Alþýðublaðið - 15.10.1977, Síða 2
2
Laugardagur 15. október 1977 Jiiadid
Þingmenn Alþýduflokksins:
Afnemum deilda-
skiptingu Alþingis
Þrlr menn úr þing-
flokki Alþýðuflokksins
Benedikt Gröndal,
Gylfi Þ. Gislason og
Sighvatur Björgvins-
son, flytja nú óbreytt
frumvarp það til
stjórnskipunarlaga
sem þeir hafa flutt und-
anfarin þing. Frum-
varp þetta miðar að því
að deildaskipting Al-
þingis falli niður og
þingið starfi í einni
deild.
1 greinargerð með frumvarp-
inu segir að þrátt fyrir aö
deildaskipan Alþingis hafi enzt
heila öld, af þvi að Islendingar
hafi haft öðrum stjórnskipunar-
málum að sinna, hafi hún frá
upphafi verið umdeild og vafa-
söm og torveldað sjálfstæðis-
baráttu þjóðarinnar. Deilda-
skiptingin sé erlent fyrirbæri
sem eigi sér engar forsendur i
stéttlausu þjóðfélagi tslendinga,
en hefur kostað bæði fé, tíma og
stjórnarfarsleg vandkvæði.
Ennfremur er þess getið að
deildaskipting þingsins hafi
hvað eftir annað gert rikis-
stjómum, sem studdar voru af
hreinum meirihluta þingmanna
erfitt að gegna hlutverki sinu.
Siðasta dæmið um þetta er
„vinstri stjórnin” sem undir
forystu ólafs Jóhannessonar
naut stuðnings 31 þingmanns,
eða meirihluta þingmanna. En
rikisstjórnin hafði ekki meir-
hluta i neðri deild og gat þvi
ekki komið málum sinum fram
þar. Leiddi þetta til stóralvar-
legs ástands og siðan þingrofs
og kosninga.
1 lok greinargerðarinnar seg-
ir: Abyrgir menn verða aö
hugsa þetta mál og gera sér
grein fyrir þvi, hver hætta er á
að deildaskiptingin haldi áfram
aö veikja islenzkt stjórnarfar,
kalla á ábyrgðarlausar aðgerðir
og draga úr trausti þjóðarinnar
á stjórn kerfi slnu.
Þegar málið er skoðað i þessu
ljósi, hljóta menn að fallast á,
að timi sé kominn til að afnema
deildarskiptingu Alþingis. Það
þarf að gera fyrir næstu kosn-
ingar, svo að ný skipan geti
komið tilframkvæmda snemma
á næsta kjörtimabili.
Bladamannafélag íslands:
Lýsir stuðn-
ingi við kröf-
ur fréttamanna
„Stjórn Blaða-
mannafélags tslands
lýsir fylista stuðningi
við kaupkröfur frétta-
manna Rikisútvarps-
ins, hljóðvarps og sjón-
varps.” Þannig hljóðar
upphaf ályktunar sem
samþykkt var á stjórn-
arfundi i Blaðamanna-
félagi íslands i gær.
1 ályktuninni segir síðan:
„Störf fréttamanna og blaða-
manna haf um mörg undanfarin
ár verið stórlega vanmetin i is-
lenzku þjóðfélagi og eigi með
samningum BSRB að fást raun-
hæf leiðrétting á kjörum
manna, sem fréttastörf vinna,
verður veruleg breyting til
hækkunar á stöðum frétta-
manna hljóðvarps og sjónvarps
innan launakerfis BSRB.”
„Blaðamannafélag Islands
bendir á þá miklu ábyrgð, sem á
blaðamönnum og fréttamönn-
um hvilir, þar sem störf þeirra
eru skoðanamyndandi fyrir al-
menning og verða launinþvi að
vera með þeim hætti, að I þau
veljist menn með góða menntun
og hæfileika.”
„Verði ekki veruleg hækkiín á
kjörum fólks, sem þessi störf
vinnur, er veruleg ástæða til aö
óttast um bæði áreiðanleik og
gæði Islenzkrar blaða-
mennsku”.
—GEK
Mývatnssveit:
Fjölsöttur
borgarafundur
Á milli 170 og 180
manns mættu á borg-
arafund sem Almanna-
vamir gengust fyrir i
Reykjahlið i Mývatns-
sveit siðast liðið
fimmtudagskvöld. Þar
skýrði Páll Einarsson
jarðeðlisfræðingur jarð-
fræðilega þróun um-
brotasvæðisins.
Guðjón Petersen fulltrúi hjá Al-
mannavörnum rikisins var einnig
mættur á fundinn og gerði grein
fyrir viðbrögðum sem viðhöfð
yrðu við hættuástandi.
A fimmtudag fór fram prófun á
simaviðvörunarkerfi Almanna-
varna i Mývatnssveit og að sögn
Hafþórs Jónssonar reyndist kerf-
ið vera i fullkomnu lagi.
Skjálftavaktin i Reykjahlið i
Mývatnssveit tók til starfa að
nýju I gær og eru skjálftar á
svæðinu samkvæmt þeim upplýs-
ingum sem Abl. aflaði sér I gær,
enn i rénum, en landris heldur
áfram að aukast.
— GEK
Beatrice Allende látin:
„Helgaði krafta sfha bar-
áttuchilensku þjódarinnar”
Beatrice Allende
Beatrice, dóttir Salvadors All-
endes Chileforseta, stytti sér ald-
ur fyrir nokkrum dögum.
Beatrice bjó á Kúbu eftir að
fasistar tóku völdin i heimalandi
hennar og myrtu föður hennar og
hundruð þúsunda chileanskra
föðurlandsvina. Hún mun hafa
þjáðst mjög af þunglyndi frá þvi
aö hún varö aö flýja land eftir
valdaránið i Chile og það færzt i
aukana eftir þvi sem frá leið og
hörmungar landsmanna hennar
ágeröustu.
Kommúnistaflokkur Chile
sendi I fyrradag frá sér svohljóö-
andi ávarp i fyrradag:
„Við kommúnistar erum djúpt
hrærðir yfir fregninni um dauða
Beatrice Allende. Við látum hér i
ljósi aðdáun okkar á lifi hennar,
hetjudáð hennar og hæfni i bar-
áttunni fyrirchilensku þjóöina og
byltingarhreyfingu Rómönsku
Ameriku.
Verkalýðsstéttin og öll þjóðin
sá Beatrice ætið við hlið fööur
sins, Allende forseta. Hún aðstoö-
aði hann i allri baráttu hans og
einnig við dagleg störf hans. Hún
skipaöi sér i fylkingarbrjóst
chilenskra föðurlandsvina. Hinn
ll.septembervildihún standa við
hlið hans unz yfir lyki, en aðeins
skipanir forsetans vóru þess
megnugar að fá hana til að yfir-
gefa höllina. Allt frá þvi augna-
bliki helgaði hún baráttunni fyrir
chilensku þjóðina alla krafta
sina, og framlag hennar var mik-
ið.
Fasistarnir, er hafa huliölff
chilensku þjóðarinnar myrkri,
bera ábyrgð á dauöa hennar.
Blóðbaöið, sem hófst meö dauöa
föður hennar, var henni djúp og
sársaukafull lifsreynsla. Undan-
farnar vikur reyndi hún þá sorg,
að horfa á eftir tveimur og hálfu
þúsundi pólitiskra fanga, sem
hurfu með öllu i greipar DINA.
Sú leið, sem Beatrice Allende
gekk, og hin óslökkvandi þrá
hennar tii að sameina alla bylt-
ingarsinnaða krafta og alla liðs-
mennsem vildu berjast fyrir lýð-
ræði, mun seint gleymast
chilensku þjóöinni, sem á þessu
erfiða augnabliki stendur við hliö
móður hennar, Hortensiu All-
ende, systrum hennar og fjöl-
skyldu hennar allri, sem við vott-
um vora dýpstu samúð.”
— hm
EFLIÐ ALÞYÐUFLOKKINN -
ÚTBREIÐIÐ ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Vinnum að eflingu Alþýðuflokksins með þvi að gera Alþýðublaðið að sterku
og áhrifamiklu baráttutæki fyrir jafnaðarstefnuna á íslandi.
Gerizt áskrifendur i dag. Fyllið út eftirfarandi eyðublað og sendið það til
Alþýðublaðsins, Siðumúla 11, Reykjavik eða hringið i sima 14-900 eða 8-18-
66.