Alþýðublaðið - 20.12.1977, Qupperneq 3
æær Þriðjudagur 20. desember 1977
FH. ^7TTIP1 ' " §
Maður fórst í
húsbruna að
Þingholtsstræti 27
Á laugardag fórst mað-
ur í eldi sem upp kom í
húsinu að Þingholtsstræti
27. Maðurinn# Hilmar
Sigurðsson, til heimilisað
Selvogsgötu 13 i Hafnar-
firði, var 45 ára og er ekki
vitað um hver erindi hans
í húsinu voru.
Húsið að Þingholtsstræti 27,er
gamalttimburhús, sem er i hópi
verndaðra húsa i Reykjavik,
byggt af Davið Scheving Thor-
steinssyni á sinum tima. Fyrir
tveimur árum skemmdist mið-
hæð hússins af eldi og hefur þar
ekki verið búið siðan, en i kjall-
aranum hafði Egill Bachmann
vinnustofu við teikningar. Það
var i kjallaranum, sem eldurinn
nú kom upp, en dyraumbúnaður
mun hafa veidð mjög lélegur og
þvi auðvelt inngöngu fyrir
hvern sem var. Um eldsupptök
er ekki vist, en haldið að raf-
magnsofn, sem þarna var, hefði
getað valdið eldinum, eða þá
sigarettustubbur.
Brennivínstárid hefur
hækkað minna í verði en
kaff i og ýsa
Samkvæmt útreikning-
um Áfengisvarnarráðs
hefur ýsan hækkað hlut-
fallslega meir í verði en
brennivin síðastliðin 10 ár,
og sömu söguna er að segja
um þjóðardrykk íslend-
inga, kaffið. Þannig ætti
brennivínsf laskan að kosta
nú 4.830, ef hún hefði
hækkað til jafns við ýsu og
kr. 6.930 sé miðað við verð
á kaffi.
Fyrir 10 árum kostaði kilóið af
ýsu 15 krónur en er nú komið i 230
krónur. Kaffið kostaði 84 krónur
kilóið, en hefur hækkað i kr. 1.848.
Loks kostaði brennivinstárið 315
krónur, en nú er flaskan komin i
3.500. Þannig hefði útsöluverð
hverrar flösku átt að vera tæp-
lega helmingi hærra en það er nú,
til að standast samanburð við
kaffið. —JSS
WEEDW-BAR
KEÐJUR er lausnin
l>að t*r staðreynd
að keðjur eru
örufígasta vörnin
fíegn slysuin
i snjó og hálku.
WEED keðjurnar
stöðva bilinn
öruggar.
Eru viðbragðsbetrí
og halda bilnum
stöðugri á vegi
Þér getið treyst
WEED-V-BAH
keðjunum
Sendum i póstkröfu
um allt land.
i \íi
liLclEltllu.
LrliLliab'Lli liL'
Suðurlandsbraut 20 • Sími 8-66-33
ó
Frá aukafundi SH:
Afkoma frystingar 1976
lakari en áætlað var
Afurðalán verði 70% af
útborgunarverði framleiðslu
Blaðinu hefur borizt
ályktun, sem samþykkt
var á aukafundi Sölumið-
stöðvar hraðfrysti-
húsanna þann 16.12. sl.
Kemur þar fram að af-
koma frystingar árið 1976
er mun verri en áætlað
hafði verið og ennfremur
að margvíslegur vandi
steðjar að þessari at-
vinnugrein nú. 0
I ályktuninni segir m.a.: Geta
frystihúsanna til að standa
undir þeim miklu kostnaðar-
hækkunum, sem orðið hafa á
þessu ári, byggist þvi eingöngu
á hækkun markaðsverðs á
erlendum mörkuðum og gengis-
sigi.
Sem dæmi um kostnaðar-
hækkanir á þessu ári má nefna
að hráefni til vinnslunnar
hefur hækkað um 32%. Vinnu-
laun við fiskvinnsluna hafa
hækkað á bilinu 60%—-65% frá 1.
jan. til þessa dags. Samtals
nema þessirtveir kostnaðarliðir
nú um 83% af heildartekjum.
Vextir af rekstrarlánum frysti-
húsanna hafa hækkað um 87% á
árinu og rafmagnsverð hefur
hækkað um 36,5% til 39% á
sama tima.
Til að mæta þessum hækkun-
um og svipuðum hækkunum
annarra kostnaðarliða hefur
orðið hækkun á markaðsverði
frá 1. janúar sem nemur um 12
% og þvi til viðbótar hefur orðið
gengissig á árinu sem einnig
skilar um 12%. Þegar þessar
gjaldahækkanir annars vegar
og tekjuhækkun hinsvegar er
höfð i huga, er ekki að undra
þótt afkoma frystihúsanna sé
slæm.
Fyrirsjáanlegt er þvi að um
beint rekstrartap verður að
ræða á árinu. Þegar jafnframt
er tekið tillit til að velta frysti-
húsanna i krónutölu mun hækka
um þriðjung á árinu, en hlutfall
rekstrarlána hefur haldizt
óbreytt, þýðir þetta stóraukna
rekstrarfjárþörf. Nýjar reglur,
sem viðskiptabankarnir hafa
sett um greiðslufyrirkomulag
hráefnis og vaxta af rekstrar-
lánum, auka enn þennan vanda.
Aukafundur S.H. skorar þvi á
rikisstjórnina að beita sér nú
þegar fyrir lausn þess vanda
sem nú blasir við sjávarútveg-
inum.
Jafnframt verði tryggður
rekstrargrundvöllur, sem skapi
meginþorra frystihúsanna
afkomu til að endurnýja og
endurbæta framleiðslutækni og
þar með framleiðni, en það
markmið ætti að vera sameigin-
legt hagsmunamál allra.
Þá er enn fremur nauðsynlegt
að taka rekstrarlán útflutnings-
framleiðslunnar til endur-
skoðunar með það fyrir augum
að fyrirbyggja að fyrirtæki
hætti framleiðslu vegna
rekstrarfjárskorts.
Afleiðingar af lokun frysihúsa
er atvinnuleysi og útflutningur á
óunnu hráefni, en slíka þróun
yrði að telja neikvæða fyrir
þjóðarbúskap okkar.
Framhald á bls. 10
KMimvAc <0
• ■ • r
n
Glöpin grinun
MárKrístjónsson
Glöpin
grimm
IÐ
Hliðstæða HAMSUNS
GUÐMUNDUR G. HAGALlN RITAR UM
BÓKINA GLÖPIN GRIMM I MORGUN-
BLAÐIÐ 6. Þ.M. OG KEMST M.A. SVO
AOOROI:
„Ég hafði ekki lesið margar blaðsíður í
þessari skáldsögu, þegar ég þóttist sjá,
að þarna væri á ferð höfundur, sem hefði
það mikið tll brunns að vera, að hann
þyrfti ekki að „gera kúnstir"—til dæmis
misþyrma islenzku máli eða reka upp
popphl jóð—til þess að eftir honum væri
tekið. Og þess lengur sem ég las jókst
hvort tveggja: undrun mín og gleðin yfir
því, að þarna væri ég kominn i kynni við
veigamiklð sagnaskáld. Og ég hugsaði
með mér: Mundl hann virkilega reynast
fær um að verða sjálfum sér samkvæm-
ur allt til bókarloka?
Stundum varð mér það fyrir að skella
upp úr í elnrúmi við lesturinn, og mér
komu í hug orð Vídalíns um að skemmta
um hinn óskemmtilegasta hlut. Stöku
sinnum sagði ég við sjálfan mig: Get-
urðu verið þekktur fyrir að hlæja að því
arna? Svarið varð já ...“
....Mér flaug í hug við lesturinn, að
þarna væri komin íslenzk hliðstæða
bókar Hamsuns, Konerne ved vand-
posten."