Alþýðublaðið - 15.10.1977, Qupperneq 6
6
Laugardagur 15. október 1977 vESE
Nordmenn kaupa minna
brennivín í ár en áður
— drukku samt 19,2 milljón lítra
fyrstu 8 mánuði ársins!
í fyrsta sinn siðan í
heimsstyrjöldinni virðist
nú svo sem áfengissala i
Noregi hafi dregist
eitthvað saman fyrstu 8
mánuði þessa árs.
Samkvæmt upplýsingum
frá norsku áfengis-
versluninni/ nemur
samdráttur í sölu brendra
drykkja 0.8%# en 3.2%
fyrir létt vin. Magnið af
brendum drykkjum sem
Norðmenn hafa keypt á
þessum átta mánuðum er
11.1 milljón lítrar, en
magnið af léttum vínum
er nálægt 8.1 milljón
lítra. Alls hafa Norðmenn
því keypt og drukkið 19.2
milljón litra af áfengum
drykkjum fyrstu 8 mán-
uði þessa árs!
Ástæbur fyrir þessari þróun
eru ekki ljósar, en taliö er að
miklar verðhækkanir á áfengi
snemma á þessu ári eigi hér
talsverðan hlut i máli. Alltaf má
búast viö að verðhækkanir dragi
eitthvað úr neyslu fyrst i staö,
en samkvæmt reynslunni nær
salan sér á strik aftur.
önnur ástæða hefur svo verið
nefnd fyrir þessum samdrætti i
sölu áfengis og er hún sú að
bjórsala hefur minnkað i Noregi
á siðustu árum. 1976 minnkaði
sala bjórs um 1.1%, en i ár virö-
ist samdrátturinn ætla aö verða
0.7%. Þessi samdráttur er tal-
inn geta virkað á sölu áfengis,
þannig að hún minnki.
13000 áfengissjúklingar í Osló?
„Eðli áfengissýkingar” heitir
bók eftir norska geölækninn Ole t
Bratfoss, kom út ekki fyrir
löngu hjá Universitetsforlaget i
Osló og seldist upp á skammri
stundu. 1 bókinni fullyrðir höf-
undur, að 8% af karlmönnum i
Osló, eða um 13.000, séu haldin
áfengissýki. Bezta leiðin til
varnar áfengissýkinni, er þaö
að vera stööugt á varöbergi,
berjast t.d. gegn neyslu áfengis,
hvort sem um er að ræða bjór
eða sterkara, meðal unglinga,
segir Bratfoss.
Ole Bratfoss byggir niður-
stöðursinarm.a.á könnun á um
500 sjúklingum á endurhæfinga-
deildum fyrir áfengissjúklinga i
Osló, sem lagðir vvoru inn i
fyrsta sinn 1960. Hann fylgdist
siðan með þeim næstu tiu árin.
Meöalaldur sjúklinganna var 43
ár, frá 18 ára til 74 ára og að
meðaltalihöfðuþeir drukkið 112
ár áður en þeir voru lagöir inn
til afvötnunar. Þriðjungurinn
var atvinnulaus þegar afvötn-
unin hófst.
Bratfoss leggur áherslu á að
hiö fyrirbyggjandi starf sé af-
gerandi varöandi baráttu gegn
áfengisbölinu. Þeir sem þegar
séukomnir of langt ídrykkjunni
séu erfiöari að eiga viö, segir
hann. Hann hvetur til aukinnar
baráttu til að fá unglinga til að
haida sig frá öli og sterkum
drykkjum.
Sjúklingarnir sem Bratfoss
fylgdist meö i tlu ár, voru marg-
ir hverjir fráskildir, atvinnu-
lausir, leiðir á vinnu og lifi og
þjáðust af margs konar félags-
legum erfiðleikum.
%
Carter klipinn í nefið!
Heimsótti skugga
hverfi f N-York
Carter, Abraham Beame, borgarstjóri New.York, og Patrica Harr-
is, eini þeldökki stjórnarmaöur Carters, I heimsókn I South Bronx
hverfinu I New York. Carter mun hafa beðið frú Harris um að láta
gera skýrslu um hvað megi teljast heillegt af húsakosti hverfisins
og hvað skuli rffa.
Á dögunum kom sjálf-
ur Jimmy Carter,
Bandarikjaforseti, i
óvænta heimsókn i al-
ræmdasta skuggahverfi
New York borgar, og
varð á vegi forsetans
margt fóik sem bað
hann gefa sér mat og
peninga.
Carter staldraði við i
þessum hluta velmegun-
arþjóðfélags sins i
rúman klukkutima og
ferðaðist um hið suð-
læga Bronx-hverfi um-
kringdur öryggisvörð-
um.
tbúðar hverfisins eru
flestir þeldökkir og þar
býr margt fólk frá
Puerto Rico. Carter sté
út úr skotheldum bil sin-
um og litaðist um og á*
einum stað hitti hann
Ramon nokkurn Rueda,
sem er leiðtogi samtaka
sem berjast fyrir bætt-
um húsakosti á svæðinu.
Ramon þessi vatt sér að Carter
og kleip hann i nefið, viöstöddum
til skelfingar, og sagði „Hæ,
Jimmy, hvernig gengur hjá
þér?”. Allt í kring stóö fólk sem
hrópaði: — Segðu þeim aö okkur
vanti peninga. Sendið okkur pen-
inga. Maður einn hrópaði til for-
setans: — Láttu mig fá vinnu,
mig vantar vinnu!
Meðiför meðCarter varmeðal
annarra ráöherrann sem hefur
meö að gera húsnæöismál og þró-
un bæjarmála, Patrica Harris,
eini þeldökki ráðherrann i stjórn
Carters og borgarstjóri New
York, Abraham Beame.
Þýtt úr Arbeiderbladet
Karin Söder gegn kynþátta-
kúgun
Karin Söder, utanríkis-
ráðherra Sviþjóðar, hefur
beðið öryggisráð Samein-
uðu Þjóðanna að sam-
þykkja ályktanir sem for-
dæmi Vorster-klíkuna í
Azaníu (Suður-Af ríku).
Hún kvað ástandið í land-
inu vera ógnun við heims-
friðinn.
í ræðu á allsherjarþingi
SÞ. sagði Söder, að til að
byrja með yrði að koma á
alls herjar viðskiptabanni
við Vorster-stjórnina og
stöðva yrði allar erlendar
fjárfestingar í landinu.
Söder sagði sænsku
stjórnina þegar hafa hafið
aðgerðir gegn minnihluta-
stjórn hvítra manna í
Azaníu, og lagði þunga
áherslu á að meirihluti,
landsmanna þar ætti að
fara með völdin í landinu.
Hún lagði jafnframt
áherslu á ábyrgð SÞ gagn-
vart því að uppræta kyn-
þáttakúgun Vorster-klík-
unnar í Azaníu.
Huang Hua:
Sovétrík-
in hættu-
legri
Kínverski utanríkis-
ráðherrann, Huang Hua,
sagði í ræðu í allsherjar-
þingi Sameinuðu Þjóð-
anna á dögunum, að
ástandið í Kína hefði
einkennst af spennu eft-
ir lát Maos formanns i
fyrra og naumlega hafi
verið komist hjá meiri
háttar blóðsúthelling-
um.
— Þetta er að kenna
svonefndri „fjög-
urra—manna—klíku",
sem ætiaði að leggja til
atlögu að Mao gengnum.
En það ber að þakka
miðstjórn kommúnista-
flokksins, sem starfaði
samkvæmt kenningum
Maos, að ekki varð blóð-
bað í Kína og alvarleg
afturför í kínversku
þjóðlífi, sagði utanríkis-
ráðherrann i ræðu sinni
hjá SÞ.
— 1 dag er ástandið ágætt i
Kina og kommúnistaflokkur-
inn stendur betur sameinaður
én nokkru sinni fyrr, sagði
Framhald á bls. 10