Alþýðublaðið - 20.10.1977, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 20. október 1977
5
Reynsluleysi
Verkfall Bandalags starfs-
manna ríkis og bæja hefur mi
staðiö á aöra viku og sýnt aö þaö
leysist varla fyrr en þessi vika
er öll. Verkfalliö hefur náö þeim
tilgangi sínum aö sýna fram á
nauösyn opinberra starfsmanna
fyrir eölilegan framgang mann-
lifsins hér á landi, enda hafa
vandræöi af völdum þess veriö
ómæld. Sá er enda tilgangurinn
meö verkföllum, að sýna fram á
nauösyn þeirra sem i verkfalli
eru og nota þau vandræði sem
skapast til að knýja fram betri
launakjör.
bað hefur vissulega ekki farið
á milli mála aö þetta verkfall er
hið fyrsta sem opinberir starfs-
menn heyja, jafnframt þvi sem
þetta er i fyrsta sinn sem at-
vinnurekendur þeirra, rikis-
valdið og sveitarfélög, eru i
fyrsta skipit i þeirri aðstööu aö
vera þolendur slikra verkfalls-
aðgerða. Þetta hefur glögglega
komið fram i framkvæmd verk-
fallsins og viðbrögöum við þvi.
Samúð almennings
er nauðsyn
Þvi miður er það svo, aö -
reynsluskortur I þessu efni
hefurháö BSRB mjög verulega.
Þannig hefur sambandinu láðst
það sem mestáriöandi er i slikri
deilu, — aö skapa sér samúö
almennings. An þeirrar
samúöar, sem skapast af skiln-
ingi á kröfum opinberra starfs-
manna, er vonlaust aö fram-
kvæma verkfall af þessari
stærðargráöu og þvi miður
hefur verkfallsnefnd BSRB
brugðizt bogalistin i þvi efni.
Um þetta mætti nefna mörg
dæmi, en hér verður látiö nægja
aö benda á tvö.
Mannréttindi
1 fyrsta lagi eru þaö grund-
vallarmistök Bandalags starfs-
manna rikis og bæja að hafa
ekki hamraö nægilega á þeim
mannréttindakröfum sem sam-
bandið gerir. Hér er átt við
kröfur um endurskoöun samn-
inga á samningstimabilinu, með
verkfallsrétti. Allir sem eitt- ,
hvað velta þessum málum fyrir
sér gera sér grein fyrir þvi, aö
útilokað er fyrir launþega-
samtök aö skrifa undir kjara-
samning til tveggja ára, án þess
aö i honum sé slikur réttur.
Bæði er það, að gengisskráning
krónunnar er ekki stööugasta
gengisskráning sem um getur
ogverulegtfallhennar (eöa sig)
getur skert kjarasamninga
mjög verulega á samningstima-
bilinu. Gegn þvi verða
launþegasamtök aö tryggja sig.
í annan stað eru fordæmi fyrir
þvi aö stjórnvöld hafi með laga-
setningu tekiö umsamiö verö-
'bótakerfi Ur sambandi. Gegn
slíkum aðgerðum verða laun-
þegasamtök einnig aö tryggja
sig.
Kröfur BSRB um endur-
skoöunarrétt meö verkfalls-
heimild eru þvi ekki annað en
kröfur um mannréttindi. Þessu
á verkfallsnefnd BSRB aö
hamra á í áróöri sinum. En þvi
er ver, aö bandalaginu hafa
verið ákaflega mislagðar
hendur i þessu efni, eins og
raunar áróðri öllum.
tJtlendingarnir
t ööru lagi skal nefnt eitt
dæmi um óþarfa stifni verk-
fallsnefndar bandalagsins, sem
raunar ætti sennilega aö skrifa
á reikning reynsluleysis. Hér er
átt viö lokun útlendra ferða-
manna hér á landi.
Neitun um undanþágu fyrir
þá til aö fara utan var algjör-
lega út i loftiö og þjónaöi ekki
neinum sjáanlegum tilgangi
öðrum en þeim að sýna mátt
sinn. Verkföll eru hins vegar
enginn kúrekaleikur, heldur
alvarlegar aögeröir sem veröa
aö framkvæmast af yfirvegaöri
skynsemi.
Þaö vildi svo til að ég var viö-
staddur fund útlendinganna á
Hótel Loftleiðum á laugar-
daginn var, daginn áöur en
feröaleyfi fékkst fyrir þá.
Meðan á fundinum stóð var
itrekað hringt til þeirra sem að
fundinum stóöu frá erlendum
fréttastofnunum. Miðað við
málflutning þeirra sem tóku til
máls á þessum fundi má nærri
geta að BSRB hefur ekki verið
borin góð sagan i þeim frétta-
stofnunum sem um málið hafa
fjallað erlendis. Einhver kann
að segja að þaö skipti ekki máli
hvað um verkfall á Islandi er
sagt í erlendum fjölmiðlum, en
gæta veröur þess, aö BSRB er
aöili, aö alþjóölegum samtökum
og orðrómur um „mannrán”,
„skilnin gslausa þursa”,
„geggjaöa verkfallsmenn” og
fleira i þeim dúr sem fram kom
á fundinum og ugglaust hefur
veriö tiundað erlendis, er sizt til
þess fallið að auka skilning á
baráttu opinberra starfsmanna,
hér á landi sem bræörasam-
t(8cum þeirra erlendis.
Ugglaust eru þetta atriöi sem
eiga eftir að slipast meö reynsl-
unni. En ef ekki er farið hyggi-
lega af stað getur svo fariö aö
framtiöarbarátta opinberra
starfsmanna veröi meira á
brattann en þörf hefði veriö á.
HaukurMár
Bókaskrá Æsk-
unnar komin út
út er komin í ellefta sinn
Bókaskrá Æskunnar. i
skránni eru um 800 tiltlar,
frá 35 útgefendum um hin
fjölbreytilegustu efni. -
Flestar bókanna komu út
fyrir meir en tveim árum,
og er veröi þeirra því stillt í
hóf, auk þess sem margar
þeirra eru ekki fáanlegar
annars staðar.
Er tilgangurinn með út-
gáfu bókaskrárinnar sá, að
gefa fólki kost á að velja
sér bækur, án fyrirhafnar.
Pöntunarlisti fylgir
skránni og er hann jafn-
framt efnisyfirlit yfir alla
þá titla sem boðið er upp á.
—JSS
Getraunaspá Alþýðublaðsins:
Erfiðir leikir
9
í siðustu viku stend-
um við á 9 leiki rétta.
Það kom i ljós, að þetta
var óþarfa svartsýni,
við fengum tiu leiki
rétta. Undir venjuleg-
um kringumstæðum
hefði þessi árangur
nægt til verðlauna, en
nú brá svo við, að i
fyrsta skipti í 12 mán-
uði, komu fram seðlar
með 12 réttum.
Leikirnir á seðli vik-
unnar eru nokkuð
snúnir að þessu sinni,
svo við verðum að vera
litillátir og stefnum
aftur að 9 réttum.
Kr. 800
© The Football League
Lelkir 22. október 1977
Birmingham - Derby .
Bristol City - Arsenal
Coventry - Ipswich .
Liverpool - Everton .
Man. City - Wolves .
Middlesbro - Leeds .
Newcastle - Chelsea
Norwioh - Leicester .
Q.P.R. - Nott’ham Forest
W.B.A. - Manchester Utd.
West Ham - Aston Vilia
Southampton - Bolton . .
K
i X 2
’ \C
z
L x
Z X
z
%
%
7
1
■ x z
X &
Birmingham — Derby.
Þetta er erfiður leikur fyrir getraunasérfræðinginn, bæði liðin
geta átt skinandi leiki en detta svo alveg niður i meöalmennsk-
una á milli. Derby er aðminu áliti sterkara liðið og ef leikið hefði
verið á heimavelli Derby, hefði spáin verið heimasigur, en trú-
lega nær Birmingham jafntefli á heimavelli.
Bristol City — Arsenal.
Arsenalhefur enn ekki tekizt að sigra á útivelli, hefur gert eitt
jafntefli og tapað fjórum sinnum. Það er þvi kominn timi til að
þetta góða lið geri breytingu þar á. Útisigur.
Coventry — Ipswich.
Coventry hefur komið nokkuð á óvart i haust, liðið er i einu af
toppsætunum. Þeir eru þvi til alls liklegir. Ipswich minnti
hressilega á tilveru sina á laugardaginn var og tók þá Birming-
ham i smá kennslustund og vann 5-2. Liklegustu úrslitin eru þvl
jafntefli en til vara spáum við heimasigri (Fyrsti tvöfaldi leikur-
inn).
Liverpool — Everton.
Þetta verður leikur vikunnar. Hér berjast liðin, sem eru i öðru
og þriðja sæti i fyrstu deildar. Everton hefur unnið hvern leikinn
á fætur öðrum og þotið upp töfluna. En nú er hætt við, að Everton
komi að lokuðum dyrum, Liverpool er fasthelt á stigin. Við spá-
um heimasigri en jafntefli til vara (Annar tvöfaldi leikurinn).
Manchester City — Wolves.
City tapaði fyrir Forest á laugardaginn var og féll þar með
niður i fjórða sætið. Þeir mega ekki við að tapa fleiri stigum og
vinna þvl Úlfana á laugardaginn.
Middlesbro — Leeds.
Leeds hefur gengið heldur illa ihaust og hefur það komið aðdá-
endum liðsins á óvart. Liðið hangir þó um miðja deildina. Allt
bendir til þess, að Leeds vinni á laugardaginn enda er lið
Middlesbro lélegt um þessar mundir og auk þess heldur leiðin-
legt.
Newcastle — Chelsea.
Newcastle-liðið er á hraðri og öruggri leið niður i aðra deild,
liðið hefur unnið einn leik, fyrsta leik keppnistimabilsins, en sið-
an tapað tiu leikjum i röð. Newcastle tapar einnig á laugardag-
inn, enda er andinn i liðinu slæmur.
Norwich — Leicester.
Leicester-liðið er annar fallkandidatinn. Gegn sterku liði Nor-
wich á liðið enga von. Heimasigur.
QPR — Notthingham Forest.
Forest er „sputnik” liðið i enskri knattspyrnu i dag. Liðið vann
sig upp i fyrstu deild á siðasta keppnistimabili og trónar nú i
efsta sæti deildarinnar. Það er engin tilviljun heldur, liðið leikur
góða knattspyrnu. Liðið vinnur auðveldan sigur á QPR.
/
WBA — Manchester United.
Það sem af er keppnistimabilinu hefur WBA aðeins tapað einu
stigi á heimavelli og er nú, öllum á óvart, i 3.-5. sæti i fyrstu
deild. United hefur gengið verr en efni stóðu til. Við spáum þvi
að WBA vinni á laugardaginn.
7. bók í flokknum „Menn í öndvegi”
Björn ritstjóri
út er komin bókin Björn
ritstjóri eftir Lýð
Björnsson, og er hún út-
gefin af Isafoldarprent-
smiðju. Björn stofnaði Isa-
foldarprentsmiðju árið
1877, og kemur bókin um
hann því út á 100 ára
afmæli fyrirtækisins.
I lokaorðum segir höf-
undur, að bókinni sé ætlað
það hlutverk, að f ræða les-
endur um íslenzkan af-
reksmann og samtíð hans.
Björn ritstjóri er 7. bók ísa-
foldar i flokknum Menn iöndvegi.
Aður eru útkomnar eftirtaldar
bækur: Gissur jarl, Skúli fógeti,
Jón Loftsson, Jón biskup Arason,
Brynjólfur biskup Sveinsson og
Hailgrimur Pétursson.
Af þessari afmælisútgáfu eru
150 tölusett og árituð eintök, sem
fást i Bókaverzlun Isafoldar og á
forlaginu i Þingholtsstræti 5.
West Ham — Aston villa.
West Ham hefur verið heldur óheppið i mörgum leikja sinna I
haust. Liðið á betra skilið en að vera i þriðja neösta sæti. Viö spá-
um jafntefli en útisigri til vara (Þriöja tvöfaldi leikurinn).
Southampton — Bolton.
Bolton hefur nokkra yfirburði i annarri deild, er með þremur
stigum meira en næstu liö, sem eru Luton, Tottenham og
Southampton. Við spáum útisigri en til vara spáum viö jafntefli
(Fjórði og siðasti tvöfaldi leikurinn).
—ATA