Alþýðublaðið - 05.01.1978, Blaðsíða 1
FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR
3. TBL. — 1978 — 59. ÁRG.
JRitstjórn biaðsins er
til húsa f Síðumúla 11
— Sími (91)81866
— Kvðldsfml frétta-
vaktar (91)81976
i
Atvinnuleysi ríkjandi
hjá vörubílstjórum
Við athugun á skrán-
ingu atvinnulausra i
Reykjavík i gær, kom
fram að meðal 60 at-
vinnulausra karl-
manna eru 32 vörubfl-
stjórar. Blaðið hafði
þvi samband við Guð-
mann Hannesson hjá
Vörubilstjórafélaginu
Þrótti og innti hann
eftir orsökum þessa.
Guðmann kvað þetta ástand
siður en svo einstakt á þessum
árstima. Bæði væri að fram-
kvæmdirhjá borginni, sem veit-
ir mörgum félaga vinnu og svo
„Erum tvímæla-
laust í í hópi
láglaunafólks”
— segir Guðmann Hannesson
byggingaframkvæmdir væru
með minna móti um þetta leyti,
og hitt, að samdráttur væri hjá
þessum aðilum, vegna almenns
ástands mála i landinu, sem að
sjálfsögðu hefði sin áhrif.
Þegarsvoer ástattsem nú, er
þvi ekkert óeðlilegt þótt menn
láti skrá sig atvinnulausa, en
Gðmann taldi að miklu fleiri
hefðu sáralitið sem ekkert að
gera en þessir 32, þótt ekki væru
skráðir. Margir hefðust hrein-
lega ekki að, sem skiljanlegt
væri, og á stöð Þróttar biðu
gjarnan um það bil 30 manns
eftir að fá eitthvað verkefni.
Þetta ástand lagaðist svo að
vonum þegar voraði, en ástæða
væri til að óttast áhrif sam-
dráttar i framtiðinni.
Félagar Þróttar eiga bifreið-
ar sinar allir sjálfir og má nærri
geta að vörubill er dýrt atvinnu-
tæki, sem menn hlaupa ekki frá
hvenær sem er. Menn hafa hasl-
að sér völl i þessari atvinnu-
grein og vilja stunda hana
áfram. þótt atvinna sé oft stop-
ul. Þriöxla vörubill munkosta
um 15 milljónir nýr, en tviöxla
um 10 milljónir, svo þarna er
mikið fé bundið fyrir einstakl-
ing.
„Tvimælalaust verður að
teljaað vörubilstjórar séu með-
al láglaunafólks i landinu,”
sagði Guðmann Hannesson. 1
samningum er sérstaklega
samið vegna bilsins og fyrir
manninn og þar eru bilstjóra
reiknuð lægri laun en bilstjóra á
Dagsbrúanartaxta, og viðhald á
vörubilum er að sjálfstöðu mjög
dýrt, og varahlutir og viðgerðir
kostnaðarfrekar. Þróttur er að- i
ili að Landssambandi vörubif- 1
reiðarstjóra, sem telur nokkur |
hundruð félaga, en sjálft félags-
svæði Þróttar tekur yfir
Reykjavik, Kópavog, Sel-
tjarnarnes, Mosfellssveit og
Kjós, allt upp i Hvalf jörð. ^jyj
Hún er rysjótt veðráttan á Islandi, því fengu
r eykvískir vegfarendur að kenna á í gær. Tiltölulega
stillt veður var um morguninn, en um miðjan dag tók
að snjóa og færð að þyngjast. Þrátt fyrir að snjóruðn-
ingstæki borgarinnar væru öll i f ullri notkun hingað og
þangað um bæinn dugði það ekki til og víða mynduðust
umferðarhnútar. Undir kvöldið gekk veðrið síðan
niður og var aftur komið hið fegursta veður í
gærkvöldi.
Ekkert
lát á
fund-
um
vestra
Ekkert lát er á samn-
ingafundum Alþýðu-
sambands Vestf jarða og
atvinnurekenda þar í
fjórðungnum. Alþýðu-
blaðið reyndi árangurs-
laust að ná í Pétur
Sigurðsson í gærdag en
hann var á fundum enn,
þegar blaðið fór i prent-
smiðjuna.
Á skrifstofu verkalýðs-
félaganna á Isafirði fengum
viö þó að vita, að töluvert
langt væri i land að samningar
tækjust. Ekkert eitt atriði
umfram önnur væri til að tef ja
málið, heldur væri verið að
„þrasa um kaupið” fram og
aftur.
—hm
...f „pílagríms-
ferd” til Mekka
Svo sem flestum mun kunnugt hafa Flugleiðir
undanfarin tvö ár tekið að sér flutninga á mú-
hameðskum pílagrimum frá Norður-Afríku og Ni-
geríutil hinnar helgu borgar Mekka. Múhameðstrúar-
mönnum er fyrirlagt að heimsækja þá borg að
minnsta kosti einu sinni á ævinni.
I opnu blaðsins er greint frá „pílagrímaf luginu" og
ýmsu sem þvi viðkemur.
Sáralítil loðnuveiði
Bátarnir tínast á miðin
Sáralitil veiði er enn á
loðnumiðunum, en bátarn-
ir eru að tinast á miðin og
margir eru byrjaðir að
kasta.
1 viðtali við loðnunefndarmenn
i gær, kom fram að nú væru 24
bátar lagðir af stað og búnir að
tilkynna sig, en um afla væri ekki
vitað annað en það að hann væri
enn mjög litill og ekki talin
ástæða til að ergja skipstjóra með
sifelldum og ótimabærum spurn-
ingum og fréttayfirlýsingum,
þegar svo stæði á.
Bátarnir halda að venju á miðin
fyrir miðju norðurlandi, kring um
Kolbeinsey, þó enginn nær eynni
en 60 sjómilur. Kváðust loðnu-
nefndarmenn vona að frá ein-
hverjum tiðindum yrði að segja á
morgun.
Mynd—GEK
AM