Alþýðublaðið - 14.01.1978, Page 4

Alþýðublaðið - 14.01.1978, Page 4
4 Laugardagur 14. janúar 1978 -------------------rj------ Otgefandi: Alþýöuflokkurinn. Rekstur: Reykjaprent h.f. Ritstjóri og ábyrgðarmaöur: Arni Gunnarsson. Fréttastjóri: Einar Sigurös- son. Aösetur ritstjórnar er i Siöumúla 11, sfmi 81866. Kvöldsimi fréttavaktar: 81976. Auglýsingadeild, Alþýðuhúsinu Hverfisgötu 10 — simi 14906. Áskriftar- og kvartanasimi: 14900. Prentun: Blaöaprent h.f. Askriftaverð 1500krónur á mánuði og 80krónur i lausasölu. ðflugt starf ungra jafnaðarmanna Samband ungra jafn- aðarmanna hélt 31. þing sitt fyrir skömmu. Þar kom fram, að starf sambandsins hefur verið með miklum blóma, og áætlanir voru gerðar um að ef la það enn meira. Að undanförnu hefur fjöldi ungs fólks skipað sér í raðir jafnaðarmanna, og áhugi á starfi þeirra auk- ist að mun. Samband ungra jafn- aðarmanna hefur látið utanríkismál mjög til sína taka. Það á aðild að Sambandi ungra norrænaa jafnaðar- manna og Alþjóðasam- bandi ungra jafnaðar- manna. Samstarfið hefur stöðugt verið að aukast undir því almenna kjör- orði jafnaðarmanna um heim allan, að engin landamæri fái stöðvað þróun jafnaðarstefnunn- ar. Á síðasta þing SUJ var sérstaklega rætt um ástandið í Suður-Afríku og Suður-Ameríku. Á ályktun SUJ um málefni Suður-Afríku segir meðal annars, aðekki verði unnt að komast hjá borgara- styrjöld þar í landi, nema til komi svo öflugar pólitískar og efnahags- legar refsiaðgerðir allra þjóða, að núverandi vald- hafar hrökklist frá völd- um og að við taki ríkis- stjórn hinna svörtu íbúa landsins. Samband ungra jafn- aðarmanna skorar því á ríkisstjórn (slands, að beita sér nú þegar fyrir því, að Norðurlöndin taki upp sameiginlega stefnu gagnvart Suður-Afríku á þingi Sameinuðu þjóðanna. í henni felist meðal annars bann við frekari fjárfestingu landanna í Suður-Afríku, stöðvun á allri verzlun milli Norðurlanda og Suður-Afríku og að loft- ferðasamningu skandinavísku landanna og Suður-Afríku verði ekki endurnýjaður. Þessi ályktun ungra jafnaðarmanna er þörf áminning, og höfðar ekki síður til (slendinga en hinna norrænu þjóðanna. Þrátt fyrir allar yfirlýs- ingar íslenzkra stjórn- valda hafa viðskipti (s- lendinga við Suður- Afríku aukist en ekki minnkað á síðustu árum. Það er ekki nóg að berja sér á brjóst og fordæma hvíta minnihlutann í Suð- ur-Afríku á sama tíma og stutt er við bakið á honum í baráttunni gegn svarta meirihlutanum með hundruð milljóna króna viðskiptum. Samband ungra jaf naðarmanna hefur einnig vakið athygli á þeim ógnarstjórnum, sem nú eru við völd í flestum löndum Suður- Ameríku. Sambandið hefur komið á framfæri upplýsingum um ástandið í mörgum þessara landa, þar sem þögnin hylur »/óðalegustu glæpaverk, sem um getur á sfðustu árum og áratugum. Sem dæmi má taka Uruguay. ( efnahagsmál- um og fjármálum þess land eru það hinir vold- ugu landeigendur, naut- gripaeigendur, banka- stjórar og iðjuhöldar, sem stjórna efnahags- stefnunni fyrir sjálfa sig með fulltingi og aðstoð hersins. Þessi efnahags- stef na er á góðri leið með að færa arðvænlegustu náttúruauðlindir landsins fámennum sérhags- munahópum og fjöl- þjóðafyrirtækjum. ( Uruguay eru pólitískir fangar fleiri en víðast hvar annarsstaðar, ef miðað er við fólksfjölda. Hin fasistíska stjórn beitir pyntingum og of- beldi til að halda íbúnum í skefjum. — Þjóðin berst nú fyrir lýðræði, frjálsri verkalýðshreyf ingu, stjórnmálafrelsi, kosn- ingafrelsi og öðrum mannréttindum. Þjóðin. krefst frelsis 6000 póli- tískra fanga. — Ungir jafnaðarmenn benda á þetta dæmi og hvetja alla íslendinga til að veita frelsisöflunum stuðning. —AG. RÍKISSPÍTALARNIR lausar stöður Landspitalinn Staða aðstoðarlæknis við Barna- spitala Hringsins er laus til umsókn- ar. Staðan veitist 6 mánaða frá l.mars 1978. Umsóknarfrestur er til 15. febrúar. Upplýsingar veitir yfirlæknir deild- arinnar i sima 29000 Vifilsstaðaspitali Staða aðstoðarlæknis við lungnadeild spitalans er laus til umsóknar. Staðan veitist til 6 mán- aða. Upplýsingar veitir yfirlæknir i sima 42800 Kleppsspitali Deildarhjúkrunarfræðingar óskast nú þegar á deild 5 og deild 9. Hjúkrunarfræðingar óskast nú þeg- ar á ýmsar deildir spitalans i fullt starf eða hlutastarf. íbúðir og barnaheimili á staðnum. Upplýsingar veitir hjúkrunarfor- stjóri i siima 38160. Heykjavik, 13. janúarl978 SKRIFSTOFA RÍKISSPÍTALANNA EIRÍKSGÖTU 5, SÍMI 29000 Hækkanir 1 verðlagsskrifstofunni, voru hækkanir heldur minni en beðið var um. 1 gær tóku gildi eftirtaldar hækkanir: Fargjöld i innanlandsflugi hækkarum 10%, en Flugfélag- iö mun hafa fariö fram á 15% hækkun. Sérleyfishafar fengu 13.72% hækkun, en báöu um 17%. Blaöaútgefendur fengu hækkun á ^dagblöðunum. Nú kostar maúaöaráskrift kr. 1.700 i staö 1.500 áöur og lausa- sölu veröiö er 90 kr. i staö 80. Þá kostar hver dálksentimetri i auglýsingum kr. 1.020. Framangreindar hækkanir á dagblööunum eru nákvæm- lega i samræmi viö öskir blaöaútgefenda. —ARH Breyting 2 Samkvæmt lögum er gjalddagi ofangreindra gjalda 15. janúar en borgarstjórn hefur nú samþykkt að gefa greiðendum fasteigna- gjalda kost á að gera skil á þeim með þrem jöfnum greiðslum á gjalddögum 15. janúar, 15. marz, og 15 april.Er þetta einnig breyt- ing frá þvi sem áður var, er gjald- dagar voru aðeins tveir. Framangreindar breytingar valda þvi, að innheimtugögn eru siðbúin og má búast við að send- ing gjaldseðla og kröfubréfa dragist a.m.k. viku fram yfir fyrsta gjalddaga þ. 15. janúar. Verður tekið tillit til þessa, þegar kemur að útreikningi dráttar- vaxta frá fyrsta gjalddaga. Auglýst verður, þegar þar að kemur, hvenær innheimta hefst. Jafnréttismál 1 uröa er ákvaröaður. „Þaö er ekki f verkahring Jafn- réttisráös aö meta þaö, hvort út- reikningar á verölagsgrundvelli landbúnaöarafuröa er gerður á réttum forsendum, og ekki hefur Jafnréttisráö vald til þess aö segja fyrir um þaö, hver skuli vera laun þeirra, sem starfa viö landbúnaö. En þaö er tvímæla- laust brot á anda þeirra laga, sem Jafnréttisráö starfar eftir, aö ákvaröa körlum og konum mis- munandi laun (sem notuö eru, sem grundvöllur fyrir verölagn- ingu landbúnaöarafuröa) fyrir jafnverömæt og sambærileg störf”, segir aö lokum i ályktun Jafnréttisráöi. Verkamenn 12 til nýtingar. Þess vegna ætti þessi munur aö aukast eitthvað. Mikil fjárfesting í loðnubræðslum Þá vék Jón Kjartansson aö þvi, aö loðnubræöslur um land allt hefðu undanfarið verið að fjárfesta i nýjum tækjum. Þessi tæki eru að stórum hluta bundin erlendum lánum til þriggja ára, en með þvi að leyfa komu Norglobals hingað á miðin sé veriö að koma í veg fyrir að verksmiðjurnar beri sig nægi- lega vel til þess að hægt sé að borga af lánunum. — Ég hef til dæmis rætt við eigendur bræðslustöðvanna i Vestmannaeyjum um þetta mál. Þeir segja mér, að búið sé að fjárfesta fyrir um 120-130 milljþónir króna i þeirra verk- smiðjum, en þeir hefðu aldrei lagt út i slika fjárfestingu, ef þeirheföuhaft minnsta grun um aö Norglobal kæmi hingað. —hm Loðnuflotinn 1 7. Fundurinn þakkar þann stuðning sem loðnuveiðisjó- mönnum hefur borizt frá Verka- mannasambandi Islands og togarasjómönnum. 8. Náist ekki viðunandi verð þegar næst veröur ákveðið, þann 15. febrúar, gripum viö til aðgerða. Þannig hljóöar ályktun loðnu- veiðisjómanna. Búast má við aö loðnuflotinn sigli út tO veiöa í dag. HRINGAR Fljót afgreiðsla jsendum gegn póstkröful Guðmundur Þorsteinsson gullsmiður ^Bankastræti 12, Reykjavik. j Munió alþjóðlegt hjálparst-arf Rauóa krossins. RAUÐI KROSS tSLANDS Auglýsið í Alþýðubiaðinu

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.