Alþýðublaðið - 15.10.1977, Side 12
Ilalþýöu-
Iblaóió
Útgefandi Alþýðuflokkurinn LAUGARDAGUR
Ritstjorn Alþyðublaðsins er að Síðumúla 11, slmi 81866. Auglýsingadeild blaðsins er aö
Hverfisgötu 10, simi 14906 — Áskriftarsimi 14900. 1 5.. OKTOBER 1977
RÓBERT ÁRNI HREIÐARSSON LÖGFRÆÐINGUR
Furðu lostinn yfir
meðferd þessa máls
— Þessar aðdrótt-
anir eru með slikum
ólikindum að ég sem
lögfræðingur hef aidrei
heyrt um annað eins I is-
lenzkri réttarsögu. Þær
varða ekki aðeins æru
okkar, heldur jafnframt
mjög alvarlega stöðu
Jóns E. Ragnarssonar
sem hæstaréttarlög-
manns og mina sem lög-
fræðings, sagði Róbert
Árni Hreiðarsson lög-
fræðingur, þegar Al-
þýðublaðið náði tali af
honum i gærdag vegna
frétta um breyttan
framburð Sigurðar ótt-
ars Hreinssonar i Geir-
finnsmálinu svokallaða.
Sérstaklega þar sem I
Timanum er talað um að
rannsókn muni væntan-
lega fara fram á þvi,
,,hvort um samsæri
hans (Sigurðar óttars)
og lögfræðinganna
Róberts Árna og Jóns E.
Ragnarssonar hafi verið
að ræða” i máli þessu.
— Jón E. Ragnarsson hafði
engin afskipti af máli Sigurðar/
Óttars fyrr né siðar og vissi ekk-
ert um afskipti min af því, fyrr en
daginn áður en ég var handtek-
inn. Þá bað ég hann að gefa mér
lögfræðilegar ráðleggingar, með
tilliti til réttarstöðu míns skjól-
stæðings.
Róbert Arni kvað afskipti sín af
máli Sigurðar Óttars hafa hafizt
15. desember á siðasta ári.
— Sigurður kom til min
snemma þann morgun og sagðist
vera nýkominn úr vörzlu lögregl-
unnar. Hann hafi verið boðaður til
rannsóknarlögreglunnar 13.
desember. Þar hafi hann gefiö
skýrslu i svonefndu Geirfinns-
máli og harðneitaði henni að hafa
komiö til Keflavikur kvöldiö sem
Geirfinnur Einarsson er talinn
hafa verið myrtur, né vera á
nokkurn hátt viðriðinn Geirfinns-
málið.
Eftir þessa skýrslutöku segist
hann hafa verið færður í Síðumúl-
ann og geymdur þar til næsta
dags, en þá hafi hann aftur verið
tekinn til yfirheyrslu. Þá var tek-
in af honum skýrsla númer tvö og
mig minnir að hún byrji sem svo:
„Eftir langar samræður ákveður
Sigurður Óttar Hreinsson nú loks-
ins að segja allan sannleikann”.
Þetta orðalag gefur raunar ýmis-
legt í skyn um það sem á undan
hefur verið gengið.
Segir sér hafa verið hót-
að 30 daga varðhaldi
Segist Sigurður óttar hafa ver-
ið spurður leiðandi spurninga og
lesið hafi verið fyrir hann úr vitn-
isburðum og framburði sakborn-
inga. Eftir þetta sagðist hann
ekki gera sérneina grein fyrir þvi
hvað sé raunveruleikinn I þessu
máli og hvað imyndun. Áður hafi
hann aldrei sett sjálfan sig i sam-
band við Geirfinnsmálið.
Nokkru siðar sagðist Sigurður
óttar hafa veriö kallaöur fyrir I
þriðja sinn og þá hafi verið lögð
fyrir hann skýrsla númer þrjú,
þar sem samræmdur hafði verið
framburður vitna og gerð úr hon-
um heilleg mynd. Segist Sigurð-
ur, að sér haf i verið hótað 30 daga
gæzluvaröhaldi, ef hann ekki
samþykkti þessa skýrslu Sig-
urður óttar var veikur á þessum
tlma. Hann er astmasjúkur og
var undir læknishendi og gekk i
sprautur. Var meðalannars undir
læknishendi meðan á þessu álagi
stóð. Hann sagöist hafa talið, að
hann myndi, heilsu sinnar vegna,
ekki geta haldið út 30 daga varð-
hald, og þess vegna undirritaö
skýrsluna.
Róbert Ámikvaðsthafa ítrekaö
þaö við Sigurð Óttar, að hann
segði sér sannleikann um þetta
mál. Hvort hann hefði farið til
Keflavikur umrætt kvöld.
— Hann svaraði sem svo, að
það hlyti að vera. Lögreglan hiyti
að vita þetta betur en hann. „Fyr-
ir mér er þetta eins og dljós
draumur, en innst inni trúi ég
ekki að ég hafi fariö þessa ferð,”
sagði hann.
Ég spurði hann þá hvort hann
vildi afturkalla skýrslumar en
hann hafnaðiþviog sagöi að þetta
hlyti að vera svona. Bað mig að
aðhafast ekkert i málinu.
Lofað að nafn hans yrði
ekki birt?
Næst sagði Róbert Ámi að Sig-
urður Óttar hefði komið að máli
viö sig I febrúar sl., þegar saka-
dómsrannsókn lauk i Geirfinns-
málinu og niðurstöður hennar
birtust I öllum blöðum, mjög itar-
legar. Þar var nafn Sigurðar ótt-
ars nefnt i sambandi viö Kefla-
vikurförina og gefið I skyn að
hann hefði beinllnis fariö suður til
að taka þátt i skuggaverkum.
— Hann sagði að sér hefði verið
lofað þvi við yfirheyrslurnar að
nafn hans yrði ekki nefnt i sam-
bandi við málið og vildi ekki sætta
sig við frásagnir fjölmiðla. Ég
skrifaði yfirlýsingu til f jölmiðla i
eigin nafni, þar sem þessi frétta-
flutningur er lastaður og benti á
að við rannsókn málsins hefði
ekkert það komið fram sem benti
til þess að Sigurður Óttar hefði
vitað hvað flytja ætti úr Keflavik
umrætt kvöld. Jafnframt lýsti ég
sök á hendur Sakadóms fyrir
þessa nafnbirtingu.
Róbert Ami segir að næst . hafi
Sigurður Óttar komiö að máli viö
sig Iþessum mánuði, vegna frétta
af málflutningi í Geirfinnsmál-
inu.
— Hann benti mér á frétt i
Timanum frá 5. þessa mánaðar,
þar sem það var haft eftir vara-
saksóknara, að Sigurður óttar
hefði farið til Keflavikur til að
leita að og stela áfaigi. Þessi frétt
var ekki i neinu samræmi við
gögn málsins á þeim tima, auk
þess sem greinin var villandi um
önnur atriði sem Sigurð Óttar
varðar.
Sigurður var óhress mjög og
kvað nafn sitt nú enn á ný tengt
málinu og bornar á sig sakir sem
hann vissisig saklausan af. Hann
bað mig að koma leiðréttingu til
Timans varðandi þessa frétt og
hún var birti Timanum 6. október
undir minu eigin nafni, þ.e.
Róbert Arni Hreiðarsson, lög-
fræðingur.
Sagðist ekki trúa....
Næst er það að Sigurður Óttar
kemur til Róberts Arna 10. þessa
mánaðar, á mánudaginn var, og
spurði hvort þess væri kostur fyr-
ir hann að gefa nýja skýrslu i
málinu.
— Ég spurði hann, hvort hann
hefði gefið skýrslu fyrir dtími, en
hann sagði svo ekki vera, en taldi
sig ekki vera alveg vissan. Ég
fékk siðar um daginn upplýsingar
um það hjá Páli Agnari Pálssyni
einum verjandanum i Geirfinns-
málinu að Sigurður óttar hefði
gefið skýrslu fyrir dómi og svarið
eið að henni.
Ég bað Sigurð óttar að gera
mér frekari grein fyrir þvi hvers
vegna hann vilji nú breyta fram-
burði slnum, eftir allan þennan
tima, og hvort hann geri sér grein
fyrir afleiöingum þess. Þá segist
hann ekki trúa þvi að hann hafi
farið þessa ferð, og þær efasemd-
irhanshafifarið vaxandi eftirþvi
sem timar liðu.
Ég sagðist skyldu kanna málið
og þá meðal annars með réttar-
stöðu hans i huga.
Hringdi ég svo i Pál Agnar og
kynnti honum þennan vilja Sig-
uröar óttars og óskaði álits hans
á málinu, auk þess sem ég bað
hann um upplysingar varöandi
fyrri framburð Sigurðar óttars i
málinu. Páll Agnar bauðst þá til
að lána mér þær skýrslur sem
Sigurður óttar hefði gefið fyrir
lögreglu og fyrir dómi.
Siðar þennan sama dag hafði
Páll Agnar samband við mig og
var Jtín Oddsson hrl. staddur hjá
honum og sagðist Páll hafa skýrt
honum frá þvi að Sigurður Óttar
hefði löngun. til að koma að
breyttum framburöi. Það varö úr
að Jtín og Páll Agnar kæmu til
min og ræddu þá meðal annars
við Sigurð Óttar. A þeim fundi
stakk Jón Oddsson upp á þvi, að
dóminum yrði skrifað bréf um
þetta mál. Ég hóf uppástungu
þessa til ihugunar, en sagðist
mundu hugsa málið frekar i
þessu sambandi og þá m.a. með
tilliti til réttarstöðu Sigurðar ótt-
ars.
Leitaði til Jóns E.
Ég notaði næsta dag til að
kynna mér skýrslur og þau gögn
sem ég hafði fengið að láni hjá
Páli Agnari.
A morgni miövikudagsins
hringdi ég svo i Jón E. Ragnars-
son og sagði honum að ég hefði
erfitt og vandasamt mál með
höndum og spurði hvort ég mætti
bera það undir hann. Siðan ftír ég
heim til Jóns og afhenti honum
þær skýrslur sem ég hafði i hönd-
unum frá Páli Agnari Pálssyni og
bað Jón að gefa mér sérfræðilegt
álit hvað varðaði það, að Sigurður
Óttar heföi löngun til að koma að
breyttum framburði.
Ég sagði Jóni að Sigurður óttar
hefði svarið eið að framburði sin-
um imaisl.og bað hann að kynna
sér mál þetta yfirleitt, meðal
annars með það i huga hvernig
bezt væri að nálgast dóminn i
þessu efni. Sérstaklega með tilliti
til hinna riku réttarhagsmuna.
Um klukkan 14.30 þennan dag,
þegar ég hafð nýlokið við að
leggja fram vörn I Sakadtími
Reykjavikur fyrir hönd Jóns E.
Ragnarssonar og hugðist fara inn
á skrifstofu mina, hlupu að mér
tveir rannsóknarlögreglumenn og
sögðu, að þeim væri skipað að
færa mig strax fyrir rannsóknar-
lögreglustjóra rikisins.
Neitað um afnot af síma.
— Ég bað um leyfi til að fara
inn á skrifstofuna og hringja
nokkur simtöl tilmanna sem áttu
viðtalstima hjá mér, og boða for-
föll. Var mér neitað um það og
mér tjáð, að inn I skrifstofumina
fengi ég ekki að fara, hvað þá að
hringja. Var ég siðan færður fyrir
Hallvarð Einvarðsson og mér
tjáð þar, að tilefni yfirheyrslunn-
ar —sem ég tel I raun handtöku —
sé að komast aö raun um hvort
fyrirhugað hafi verið að ég, fyrir
hönd Sigurðar óttars Hreinsson-
ar, ritaði dóminum bréf þar sem
Sigurður Óttar afturkallaöi fram-
burðsinn frá imai. Var mérsiðan
gerð kunn vitnaskylda og ég lát-
inn gefa skýrslu i málinu. Sú
skýrslu taka og yfirheyrsla stóðu
i um það bil 6 klukkustundir.
Meðan á þessum tima stóö ósk-
aði ég eftir að fá að nota sima, en
þvi var hafnað. Jafnframt var
mér tjáö aö Sigurður óttar
Hreinsson hefði verið handtekinn
og væri I yfirheyrslum. Einnig
var mér skýrt frá þvi að Sigurður
Óttar hefði óskað eftir mér sem
réttagæzlumanni, en þvi verið
hafnað og Sigurður Georgsson
hdl. skipaður réttargæzlumaður
hans. Var mér' tjáð, af vararikis-
sakstíknara, að um frekari af-
skipti min af málinu gæti ekki
verið að ræða og yrðu ekki heim-
iluð.
Stjórn Blaðamannafélags íslands:
Gagnrýnir verkfallsvörzlu
A fundi sem haldinn var I
stjtírn Blaöamannafélags ts-
lands i gær var samþykkt að
gagnrýna harölega þær hindr-
anir sem lagðar hafa veriö I
götu blaðamanna er þeir hafa
ætlað að leita upplýsinga innan.
Keflavikurflpgvallar 'siðustu
daga.
t ályktuninni sem send var
formanni BSRB i gær segir orö-
r ett:
„Stjórn Blaöamannafélags
lslands telur vitavert, að blaða-
menn skuli hafa veriö heftir i
upplýsingaleit, er þeir haf a unn-
ið dagleg störf sin. Verkfalls-
verðir BSRB hafa itrekað mein-
aö biaðamönnum aðgang að
upplýsingum.
Þessir atburðir geröust við
hliöið að Keflavikurflugvelli og
vonast stjórn Blaðamanna-
félagsins til að slikt endurtaki
sig ekki.
Blaðamannafélag tslands
minnir á, að blaðamenn vinna
störf sin fyrir almenning og
veita honum upplýsingar um
gang mála i þjóðfélaginu. Þaö
ætti þvi ekki að vera siður hags-
munamál þeirra, sem að verk-
falli standa, að eiga góð sam-
skiptivið blaöamenn— vilji þeir
komasjónarmiöum sinum á
framfæri við alþjóð.” —GEK
trs Hreioarsson-
ar.
Sigurður öttar mun enn vera I
haldi og verður væntanlega úr-
skurðaður í gæzluvarðhald. Sam-
kvæmtlögum er refsivert að bera
rangan vitnisburð og vinna eið að
honum og mun ákæruvaldið
sennilega höfða sjálfstætt mál á
hendur Sigurði óttari vegna þess.
Væntanlega verður einnig rann-
sakað hvort um samsæri hans og
lögfræðinganna Róberts Árna og
Jóns E. Ragnarssonar hafi verið
að ræða.
Sérstök rannsókn mun fara
fram á þessum nýja þætti Geir-
Addróttanir um samsæri
einstæðar f réttarsögunni
Framhald á bls. 10