Alþýðublaðið - 31.01.1978, Side 3
Þridludagur 31. {anúftr 1978.
3
Frá fundinum á Hallærisplani:
Bærinn er
sameign
okkar alira7’
Fjölmennur mót-
mælafundur var haldinn
á Hallærisplaninu i mið-
bæ Reykjavikur á
laugardaginn vegna
framkominnar skipu-
lagstillögu um að rifa
niður gömul hús i mið-
bænum og byggja i stað-
inn stórhýsi fyrir
verzlun og ibúðir.
Að sögn Péturs Gunnarssonar,
rithöfundar, eins af aðstandend-
um fundarins, er talið að um 2.000
manns hafi verið samankomnir á
standendur almennt hressir með
fundinn. — Það voru margir
svartsýnir á að halda útifund um
hávetur, en reyndin varð sú, að
fólk vildi vera lengur ef nokkuö
var, sagði Pétur. Á fundinum var
samþykkt eftirfarandi tillaga:
^Um leið og baráttufundurinn
lýsir yfir stuðningi við öll áform
um að hlúa að mannlifi i miðbæn-
um, mótmælir hann að þaö verðl
gert með þvi að rifa hann. Þessl
bær er sameign okkar allra og
enginn einn getur i krafti eignar-
réttar ráðskazt með einstök hús
hans. 1 stað þess að hin dauða
hönd viðskipta fái að kæfa hann,
hvetjum við til að hafizt verM
handa við að bæta fyrir þau spjöll
sem þegar hafa verið unnin og
mannlifi gert kleift að dafna hér
< ABmyndir KIE >
•Nemendur úr Leiklistarskóla tslands fluttu lelkþátt og
undur stjórnaði fundinum.
Vm Irt
er
eitt
af þeim húsum
Spilverk þjóðanna tók iagið af svölum Hótels Vfkur sem
sem stendur tii að rifa.
Rússneska influensan
kínversk?
Ritgerð urn endur-
skoóun stjórnar-
skrárinnar gefin út
,/Þetta kemur allt frá
Hong Kong og þaöan frá
meginlandi Kina'' sagði
olafur ólafsson landlækn-
ir þá er AB innti hann
frétta af hinni svo kölluðu
rússnesku inflúensu, sem
að öllum líkindum er þó
kínversk. Landlæknir kvað
pestina vera víruspest# A-
pest, af H-stofni, H er í
raun tákn fyrir Hong
Kong, en þar mun pestin
fyrst hafa verið greind.
Reyndar sagði hann marg-
ar þær pestir er hér hefðu
gengið vera ættaðar frá
Kina eða Hong Kong, þó
vissu menn raunar oft ekki
með vissu hvaðan pestirn-
ar væru upprunnar, þvi
einungis væri vitað um
greiningarstaði þeirra.
Pestin, hvort sem hún er nú
rússnesk eða kinversk, en mest
hefur hennar orðið vart i Sovét,
14906
lýsir sér með hita, kvefi, vöðva-
verkjum auk þess sem hún hefur
slæm áhrif á maga. 1 upphafi var
vitað um 50-60 tilfelli og þá aðal-
lega meðal ungs fólks, en eldra
fólk mun fremur hafa ónæmi fyrir
pestinni. Pestin sem er ein fleiri
hundruð inflúensutegunda, er
ekki jafntið og Hong-Kongpest sú
er hingað barst 1968. Landlæknir
sagðist gera ráð fyrir að sumir
hverjir þeir er fengju pestina
hefðu ekki samband við lækni,
hér væri, sem reyndar i flestum
tilfellum, um ungt fólk að ræða
sem kæmist yfir sjúkdóminnán
læknishjálpar.
Af orðum landlæknis má dæma
að vafasamt er að nefna farand-
pestir eftir vissum þjóðum eða
rikjum þar sem ekki liggur alltaf
ljóst fyrir um uppruna þeirra. En
slikt getur jafnvel, eins og i þessu
tilfelli haft vissa pólitiska þýð-
ingu a.m.k. áróðurslegt gildi.
Hvort viðkomandi hefur fengið
rússneska pest eða kinverska get-
ur vafalaust fengið ráðiö nokkru
um afstöðu hans i deilu Kinverja
og Rússa.
Nýlega er komið út hjá bóka-
forlaginu örn og örlygur ritið
,,Um endurskoðun stjórnarskrár-
innar”. Meginefni þess er sam-
nefnd ritgerð eftir Gunnar G.
Schram prófessor við lagadeild
Háskólans. Þá er þar einnig birt
sameiginleg álitsgerð um kjör-
dæmaskipan og kosningaréttar-
málefni, sem samvinnunefnd
yngri manna i þremur stjórn-
málaflokkum hefur gengið frá. t
ritinu er einnig birt Mannrétt-
indayfirlýsing Sameinuðu þjóð-
anna i islenzkri þýðingu og texti
lýðveldisstjórnarskrárinnar.
I ritgerð Gunnars G. Schram er
fjallað um helztu hugmyndir
varðandi breytingar á ákvæðum
þeirrar stjórnarskrár, sem nú er i
gildi. Er þar meðal annars rætt
um breytingar á þingrofsréttin-
um, aukið vald forseta tslands og
stofnun embættis varaforseta, af-
nám deildaskiptingar Alþingis,
aukna möguleika á þjóöarat-
kvæðagreiðslu um mikilvæg mál
og fjölgun mannréttindaákvæða
til þess að tryggja sem bezt rétt-
aröryggiö i landinu. t síðari hluta
ritgerðarinnar er rætt um hugs-
anlegar breytingar á kjördæma-
skipan og kosningalögum. Er þar
m.a. fjallað um það á hvern hátt
unnt er að gera kosningar per-
sónubundnari en nú er og fá kjós-
andanum þannig aukiö vald i
hendur. Jafnframt er bent á leiðir
til þess aö draga úr misvægi þvi,
sem myndast hefur varöandi at-
kvæöisréttinn milli hinna ýmsu
kjördæma landsins, bæði með
stjórnarskrárbreytingu en einnig
með lagabreytingu. Birtist rit-
gerö þessi i siðasta hefti Timarits
lögfræðinga.
t bókinni er einnig að finna
sameiginlega álitsgerð um kjör-
dæmaskipan og kosningaréttar-
málefni, sem samvinnunefnd frá
Sambandi ungra framsóknar-
Frh. á 10. siðu
Leiórétting
flýgur ...”
Nafnaruglingur er hvim-
leiður, hvort sem er i ræðu eöa
riti. Ég hef nýlega orðið þess
áskynja að hann lætur til sin
taka i einu kvæðanna i bók
minni „Hrafninn flýgur um
aftaninn”, sem kom út
skömmu fyrir siðustu jól. Þar
vitna ég til minningarljóös eft-
ir Jónas Hallgrimsson og læt
semþað sé ort eftir lát vinar
hans, Tómas Sæmundssonar,
en þetta er raunar hending úr
öðru jafn fögru og frægu kvæði
Jónasar til minningar um
Bjarna Thorarensen skáld.
Þetta bið ég lesendur og
handhafa ljóðakversins aö
leiörétta, hvern I sinu eintaki.
(t óseldum forlagsbókum
veröur þetta ieiðrétt). Tvær
efstu linurnar á bls. 22 skulu
vera:
Skjótt hefur sól
brugðið sumri
orti Jónas að skáidbróður
gengnum.
Hér þarf að breyta einu
þriggja atkvæða orði, i staö
Tómasi komi skáldbróður, og
er þá öllu til skila haldið.
Islenzkur m'álsháttur segir:
Allir eiga leiðrétting orða
sinna og jafnvel presturinn i
stólnum. Ég tek mér þann
boðskap til þakka.
1 janúar 1978
Baidur Pálmason
Björn Jónsson forsetr ASÍV
„Höfum ekki ennþá
séö ástæöu til
þess aö segja upp
samningum”
Er AB hafði samband
við Björn Jónsson forseta
ASÍ varðandi þá fregn í
Dagblaöinu i gær að hann
teldi ólíklegt að samning-
um yrði sagt upp þótt
gengið yrði fellt/ kvaðst
hann aldrei hafa sagt
það. ,/Ja/ hérna" sagði
Björn þá er hann heyrði
fregn þeirra Dagblaðs-
manna „ég sagði að við
hefðum ekki ennþá séð á-
stæðu til þess að segja
upp samningum.
Þó að veruleg breyting hafi
orðið á gengi krónunnar þá er
verðbótafyrirkomulag okkar
þannig að samkvæmt samning-
unum þá fáum við það nokkurn-
veginn til baka. Það er auðvitað
ákvörðun þegar maður sér
myndina fyrir sér, maður gerir
ekki ráð fyrir að það sé bara
fellt gengið, það er auðvitað
myndin af öllum hugsanlegum
aðgerðum sem maður verður aö
hafa i einu fyrir sér”.
Að áliti Björns er þvi ekki
hægt að taka afstööu fyrr en
málið liggur ljóst fyrir, þ.e.
hvort um nokkra gengisfellingu
verður að ræða. Að lokum sagði
Björn að hann hefði fram að
þessu ekki talið þaö vera frétta-
seið þrátt fyrir það að mikil
breyting hafi orðið á genginu.