Alþýðublaðið - 14.01.1978, Síða 2

Alþýðublaðið - 14.01.1978, Síða 2
Laugardagur 14. janúar 1978 40 ára afmælisfagnaður Kvenfélags Alþýðuflokksins í Reykjavík Gáfu Sjálfsbjörg vinninginn Hér afhendir Viglundur Þorsteinsson framkvæmdastjóri BM Vallá, Theodór JónssyniformanniSjálfsbjargar happadrættismiðann góða. A milli beirra standa tveir stjórnarmenn BM Vallá, þeir Magnús Bene- diktsson og Sigursteinn Guðsteínsson. Mynd — GEK í gær fékk Sjálfsbjörg aII sérstæða gjöf. Félaginu var veittur happdrættis- vinningur, vinningur í happdrætti Sjálfsbjargar. Vinningurinn, Ford Fairmont árgerð 1978 kom á miða, sem steypustöðin BM-Vallá hafði keypt. 1 gær afhentu forráðamenn steypustöðvarinnar svo Sjálfs- björg bilinn að gjöf. Við þetta tilefni hélt fram- kvæmdarstjóri BM-Vallár, Viglundur Þorsteinsson, smá tölu. Þar kom fram, að fyrirtækið hefði ekki keypt miða i happ- drætti Sjálfsbjargar með gróða- von i huga, heldur hafi tilgangur- inn verið að styðja málefnið. Þeg- ar vinningurinn kom svo á miða fyrirtækisins lá beint við að færa Sjálfsbjörg bilinn að gjöf. Breyting á innheimtu fast- eignagjalda Innheimta fasteignagjalda i Reykjavik verður á árinu 1978 með nokkuð öðrum hætti en verið hefur. Meginbreytingin er i þvi fólgin, að eigendum sambýlis- húsa verður nú ekki sendur sam- eiginlegur reikningur vegna fast- eignagjalda heldur fær nú hver eigandi ibúðar sérstakan reikn- ing. Breyting þessi er afleiðing af setningu laga nr. 94/1976 um skráningu og mat fasteigna, en þar er svo fyrir mælt m.a., að lita beri á sérgreinda eignarhluta i fasteignum sem sjálfstæðar eind- ir, enda liggi skipting og eignar- hlutföll fyrir i þinglýstum heim- ildum. Við þetta skapazt mögu- leiki á þvi að senda gjaldendum kröfu um greiðslu fasteigna- gjalda með giróseðlum og er þess vænzt, að hagræði þyki að þvi fyr- irkomulagi. Gjöld þau sem innheimt eru sameiginlega eru þau sömu og áður þ.e.: Fasteignaskattur, vantsskattur, aukavatnsskattur, lóðarleiga, tunnuleiga, bruna- bótaiðgjald, viðlagatryggingarið- gjald og söluskattur af tveim sið- ast nefndum gjöldum. Framhald á bls. 4. Verður haldinn að HOTEL ESJU, föstudaginn 20. janúar kl. 20.30. Ný hljómplata með söng Einars Markan Út er komin hljómplata, meö fjórtán islenzkum sönglögum sungnum af Einari Markan. Með- al þeirra eru: „Brúnaljós þin bliðu” og ,,Ég lit i anda liðna tið” eftir Sigvalda S. Kaldalóns, „Ætti ég hörpu” eftir Pétur Sigurðsson og ,,Þú ert” eftir Þórarinn Guðmundsson. 'A plötuumslagi segir Baldur Pálmason m.a. „Sönghneigðin var Einari Markan og ættmenn- um hans i blóö borið og ekki skorti rödd hans fegurð. Þar hljómaði sá unaðsstrengur, sem lyftir sönglist i hærra veldi. Og Einar átti sér fleiri listhugðarefni en sönginn einan. Hann samdi lög við eigin ljóð og annarra og hafa u.þ.b. 50 sönglög hans birzt á prenti....... Þannig var Einar Markan hinn fjölhæfasti listamaður en stærstur var hann vafalitið sem söngvari. Væntanlega fagna margir þessum minjagrip um hljómfagran söng tilfinningariks manns — fagna nýjum kjörgrip sigildrar tónlistar. Það er Fálkinn h.f. sem sér um dreifingu hljómplötunnar. Svavar Guðni Svavarsson viðeitt verka sinna, veggmynd úr lituðu epoxiði. AB-mynd: —ATA Stytzfa listaverkasýning sögunnar? lauk 6 mínútum eftir að hún var opnuð Ein stytzta listverkasýn- ing, sem sögur fara af, var haldin i gær i Pósthússtræti 13. Svavar Guðni Svavars- son sýndi þar 14 verk og seldust þau öll á sex minút- um. Þar sem kaupendur tóku verkin með sér var ekkert eftir til að sýna og því var sýningunni lokað sex mínútum eftir að hún var opnuð. Svavar Guðni, sem er lesendum Alþýöublaðsins aö góöu kunnur fyrir skákþætti sina, sagöi i viö- tali viö Alþýöublaðiö, aö hann hafi dundaö sér við þessi verk i nokkur ár. Þetta væri gert I hjá- Aárinu 1977 komu rúml. 143.500 manns til landsins. Þar af voru rúml. 72.500 útlendingar og tæplega 71.000 tslendingar. Arið 1976 komu 130.000 manns hingað til lands og áriö 1975 komu rúml. 123.000 manns verkum og eingöngu ánægjunnar vegna. Verkin eru skúlptúrar úr leir og steinsteypu öll utan eitt sem gert er úr epoxiði. —ATA Af þeim útlendingum sem hing- að komu reyndust flestir vera frá USA, eða rúml. 22.500. Frá V- Þýzkalandi komu um 11.300, frá Danmörku 6.200 frá Sviþjóð um 5800 og frá Bretlandi 4648. ES 143.000 manns komu til landsins árið 1977! DAGSKR&: 1. Samkoman sett af Sonju Berg formanni afmælisnefndar 2. Avörp gesta 3. Einsöngur, Magnús Jónsson, óperusöngvari 4. Nokkrar félagskonur heiðraðar 5. Baráttusöngvar 6. Ávarp formanns félagsins Kristínar Guðmundsdóttur Veizlustjóri verður Helga Einarsdóttir. Miðar verða seldir á Skrifstofu Alþýðuflokksins kl. 1-5 daglega. Einnig hjá Aldísi Krisi- jánsdóttur Bergþórugötu 16, sími 10488, hjá Kristínu Guðmundsdóttur 'gsbakka 12, sími 73982 (fyrir hád. og á kvöldin hjá Sonju Berg, Krummahólum 6, sími 75625. Verð miða er kr. 2000,- Kvenfélag Alþýðuflokksins k " " s

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.