Alþýðublaðið - 11.01.1978, Síða 2
2
Miðvikudagur 11. janúar 1978
Læknar tregir að úr-
skurða atvinnusjúkdóma
— segja starfsmenn Heilbrigdiseftirlitsins í vidtali við tfmarit ASÍ
Á síðustu árum hefur
mönnum orðið nokkuð
tíðrætt um heilbrigðis-
eftirlit á vinnustöðum/
eftirlit/ sem leitt gæti til
úrbóta og komið í veg
fyrir heilsuskaða fjölda
manna. i yfirgripsmikl-
um greinaflokki sem
birtist í nýútkomnu hefti
Vinnunnar; tímarits ASi,
kemur fram, að þessi mál
eru í illviðunanlegu
ástandí hér á landi.
Athyglinni er einkum
beint að stórum verk-
smiðjum á SV-landi, en
einnig rætt um heilbrigð-
is- og öryggiseftirlit al-
mennt.
Heilbrigðiseftirlit
Heilbrigöiseftirlit rikisins
hefur starfaö i 8 ár, samkvæmt
lögum sem sett voru áriö 1969.
Stofnuninni er ætlaö þýöingar-
mikjö hlutverk. Hún á aö hafa
yfirumsjón meö heilbrigöis-
eftirliti i landinu, undir yfir-
stjórn landlæknis og stuöla aö
skipulagöri fræöslu um hrein-
lætiseftirlitfyrir þá sem fást viö
matvæli og neyzluvöru.
Heilbrigöiseftirlitiö hefur á
þessum 8 árum haft aösetur á
fjórum stööum. Segir þaö sitt
um hve mikilvæga menn álita
þessa stofnun, aö hún skuli
ávallt vera á hrakhólum meö
húsnæöi. Þess má svo geta aö
fjárveitingabeiöni stofnunar-
innar fyrir þetta ár var skorin
niöur um meira en helming.
Yfirmenn eftirlitsins töldu sig
þurfa 71 milljón króna, en fengu
29! Fjárveitingar siöustu ára
hafa ekki tekiö miö af þörfum
stofnunarinnar, og beiönir for-
ráöamanna hennar eru skornar
niöur af fjármálaráöuneytinu
án minnsta samráös viö viö-
komandi.
1 viötali blaöamanns Vinn-
unnar við forstööumann Heil-
brigöiseftirlitsins, Hrafn Friö-
riksson og Eyjólf Sæmundsson
starfsmann þar kemur fram aö i
37% sveitarfélaga á íslandi hef-
ur ekki verið kosin heilbrigöis-
nefnd, þótt þaö eigi aö gera eftir
hverjar sveitastjórnarkosning-
ar. Hlutverk þessara heilbrigö-
isnefnda er aö framfylgja lög-
um og reglugeröum um heil-
brigöiseftiriit.
1 viötalinu er einnig á þaö
minnst hve takmarkað sviö fell-
ur undir lög um öryggisráðstaf-
anir á vinnustööum, og þar meö
undir eftirlitsskyldu öryggis-
eftirlits ríkisins. Lögin ná ein-
ungis til starfsemi þar sem
starfa tveir verkamenn eða
fleiri eöa notuö er orka sem er
meira en eitt hestafl. Undan-
þegin frá þessum lögum eru
siglingar, fiskveiöar og aörar
veiöar, þar meö talin aögerö á
veiöinni á skipsfjöl, enda sé ekki
um sérstök verksmiöjuskip aö
ræöa. Loftferöir eru undan-
þegnar, svo og vinna i einkalbúö
atvinnurekenda. Allur almenn-
ur búrekstur er undanþegin
þessum lögum og einnig almenn
skrifstofuvinna. Af þessu má sjá
aö einungis litill hluti vinnandi
fólks er undir eftirliti öryggis-
eftirlits rikisins.
Aldrei tilkynnt um
Atvinnusjúkdóma
„Atvinnusjúkdómar eru sjúk-
dómar sem eiga beint eöa óbeint
rætur sinar aö rekja til óhollustu
i sambandi við atvinnu manna,
hvort heldur er vegna eölis at-
vinnunnar, tilhögun vinnu og
aöbúnaöar á vinnustaö. Einkum
koma hér til greina bæklunar-,
bilunar-, eitrunar- og ofnæmis-
kvillar. Meö atvinnusjúkdóm-
um skal telja áverka af völdum
slysfara sem tilhögun vinnu eöa
búnaöi vinnustaöar veröur bein-
linis um kennt, en ekki áverkar
af öörum slysum, enda þótt þau
veröi á vinnustaö og skiptir ekki
máli þótt slysiö veröi metiö
bótaskylt að lögum”. Þessi skil-
greining á atvinnusjúkdómum
er úr reglugerö um skráningu
atvinnusjúkdóma frá árinu 1956.
Læknum er síöan I reglugerö
þessari, fyrirlagt aö tilkynna
um atvinnusjúkdóma, sam-
kvæmt reglugeröinni, til. yfir-
manna sinna. Þeir eiga siöan aö
sjá um aö gera öryggiseftirliti
rikisins viövart.
Þaö er skemmst frá þvi aö
segja aö sarokvæmt uppiýsing-
um Hrafns hefur öryggiseftir-
litinu aldrei veriö tilkynnt um
atvinnusjúkdóm, ef kannski eru
undanskilin nokkur bráö eitrun-
artilfelli. 1 þessu sambandi má
einnig geta þess aö öryggis-
eftirliti rikisins hefur undanfar-
in 5-6 ár veriö tilkynnt um 90-100
vinnuslys á ári, en samkvæmt
upplýsingum frá Trygginga-
stofnun rikisins eru bótaskyld
vinnuslys sem koma þar til um-
fjöllunar á ári hverju um 2000
talsins.
Eyjólfur Sæmundsson, starfs-
maður Heilbrigöiseftirlitsins lét
i ljós þá skoðun aö læknar væru
tregir aö úrskuröa sjúkdóma
sem atvinnusjúkdóma, hafi ef
til vill ekki treyst sér til aö taka
ákveöna afstööu,þótt upp komi
sjúkdómur sem hugsanlega sé
tilkominn vegna vinnu hlutaö-
eigandi sjúklings.
1 þessu sambandi spannst þaö
einnig inn I umræöuna aö lækn-
um myndi vera þetta starf auö-
veldara ef til væru skýrslur um
heilsufarsþróun hvers starfs-
manns einstakra fyrirtækja. Ef
gerðar væru reglubundnar
rannsóknir á heilsufari hvers
starfsmanns væri auðveldara
aö fylgjast meö breytingum á
heilsufari og bera saman ein-
staklinga sem ynnu viö svipaðar
eöa sömu aöstæöur,
Þá bentu þeir Hrafn og
Eyjólfur á aö i könnunum sem
fram fóru i Sviþjóö á árunum
1956-1971 kom fram aö at-
vinnusjúkdómum fjölgaöi um 3-
4% á ári. Orsök aukningarinnar
reyndist fyrst og fremst hávaöi,
ryk i andrúmslofti og alls konar
efnasambönd, fyrst og fremst
upplausnarefni, sem notuö eru
nánast alls staöar þar sem ein-
hver framleiðsla eöa starfsemi
fer fram.
ES
Fjölrit um
,, hagkeðjuna’ ’
— innlegg í kosningabar-
áttu Kristjáns í Últíma
„Hagkeðjan i hnot-
skurn” nefnist fjöirit
eftir Kristján Friðriks-
son i Últimu sem ,,16
stuðningsmenn” svo-
nefndrar Hagkeðju-
kenningar hafa gefið út,
en rit þetta er öðrum
þræði innlegg Kristjáns i
kosningabaráttuna
vegna prófkjörs Fram-
sóknarf lokksins í
Reykjavik nú i janúar. í
ritinu rekur Kristján
grundvallarhugmyndir
sinar um atvinnuupp-
byggingu á íslandi og
stjórnun fiskveiða, sem
hann kallar „hagkeðju”,
en hann skýrði hug-
myndirnar rækilega i
viðtali i þremur hlutum,
sem Alþýðublaðið birti
fyrri hluta siðasta árs.
Aftast i hagkeðju-
ritlingnum eru ummæli
16 manna um „Krist-
jánskuna”, flest hliðholl
hugmyndunum.
Abaksíðu skora útgefendursiö-
an á Reykvikinga að veita
Kristjáni Friðrikssyni lið i próf-
kjörinu og er sérstaklega tekið
fram að stuðningur viö hann neö-
ar en i 2. sæti framboðslistans til
þings komi naumast að gagni.
Sem kunnugt er sitja þeir Þórar-
inn Þórarinsson og Einar Agústs-
son i þessum sætum nú og ætla
séraðsitja sem fastast. Má þvi ef
til vill búast viðað þeir setjist nið-
ur og böggli saman „keðju-bréf-
um” til sinna manna, svona til
þess aö svara þessum leik
Kristjáns I Últimu.
Ályktun flokksstjórnar Alþýöuflokksins:
Svindlið burt!
Leitað verði leiða til
baráttu gegn f jársvikum
Flokksstjórn Alþýðu-
flokksins lýsir þungum
og vaxandi áhyggjum
vegna hinna tiðu fjár-
svikamála, sem undan-
farin missiri hafa orðið
opinber. Þetta ástand
er orðið svo ógnvekj-
andi og hlýtur að
höggva svo nærri rót-
um samfélagsins, að
valdakerfið getur ekki,
hér eftir sem hingað til,
setið hjá með hendur i
skauti.
Þegar það svo verðurljóst, að
i sjálfum Landsbanka íslands
hefur verið búið til svikakerfi,
þar sem yfirmanni hefur tekist
að svikja út tugi milljóna, þá
segirsig sjálftað staldra verður
við. Það hefur verið að myndast
hyldýpi vantrausts milli yfir-
stjórnar opinberra fjármála og
fólksins i landinu. Þetta bil
verður að hverfa.
Fjármálakerfið á Islandi
virðist gerspillt. Það er einnig
ljóst að allur almenningur hefur
litinn aðgang að upplýsingum
um starfsemi fjármálastofn-
ana. Leyndin hefur verið rétt-
lætt með þvi að verið sé að
vernda einstaklingana og einka-
lif þeirra. Það hefur hinsvegar
komið i ljós að i skjóli leyndar-
innar þrifst pukur, óreiða og
beiniinis óheiðarleikiog lögbrot.
Staðreyndin er einnig sú, að
islenska fjármálakerfið er orðið
svoflókið, að allur almenningur
hefur ekki aðstöðu til að skilja
nema litinn hluta þess.
Það er einnig orðið öllum
ljóst, að óðaverðbólga sú sem
geisað hefur frá þvi eftir 1970
hefur grafið undan fjármálasið-
ferði i landinu. Neikvæðir vextir
valda þvi, að lánamarkaður er i
raun réttri ekki til, en lánakerf-
ið, sem svo erenn kallað, erorð-
ið að pólitisku styrkjakerfi og
raunar stjórnlausum eignatil-
færslum. Æ fleiri finna sig
knúna til þess að dansa með i
þessum f jármálafrumskógi,
hvort sem þeim líkar betur eða
verr. Fjármálafrumskógurinn,
verðbólgan og leyndin þjóna
bröskurum en ekki öllum
almenningi.
Það vekur athygli að fjár-
svikamál siðustu missira hafa
með einum eða öðrum hætti
snúið að opinberum fyrirtækj-
um. Það leiðir hinsvegar hug-
ann að þvi, h vort f jármálakerfið
sé ekki viðar rotið. Það hefur
lengi leikið grunur á þvi að
erlend umboöslaun verslunar-
innar skili sér ílla. Það er áreið-
anlegt, að skattsvik eru meðal
útbreiddustu meinsemda hér-
lendis. íslenzkt stjórnkerfi fær
ekki staðist slikt til lengdar
nema þvi aðeins að gegn þess-
um meinsemdum verði ráðist af
fullri hörku.
Flokksstjórn Alþýðuflokksins
krefst þess aö allir séu jafnir
fyrir lögum og lögin séu jöfn
fyrir öllum. Flokksstjórnin
krefst þess að dómskerfi og eft-
irlit verði gert miklum mun
virkara en verið hefur. Flokks-
stjórnin krefst þess að islenskur
almenningur eigi i framtiðinni
miklu greiðari aðgang að upp-
lýsingum er varða opinberan
rekstur en verið hefur.
Þá krefst flokksstjórn
Alþýöuflokksins þess að rann-
sóknir og dómar verði i réttu
hlutfalli viö umfang afbrota, og
að ekki verði farið mýkri hönd-
um um svokölluð hvitflibba-
afbrot, sem nú virðast færast i
vöxt.
Abyrgð núverandi stjórn-
Framhald á t>ls. 10
Skjálftum fækkar
— Bandsig ordid i 1 cm
Það var ekki mikið að
frétta þegar AB hafði
samband við Skjálftavakt-
ina í Mývatnssveit seint í
gærdag. Eysteinn
Tryggvasen tjáði okkur að
heldur virtist vera að
draga úr skjálftum.
Mælarnir sýndu tíða smá-
skjálfta, en þeir stærri
væru færri. Kl. 1 i gærdag
kom einn sá stærsti sem
komið hefur i þessari
hrinu, en þegar blaðið tal-
aði við Eystein hafði engin
af svipaðri stærðargráðu
komið eftir það.
Upptök skjálftanna eru
um 40-50 km norður af
Reynihlíð, eða nálægt
þjóðveginum um Keldu-
hverf i.
Landsigið á Kröflu-
svæðinu heldur áfram og
samkvæmt hallamæling-
um er það nú um 70 cm. Þó
sagði Eysteinn að aðrar
mælingar bentu til þess að
á einstaka svæðum gæti
það verið meira, allt upp í 1
metra.
ES.