Alþýðublaðið - 20.12.1977, Blaðsíða 12

Alþýðublaðið - 20.12.1977, Blaðsíða 12
alþýðu- blaðið Otgefandi Alþýðuflokkurinn Ritstjórn Alþýöublaðsins er aö Síðumúla IX, simi 81866. Auglýsingadeild blaðsins er að Hverfisgötu 10, sfmi 14906 — Askriftarsimi 14900. ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 1977 Tvö innbrot á Snæfells nesi frá 1974 uppvís Um helgína voru tveir rannsóknarlögreglumenn úr Reykjavik kvaddir vestur á Hellissand, vegna smáinnbrots, sem þar hafði verið framið og menn þar vestra þurftu að- stoðar viðað upplýsa. 1 þessum leiðangri bar það til tiðinda að sendimönnunum tókst að upplýsa tvö gömul innbrot frá árinu 1974 og var annað innbrotið i Kaupfélag Borgfirðinga, þar sem 400 þús. kr. var stolið 20. des. það ár, en hitt var framið i Hafnarbúðinni i Rifi og ræddi þar um stuld á sælgæti og þess konar varningi. Þeir, sem sekir voru um fyrra innbrotið, voru þrir ungir menn frá Hellissandi en við innbrotið i Rifi voru þeir fjórir, tveir þátt- takenda úr kaupfélagsinnbrotinu og tveir aðrir. Þurfti að vitja eins hlutaðeigandi manna norður i land, en þangað var hann nú flutt- ur. Ekki mun enn ljóst hvort þess- ir menn eru valdir að þvi innbroti, sem rannsóknarlögreglumenn voru upphaflega sendir að rannsaka nú. Þess má að lokum geta að kaupfélagsstjórinn, sem á þess- um tima var við kaupfélagið, varð var við tortryggni i sinn garð vegna þessa þjófnaðar á sínum tima og það svo að hann telur sig hafa flæmzt úr starfi af þeim sök- um. Fagnar hann að vonum þess- um máialokum, þótt langan tima hafi tekið að leiða hið rétta i ljós. AM Velferðarþjódfélagið ísland A.£>. 1977: Fleiri beiðnir en oftast áður — segja Hjálpræðishersmenn, en þeir úthluta sem fyrr gjöfum til fátækra fyrir þessi jól I dag eru aðeins fjórir dagar til jóla. Dansinn kringum gullkálfinn hefur sjaldan verið tryllingslegri en nú, fjölskyldur kaupa jólagjafir fyrir fleiri hundruð þúsund krónur og eldhúsborðin svigna undan krásunum, sem bera á á borð um jólahelgina. Það eru þó ekki allir, sem geta tekið þátt i þessum dansi. Þeir eru margir, sem ekki geta veitt sér neinn munað, umfram aðra daga ársins. Fólk, sem allt að þvi sveltur meðan aðrir standa á blistri af ofáti, fólk sem ekki er aflögufært til að gefa börnum sin- um gjafir meðan önnur börn pakka utan af leikföngum, sem kosta ærin pening. Þetta fólk gleymist oft þegar talað er um velferðarþjóðfélagið og verðbólguna. Fyrir jólin fara nokkur góðgerðarfélög á stúfana, hefja safnanir, með það fyrir Framhala á bls. 10 Pólstjarnan sökk - Tveir menn fórust Rækjubáturinn Pól- stjarnan frá Drangsnesi sökká Steingrímsf irði s.l. laugardagskvöld. Tveir menn voru á bátnum og fórust þeir báðir. Hétu þeir Jóhann Snæfeld Pálsson, skipstjóri, Ham- arsbæli, sem lætur eftir sig konu og f jögur börn og Loftur Ingimundarson, Drangsnesi, sem lætur eftir sig eiginkonu og tvö börn. Pólstjarnan hafði haldið til rækjuveiða á laugardagsmorg- uninn, i mynni Steingrimsfjarð- ar. Höfðu bátsverjar haft tal- stöðvarsamband við annan rækjubát á svipuðum slóðum og heyrðist siðast til Pólstjörnunn- ar siðdegis á laugardag. Var báturinn þá i siðasta toginu, en siðan skyldi haldið til lands. Þegar báturinn kom ekki fram, á fyrirhuguðum tima var farið að grennslast fyrir um hann. Skömmu siðar hófu 13 skip frá Hólmavik, Drangsnesi og Skagaströnd leit, og eins gengu leitarmenn fjörur beggja vegna Húnaflóa. Um klukkan hálf tvö á að- fararnótt sunnudagsins fannst brak úr Pólstjörnunni i mynni Steingrimsf jarðar, þar sem bát- Framhald á bls. 10 Hrynur úr Heimakletti Um hádegisbilið i gær hrundi allstórt stykki úr Heimakletti. Varð þar af nokkur dynkur. 1 viö- tali sem blaðið átti við Pál Zophaniasson bæjarstjóra þeirra Vestmannaeyinga kom fram að stykkið féll úr klettinum norðan- verðum og fbr i sjó niður rétt fyr- ir utan innsiglingarrennuna. Kvaðst Páll álita að hrunið hefði úr klettinum á 50—60 metra kafla og taldi hann ekki óiiklegt að alls hefðu farið þar niður um 10.000 lestir af grjóti. Helzt hallast menn að þvi að þarna hafi verið um samspil frosts og vatns að ræða. Vatn sezt i sprungur og eykst siö- an mjög að rúmmáli þegar fryst- ir. Hrunið úr klettinum olli nokkr- um dynkjum sem heyrðust viða um eyna og þótti sumum likast þvi sem jarðskjálfti væri á ferð- inni. ES Loks íslenskt Berón þaó samanvió hrökkbrauö til sönrn nota. Vittu Irvort hefin* vinninginn. Rúgkex meó osti, (t.d. kúmenosti). Rúgkex meó srugöri. Rúgkex meó síld og- eggi. Rúgkex meó kæfii. KEXVERKSMIÐJAN FRON

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.