Alþýðublaðið - 29.09.1977, Page 1
FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER
202. tbl. — J 977 — 58. drg.
Ef bladid berst ekki
kvartid til
Alþýdublaðsins í
síma (91) 14900
Glæsileg fundahöld BSRB um kjaramálin:
Alger einhugur um að
fella sáttatillöguna
Kristján Thorlacius,
formaður BSRB, var
inntur eftir þvi hvemig
staðan væri i baráttu
opinberra starfsmanna
og hvernig fundahöld
um sáttatillöguna
hefðu gengið. Hann
hafði þetta að segja:
,, Funda höld okkar
hafa gengið einstak-
lega vel og fundarsókn
hvarvetna verið stór-
um betri en við þorðum
að vona. óhætt er að
fullyrða, að fundar-
sóknin nú sé tvöfalt
meiri en þegar við
kynntum á fundum
samningana um verk-
fallsréttinn. Töldum
við hana góða þá.”
,,En hvað um við-
brögð fundarmanna við
sáttatillögunni ? ’ ’
,,Þar hefur rikt al-
gjör einhugur um að
fella tillöguna”.
„Það má þá telja
vist, að verkfall verði,
ef ekki verða gerðar
tilraunir til samninga
áður en frestur rennur
út?”
„Það tel ég hafið yfir
allan vafa”.
,,En nú er nokkur
frestur frá þvi atkvæði
hafa verið talin og þar
til verkfall skylli á?”
,,Já. Við litum svo á,
að úrslit verði kunn að
kvöldi þess 6. október.
Þá eru eftir fimm dag-
ar til stefnu. Á þeim
tima getur margt gerzt
ef vilji er til. Auðvitað
óskar enginn eftir
verkfalli, en þetta er
nauðvörn samtakanna
gegn augljósu rang-
læti.”
„Á hvað munuð þið
leggja aðaláherzlu ef
og þegar til samninga
verður gengið?”
„Það er þrennt, sem
við leggjum aðal-
áherzluna á. Hið fyrsta
er veruleg hækkun lág-
launa. Annað atriði er
leiðrétting á launum á
miðbiki launastigans,
og hið þriðja, að við fá-
um viðurkennda end-
urskoðun með verk-
fallsrétti, á samning-
unum ef einhverjir
galdrar yrðu framdir á
verðlagsvisitölunni,
hliðstætt við réttinn,
sem ASÍ fékk samning
um. Þetta þrennt telj-
um við mestu máli
skipta.”
„Og þú trúir þvi, að
lokaspretturinn verði
jafn frábær og baráttan
hefur verið i undirtekt-
um launþega?”
„Já. Það er sannfær-
ing min að svo verði.
Ég tel öllum vera ljóst,
að hér er ekkert gam-
anmál á ferðinni, held-
ur full alvara. Einhug-
urinn og samstaðan,
sem fram hefur komið,
sýnir það bezt”, lauk
Kristján Thorlacius,
formaður BSRB máli
sinu. — OS
Búvöruverdið
ákveðið á sama
hátt og áður
Ákvörðun um próf
kjör á Vesturlandi
— segir Gunnar
— Bændur hefðu orðið
kauplausir og gætu ekki
keypt matog klæði né hitað
upp hús sín, ef ríkisstjórn-
in hefði neitað að sam-
þykkja búvöruverðshækk-
un. Eða að þeir hefðu kom-
izt í greiðsluþrot við við-
skiptaaðila sína og lána-
stofnanir. Þar með væri
stórfelld hætta á byggða-
eyðingu í landinu, ekki að-
eins í sveitunum heldur
einnig á öllum þéttbýlis-
stöðum, sem lifa á þjón-
ustu við landbúnaðinn og
úrvinnslu landbúnaðaraf-
urða.
Þannig svarar Gunnar Gu6-
bjartsson, formaður Stéttarsam-
bands bænda spurningu Upplýs-
ingaþjónustu landbúnaöarins
vegna nýs búvöruverös. Var i
spurningunni vitnaö til ályktunar
miöstjórnar ASl, þar sem segir
að rikisstjórnin beri ábyrgð á
verölagningunni i heild, þar sem
hún hafi neitunarvald sem hún
hliðri sér hjá aö nota þótt ærin til-
efni séu til.
Þá kemur fram i máli Gunnars,
aö búvöruveröiö i sept, hafi veriö
ákveöiö meö sama hætti og oftast
Gudbjartsson
Gunnar Guöbjartsson
undanfarin ár. Teknar hafi veriö
til greina hækkanir á rekstrar-
kostnaði og launum, en engar
breytingar geröar á magntölum,
hvorki tekna eöa gjaldamegin. —
Hækkanir voru allmiklar, einkum
á kaupgjaldsliönum. Kemur þaö
fram bæði i verölagsgrundvellin-
um sjálfum og i vinnslu og dreif-
ingarkostnaöi. Slátur og heild-
sölukostnaöur kjöts hækkar mjög
mikiö af þessum sökum.
— ARH
Kjördæmisráð Alþýðu-
flokksins í Austurlands-
kjördæmi og Vesturlands-
kjördæmi hafa enn ekki
ákveðið hvernig háttað
verður prófkjöri i þessum
kjördæmum. Nú hefur hins
vegar verið boðaður fund-
ur í Kjördæmisráði Al-
þýðuflokksins i Vestur-
landskjördæmi sunnudag-
inn 2. þessa mánaðar.
Fundurinn verður hald-
inn i Hótel Borgarnesi og
hefst klukkan 14. Aðalmál
fundarins verður: Próf-
kjör um val frambjóðenda
við Alþingiskosningar. Þá
mun væntanlega verða
ákveðið hvenær prófkjörið
skuli fara fram og hver
háttur verður hafður á þvi.