Alþýðublaðið - 31.01.1978, Qupperneq 4

Alþýðublaðið - 31.01.1978, Qupperneq 4
4 Þriðjudagur 31. janúar 1978. jjjififfi1* 1 1 t* r 1 J[ 11 JB tJtgefandi: Alþýöuflokkurinn. Rekstur: Reykjaprent h.f. Ritstjóri og ábyrgöarmaður: Arni Gunnarsson. Fréttastjóri: Einar Sigurös- son. Aösetur ritstjórnar er i Siöumúla 11, simi 81866. Kvöldsfmi fréttavaktar: 81976. Auglýsingadeild, Alþýöuhúsinu Hverfisgötu 10 — slmi 14906. Askriftar-og kvartanasimi: 14900. Prentun: Blaöaprent h.f. Askriftaverð 1500krónur á mánuöi og 80krónur Ilausasölu. Þegar kommar vildu vígbúast og gáfu lögum og þingræði langt nef Það er mikil raunasaga hvernig afli íslenzkrar verkalýðshreyf ingar hef ur verið sundrað á síð- ustu áratugum. Þáttur kommúnista í pólitískum og faglegum klofningi verkalýðsaflanna verðúr seint fyrirgefinn og mun seint gleymast. Um þessar mundir eru líðin 40 ár síðan tilraun var gerð til að sameina Alþýðuflokkinn og Kommúnistaflokkinn. Sú tilraun fór út um þúfur, þar eð kommúnistar neit- uðu algjörlega að starf a á grundvelli lýðræðishug- sjónarinar, vildu ekki sætta sig við landslög og þingræði og heimtuðu skilyrðislausa hlýðni við Sovétríkin. Vert er að rifja upp þessa sögu, þar eð fáu ungu fólki er Ijóst, að um stjórnvöl Aljjýðubanda- lagsins halda enn nokkrir af þeim mönnum, sem stóðu að kröfugerð kommúnista í samninga- viðræðunum í árslok 1937. Þá eru skoðanabræður þeirra margir í flokknum og hafa þar mikil völd. Ein af kröfum kommúnista var sú, að stofnuð yrði svokölluð þjóðfylking. Hún, eða stjórn hennar átti svo að velja í hverri sýslu eða kaupstað einskonar ,,sovét" eða ráð, sem færi að mestu með vald þjóð- f ylkingarinnar. Þetta þýddi raunverulega að taka mikið af valdi því, sem nú er í höndum hreppsnef nda, bæjar- stjórna og sýslunefnda og leggja það i hendur þess- ara ,,sovéta". Þá kröfðust kommún- istar þess að gerðar yrðu ráðstafanir til að taka upp baráttu gegn upp- reisnarf yrirætlunum afturhaldssamasta hluta íhaldsflokksins, og séð yrði um að þessari upp- reisnarhættu yrði afstýrt m.a. með þvi að auka lög- reglulið og vopna það með skotvopnum, og jafnframt að sjá um, að Uandinu væru nægar birgðir skotvopna og ann- arra hergagna, svo í skyndi væri hægt að vopna mikinn hluta þjóðarinnar, ef uppreisn ihaldsins brytist út. En auk þess var svo lagt til, til þess að líf og ,,eignir" borgaranna yrðu sem bezt tryggðar, að þjóðfylkingin kæmi á víðtækri njósnastarfsemi um andstæðingana. Hlut- verk þessara njósna átti fyrst og fremst að vera það, að fylgjast sem bezt með og komast fyrir, ef unntværi, hvernig íhaldið hagaði vopnainnflutningi sínum og hvað liði upp- reisnaráformum þess. Krafa kommúnista var sú, að Alþýðuflokkurinn tryggði að þessi mál kæmust í framkvæmd. — Kommúnistar kröfðust þess jafnframt, að stöðv- uð yrði öll gagnrýni á Sovétríkin, að ritstjóri og blaðamenn Alþýðublaðs- ins yrðu reknir. Þeir neit- uðu einnig afdráttar- laust, að inn í stefnuskrá sameinaðs flokks kæmu ákvæði um, að hann virti landslög og þingræði. Þessi saga er svo ótrú- leg, að fáir fengjust til að trúa henni, nema af því að allt er þetta til skjal- fest og undirritað af leið- togum kommúnista. Það þarf því engan að undra þótt jafnaðarmenn berj- ist af hörku gegn kommúnismanum. — Alþýðubandalagsmenn segja þetta liðna tíð. En staðreyndin er hins vegar sú, að þessar skoðanir kommúnista eru ennþá við líði hér á landi. Kjarn- inn i stefnu þeirra er að koma Alþýðuf lokknum fyrir kattarnef. Hann hefur ávallt staðið sterk- ur gegn fyrirætlunum þeim, sem hér hafa verið nefndar. UB YMSUIif ATTllM_____ Rekinn á Rosmhvalanesi 1 fyrrakvöld sýndi sjónvarpiö nýja islenska kvikmynd, unna eftir handriti Björns Bjarman og i leikstjórn Stefáns Baldurs- sonar, og hét hún Póker, bæöi af þvi að þaö spil kom nokkuðviö sögu i myndinni, en þó enn fremur vegna þess „pókers,” sem menn þarna léku hverjir við aöra, innan ramma sam- félags, sem litast hefur mjög af sambúö viö þá opingátt alls- nægta, svindls og lausungar, sem kringum herstöö þrifst, hér sem annars staðar, nú, einsog á öllum fyrri timum. Björn Bjarman mun en sinu vel kunn- ur og hefur gefið út skáldsögu um herstöövarlíf, Tröllin i heið- inni. Segja veröur að þetta var þó- nokkuð trúveröug mynd, basði að leik og atburöarás, og þær „senur,” sem sýndu hve ámát- lega mynd þau mannhrök geta á sig tekiö, sem eyöa ævinni i þessudrafi, samsulli af smygli, okri, brögöum, vændi og ann- arri niöurlægingu, voru vissu- lega ekki raunveruleikanum sjálfum feti framar. Hin gleöi- lega frelsun söguhetjunnar frá sinu afleita hlutskipti, bæði hundsgjaldi fátækrar hóru og hlandlyktinni af Jensen hinum hálfdanska, kann þó að hafa þótt snubbóttur endi. En þvi skyldi ekki hægt aö hugsa sér að svona hamingjusamlega takist til, endrum og sinnum. Myndin; var kannske fyrst og fremst skýrsla, einskonar ábending og áminning um að svona mannlifi er lifað á meö útvarpið nauöar sinar notalegu fréttir af atburö- um, sem okkur finnst nákvæm- lega nógu fjárlægir til aö geta látiö sem þeir komi okkur ekki viö, undirspil viö hversdagsleik- ann, einsog bilútvarpið i mynd- inni. Þvi ver er heimur vor þannig aö hinmiklu mál, einsog herstöðvamáliö, eru fyrir ráöamönnunum aöeins kúrvur, samningar, ályktanir og ráðstefnuhöld, nokkurnveginn edrú og laglegra manna, sem gera sér likan af málinu, sem svo er unnið eftir og allt á aö falla sem flis við rass, — og þaö gerir það oftast, þegar nýjar kúrvur og tölur koma fram. Mannlýsnar, sem utaná stór- virkinu skriða, eru ekki með i þessu dæmi. Um þær eru engar tölur til, þ.e. hvort þær standist i dæminu og sálarræksni þeirra þurfi frekari varna viö. Rostungurinn, sem rak uppá Rosmhvalnes, hefur alltaf verið umdeildur. Alltaf blæs hann út og margurhættiráaðsækja sér skjólu og skjólu af spikinu. Springi loks öll bumban og það sem innifyrir er vellur fram, veröur ekki á aö lítast.... A hæstu stööum eru aöeins heimildir um „eitt stykki rost- ung” á Rosmhvalanesi, og það er ekki vitaö til aö nein lykt sé komin af honum. AM

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.