Alþýðublaðið - 28.09.1977, Qupperneq 4

Alþýðublaðið - 28.09.1977, Qupperneq 4
4 Miðvikudagur 28. september 1977 £!!£?' Útgefandi: Álþýöuflokkurinn. Rekstur: Reykjaprent hf. Ritstjóri og ábyrgðarmaöur: Arni Gunnarsson.' Aðsetur ritstjórnar er i Siöumúla IX, simi 81866. Auglýsingadeild, Alþýöuhúsinu Hverfisgötu 10 — simi 14906. Askriftarsimi 14900. Prentun: Blaöaprent h.f. Askriftarverð: 1300 krónur á mánuði og 70 krónur I iausasölu. Kraftaverkamenn leysa ekki vandann I riti hagdeildar Seðla- banka íslands, Hagtölum mánaðarins, er grein um greiðslujöfnuð íslendinga fyrri helming þessa árs og um horfurnar til ára- móta. Varlegt er að draga ályktanir af þeim upplýs- ingum, sem þar koma f ram. Þó er óhætt að f ull- yrða að staða þjóðarbús- ins hefur lítið batnað frá síðasta ári og mun vart gera það út þetta ár. Enginn ábyrgur maður dregur það í efa, að ís- lendingar standa nú f rammi fyrir stórfelldum efnahagslegum erfiðleik- um, jafnvel enn meiri en verið hafa allra síðustu árin. Og enginn er í vafa um að fyrr en síðar kem- ur að skuldadögum. Eng- ir kraftaverkamenn geta ráðið fram úr þeim vanda, sem við blasir. Til þess þarf átak alþjóðar undir forystu dugandi stjórnar. Það er vafalaust eng- inn leikur fyrir stjórn- málamenn að taka ákvarðanir, sem fyrir- sjáanlega munu þrengja hag þegnanna. En stjórn- málamaður axlar mikla ábyrgð, þegar hann gef ur kost á sér til að vera í f or- ystu. Hann verður því jafnt að standa og falla með óvinsælum sem og vinsælum ákvörðunum. Sök hans er mikil ef hann lætur reka á reiðanum og segir þjóð sinni ekki sannleikann. Það er augljóst, að nú- verandi ríkisstjórn mun reyna að halda óbreyttu ástandi til næstu kosn- inga, þótf það kosti meiri skuldasöfnun erlendis og áf ramhaldandi verð- bólgu. Hún hyggur ekki á óvinsælar ráðstafanir næstu átta mánuði. Því hef ur mjög verið haldið á lofti í stjórnarblöðunum, að allir kraftar ríkis- stjórnarinnar hafi beinst að því að halda vofu at- vinnuleysisins frá dyrum íslendinga. Þetta er líka það eina, sem ríkisstjórn- inni hefur tekist þokka- lega, og fyrir það ber að þakka. Menn verða hins vegar að gera sér Ijóst á hvaða hátt þetta hefur verið gert. Fullri atvinnu hefur verið haldið uppi með því að safna skuldum erlend- is. Þetta getur enginn rengt, og svona er ekki hægtað haldaáfram. Það verður að leita annarra úrræða. Ljóst er, að með almennri sparif jármynd- un er ekki hægt að fjár- magna framkvæmdir hér á landi. Sparifé er ein- faldlega ekki til. — Eitt höf uðverkefnið er því að reyna að hvetja til sparn- aðar með því að tryggja sparifé betur en gert hef- ur verið. En það þarf víðtækari og sneggri viðbrögð. Öll- um, sem fylgjast með at- vinnumálum, ber saman um, að um áramótin fari að gæta atvinnuleysis. Og hvað er þá til ráða? Rík- isstjórnin hefur ekki ráð á takteinum, nema að hún hleypi í sig kjarki og grípi til róttækra aðgerða. Það verður einnig að viður- kenna að stjórnarand- staðan hefur ekki komið fram með tillögur eða hugmyndir, sem leyst gætu vandann. Af því leiðir, að hún er að nokkru leyti samsek rík- isstjórninni. Hér í blaðinu hefur oft verið á það bent, að sjald- an hefur verið eins mikil nauðsyn þjóðareiningar til að kveða niður verð- bólgudrauginn, sem er argasti meinvætturinn. En það þarf þor til að veita forystu í átökunum. Þennan kjark hefur ríkis- stjórnina skort. — AG ÚR VMSUM ATTUM Uppeldisstofnun eða svinahús Oft er kvartað undan þvi að ekki sé hægt að vinna nægilega vei að einstökum málum, svo sem skólamálum, heilbrigðis- málum og samgöngumálum, vegna þess að ekki séu til pen- ingar. Þessar kvartanir eiga auðvitað oft við rök að styðjast. Hitt er þó, sem betur fer sjaldgæfara, að peningum sé ausið i framkvæmdir, sem ekk- ert liggur á, eða það sem verra er, framkvæmdir sem eru fyrir- fram dæmdar til að mistakast. 1 Dagblaðinu i gær er greint frá einu þvi furðulegasta fyrir- bæri, sem menntamálaráðu- neytið bera ábyrgð á i seinni tið, og er þó af mörgu svakalegu af að taka, ef út i það er farið. Hér er um að ræða byggingu Krisu- vikurskóla, byggingu sem flan- að var út i af algeru ábyrgðar- leysi en miklum hugsjónaeld- móði. Að visu er byggingin ekki enn fullbúin, og mundi trúlega aldr- ei klárast ef viðkomandi aðilar gerðu sér grein fyrir þvi hvað rekstur svona stofnunar á þess- um stað á eftir að kosta mikla fjármuni. Að visu hafa verið uppi miklar bollaleggingar um það, hvernig hægt væri að nýta þetta húsnæði, og má vera að einhver lausn finnist á þvi um siðir. Á sinum tima, þegar þetta mál kom til álita hjá mennta- máiaráðuneytinu voru öll tök á þvi að forðast þau herfilegu mistök sem hér hafa verið gerð. En þvi miður tók ráðuneytið, eins og svo oft áður, stefnu út i algert svartnætti, og treysti þvi, að hægt væri að reisa út i eyði- mörkinni minnisvarða um afrek menntamálaráðuneytisins og áhuga þess á velferð þeirra barna, sem ekki hafa lært mannasiði i heimahúsum. t frásögn Dagblaðsins um þennan stað segir: „Hátt á ann- að ár hefur staðið ófullgerð skólabygging i Krisuvik, skóla- bygging sem greinilega hefur verið mjög vandað til i bygg- ingu, en liggur nú undir skemmdum af raka og kulda.” Blaðamaður Dagblaðsins sem fór þarna i heimsókn og fékk að skoða húsið segir svo: „Óhætt er að segja að skólabyggingin sé mjög glæsileg að utan en þegar inn kemur sést að raki og kuldi hefur fariö mjög illa með húsið. Húsið er án hita þvi hitaveitan fór úr sambandi fyrir þremur vikum og hefur enn ekki verið gert við hana. Hallgrimur (Jónsson, ráðsmaður á staðn- um) sagði að undanfarin haust hefði það sama gerzt. Þá er bleyta mikil á gólfum, sérstak- lega á efri hæð hússins, og raka- blettir á lofti og veggjum. A öll- um svölum er 10-20 cm. djúpt vatn og virðast niðurföll stifluð eða alls ekki fyrir hendi. Taldi Hallgrimur að það tæki marga mánuði að ná rakanum úr hús- inu þegar hitaveitan kæmist aft- ur i samband en hún er fengin úr hverum fyrir ofan skólabygg- inguna.” Þegar blaðamaðurinn spurði umsjónarmanninn um álit á byggingunni sagði hann: „Ég verð að segja það að mér finnst það dálitið ævintýri að fara að býggja úti i þessari eyðimörk. Þetta lokast allt á veturna. Það væri fint að fá þetta undir svina- bú.” Þá hafði blaðamaður Dag- blaðsins samband við Helga Jónsson, fræðslustjóra, og i þvi viðtali kemur fram, að ýmsar hugmyndir hafa verið á lofti um það hvernig nýta mætti þessa byggingu þegar hún endanlega kemst i gagnið. Á fjárlögum 1977 var engin fjárveiting tii skólans og verður þvi ekki enn séð fyrir endann á þvi hvort nota eigi bygginguna .fyrir heimilislaus börn, svinabú eða heimili fyrir treggáfuð börn. Til viðbótar má ef til vill skjóta þeirri hugmynd að menntamálaráðherra, hvort ekki mætti notast við bygging- una undir starfsemi mennta- málaráðuneytisins, og losna þar með við að kaupa Viðis-húsið, þvi auðvitað er það Vilhjálmur Hjálmarsson sem ber ábyrgð á þvi að byggingin er nú i algerri vanhirðu og liggur undir skemmdum. — BJ

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.