Alþýðublaðið - 18.01.1978, Síða 12
alþýóu-
blaðið
Otgefandi Alþýðuflokkurinn
Ritstiórn Alþýðublaösins er að Síðumúla 11, simi 81866. Auglýsingadeild blaðsins er að
Hverfisgötu 10, sími 14906 — Áskriftarslmi 14900.
MIÐVIKUDAGUR
18. JANÚAR 1978
Edvard Sigurdsson, formadur Dagsbrúnar:
Eindæma stórar gloppur I
mótframboðinu
Engar kosningar um
nýja stjórn í Verka-
mannaféiaginu Dagsbrún
veröa um næstu helgi/ þar
sem //sprengilistinn"/
sem borinn var fram af
Sigurði Jóni ólafssyni og
fleirum, var úrskurðaður
ógildur.
Eðvarð Sigurðsson,
formaður Dagsbrúnar,
sagði í samtali í gær, að
þegar listanum var skilað
inn til kjörnefndar á
föstudaginn, hafi komið í
Ijós að aðeins hafi verið
stillt upp frambjóðendum
í aðalstjórn, varastjórn
og endurskoðendur, en
Eövarð Sigurðsson.
ekki í stjórn vinnudeilu-
sjóðs og trúnaðarmanna-
ráðs. Sagði Eðvarð að
m.a. í samræmi við 28. gr.
félagslaga Dagsbrúnar
hafi verið Ijóst, að fram-
boðið væri ekki í sam-
ræmi við lög félagsins og
kjörstjórn því ákveðið að
gefa frest í tvo sólar-
hringa til að lagfæra
framboðslistann til sam-
ræmis við lögin. Eðvarð
kvað mörg fordæmi fyrir
því að frestur hafi verið
gefinn í nokkrar klukku-
stundir til að lagfæra
vankanta á framboðum,
en einsdæmi sé að svo
miklar gloppur haf i verið
í framboðinu. Var haft
samráð við stjórn Dags-
brúnar varðandi frest og
aðstandendur „sprengi-
listans" lýstu sig sam-
þykka úrskurðinum. Eð-
varð Sigurðsson sagði að
auðvitað gæti það orkað
tvímælis að veita svo
langan frest, en hins veg-
ar væri vitað að menn
gerðu það ekki viljandi að
skila gölluðum framboð-
um og að ekki væri óeðli-
legt að gefa tækifæri til
betrumbóta.
Á mánudaginn skiluðu
Sigurður Jón og félagar á
ný framboðslista sínum,
en hann var einnig dæmd-
ur ógildur. Reyndust 28
nöfn af trúnaðarmanna-
listanum vera ólögleg
vegna skulda á félags-
gjöldum og fleiri ástæð-
um. Þá voru nokkur
nöf n þar tekin án þess að
undirritað leyfi lægi fyrir
hjá viðkomandi. Af með-
mælendaskrá listans
féllu 32 af 102, vegna þess
að þeir voru skuldugir,
ekki skráðir félagsmenn i
Dagsbrún o.s.frv. Þar
með var framboðið runn-
ið endanlega út í sandinn
og listi núverandi stjórn-
ar og trúnaðarmannaráðs
því sjálfkjörinn.
Aðstandendur
„sprengilistans" létu
hafa það eftir sér í gær,
að þeir muni nú þegar
hefjast handa með að
undirbúa framboð gegn
stjórn Dagsbrúnar að ári
og muni það starf fyrst
og fremst fara fram á
vinnustöðum. Stjórnin
hafi nú orðið áþreifan-
lega vör við óánægju fé-
lagsmanna.
„Hef litla trú
á ad svona
kúnstir auki
smjörneyzlu”
— segir Davfd Scheving Thorst-
einsson, sem telur vart hægt;
lengur ad taka landbúnadinn í
alvarlega sem atvinnugrein
„Það sem mér þykir
verst, er að það er hrein-
lega varla hægt lengur
að taka landbúnaðinn
alvarlega sem atvinnu-
veg. Hann er algerlega
verndaður. Þarf ekki að
hafa áhyggjur af af-
komu sinni, ekki af fjár-
magni, ekki af fram-
leiðslusinni eða sölu, þvi
þetta mun rikisstjórnin
og rikið sjá um allt sam-
an. Samkeppnin er ná-
kvæmlega engin og þar
sem hún kernur einhver
inn i dæmið, til dæmis
með framleiðslu smjör-
likis sem valkosts gagn-
vartsmjöri, grípur rikið
inn i og passar að hún
hafi ekki áhrif, sagði
Davið Scheving Thor-
steinsson, formaður Fé-
lags islenzkra iðnrek-
enda, i viðtali við AI-
þýðublaðið i gær.
Davlö, sem einnig er fram-
kvæmdastjóri Smjörlikis hf.,
sagði jafnframt, þegar blaðið
spuröi um viðhorf hans gagnvart
smjörútsölunni, sem hefst I dag:
„Mér finnst þetta ákafiega til-
gangslítil aðgerö. Það er nánast,
að mlnu mati, verið að færa
geymslukostnaðinn á frystu
smjöri frá framleiöendum til
heimilanna. Ég hef litla trú á að
þetta auki neyzluna, þótt vafa-
laust sé hægt aö fá einhver ja til að
auka sinasmjömeyzlu meösvona
kúnstum. Þetta kemur fram á
sölunni i þvi að fólk hamstrar
meðan útsalan stendur, en síðan,
þegar veröið hækkar að nýju,
kemur bakslag i þetta.
Það er bara þetta gamla, sem
viö höfum orðið að standa frammi
fyrir aftur og aftur og aftur, þeg-
ar verð hefur hækkað, sala
minnkað og framleiðsla um leið
aukizt, að gripið er til svona af-
káranlegra aögeröa.”
A þessari mynd má sjá bræösluofn I nýrri járnblendiverksmiðju. Yfir ofninumenukraftmiklar ryk-
sugur, sem draga tii sin örsmáar efnisagnir, sem verða til við brunann. Frá ofninum fer rykið I siur,
þar sem þaö er hreinsaö frá reyknum. Hreinsitækin I Járnblendiverksmiðjunni á Grundartanga
munu kosta a.m.k. einn milljarð króna.
Járnblendið undirbýr
samvinnu við fjölmiðla
Jón Sigurösson/ for-
stjóri Járnblendiverk-
smiðjunnar á Grundar-
tanga/ hélt fund í gær
meö fulltrúum f jölmiðla.
Þetta var ekki eiginlegur
fréttafundur, heldur var
tilgangurinn sá, að reyna
að undirbúa væntanleg
samskipti fjölmiðla og
starfsmanna verksmiðj-
unnar.
Jón Sigurösson lét I ljós þá
skoðun sina, að æskilegt væri,
að fulltrúar fjölmiðla fengju
sem bezt tækifæri til aö afla sér
grundvallarþekkingar á undir-
búningi og rekstri fyrirtækisins.
Þaö væri aö stórum hluta reist
fyrir almannafé og þvi ætti al-
menningur rétt á þvi aö fylgjast
náið með gangi mála.
Fulltrúar fjölmiðla voru að
vonum ánægöir meö þessa af-
stöðu, og var fjallaö um hvernig
koma mætti á sem beztu sam-
starfi þeirra og starfsmanna
verksmiðjunnar. Höföu fulltrú-
ar fjölmiöla á orði, að þetta væri
skemmtileg nýbreytni I þjóðfé-
lagi, þar sem yfirmenn margra
fyrirtækja og stofnana virtust I
æ rikari mæli loka gáttum fyrir
fjölmiðlum.
Fjórir tilkynntu um afla í gær
Síðdegis í gær höfðu
fjórir bátar tilkynnt um
afla til loðnunefndar, sam-
tals 1830 tonn. Þetta er
fyrsti loðnuaflinn sem til-
kynnt er um eftir að loðnu-
veiðiflotinn hélt úr Akur-
eyrarhöfn eftir að mót-
mælum loðnuveiðisjó-
manna lauk.
Aflinn sem tilkynnt var um i
gær fékkst um 20 milur norð-vest-
ur af Kolbeinsey, en þar hafði
flotinn haldið sig, áður en hann
Fresturtil að skila fram-
boðum til stjórnarkjörs í
starfsmannafélaginu Sókn
er runninn út. Aðeins eitt
framboð barst, frá þeirri
stjórn er setið hefur, og
var því sjálfkjörið.
Stjórn Sóknar skipa þvl: Aöal-
hélt til hafnar I lok siöustu viku.
— GEK
heiður Bjarnfreðsdóttir, formað-
ur, Ester Jónsdóttir, varafor-
maður, Guðrún J. Bergsdóttir,
ritari, Dagmar Karlsdóttir,
gjaldkeri og Halldóra Sveinsdótt-
ir, meðstjórnandi.
Varastjórn skipa þær Erna
Þórðardóttir, Anna Kristiensen
og Elin Sigurðardóttir.
Sjálfkjörid í Sóknarstjóm