Alþýðublaðið - 11.01.1978, Page 1
MIÐ VIKUDAGUR 1 l.JANÚAR
8. TBL. — 1978 — 59. ÁRG.
■
.Ritstjórn bladsins er
til húsa íSíðumúla 11
— Sími (91)81866
— Kvöldsími frétta-
vaktar (91)81976
Loðnuverð ákveðið 7 kr. fyrir hvert kg.
Lodnuflotinn siglir í
land í mótmælaskyni
funda meö talsmönnum sínum á Akureyri í dag
Þegar blaðið fór i
prentun i nótt voru allir
þeir 50 loðnubátar, sem
komnir voru á miðin
fyrir norðan land, á leið
inn til Akureyrar i mót-
mælaskyni við loðnu-
verðsákvörðun Yfir-
nefndar verðlagsráðs
s jávarútvegsins.
Loðnuverð var þar
ákveðið 7 kr. pr. kg.
Þetta kom fram i sam-
tali sem AB átti við
Ingólf Ingólfsson
.seint i gærkvöldi.
Ingólfur sagöiþetta einhliöa
aðgeröir af hálfu sjómanna og
væri algjör samstaöa meö yfir-
og undirmönnum, svo og meö
áhöfnum allra þeirra skipa sem
komin voru á miöin.
Sjómenn gerðu ráö fyrir að
veröa komnir inn til Akureyrar
undir morguninn og báðu um aö
forráðamenn hagsmunasam-
taka þeirra kæmu noröur til við-
ræðna. f þessu skyni höfðu sjó-
menn tryggt sér fundarsal á
Akureyri.
Sem fyrr segir er það loönu-
verðið sem sjómenn eru að mót-
mæla. Ingólfur kvaö þaö ekki
hafa bætt úr skák að i fréttum
útvarpsins i gærkvöldi var
greint frd þvi aö loðnuverð i
Færeyjum heföi verið ákveöiö
15 krónur fyrir hvert kg., eöa
um helmingi hærra en hér.
Þetta gerist á sama tima og
Færeyingar eru aö hefja um-
talsverðar loðnuveiðar hér viö
land samkvæmt fiskveiöisamn-
ingi landanna. Ingólfur kvað
sjómenn vilja fá skyringar á
þessu.
Fulltrúar sjómanna i Yfir-
nefnd mótmæltu verðúrskurðin-
um. Ekki kvaðst Ingólfur tilbú-
inn aö greina frá hverjar kröfur
þeir heföu gert um verð, en það
væri allmiklu hærra en það sem
Yfirnefndin ákvaö með atkvæð-
um oddamanns og fulltrúa
kaupenda gegn atkvæðum full-
trúa seljenda.
Verðákvörðun sú sem hér er
deilt um er þessi:
Yfirnefnd verölagsráös
sjávarútvegsins hefur nú loks
gengiö frá ákvöröun lágmarks-
verös á loönu, sem veidd er tii
bræöslu á timabilinu 1. janúar
til 30. aprfl þessa árs. Hefur
nefndin ákveöiö lágmarksverö
sjö krónur, kr. 7.00, fyrir hvert
kíló af loönu miöaö viö 8% fitu-
innihald og 16% fitufritt
þurrefni. Veröiö breytist um 62
aura tii hækkunar eöa lækkunar
fyrir hvert 1% sem fituinnihald-
iö breytist frá viömiöun og hiut-
falisiega fyrir hvert 0.1%. Fitu-
frádráttur reiknast þó ekki þeg-
ar fituinnihald fer niöur fyrir
3%.
Veröiö breytist um 77 aura til
hækkunar eða lækkunar fyrir
hvert 1% sem þurrefnismagn
breytist frá viðmiðun og hlut-
fallslega fyrir hvert 0.1%. Auk
þess greiði kaupendur þrjátíu
aura.kr. 0.30, fyrir hver kiló I
loðnuflutningasjóð.
Fituinnihald og fitufrítt þurr-
efnismagn hvers loönufarms
skal ákveðið af Rannsóknar-
stofnun fiskiðnaðarins eftir sýn-
um, sem tekin skulu sameigin-
lega af fulltrúa veiðiskips og
fulltrúa verksmiðju, eftir nán-
ari fyrirmælum rannsóknar-
stofnunarinnar.
Verðiö miðast við loönuna
komna i löndunartæki verk-
smiöju.
Verð á úrgangsloðnu frá fryst
ineu hefur ekki verið ákveðiö.'
Veröið var ákveðiö af odda-
manni og fulltrúum kaupenda,
gegn atkvæöum fulltrúa selj- •
enda. ES
Ólafur Nilsson, fyrrv. skattrannsóknarstjóri
Hefur eftirlit með rann-
sókninni innan bankans
Hallvarður Einarsson, rann-
sóknarlögreglustjóri hefur skip-
að Ólaf Nilsson, fyrrum skatt-
rannsóknarstjóra til að hafa yf-
irumsjón með rannsókn hins
svokallaða „Landsbankamáls”
innan bankans.
Þetta er gert að tilhlutan
bankaráðs og bankastjórnar til
þess að taka af allan vafa um
það að rétt sé að rannsókninni
staðið.
Siðan grunur kom fram um
misferli forstöðumanns
ábyrgðadeildar hefur verið unn-
ið að þvi innan Landsbankans
að grafast fyrir um það, hversu
miklum- upphæðum misferlið
næmi og hvernig það hafi verið
framkvæmt. Þetta starf hefur
endurskoðunardeild bankans
leyst af hendi i náinni samvinnu
við endurskoðanda þess fyrir-
tækis, sem málið snertir mest.
Siðan misferlið var kært þann
22. desember s.l. hefur forræði
rannsóknar málsins verið i
höndum rannsóknarlögreglu
rikisins og hefur löggiltur end-
urskoðandi, sem starfar sem
ráðunautur rannsóknarlög-
reglustjóra, fylgzt með rann-
sókninni innan bankans og gefið
fyrirmæli um frágang þeirra
skjala, sem lögð hafa veriö
fram. Einnig hefur bankaeftirlit
Seðlabanka Islands fylgzt með
rannsókninni.
Eins og fyrr segir hefur nú
verið skipaður sérlegur eftir-
litsmaður til að fylgjast með þvi
að allt fari rétt fram.
ES
mmm—mmmmmmmmmmMmmmmá
20% bænda
með heymæði
— alvarlegur atvinnusjúkdómur
Rannsóknir sem
gerðar hafa verið af
læknum á Vifilsstöðum
og fyrrverandi héraðs-
iækni á Hellu á
Rangárvöllum benda
til þess að um 20% is-
lenzkra bænda þjáist af
lungnasjúkdómnum
heymæði.
Þetta kemur
fram i viðtali Vinnunn-
ar, timarits ASÍ við
forstöðumann Heil-
brigðiseftirlits rikisins.
Heymæði, sem afar af
myglusveppum í mygluðu eða
illa hirtu heyi er atvinnusjúk-
dómur.
Hér er sem sagt um að
ræða stóran hóp manna sem fær
tiltölulega alvarlegan sjúkdóm
vegna starfs síns.
Þess má geta að fyrir utan at-
hugun borgarlæknisembættisins
á heyrn málmiðnaðarmanna
eru þetta nær einu rannsóknirn-
ar sem gerðar hafa verið á tíðni
atvinnusjúkdóma hér á landi.
ES
Heilsufarseftir-
lit á vinnustöð-
um í ólestri
— athuganir á vinnuslysum og skráning þeirra
vart fyrir hendi
Allri framkvæmd I
sambandi við heilsufars-
legt eftirlit á vinnustöð-
um, svo og athugunum á
atvinnusjúkdómum og
skráningu þeirra, virðist
vera mjög ábótavant hér
á landi. Stór hluti vinn-
andi fólks á Islandi
stundar vinnu sem fellur
utan gildissviðs laga um
Oryggiseftirlit ríkisins.
Heilbrigöiseftirliti rikisins er
svo þröngur stakkur sniðin fjár-
hagslega að starfsmönnum þess
er ekki kleyft aö sinna störfum
sinum eins og þeir helst kysu. í
37% islenzkra sveitarfélaga
hafa heilbrigðisnefndir ekki
veriö kosnar svo sem lög gera
ráð fyrir. Þetta kemur fram I
nýútkomnu hefti Vinnunnar,
tlmariti Alþýðusambands Is-
lands.
I greinaflokki þessum er
meðal annars rætt við tvo
starfsmenn Heilbrigöiseftirlits
rikisins, tvo múrara, sem orðiö
hafa aö láta af störfum vegna
atvinnusjúkdóma, rætt við
starfsmenn i Aburðarverk-
smiöjunni og rætt um rannsókn-
ir á óhollustu í Straumsvik.
Sjá nánar á blaðsiðu 2.