Alþýðublaðið - 20.12.1977, Side 1
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER
Ritstjórn bladsins er
til húsa íSídumúla 11
— Sími (91)81866
— Kvöldsfml frétta-
vaktar (91) 81976
Geirfinns-
og Gudmundarmál:
( gærdag voru kveðnir
upp í sakadómi Reykja-
víkur, dómar i Geirfinns-
og Guðmundarmáli. Voru
þeir Sævar Marinó
Ciesielski og Kristján
Viðar Viðarsson báðir
dæmdir til að sæta ævi-
löngu fangelsi og mun
þetta vera í fyrsta skipti
samkvæmt núgildandi
lögum að svo strangri
refsingu er beitt.
Tryggvi Rúnar Leifs-
son var dæmdur í 16 ára
fangelsi, Guðjón Skarp-
héðinsson í 12 ára fang-
elsi, Albert Klahn Skafta-
son í 15 mánaða fangelsi
og Erla Bolladóttir var
dæmd tilað sæta fangelsi
í 3 ár.
t dómuui fjögurra slöast
nefndu er alls staðar gert ráð
fyrir að sá timi sem þau hafa
þegar verið i fangelsum vegna
rannsóknar þessara mála, komi
til frádráttar refsingum þeirra.
Að auki er ákærðu, Kristjáni
Viðari, Sævari Marinó, Tryggva
Rúnari, Guðjóni, Albert Klahn
og Erlu gert að greiða saksókn-
aralaun til rikissjóðs að upphæð
1 millj. króna óskipt.
Þá er ákærðu gert að greiða
skipuðum verjendum sinum
réttargæzlu og málsvarnarlaun
samtals að fjárhæð 4 millj. 550
þúsund krónur sem skiptast
þannig milli þeirra.
Kristján Viðar skal greiða
Páli A. Pálssyni hdl. kr. 900.000,
Sævar Marinó, Jóni Oddssyni
hr. 900.000 krónur, Tryggvi
Rúnar, Hilmari Ingimundar-
syni hr., kr. 700.000. Guðjón,
Benedikt Blöndal, hr., krónur
700.000, Albert Klahn, Erni
Clausen, hr., kr. 650.000 og Erla
skal greiða Guðmundi Ingva
Sigurðssyni, hr., kr. 700.000.
Annan sakarkostnaö en þann
sem hér hefur verið tiundaður
ber ákærðu að greiða óskipt. Þá
voru Sævar Marinó, Erla og
Tryggvi Rúnar dæmd til aö
greiða nokkrum aðilum skaða-
bætur.
Akæröu, Kristján Viöar og
Sævar Marinó eru taldir sannir
að sök um að hafa svipt tvo
menn lifi i bæði skiptin með
þriðja manni og að hafa borið
rangar sakir á fjóra menn sem
leiddu til þess að mönnum þess-
um var haldiö i gæzluvarðhaldi
svo mánuðum skipti. Auk þess
hafa þeir verið fundnir sekir um
nokkur auðgunarbrot og Sævar
Marinó um skjalafals og smygl
á fikniefnum.
Aður hefur Kristján Viðar
hlotið dóma fyrir auðgunarbrot
Tveir hlutu ævi-
langt fangelsi
— þyngsti dómur sem kveðinn hefur
verið upp skv. gildandi lögum
og likamsárás og Sævar hefur
hlotið skilorðsbundinn dóm fyrir
þjófnað.
Tryggvi Rúnar er sakfelldur
fyrir að hafa ásamt Kristjáni
Viðari og Sævari Marinó svipt
einn mann lifi, fyrir nauðgun,
brennu, sem hafði i för með sér
almannahættu og nokkra þjófn-
aði. Hann hefur nokkrum sinn-
um áður hlotiö refsidóma fyrir
auðgunarbrot, likamsárásir
o.fl.
Guðjón Skarphéðinsson er
sakfelldur fyrir að hafa orðið
manni að bana ásamt þeim
Kristjáni Viðari og Sævari og
fyrir smygl á fikniefnum hingað
til lands.Hann hefur aldrei áður
gerzt sekur um refsiveröa hátt-
semi.
Albert Klahn er sakfelldur
fyrir að tálma rannsókn á þvi er
ákærðu sviptu Guðmund Ein-
arsson lifi og fyrir sölu, neyzlu
og dreifingu á fikniefnum. Hann
hefur aldrei áður sætt kæru eða
refsingu.
Erla Bolladóttir er fundin sek
um rangar sakargiftir, sem
voru til þess fallnar að valda
velferðarmissi fjögurra manna.
Þá er hún sakfelld fyrir að
tálma rannsókn á morði Geir-
finns og fyrir skjalafals og
auðgunarbrot. Hún hefur hvorki
sætt kæru né refsingu áður.
Breyttir framburðir ekki
teknir til greina.
t niðurstöðum dómsins kemur
fram, að lögfull sönnun þykir
fram komin fyrir þvi að þeir
Kristján Viðar, Sævar og
Tryggvi Rúnar hafi veitzt að
Guðmundi Einarssyni með lik-
amlegu ofbeldi og misþyrmt
honum svo að hann hlaut bana
af.
Svo sem fram hefur komið lá
fljótlega fyrir játning hjá
ákærðu varðandi morðiö á Guð-
mundi Einarssyni, en siðar
breyttu ákærðu framburöi sin-
um og drógu játningar til baka.
I dómsskjölum kemur fram aö
ekki er taliö að ákærðu hafi fært
fram nein haldbær rök til stuðn-
ings breyttum framburði sinum
og er breytingunum þvi hafnað.
Svipaða sögu er að segja
varðandi morðið á Geirfinni
Einarssyni. Þar lágu fyrir játn-
ingar sakborninga, sem þeir
siðan drógu til baka. Telja þeir
nú að þeir eigi engan þátt i
hvarfi Geirfinns og viti ekkert
um það. Jafnframt hafa þeir
beint ásökunum að rannsóknar-
lögeglumönnum og fangavörö-
um og halda þvi fram að þeir
hafi verið leiddir við yfirheyrsl-
ur og verið sagt hvað þeir ættu
aðsegja. Þessum breytta fram-
burði visar dómurinn á bug.
Svo sem fram hefur komið
breytti eitt höfuðvitnið i Geir-
finnsmálinu, Sigurður Óttar
Framhald á bls. 10
SJúkratryggingagjaldid
hreinn launamannaskattur:
Launþegar
helmingi hærri
tekjuskatt
en fyrirtæki
Atvinnureksturinn 4500 millj-
ónir — Launþegar 800 milljónir
Gylfi Þ. Glslason
gagnrýndi harðlega á
þingi i gær frumvarp
rikisstjórnarinnar um
breytingar á almanna-
tryggingalögum, sem
gera ráð fyrir að sjúkra-
tryggingagjald hækki úr
1 i 2%. Þessi hækkun á
að færa rikissjóði 1900
milljónir króna í auknar
tekjur.
Sagði Gylfi, að hér
væri á ferðinni hreinn
launamannaskattur.
Hann benti á, að .engin
útsvör væru lögð á fyrir-
tæki, og spurði af hverju
ekki væri lagður veltu-
skattur á þau. Hann
sagði, að þessi breyting
hefði i för með sér aukna
skattbyrði, er næmi um
2000 milljónum króna,
vegna óbreyttrar skatt-
visitölu.
Þá benti Gylfi á, að álagöur
tekjuskattur á atvinnurekstur
næmi I ár 4,5 milljörðucn króna,
en á launþega væri lagður 8 millj-
arða króna tekjuskattur. Auk
þess greiddi fjöldinn allur af at-
vinnufyrirtækjum engan tekju-
skatt. Hann sagði, að velta þeirra
fyrirtækja, sem tekjuskattur væri
lagður á, næmi 435 milljörðum
króna. Þau greiddu þvi um 1% af
veltunni i tekjuskatt.
Velta atvinnufyrirtækja á þessu
ári yrði um 600 milljarðar króna.
1,9 milljarðar, sem á að taka af
launamönnum með hækkun
sjúkratryggingagjaldsins, væri
0,3% af þessari veltu, eða þriðj-
ungur úr prósentustigi.
Eitthvaö merkilegt eru þeir aö ræöa þarna fyrir framan þinghúsiö
gömlu mennirnir. Þaö er ef til vill ekkert ómerkara en þaö sem rætt
er innandyra I þeirri ágætu byggingu.
Verkamað-
ur beið bana
Kl. 10.20 i gærmorgun
var lögreglu og sjúkra-
liði tilkynnt um banaslys
um borð í Bakkafossi,
þar sem skipið lá i
Sundahöfn. Hafði
verkamaður klemmzt til
bana við opnun lestar
skipsins og virðist svo
sem hann hafi látizt
samstundis.
Vinnufélagar mannsins
höfðu farið i kaffi, eftir að lest-
arnar höfðu verið opnaðar og
kom þá fyrst I ljós hvaö skeö
haföi þegar þeir komu aftur,
en enginn hafði oröið var við
þegar slysið átti sér stað. 1
Bakkafossi eru lestarlúgur af
svokallaðri „harmoniku-
gerð”, og hefur maðurinn fest
milli lúganna, er þær féllu
saman við opnun.
Yfirvinnubannid heldur áfram
Engar vidrædur enn við
flugumferðarstjóra
„Enn hefur ekkert verið
við okkur rætt, og því að
sjá að menn séu ekki
óhressir með ástandið,"
sagði Ingvar Valdimars-
son, formaður flugum-
ferðarstjóra í viðtali við
Alþýðublaðið i gærkvöldi.
t fyrravköld var tveimur flug-
vélum leyft að fljúga til Akureyr-
ar á undanþágu, og sagði Ingvar
að sú undanþága hefði verið veitt
i ljósi þess að flugumferðarstjór-
ar hefðu ætið átt ágæt samskipti
við flugfélögin, en i þetta um-
rædda sinn hefði tafizt að vélarn-
ar kæmust af stað og biðu farþeg-
ar og varningur i tvær vélar flutn-
ings. „Þetta þýðir þó ekki að við
munum gera slikar undanþágur
daglega,” sagði Ingvar.
Aðeins einn maður mætti til
vinnu i gærmorgun og gathann að
vonum ekki sinnt öðru flugi en
áætlunarflugi, en rétt að geta
þess að veðurs vegna var litt um
annað flug að ræða.
1 fyrradag stóð til að vörur og
farþegar til Akureyrar yrðu flutt-
ir til Húsavikur og ekiö þaöan i
áfangastað, en þegar til kom var
ástand þess vallar ekki með þeim
hætti að það væri gerlegt. Þetta
ástand á flugmálum nú rétt fyrir
jólin kemur sér að vonum afar
illa og likur á að það kunni að
trufla jólahald viða. _ AM