Alþýðublaðið - 15.10.1977, Page 4

Alþýðublaðið - 15.10.1977, Page 4
4 Laugardagur 15. október 1977 iSSS u- ó titgefandi: Alþýöuflokkurinn. Rekstur: Reykjaprent hf. Ritstjóri og ábyrgðarmaöur: Árni Gunnarsson. Aösetur ritstjórnar er i Siðumúla 11, simi 81866. Auglýsingadeild, Alþýöuhúsinu Hverfisgötu 10 — simi 14906. Áskriftarsimi 14900. Prentun: Blaöaprent h.f. Askriftarverö 1500 krónur á mánuði og 80 krónur I lausasölu. - — VERKFALLSÞANKAR Verkfall opinberra starfsmanna hefur nú staðið eina vinnuviku. Þúsundir landsmanna í hinum margvíslegustu störfum hafa í fyrsta sinn tekið þátt í slíkum aðgerðum. Þrátt fyrir nokkra smávægilega árekstra verður ekki ann- að séð en framkvæmd verkfallsins hafi tekist vel. Frá sjónarhóli sam- takanna, sem stýra verk- fallinu, hefur stuðningur félagsmanna og fram- kvæmd öll verið ágæt. Fyrstu dagana finnur þjóðin ekki alvarlega fyrir verkfallinu. Það er óvenju hljóft á heimilum og vinnustöðum, umferð hefur minnkað, lífið gengur örlítið hægar. Margir telja þetta ágæta þróun. En verkfallið leið- ir í Ijós, hversu umfangs- mikil opinber þjónusta er og kemur víða við í hinu hálfsósíalska þjóðfélagi okkar, og fljótlega segir það til sín, að þessi þjón- usta hættir. Afleiðingar verkfallsins hafa þegar orðið miklar, til dæmis á sviði samgangna, og þær eiga eftir að aukast. Og þarmeð eykst þrýstingur á ráðamenn ríkisvaldsins að gera starfsmönnum betri boð og leysa deil- una. Frjáls samningsréttur um kaup og kjör ásamt verkfallsrétti er talinn eitt af aðalsmerkjum hins frjálsa þjóð- félags. Þegar rætt er um hörmungar einræðis- ríkjanna er oft byrj- að á því, að þar sé ekki frjáls samningsrétt- ur og enginn verkfalls- réttur. Þegar þetta er haft í huga, hljóta menn að sjá, hve íslenskt þjóð- félag hefur verið íhalds- samt með því að veita ekki hinum fjölmennu starfshópum opinberrar þjónustu verkf al Isrétt fyrr en þjóðin hafði haft heimastjórn í hundrað ár — nú nýlega. Það var ekki beint samhengi í þeim málf lutningi, að gagn- rýna kommúnistaríkin fyrir að neita fólki um verkfallsrétt, en viðhalda slíku banni á alla opin- bera starfsmenn hér heima. Nú hafa þeir loksins fengið þennan rétt, sem allir frjálsir menn tala um sem grundvallar mannréttindi, þótt nauð- synleg öryggisþjónusta sé að sjálfsögðu undan- skilin. Svo hef ur farið, að samtök þeirra hafa neyðsttil að beita þessum rétti og þjóðin stendur frammi fyrir veruleika, sem ekki varð umflúinn. Stjórn BSRB er jafn Ijóst og öðrum forystu- mönnum launþega, að verkfall er neyðarúrræði. En hún þurfti í raun og veru ekki að taka ákvörð- un um að beita því — það gerðu félagsmenn sjálfir. Úrslit atkvæðagreiðsl- unnar um lokatilboð ráð- herranna tala skýru máli. Hún var í raun réttri einnig atkvæðagreiðsla um verkfall. Samningar um kjara- mál opinberra starfs- manna verða aldrei hinir sömu eftir þetta. Verk- fallsvopnið er staðreynd á þessu sviði og allir aðil- ar munu gera sér Ijóst, hvað það þýðir. Verka- lýðshreyfingin veit af langri reynslu, hvað verkföll eru. Þau eru lið- ur í þjóðfélagsátökum, þau eru dýr fyrir verk- fallsfólkið og þjóðarbúið, þau skerpa átök og and- stæður. Verkföll eru neyðarvopn, en í hafróti nútíma lífsbaráttu verður stundum að grípa til þeirra. Engum kemur á óvart, þótt hið hörmulega ástand efnahagsmála í tíð núverandi ríkisstjórn- ar leiði til átaka á vinnu- markaði. Hver getur ásakað launþega og sam- tök þeirra fyrir að halda uppi varnarbaráttu, þeg- ar verðbólga er 30-50% á ári? Hver getur ásakað þá, sem bera umhyggju fyrir afkomu gamla fólksins og öryrkjanna á slikum tímum? Það er auðvitað veiga- mikill þáttur í baráttu við verðbólguna að ná sam- komulagi við launþega- samtökin, ASÍ, BSRB og önnur. Fyrst verður ríkis- stjórn þó að gera ráðstaf- anir til þess að hindra, að hópar manna hagnist á verðbólgunni, hindra braskið, skattsvikin og koma í veg fyrir hrópleg- asta misrétti. Að því loknu ber ríkisstjórn að beita sér fyrir víðtæku heildarsamkomulagi við samtök launþega, Iíkt og Harold Wilson gerði í Bretlandi, er hann kom á hinum kunna „Samfé- lagssáttmála" milli ríkis- stjórnar og launþega- samtaka. Ríkisstjórninni hefur tekist illa við bæði þessi meginverkefni, og því er nú svo komið málum, sem alþjóð sér. Þess vegna er óhjákvæmilegt fyrir þjóðina að losa sig við ríkisst jórnina við fyrsta tækifæri og stokka spilin á Alþingi. BGR I hringidunni Eyjólf ur Sigurðsson skrifar Þegar íhaldid sýnir tennurnar Þegar ihaldiö sýnir tennurnar Eins og öllum er kunnugt, þá stendur yfir fyrsta verkfall opinberra starfsmanna. Þau mannréttindi aö hafa verkfalls- rétt hafa þeir nýlega fengiö og beita honum nú. Margt athyglisvert hefur komiö fram 1 þessu fyrsta verk- falli opinberra starfsmanna. Það sem vekur mesta athygli er hve viötæk samstaöa hefur skapast meöal félaga BSRB. Ég held aö óhætt sé að full- yrða aö samstaöa sem félög inn- an BSRB sýna i þessu verkfalli, og þá miklu þátttöku sem kom, fram i allsherjaratkvæöa- greiöslunni um samningstilboö rikisstjórnarinnar, sé nánast einsdæmi i íslenskri verkalýös- baráttu. BSRB hefur sannaö að sam- tökin eru félagslega sterkari en ASl. ASI hefur aldrei sannaö einsfélagslega sterka samstööu og flest félög sýna nú i baráttu BSRB. Auðvitað hefur verið reynt aö kljUfa þessa samstööu i þessu verkfalli eins og öörum, en nán- ast er aöeins um undantekning- ar aö ræða i bæjarfélögum sem ihaldið hefur hreinan meiri- hluta. Þaö sem vekur athygli og er ástæða tilaö gefa meiri gaum er tilraun ihaldsins i Reykjavik til aö fá Starfsmannafélag Reykja- vikurborgar til að brjótast út Ur hinni sterku samstööu félag- anna I BSRB. I sjálfu sér á þetta ekki aö koma neinum á óvart, þetta eru og hafa veriö baráttuaðferöir ihaldsins I verkalýðshreyfing- unni allar götur frá upphafi. Fundurinn á Sögu, þegar þjónar ihaldsins i Reykjavik reyndu aö fá félagsmenn I Starfsmannafélagi Reykjavikur til aö samþykkja tilboö sem þegar hafði veriö hafnaö af heildarsamtökum opinberra starfsmanna i allsherjarat- kvæöagreiöslu er og veröur minnistæöur fundur. Þaö eina sem boöiö haföi ver- iö uppá i viöbót viö tilboö rikis- stjómarinnar, var aö stofnaö yröi til lánasjóös sem topparnir i Starfsmannafélaginu áttu aö fá aö njóta og launahækkun til þeirra sem höföu starfaö i tugi ára. Allur þorri félagsmanna sat eftir sem áöur viö sama borö. Formaöur Starfsmanna- félagsins sem er trúr sinum yfirboöurum, borgarstjórnari- haldinu I Reykjavik, baröist um á hæl og hnakka til þess aö fá Tækifærissinninn Albert Guö- mundsson formaöur launa- máiaráös Reykjavfkurborgar. félagsmenn til þess aö sam- þykkja þetta tilboö. En viti menn, þrátt fyrir ógnir Ihalds- ins stóð upp bifreiöastjóri hjá þvottahúsi borgarinnar og mót- mælti þvi gerræði aö krefjast samþykktar á tilboöi sem enn einu sinni sniögengi þá lægst launuöu. Gengu ýmsar hnútur milli formannsins og bilstjórans. Formaðurinn hótaði þvi aö lög- um yrði beittef BSRB þrjóskaö- ist viö, þannig aö engin ástæöa væri fyrir Starfsmannafélagiö aö fella þetta tilboö. Bilstjórinn hefði til dæmis 103 þúsund krón- ur I mánaöarlaun og þaö væri sannarlega nægjanlegt fyrir hann. Gekk svo fram af mönn- um aö formaöurinn var beöinn um aö biðja bilstjórann afsök- unar á oröum sinum. Þess ber aö geta, að áöur en fundurinn hófst, haréi 50 manna trúnaðarmannaráö félagsins samþykkt þetta nýja tilboð, sem skildi eftir þá lægst launuöu. I þessu trúnaöarmannaráöi situr vafalaust fólk sem getur talist til allra stjórnmálafiokka, þó svo aö ljóst sé aö 60-70% fulltrú- anna tilheyri Sjálfstæðisflokkn- um. Engu aö siöur haföi ihald- inu tekist að berja þetta fólk til hlýðni meö þvi aö höföa til þræl- sóttans, eöa kannske var hér samtryggingin á ferðinni. Niöurstaöa fundarins varö hins vegar sú, aö þrátt fyrir hótanir og annan bægslagang var tilboöiö fellt og tilraun Ihaldsins IReykjavik tilþessaö reka fleyg I samstöðu BSRB mistókst i fyrstu atrennu. En nú um helgina skal gera , nýja tilraun með allsherjar- atkvæöagreiöslu I Starfsmanna- félagi Reykjavikurborgar, þar sem beita á hinum gamalkunnu aöferöum ihaldsins, aö smala til atkvæöagreiöslunnar eftir aö- feröum ihaldsins, fá þá til aö kjósa sem eru þeirra menn eöa svo hræddir viö sina yfirboöa og þrælsóttinn rekur þá til sam- þykktar. Um hina skiptir minna máli. Hins vegar verður fróðlegt aö fylgjast meö þvi hvort Ihaldiö lætur kné fylgja kviöi viö þá hópa eöa einstaklinga sem neita aö hlýöa einhliöa ákvörðunum launamálaráös Reykjavikur- borgar. Þaö er svo kapituli út af fyrir sig, aö formaður launamálaráös er hinn alkunni tækifærissinni Albert Guömundsson, borgar- fulltrúi. Enda kom tækifæris- sinninn upp i honum i þessari kjaradeilu eins og i flestum málum sem hann fylgir. Hann var einn af þeim þing- mönnum er fylgdi lagabreyting- unni um verkfallsrétt opinberra starfsmanna, þegar Alþingi tók afstööu. Þá var þaö vinsælt og sjálfsagt að fylgja eftir þessari kröfu BSRB. En daginn áöur en fyrsta verkfall opinberra starfs- manna skellur á segir hann i viðtaliviö edttsiödegisblaöiö, aö hann sé oröinn á móti verkfalls- rétti opinberra starfsmanna. Hér er eins og oft áöur beitt þeirri aöferð aö fylgja þvi hverju sirini, sem hann telur aö falli I kramiö hjá einhverjum sérhagsmunahópum. Þaö er annars einkennilegt þegar for- maður launamálaráös Reykja- vikurborgar, alþingismaöurinn, borgarráösmaöurinn og borgar- fulltrúinn Albert Guðmundsson tekur afstööu i einhverju máli og gerir tilraun til þess aö rök- færa þá afstööu, þá veröur flest- um hugsað til þess hvers vegna getur Albert talaö þannig fyrir góðu máli, aö maöur veröur óhjákvæmilega á móti þvi. Ég fagna þeirri samstööu sem opinberir starfsmenn haf a sýnt I sinni fyrstu kjarabaráttu sem þeir eiga I meö verkfallsvopnið i höndum. Þaö er vandfariö meö þaö vopn, en þeir viröast ætla aö kunna aö beita þvi og þaö er meir en sagt veröur um marga aöra hópa i þessu þjóðfélagi. Samstaöa félaga í B.S.R.B. sýnd i verki.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.