Alþýðublaðið - 26.01.1978, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 26.01.1978, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 26. janúar 1978. 11 3*1-89-36 ffmia íslenzkur texti Spennandi ný amerisk stórmynd i litum og Cinema Scope. Leik- stjóri Peter Yates. Aðalhlutverk: Jaqueline Bisset, Nick Nolte, Robert Shaw. Sýnd kl. 5, 7.30 og 10 Bönnuð innan 12 ára Hækkað verð B I O j, Sími 32075 Aðvörun — 2 mínútur 91,000 Peopte. 33 Exit Gates. One Sniper... wim MINUTE WARNING CHARLTON HESTON JOHN CASSAVETES TWO MINUTE WARNING Hörkuspennandi og viðburðarik ný mynd, um leyniskyttu og fórnarlömb. Leikstjóri: Larry Peerce, Aðalhlutverk: Charlton Heston, John Cassavvetes, Martin Bal- sam og Beau Bridges. Sýnd Kl. 5-7.30 og 10 Bönnuð börnum innan 16 ára. li-IKFf'IAr, 3|S REYKIAVlKUK “ ” SKJALDHAMRAR I kvöld kl. 20.30 Þriðjudag kl. 20.30 Fáar sýningar eftir. SKALD-RÓSA Föstudag. Uppselt. Sunnudag. Uppselt. Miðvikudag kl. 20.30 SAUMASTOFAN Laugardag Uppselt. Miðasala i Iðnó kl. 14-20.30 BLESSAÐ BARNALAN MIÐNÆTURSÝNING I AUSTURBÆJARBIÓI LAUGARDAG KL. 23.30 Miðasala i Austurbæjarbiói kl. 16-21. Sími 1-13-84. Auglýsinga- síminn er 14906 1-15-44 Silfurþotan. m GENE WILDER JILL CLAYBURGH RICHARD PRYOF —''SILVER STREAK".^«™«<-^ ÍSkmtv cx#ionPATR|CKJ^cGOOHAN__ tSLÉNSKUR TEXTÍ~' Bráðskemmtileg og mjög spennandi ný bandarisk kvikmynd um all sögulega járnbrautalestaferð. Bönnuð innan 14 ára Sýnd kl. 5, 7,10 og 9,15. TONABÍÓ 3*3-11-82 Gaukshreiðrið (One flew over the Cuckoo's nest.) Gaukshreiðrið hlaut eftirfarandi Óskarsverðlaun: Besta mynd ársins 1976 Besti leikari: Jack Nicholson Besta leikkona: Louise Fletcher Besti leikstjóri: Milos Forman Besta kvikmyndahandrit: Lawrence Hauben og Bo Goldman Hækkað verð. Bönnuð börnum innan 16 ára. Sýnd kl. 5, 7,30 og 10. Sími50249 Murthy fer í strið Spennandi mynd. Aðalhlutverk leikur hinn vin- sæli Peter O. Toole. Sýnd kl. 9. BP 19 OOO — salur<^^— Járnkrossinn Sýnd kl. 7.45 og 10.30 Allir elska Benji Sýnd kl. 3 og 5 salur Flóðið mikla Bráðskemmtileg litmynd Sýnd kl. 3.10, 5.05, 7.05, 9 og 11 salur c Raddirnar Sýnd kl. 3.20, 5.10, 7.10, 9.05 og 11 Ert þú félagi 1 Rauó-a krossinum? Deildir félagsins m eru um land allt. RAUÐI KROSS ISLANDS 3*2-21-40 Svartur sunnudagur Black Sunday Hrikalega spennandi litmynd um hryðjuverkamenn og starfsemi þeirra. Panavision Leikstjóri: John Frankenheimer. Aðalhlutverk: Robert Shaw, Bruce Dern, Marthe Keller. ISLENZKUR TEXTI Bönnuð innan 16 ára Sýnd kl. 5 Hækkað verð Þessi mynd hefur hvarvetna hlot- ið mikla aðsókn enda standa áhorfendur á öndinni af eftir- væntingu allan tlmann. Tónleikar kl. 8.30. Ævintýri leigubílstjórans ( tíe gets more than his V 1 -for&jsham. TAX! raiVBR t BARRV EVANS JUOY GEES0N 7 V AORIENNE POSTA OIANA DflRS./ Bráðskemmtileg og fjörug, og —djörf, ný ensk gamanmynd i lit- um, um líflegan leigubilstjóra. Islenzkur texti Sýnd kl. 3-5-7-9 og 11. GAMLA BIO Stmi11475 Tölva hrifsar völdin Demon Seed Ný bandarisk kikmynd i litum og Panavision Hrollvekjandi að efni: Aðalhlutverk: Julie Christie ÍSLENSKUR TEXTI Bönnuð börnum innan 16 ára Sýnd kl. 5, 7 og 9 ENDURSKIIMS- MERKI ERU NAUÐSYNLEG FYRIR ALLA UMFERÐARRÁÐ Var hún að brytja blámenn ffyrir f jandann? Þó fyrr hefði verið! Liklega eru nú rikisstjörnar- flokkarnir teknir að þreifa á handleggsvöðvunum í þeirri veruaðbúa sig undir lokagllm- una við efnahagsvandann og verðbólguna! Þetta kemur nokkuð glögglega fram i for- ystugreinum Timans og Mogg- ans i gær. Ritstjórarnir eru hvorugur neitt sérstaklega bjartsýnir á framtiðina, þó vera megi aö sprottið séaf misjöfnum rótum. En þeim kemur þó saman um, að ástandið sé ógn alvarlegt og að eitthvað sérlega krassandi verði að gera! Trúlegt er, að hefðu slikar hugleiöingar verið birtar i stjórnarandstöðublöðum, hefðu þær til skamms tima verið metnar til neikvæðrar afstöðu, ef ekki hreinlega verið taldar ómerkilegt svartagallsraus! Númá segja — almennt séð — að eftir þvi að dæma, hvað hefur birzt á siðum þessara blaða all- an stjórnartima núverandi rikisstjórnar, hafi sungið við þann tón, að eitthvað þyrfti að gera. Þetta eru þvi engin ný- mæli. Annað mál er, að þjóðin hefur sannarlega átt von á þvi, að þetta „eitthvað” léti ekki biða eftir sér jafn lengi og raun hefur á oröið. Lesendur þessara ágætu blaða ættu raunar að hafa fylgzt með þvi stanzlausa striði, sem stjórnin telur sig hafa staðið i við verðbólgufjandann, að ekki sé talað um alla þá sigra, san hún þykist hafa unnið i striðinu! Fyrsti hluti dómsins um þessa baráttu er nú tekinn að birtast. Og það verður að segjast, að hann erekki sérlega uppörvandi fyrir fylgismenn stjórnarflokk- anna. Látum þaö nú vera, að þeir hefðu haldið stöðunni, þó ekki hefði verið um að ræða neina landvinninga. En það sýnist nú — aö dómi flokksblaðanna — ekki aldeilis þvi að heilsa. Timinn fer sér raunar hægar i sakirnar og bindur sig fýrst og fremst við „dökkar spár”. Má vera, að þar komi fram eitt- hvert brot af hugarhræringum ritstjórans i ljósi nýliðinna at- burða. Niðurstaðan, að það megi nú ekki lengur dragast að hamla gegn verðbólgunni, vegna þess að það sé allra hag- ur, er vitanlega rétt. En þá kemur að þvi, að menn hljóta að spyrja. Hvað hefur stjórnin verið að gera allt kjörtimabilið sem af er? Ekki er siður ástæða til að spyrja. Eru likur til þess, að þeir, sem hafa fallið i gegn á öll- um prófum i þessu efni i meira en þrjú ár, verði ml sigursælir i lokin? Og hver getur tekið mark á þeirra fyrirheitum, þö marg- endurtekinséu, eftir reynsluna? Marg;r bera sér i munn — þegar rætt er um eilifðarmálin að það sé ekki bezta leiðin, til þess aðhljóta himnavist að vera á sifelldum flótta undan ein- hverju helviti. Ekki skal — af eölilegum or- sökum — dæmt um þessa full- yrðingu en sé i henni fólginn sannleiksneisti, væri hann þó helztsá, að enginn vinnur sigra á þvi að flýja. Sama i hvaða merkingu það er. Núkann einhver aö segja : Já, en hefur rikisstjórnin ekki ein- mitt notað þennan tima, til að búa sig undir átök, sem duga, og er það ekki hygginna manna háttur, að flana ekki að neinu?! / mmm Þetta kann rétt vera. En ligg- ur þá ekki næst fyrir aö athuga i hverju þessi undirbúningur all- ur — undir það, sem enn hefur ekki séð dagsins ljós — er fólg- inn? Það væri með öllu ósann- gjarnt, að leiöa hlutdræg vitni fram i vitnastúkuna, og þvi er rétt að leita þeirra vitna, sem við þarf einmitt i hópi stjórnar- aðila. Þar verður þá Mogginn fyrir. Rikisstjórnin hefur haldið þvi fram, að það væri sérstakt af- rek, að hér skuU ekki hafa orðið atvinnuleysi á timum hennar. Víst er atvinnuleysi mikiö böl. En á hvern hátt hefur það gerzt — aðdómi Moggans i gær —að atvinnuleysi skall ekki yfir þjóðina? Jú. Það hefur gerzt með þvi, að sópa með lántökum erlendis inn fé, hvarvetna þar sem peninga var að fá, jafnvel hjá austurlenzkum ollufurstum! Þannig eru nú rikisskuldirnar orðin geigvænleg hætta fyrir sjálfstæöi okkar. Stjórnin hefur staðið fyrir slikri spennu i at- vinnulifinu, aö nú er flutt inn erlent verkafólk i allnokkrum stil, til þess aö brúa skortinn á vinnuaíli. Frekari erlendar lán- tökurerunú lokuð leið, að-dómi Moggans. „Þessvegna er ekki annaðtil ráöa en taka á vandan- um eins og hann liggur fyrir”, segir blaðið! Hvaö segið þið mér? Hvað hefur stjórnin verið að gera allan timann? Var hún máske að „brytja blámenn fyrir fjandann” austur í Serklandi, i stað þess að taka á vandanum eins og hann lá fyrir?! Liklegt er ,,ef ekkert verður að gert, að atvinnufyrirtæki i fiskvinnslu og sjávarútvegi, stöðvist smáttogsmátt....” seg- ir Mogginn enn! Nú, ekki ann- aö! En fékk ekki stjórnin ræki- lega ábendingu um stöðu fisk- vinnslunnar I ágústbyrjun á liðnu sumri? Hvaö hefur liðið nótt þessara einstæðu vöku- manna siðan? Og meðal ann- arra orða. Hvar eru þeir sjóðir, sem áttu að jafna sveiflur i sjávarútveginum og þegar hafði safnast i allnokkuð? Atti ekki einmitt að safna i þá, þegar verðlag á sjávarafurðum er- lendis væri sérlega hagstætt? Hefur það verðlag verið nokkru sinni hagstæðara en nú um stund? Nei, aldeilis ekki. En sjóðirnir? Þeireru bara gufaðir upp i stað þess að aukast og efl- ast! En syndahafurinn er fundinn. Verkalýöshreyfingin og aörir launamenn hafa knúiö fram svo miklar kröfur, aö ekkert stenzt við! Þetta er grunntónninn i af- sökunum fyrir óförum stjórnar- innar. Nú skal taka til harðra úrræða, gegn þessari vá! Loforð um gull og græna skóga, sem stjórnin gaf i upphafi, hefur hún svikið skemmilega. Nú heitir húnillueinu.Ætli það verði ekki staðið rækilegar við þau fyrir- heit en hin fyrri? Spá um það mun ekki eiga langan ómaga- háls. I HREINSKILNI SAGT Grensásvegi 7 Slmi 82655. 19i RUNTAL-OFNAR Birgir Þorvaldsson Sími 8-42-44 Auc^semW! AUGLySíNGASiMI BLADSINS ER 14906 Svefnbekkir ó verksmiðjuverði SVEFNBEKKJA Höfðatúni 2 — Simi 15581 Reykjavik. 2- 50-50 Sendi- bíla- stöðin h.f.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.