á alira síðustu árum, að menn hafa öðl- ast skilning á því, að of- drykkja er sjúkdómur, hvort sem litið er til orsaka eða afleiðinga. Þar verður fordæming ekki til bjargar, heldur skilningur, upplýsingar, fræðsla og aðstoð. AAeð stofnun AA- samtakanna hér á landi var brotið blað í sögu áfengismála. Frá þeim samtökum hefur þróast mikið og merkilegt starf, sem ekki verður rakið hér. Tekist hefur sam- vinna lækna og leik- manna, bindindismanna og of drykkjumanna og fleiri og fleiri aðila. Nú stendur fyrir dyrum stofnun Samtaka áhuga- fólks um áfengisvanda- málið. Ætlun þeirra er að koma á fót afvötnunar- stöð, endurhæf ingar- heimili, skipuleggja víðtækt fræðslukerfi og setja á laggirnar leitar- og leiðbeiningar- stöðvar fyrir ofdrykkju- menn, aðstandendur þeirra og vinnuveitendur. Stofnfélagar eru þegar orðnir hátt á fjórða þúsund, og segja þessar undirtektir meira en nokkur lýsing á því áfengisvandamáli, sem þjóðin á við að stríða. Samtök þessi munu byggja á beinni og brýnni aðstoð, en fræðslustarfið verður þó einn höfuð- þátturinn. Einn af forystumönnum þessara samtaka komst svo að orði, að áfengi yrði aldrei útrýmt, boð og bönn dygðu skammt. Ætlunin væri að gefa hættumerki og stuðla að þvi, að þjóðin fræddist um sjúkdóminn, orsakir hans og afleið- ingar. — Til að berjast við óvininn þarf að þekkja bardagaaðferðir hans. Hver einstaklingur þarf að öðiast næga þekkingu til að vera viðbúinn, er Bakkus blæs í herlúðra. Hættumerkið hefur verið gefið. —ÁG > ' ' ",l « Ad slita tengslin við atvinnulífið - í hringidunni - Eyjjólfur Sigurðsson skrifar Oft er rætt um það milli manna að tengslin á milli Alþingis og atvinnulifsins séu takmörkuð og nánast engin. Þar séu teknar ákvarðanir sem oft á tiöum bera keim af því, aö þeir sem þar sitja séu ekki kunnugir i atvinnulifinu og hafi sumir hverjir slitnað úr tengslum viö það sem er aö gerast dags dag- lega utan þinghússins. Hvort þessi hugleiðing er rétt eða röng, skal ég ekki fullyrða, en ástæða er til að hugleiöa hvort þátttaka manna i stjórn- málum er einskorðuð við ákveönar stéttir og hvort þeir sem koma beint úr atvinnuiífinu séu þátttakendur i stjórnun landsins. Af 60 einstaklingum er sitja á Alþingi, er t.d. helmingur opinberir starfsmenn. Millf stétta er skiptingin öllu merki- legri, þvi þar eru fyrst og fremst tvær þjóðfélagsstéttir sem hafa lang flesta fulltrúa á Alþingi. Þar sitja nú 20 lögfræöingar, og átta bændur og vekur það sér- staka athygli hversu margir lögfræðingar hafa valist til setu á Alþingi. A Aiþingi situr t.d. enginn fulltrúi sem kallast gæti fulltrúi iönaöarins, 4 sem hægt er að segja að tengist sjávarútvegi, 4 sem tengjast verkalýðs- hreyfingunni og nokkrir sem ekki verða taldir undir annað en að vera atvinnustjórnmála- menn. þar sem þeir hafa ekki stundað annað en stjórnmála- ^törf i tugi ára. Fjöldi opinberra starfsmanna leiðir hugann að þvi hvort um sé að ræða almennt meiri áhuga þeirra að stjórnmálum en ann- arra og er ekki óliklegt aö svo sé, þar sem þeir eru i mörgum tilfellum tengdari stjórnkerfinu, en aörir starfshópar þjóðfélags- ins. Þess ber einnig að geta að þeir hafa nokkur forréttindi fram yfir aðra þegar þeir taka sæti á Alþingi. T.d. hafa þeir 60% af launum slns aðalstarfs, ofan á full þingmannslaun og önnur friðindi er aiþingismenn njóta. Opinber starfsmaður er þvi miklu betur launaður þegar hann situr á Alþingi en aðrir fulltrúar á þingi. Það sem vekur mesta athygli er, hvað fáir fulltrúar koma frá þeim hópum er stunda fram- leiðslu- og þjónustustörf ef undan er skilin bændastéttin. Þaö hlýtur að hafa einhverjar skýringar hversu þröngur sá hópur er, sem tekur þátt i stjórnmálastarfi. Það er ástæða til að vekja athygli á þvf, að mjög fátt fólk úr verkalýðshreyfingunni tekur þátt i þessu starfi, einnig mjög fáir sem fást við atvinnu- rekstur. Ein skýringin kann aö vera sú, að almennt er langur vinnudagur hjá þessum starfs- hópum og oft enginn timi til að hugsa um annaö en vinnuna og lifsbaráttuna. Þessi þróun er varhugaverð og kann að leiða til þess, að mjög þrengi aö þeim viðsýna og alhliöa vettvangi sem þeir verða að hafa er taka að sér for- ustuhlutverk. Aö enginn aðili er á Alþingi er tengist einum stærsta atvinnu- vegi okkar, iðnaðinum, er vægast sagt óviðunandi, enda er þaö öllum ljóst sem eitthvaö koma nálægt iönaði að vanda- mál hans fá ekki sömu meðferö og afgreiöslu og t.d. landbún- aður og sjávarútvegur. Það kann að vera erfitt að koma þvi við að tryggja öllum stéttum fulltrúa á Alþingi, en engu að siður nauðsynlegt að hvetja fólk úr sem flestum starfsgreinum að taka þátt i stjórnmálastarfi flokkanna og hafa áhrif á starfsemi valda- stofnana eftir þvi sem frekast er unnt á hverjum tima. Stjórnmál eiga ekki að vera einkavettvangur fárra, heldur baráttusvið sem flestra. Lögfræðingar eru ekkert betur undir það búnir aö veita þjóðinni forustu, þar ræður ekki siöur tengsli við atvinnulifiö, viðsýni og mannlegar tilfinn- ingar. Skólagangan er góð en gerir engan að betri forustu- manni, menntunarinnar vegna, þar þarf meira til. Þessi þröngi hópur sem hefur haslað sér völl á Álþingi, og kemur úr svo fáum starfsstétt- um, hefur i mörgum tilfellum meiri völd en eingöngu að gegna þingmennsku. Margt af þessu fólki eru embættismenn á vegum rikisins og kann að vera að hluta skýring á þeirri þróun sem eykst frá ári til árs, að völdin færast æ meir frá þeim valdastofnunum er rétt kjörnir fulltrúar fólksins sitja i og yfir I hendur embættismanna. Embættismannakerfið bæöi á vegum rikisins og sveitarfélag- anna hefur bæði leynt og ljóst tekið við stórum hluta þess valds er fulltrúar fólksins eiga aö hafa.Sú þróun er varhuga- verð, og ber skilyrðislaust aö stööva hana. Fólk er almennt ekki vakandi um þessa þróun, og gerir sér ekki grein fyrir hvað sumir ein- staklingar i skóli einbætta sinna á vegum rikis og sveitarfélaga, geta haft og hafa mikil völd, og þar með áhrif á alla stjdmun i landinu. Eitt af grundvallaratriðum i frjálsu samfélagi er, að völdin séu i höndum rétt kjörinna full- trúa fólksins. 011 tilraun til að þrengja valdsvið þessara full- trúa og þar með möguleika al- mennings til áhrifa á s'tjórnun- ina, er tilræði við lýðræðið.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.