Alþýðublaðið - 29.09.1977, Blaðsíða 2
2
Fimmtudagur 29. september 1977
Biksvartur kross á lofti
og hakakross á klæðunum
ræflarokkstízkan allsrádandi vid
tolleringar í MR í gær
MeB biksvartan krossinn háttá
lofti, hakakrossinn áermum og
höfuöfötum, réðust efribekkingar
i Menntaskólanum gamla í
Reykjavík að busum skólans i
gær og vigðu þá inn I samfélag
sitt. Hempu- og kragaskrýddir
fyrirsvarsmenn skólalifsins stigu
þá á húsþak og hélt sá fremsti
þeirra tölu, til útskýringar þvi
sem fram átti að fara, meðan lýð-
urinn heilsaði að þeim sið er
austurriskur ofstækismaður eitt
sinn innleiddi i Þýskalandi.
Ræflarokkstizkan var yfirgnæf-
andi I klæðaburði og andlitssnyrt-
ingu, þótt snyritvörurnar væru ef
til vill fremur krit og tússlitir, en
augnskuggar og kinnalitur frá
Estee Lauder.
Athöfn þessi var, i styztu máli
sagt, fremur hvimleið á að horfa.
Hún hefur nú verið árleg hefð um
hundrað og þrjátiu ára skeið, eða
svo, en i ár tók hún á sig rudda-
legt yfirbragö, sem lltill sómi er
að og nemendur MR ættu að leið-
rétta. Ærslerueitt, ofbeldi annað.
Auk alls annars hafa þeir siða-
meistarar er efribekkingar hafa
valið sér þetta ár, einkum foringi
Hitler, jafnan verið taldir fremur
neikvæðir handleiðslumenn.
Enginn sá er horfði á aðfarirn-
ar i gær getur þó efast um þaö
þrennt er skaut upp i huga blaða-
manna Alþýðublaðsins:
1. íslenzkir unglingar eru engir
eftirbátar annarra i þvi að til-
einka sér afkáraleikann*
2. íslenzkir unglingar þarfnast
mikillar athygli.
3. Islenzkir unglingar hafa
gaman að þvi að láta geta sin i
fjölmiðlum, þvi þarna var margt
sett á svið og jafnan tekið ivið
harkalegar á busunum ef mynda-
vél var nálægt. Nóg var samt þótt
ekki væri aukið á.
Myndirnar sem hér fylgja með
voru teknar við tolleringarnar I
gær.
— Aldagamalli hefð snúið
í ruddaskap
Frá Sjóklœðageráinni
Skúlagötu 51:
Við kvnnum nýtt vörumerki fyrir hin landsþekktu sjó-
og regnklæði okkar.
Á Skúlagötu 51 framleiðum við nú eins og
undanfarin 10 ár:
66°N Sjókheði 66°N VínylgJófann 66°N Slagveðursfatnað barna
66°N Regnklæði 66°N Svuntur og flökunarsloppa 66°N Slagvcðursfatnað fuliorðinna:
fyrir frystihús Dömu og herra sportfatnað
SJÓKLÆÐAGERÐIN HF
Skúlagötu 51 Sími 11520