Alþýðublaðið - 20.12.1977, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 20.12.1977, Blaðsíða 2
2 Þriðjudagur 20. desember 1977 Ef eitthvað þarf að fiíma þá límir UHU allt H.A. TULENIUS HEILDVERZLUN f «! '! Já, þaö er gott súkkulaöiö frá Móna. — Við fylgjumst með braðskyni fólks og reynum að gera þvi til hæfis. SÆLGÆTISGEROIN MÓNA Súkkulaöikexið frá Móna er bæði gott og nærandi. — Tilvalinn miUimatur. — 1 vinnu, eða á ferðalagi. Stekk|arhraum 1 Hatnarfiröi Simi 50300 Gód færd á vegum, miðað við árstfma Færð á vegum verður að teljast góð/ miðað við árs- tíma/ sagði Hjörleifur ólafsson hjá Vegaeftirliti blaðinu i gær. Á austur- landi eru ailir vegir færir og fært til Akureyrar og þaðan til Hólmavíkur og Mývatns. Hjörleifur sagði að nú hefði verið hið versta veður á Suður- landi vestanverðu og hefðu verið erfiðleikar á Hellisheiði og ekki mátt tæpara standa á Suðurnesj- um. Gott færi hefði hinsvegar verið um Hvalfjörð og Borgar- fjörð og bærilegt á Snæfellsnesi viðast og alls staðar fært stærri bilum og jeppum. Brattabrekka væri nú ófær, en fært um Heydal og frá Patreks- firði yrði komizt um Kleifarheiði á Barðaströnd, en ófært hefði ver- ið frá Patreksfirði til Bildudals um Hálfdan. Þá væri fært milli Þingeyrar og Flateyrar, en snjó- skriðuföll hefðu valdið erfiðleik- um á Óshliðarvegi. A Holtavörðuheiði hefðu snjó- ruðningstæki opnað leið að Brú og væri fært allt til Hólmavikur. Þá hefði vegur verið gerður fær til Siglufjarðar úr Fljótum i Skaga- firði og fært var til Ólafsvikur, eftir að rutt var fyrir Múlann. Sem fyrr segir er færi gott eystra og Möðrudalsöræfi eru vel fær. AM Iðja mótmælir óhóf- legum hækkunum á nauðsynjavörum Blaöinu hafa borizt tvær ályktanir, sem gerðar voru áfélagsfundi í IÐJU, félagi verksmiöjufólks, s.l. sunnudagskvöld og fara á- lyktanirnar hér á eftir. Ályktun 1. Fundur i Iðju, félagi verk- smiðjufólks, haldinn í Lindarbæ sunnudaginn 18. des. 1977, mót- mælir harðlega þeim óhóflegu hækkunum, sem orðið hafa á nauðsynjavörum að undanförnu. Einnig varar fundurinn stjórn- völd alvarlega við öllum þeim að- gerðum, er miða að þvi að skerða núgildandi visitölu á nokkurn hátt, eða skerða gildandi kjara- samninga á einn eða annan veg. Jafnframt skorar fundurinn á samtök launafólks, að snúast sameiginlega gegn öllum slikum aðgerðum. Ályktun II. Fundur i Iðju, félagi vérk- smiðjufólks, haldinn i Lindarbæ sunnudaginn 18. des. 1977, mót- mælir harðlega þeirri fyrirætlan rikisvaldsins að krefjast 40% af ráðsfðfunarfé lifeyrissjóðanna, og skerða þannig verulega getu þeirra til að gegna hlutverki sinu i þágu launþeganna, sem eru eig- endur lifeyrissjóðanna. Janúar-nóvember: Dauðaslysum í um- ferðinni hefur fjölg- að um meir en Gylfi Þ. Gíslason TAFNAÐARSTEFNAN Hvað vilja jafnaðarmenn (sósíaldemókratar)? Hver er hinn fræðilegi grundvöllur stefnu þeirra? Hvaða hugsjónir liggja að baki aðgerðum þeirra, þar sem þeir eru eða hafa verið við völd? Slíkum spurningum og fjölmörgum öðrum svarar bókin Jafnaðarstefnan. Guðmundur G. Hagalín II » »SKAlDS«jA Haminman er ekki alKai ótulct GUÐMLMXJR GISLASON HASALtN HAMINGJAN Hamingjan er ekki alltaf otukt segir Guðmundur Hagalín. I þessari nýju skáldsögu bætir hann enn við hinn sérstæða persónuleika, sem hann hefur skapað á nær 60 ára ritferli. Hér er það lítill og ljótur maður - Markús Móa-Móri. Það er einmitt ljótleikinn sem ræður sköpum - gerir Markús að miklum manni og hamingjumanni. Sir Andrew Gilchrist ÞORSKASTRIÐ OG HVERNIG Á AÐ TAPA ÞEIM Hvers konar starfsemi fer fram innan veggja erlendra sendiráða í Reykjavík og hvert er hlutverk sendiherr- anna? Lesið berorða lýsingu Sir Andrews Gilchrists fyrrum sendiherra Breta á Islandi á samskiptum hans við forystumenn þjóðarinnar á dögum þorskastríðsins mikla 1958-60. oé Almenna Bókafélagið Austurstræti 18, Bolholti 6, simi 19707 sfmi 32620 helming 35 fár 17 ífyrra Dauðaslysum af völdum umferðaróhappa hefur f jölgað verulega í ár sam- anborið við síðasta ár. Þannig höfðu 35 látizt af þessum sökum í lok nóv- embermánaðar s.l. en á sama tíma í fyrra létust 17 manns. Þetta kemur m.a. fram i bráða- birgða yfirliti um umferðarslys, á timabilinu janúar — nóvember 1977, sem Umferðarráð hefur unnið. 1 siðasta mánuði urðu 33 um- ferðarslys, þar sem 41 maður slasaðist og 4 létu lifiö. A sama tima i fyrra urðu slysin heldur fleiri, eða 46. I þeim slösuðust 56 farþegar og 1 lét lifið. Umferðar- slys eru þvi nokkru færri i nóvember i ár, en á sama tima i fyrra en fleiri farþegar hafa látizt i ár. Þá slösuðust allmargir gang- andi vegfarendur i siðasta mán- uði, eða 16. Rúmur helmingur þeirra, eða 7 manns voru 65 ára eða eldri og létu þrir þeirra lifið. —JSS Ritstjórn Alþýðublaðsins er í Síðumúla 11 - Sími 81866

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.