Alþýðublaðið - 20.12.1977, Blaðsíða 9
9
'srigswi&K
W*1* JÞriðjudagur 20. desember 1977
—F ramhaldssaean 1 r T* JT f—f • jt '
? , vio=nliŒ
1 r-w • •
rniamineiunnam
^—eftir Erik Nerlöe—
Hann leit feimnislega niður.
— Þvi miður hef ég slæmar
fréttir að færa, sagði Frakkinn. —
Yfirmaður yðar er sjúkur... fár-
veikur. Við biðum eftir sjúkrabil.
Monsieur Trana-Davidson hefur
fengið hvert hjartaáfallið á fætur
öðru. Læknarnir telja þvi miður
litla von á, að...
Wester virtist skelfingu lostinn,
en innst inni gladdist hann. Gat
hann fengið betri fréttir? Fred
Smith hafði krafist þess, aö hann
ryddi Trana-Davidson úr vegi...
ef nauðsyn krefði. Og nú.. ef allt
gengi að óskum...
— Eg skil vel, aö þetta er áfall
fyrir yður, sagði Duval. — En ég
fullvissa yður um, að við höfum
gert allt, sem i mannlegum mætti
stendur til að hjálpa honum...
Hann þagnaði og hlustaði
spenntur.
— Núersjúkrabillinn að koma.
Dr. Bernard, heimilislæknirinn
og ég, fylgjum honum auðvitað á
sjúkrahúsið. Kannski þér viljið
koma með monsieur?
— Auðvitað!
— Okkur tókst það! sagöi Jul-
es, þegar þau komu auga á stóra
einbýlishúsið, sem var hálfhulið
stórum pálmatrjám.
— En ef frændi þinn er farinn
aftur til Parisar? spurði Vendela
og það fór um hana.
— Það hefur hann ekki! Sko —
gluggarnir eru opnir...
Hann lagði bilnum fyrir utan
hliðið og stökk út.
— Biðið hér, sagði hann. — Ég
fer inn og læt frænda vita, að þið
séuð hérna.
Bjartsýni hans var smitandi.
Það var hann, sem hafði talið i
þær kjarkinn alla leiðina.
— Henri frændi! hrópaði hann,
þegar hann nálgaðist húsið.
— Henri frændi! Það er ég ...
Jules!
Frændi hans var ekki i garðin-
um, en útidyrnar voru opnar, og
Jules hraðaði sér niður f forstofu.
Þar svaraði heldur enginn hon-
um og allt var svo tómt og kyrrt.
Loks heyrði hann eitthvað á ann-
ari hæð. Hann ætlaöi þangað upp,
þegar þjónninn kom.
— Bonjour Louis, sagði Jules.
— Hvar er Henri frændi? I sþila-
vitinu að venju?
Þjónninn var Isvo alvarfegur,
að Jules varð áhyggjufullur.
— Er eitthvað að frænda?
spurði hann.
— Frændi yöar er ekki heima,
monsieur, svaraði þjónninn lágt.
— Hann fór til American Ho-
spital i Nice fyrir tveim klukku-
stundum.
— Er Henri frændi veikur?
— "Nei, en sænski gœFurinn... "
Jules var kominn út áður en
Louis lauk setningunni og hann
hljóp i áttina að bilnum.
, — Andartak, brátt- kemur
1 Bemard læknir. Þið megið biöa
her._____ ___ —-—-------
Hjúkrunarkona visaði Ernu og
' móður hennar inn í biðstofu
i sjúkrahússins og Jules fylgdi á
j hæla þeirra.
Hvithæröur maður reis á fætur,
! þegar þau komu inn.
i- — Jules! hrópaði hann. —En...
Hann leit á konurnar tvær.
— Sæll, Henri frændi, sagði
Juies, —Égskalskýra það seinna
fyrir þér, hvernig á þvi stendur að
éger hér,enfyrstverð ég að fá að
vita, hvernig sænska gestiþinum,
Trana-Davidson, liður.
Hann leit á Vendelu og Ernu.
— Þetta er frændi minn, mon-
sieur Henri Duval.. madame og
mademoiselle Trana-Davidson...
Monsieur Duval heilsaði þeim,
en sagði svo alvarlegur i bragði:
— Þvimiðurliturþettaillaút...
mjög illa. Mig tekur það sárt,
mesdames, en læknarnir em von-
litlir. Prófessor Lefevre reyndi
Hún leit á lækninn. Það var
hún, sem hafði fundið Trana-
Davidson, forstjóra neðst i stig-
anum, þegar hún kom með
penisiilinið. Hann hafði verið blár
i framan og þrýst höndinni að
vinstrisiðu. Hann var meðvitund-
arlaus og hún hringdi tafarlaust i
lækninn,
Nú var hringt að dyrum.
Henri Duval reis snöggt á.
fætur.
—■ Kannski það sé sjúkrabill-
inn, læknir...
Hann hljóp að glugganum og
leit út, en hann sá aðeins gulan,
litinn sportbil fyrir utan.
Andartaki siðar kom þjónninn i
gættina.
— Það er herra hér, sagði
hann. — Sænskur herra, sem vill
tala við Trana-Davidsop for-
stjóra, en...
— Sænskur herra? sagði Du-
val. — Ég kem að vörmu spori.
Bör je Wester rétti úr sér, þegar
Henri Duval kom út.
Afsakiö, hvað ég kem snemma,
monsieur Duval, sagði hann. —
En ég er nýkominn frá Stokk'-
hólmi. Mér skilst, að yfirboðari
minn, Trana-Davidson, sé gestur
yðar?
Hann var næstum of kurteis.
Svipur Duvals kom honum á ó-
vart. Voru allar tilraunir hans til
einskis? Voru hin komin? Var
hann genginn i gildru?
Hann elti tizkukónginn inn i
bókaherbergið.
— Mér skilst, að þér séuð einn
samstarfsmanna Trana-David-
sons.. ef til vill einn einkavina
hans, sagði Henri Duval og þrýsti
hönd unga Svians.
Börje Wester andaði léttara.
Hann hafði þá haft áhyggjur til
einskis. Þá gat hann séð um af-
ganginn.
— Ég er einn samstarfsmanna
hans, svaraði hann. — En að ég
geti kallast vinur hans...
Utvarp
Þriðjudagur
20. desember
7.00 Morgunútvarp Veðurfregn-
ir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimikl. 7.15 og 9.05.
Fréttirkl.7.30, 8.15 (og forustu-
gr. dagbl.), 9.00 og 10.00
Morgunbæn kl. 7.50. Morgun-
stund barnanna kl. 8.00: Arn-
hildur Jónsdóttir les ævintýrið
um „Aladdinog töfralampann”
í þýðingu Tómasar Guðmunds-
sonar (8). Tilkynningarkl. 9.15.
Þingfréttir kl. 9.45. Létt lög
milli atriða. Aður fyrr á árun-
um kl. 10.25: Ágústa Björns-
dóttir sér um þáttinn. Morgun-
tónleikar kl. 11.00: Maurice
André og Kammersveitin i
Munchen leika Trompetkonsert
i D-dúr eftir Franz Zaver
Richter, Hans Stadlmair
stj./Jost Michaels leikur með
sömu hljómsveit Klarinettu-
konsert nr. 3 i G-dúr eftir Jo-
hann Melchior Mol-
tar/Kammersveitin I Zurich
leikur Concerto grosso i a-moll
nr. 4 op. 6 eftir Handel, Ed-
mond de Stoutz stj.
12.00 Dagskráin. Tóiúeikar. Til-
kynningar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir. Til-
kynningar. Við vinnuna: Tón-
leikar.
14.40 Hvers vegna próf? Gunnar
Kristjánsson tekur saman þátt-
inn.
15.00 Miðdegistónleikar Suisse
Romandi Hljómsveitin
leikur ,, 'Veiðimanninn út-
skúfaða”, sinfóniskt ljóð eftir
César Franck, Ernest Anser-
met stj. NBC-sinfóniuhljóm-
sveitin leikur „Siegfried Idyll”
eftir Richard Wagner, Arturo
Toscanini stj. Isaac Stern og
Sinfóniuhljómsveitin I Fila-
delfiu leika Fiðlukonsert nr. 1 í
g-moll op. 26 eftir Max Bruch,
Eugene Ormandy stj.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.16 Veðurfegnir).
16.35 Popp
17.30 Litli barnatiminn Finnborg
Scheving sér um timann.
17.50 Að tafli Jón Þ. Þór flytur
skákþátt og efnir til jólaget-
raunar. Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.45 Rannsóknir I verkfræði —
og raunvisindadeild Háskóla
tslands. Oddur Benediktsson
dósent talar um rannsóknir og
kennslu i rafreiknifræði.
20.10 Fantasia appassionata op.
35 eftir Henri Vieuxtemps
20.30 titvarpssagan: „Silas
Marner” eftir George Eliot
Þórunn Jónsdóttir þýddi.
Dagný Kristjánsdóttir les (13).
21.00 Kvöldvaka a. Einsöngur:
Guðrún A. Sfmonar syngur Is-
lensk lögGuðrún Kristinsdóttir
leikur á pianó."b.Við Hrútafjörð
Guðrún Guðlaugsdóttir talar
við Jón Kristjánsson fyrrum
bónda á Kjörseyri, — siðari
viðtalsþáttur. c. Sungið og
kveðiðÞáttur um þjóðlög og al-
þýðutónlist i umsjá Njáls Sig-
urðssonar. d. 1 gegnum öræfin
Guðmundur Þorsteinsson frá
Lundi flytur ferðasögu frá 1943.
e. Kórsöngur: Karlakór
Reykjavikur syngur islensk lög
Söngstjóri: Sigurður Þórðar-
son. Orð kvöldsins á jólaföstu
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
Harmónikulög Heidi Wild og
Renato Bui leika.
23.00 A hljóðbergi: Listgreinin
litilsvirta Gerald Moore spjall-
ar i léttum dúr um ánægju og
raunir undirleikarans og stráir
um sig dæmum.
23.35 Fréttir. Dagskrárlok.
Sjónvarp
Þriðjudagur
20. desember
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Landkönnuöir. Leikinn,
breskur heimildamyndaflokk- 1
ur. Lokaþáttur. Kristófer
Kolumbus (1451—1506) Þegar
liða tók nær lokum fimmtándu
aldar vissi hver sjómaður, að
jörðin er hnöttur. Evrópumenn
hugðu gott til glóðarinnar að
geta komist til Asiu úr vestur-
átt. Með þvi móti þyrftu þeir
ekki að óttast hina herskáu
múhameðstrúarmenn i
Austurlöndum nær. Arið 1492
tókst sæfaranum Kólumbusi,
sem fæddur var á ítaliu, að
telja spænsku konungshjónin á
að gera út leiöangur til þess að
finna vesturleiöina. Þýðandi og
þulur Ingi Karl Jóhannesson.
Þulur með honum Ingi Karl
Ingason.
21.35 Sjónhending. Erlendar
myndir og málefni. Umsjónar-
maður Sonja Diego.
22.00 Sautján svipmyndirað vori.
Sovéskur njósnamyndaflokkur
I tðlf þáttum. 5. -áttur. Efni
fjórða þáttar: Yfirmaður Stier-
litz I lögreglunni kemst að
fyrirhuguöu viötali hans við
Himmler. Hann þykist sjá sér
leik á borði, þegar hann fær
veður af samsæri Stierlitz og
prestsins, sr. Schlag. Prestur-
inn fær þvi að fara óhindrað til
Sviss. Manninum, sem
rannsakar mál Stierlitz, þykir
grunsamlegt, hvernig prestin-
um var sleppt úr haldi, og
ákveður að hefja leit aö njósn-
aranum, sem Stierlitz skaut.
Þýðandi Hallveig Thorlacius.
23.15 Dagskrárlok.
Skák dagsins
Svartur leikur og vinnur
Piscitelli-Witt, Kúba 1966.
l....Rxe4! 2. Bxe7, (Eða 2. Rxe4, Bd4+ og hvitur tapar minnst
manni) Bd4+ 3. Kg2, Rxg3+ 4. Kh3, Bg2+ (Hxfl) 5. Kxg2,
Rxf 1+ 6. Hvitur gafst upp. Ef 6. Kh3, Hf3+ 7. Kh4, Bf2+ o.s.frv.
Umsjón Baldur Fjölnisson
spékoppurinn
,Ha.. ha.. ég skrifaði sektarmiða á hana fyrir að leggja
ólöglega, og hún sagðist skyldu galdra mig, ha.. ha..