Alþýðublaðið - 31.01.1978, Page 9
mHm Þriðjudagur 31. janúar 1978.
9
Sæmundur G. Lárusson skrifar:
Það er seint ad idr
ast eftir dauðann
Ég ætla að byrja á þvi að
þakka Alþýðublaðiriu allt gott á
siðasta ári og óska þvi gleði-
legs og gæfuriks árs. Ég var
einn þeirra er þátt tóku i próf-
kjöri þvi sem fram fór fyrir
nokkru hjá Alþýðuflokknum og
tókst með miklum ágætum, og
er það trú min að vegur flokks-
ins muni fara vaxandi, senni-
lega meir en margan grunar og
væri það vel.
En svo ég snúi mér að öðru,
þá kemur yfirskrift greinarinn-
ar til af þvi, að margir fyrri
flokksfélagar minir úr Fram-
sóknarflokknum hafa leitað til
min og spurt hvort ég myndi
ekki vera til með að kjósa i þvi
prófkjöri, sem nú er nýlokið hjá
flokknum. Þannig hringdu mjög
margir til min siðustu dagana
fyrir prófkjörið, og vissu sumir
þeirra ekki að ég var búinn að
segja mig úr flokknum. Nokkrir
leituðu mjög stift eftir þvi að ég
tæki þátt i prófkjörinu þótt svo
ég kysi flokkinn ekki við alþing-
iskosningar i vor. Þann skripa-
leik myndi ég hins vegar aldrei
leika.
Þar sem ég naut ekki þess
réttlætis sem hverjum flokks-
bundnum manni er sjálfsagt
þ.e. að ég fengi birta grein i
blaði flokksins. Greinin hafði að
vísu að geyma sannar ábend-
ingar um það, sem mér þótti
flokksforystunni vera til hinnar
•mestu smánar og vanvirðu. Ég
sagði mig þvi úr flokknum. Mun
ég ekki vinna honum sama gagn
nú og við siðustu kosningar.
Óánægja unga fólksins.
Það sem sérstaklega vakti at-
hygli mina i viðtölum við hina
fjölmörgu sem hringdu til min,
er að unga fólkið er ekki ánægt
með hvað þvi er bolað frá. Er
auðfundin óánægja innan raða
þess, sem er engin furða, þegar
þetta er athugað. Þá verður
manni einnig ljós sú sundrung
sem er vaxandi innan flokksins
og er auðvelt að imynda sér
hvernig muni fara i framtiðinni.
Vissulega eru innan flokksins
menn, sem ég hefði sannarlega
viljað gera greiða, og sem ég
met sem góða og heilsteypta
menn. Þar vil ég sérstaklega
nefna Kristján Benediktsson,
sem ég hef þekkt lengi og sem
búinn er að vinna fyrir flokkinn
um margra ára skeið. Kristján
er á svipuðum aldri og börn
min, sem búsett eru hér i borg-
inni og hefur hann haft samband
við þau og mun hafa hvað sem
framtiðin ber i skauti sér.
En hér mun ég láta útrætt um
framvindu mála innan Fram-
sóknarflokksins.
Sjálfstæðisflokkurinn
og samstaða hans.
Þar virðist ekki vera betri
samstaða en hjá Framsóknar-
flokknum. Sjálfstæðisflokkurinn
er hvorki meira né minna en
þriklofinn, ef marka má það
sem kemur fram i dagblöðum
svo og útvarps- og sjónvarps-
þáttum. Má t.d. minna á þáttinn
„Kastljós” þar sem forsætis-
ráðherra sat fyrir svörum. Við
prófkjöriö var kjósendum gef-
inn kostur á að svara nokkr-
um spurningum. Sagði forsætis-
ráðherra, að þeir sem ekki
hefðu svarað spurningunum á
þann veg sem honum likaði
gætu strikað''út nafn hans við
kjörborðið i vor. Sagðist hann
aldrei samþykkja það málefni
er spurt hafði verið um, en á átt-
unda þúsund flokksbræður hans
höfðu lýst sig þvi samþykka i
prófkjörinu.
Slikur er hann, hrokinn og
fyrirlitningin á vilja einstakl-
ingsins hjá þessum forystu-
mönnum. Þeir álita að fólk eigi
að vera eins og viljalaus verk-
færi i höndum þeirra. En slikt er
nú aö breytast sem betur fer og
mun það sina sig betur eftir
næstu kosningar.
Þá má minna á fundarhöld
ungra sjálfstæðismanna. Ég
held að það hafi ekki faríð fram
hjá neinum sem fylgist með
málefnum liöandi stundar, að
þeir hafa látið i ljósi þá skoöun
að ýmissa breytinga þyrfti við
og sýnt megna óánægju með
ýmislegt sem hefur verið að
gerast innan flokksins.
Ekki má gleyma þættinum
þar sem Albert Guðmundsson
sat fyrir svörum. Þar stóð ekki
á svörunum og þar kom fram
einn af þeim mönnum sem ekki
eru að skera utan af þvi, sem
segja þarf. Gæti ég bezt trúað,
að sumt af þvi sem þar bar á
góma hafi ekki failið forsætis-
ráðherra, Geir Hallgrimssyni,
sem bezt i geð. En svona litur
þetta nú út.
Margir mætir menn hafa ritað
greinar í Morgunblaðið og látið i
ljósi vanþóknun sina á gjörðum
flokksforystunnar. Vil ég þar
sérstaklega nefna til mann sem
hefur verið góður kunningi
minn, þótt við fylgdum hvor sin-
um flokknum, en það er Valdi-
mar J. Magnússon framkv. stj-
óri Hagtrygginga h.f. Hefur
hann skrifað tvær greinar i
Mbl., þá siðari nú 17. janúar og
ber hún nafnið ,,Er leiðarahöf-
undur Morgunblaðsins
lýðskrumari?”
Þar lýsir Valdimar rækilega
vanþóknun sinni á gjörðum
stjórnvalda og telur aðfarir
þeirra ekki sem bestar . 1 grein
sinni segir Valdemar m.a.;,,Meö
þessum hætti er stuðlað að
hrossakaupum, viðhaldið svo-
kallaðri samtryggingu flokk-
anna, sem jafnframt stuðlar að
misbeitingu valds.
Alþingismenn eru með þessum
hætti orðnir ábyrgir fyrir og
samdauna verðbólgubraski og
öðru þvi sem þrifst i skjóli þess-
ara stofnana”.
Enn fremur segir: „Hið sjálf-
sagða eftirlit sem Alþingi ætti
að hafa með þessum stofnunum
og stjórnendum þeirra er lagt af
með setu þingmanna i stjórnum
stofnana og þeir gerðir að eftir-
litsmönnum sjálfra sin. Siðgæði
almennings mótast af þvi sem
höfðingjarnir hafast að. Krafa
Mbl. um siöferðislega endur-
reisn sem ekki byrjar ofanfrá er
þvi markleysa og málflutningi
blaðsins stefnt að fordæma eina
tegund spillingar en mæla ann-
arri bót”.
t niðurlagi greinarinnar segir
svo: „I reynd ber rikisstjórnin
hverju sinni ábyrgð á verð-
bólguþróun. Hún ein ræður
skattheimtu-og efnahagsstjórn-
un og ákveöur hvort og i hvaða
mæli þjóðin lifir um efni fram. A
meðan ekki er hægt að koma
alþingismönnum i skilning um
þessi sannindi þá er ekki von á
umbótum”.
Ég læt þetta nægja úr grein
vinar mins það hefur bersýni-
lega fariö fyrir honum eins og
mér. Hann er ekki of ánægður
þótt hann hafi máski ekki sagt
sig úr sinum flokki, eins og ég
gerði.
Samadag og grein Valdemars
birtist var fyrirsögn leiðara
Morgunblaðsins „Sundrungar-
iðja öfgamanna” og þar lýst hve
hættulegir öfgamenn, bæði til
•hægri og vinstri, séu. En Morg-
unblaðið dregur einnig i þann
dilk þá menn sem hafa dug og
þor til þess að kveða upp úr um
hið skelfilega ófremdarástand,
sem er rikjandi i stjórnkerfi
þjóðarinnar og er afleiðing
gerða ráðamanna.
Þegar ég las grein Sigur-
laugar Bjarnadóttur, alþingis-
manna.
Sigurlaug Bjarnadóttir ritaði
fyrir skömmu grein i Morgun-
blaðið undir yfirskriftinni, „Er
okkur alvara”. Mér skilst að
hún hafi einmitt verið þeirrar
skoðunar að ýmsa bitlinga sem
fylgdu þingsetu nætti afnema
með öllu. Ég ætla að láta fylgja
hér meö niðurlag greinar Sigur-
laugar. Hún segir: „Mér
blöskra allar þær aukagreiðslur
og bitlingar til margra einstak-
linga, innan launakerfis rikis-
ins, sem eru á háum launum
fyrir. Þær ætti i mörgum til-
fellum aö afnema með öllu.”
Niöurlag greinarinnar er siðan
á þessa leið: „Með þetta i huga
vænti ég þess fastlega að þegar
— eða ef til þess kemur á næst-
unni, að gripa verði til ein-
hverrar kjaraskerðingar
almennings til að firra frekari
þjóöarvanda sökum vaxandi
verðbólgu, þá láti háttvirtir
alþingismenn ekki á sér standa,
né heldur aðrir hátekjumenn
hvar sem þeir i stétt eru settir —
að slá af umfram hina, sem
siður mega við þvi aö kjör
þeirra séu skert”.
Ég er Sigurlaugu hins vegar
ekki þakklátur fyrir stuðning
hennar við heilbrigðismálaráð-
herra, þar sem hún samþykkti
með honum að aldraðir og
öryrkjar skuli greiða af ellilif-
eyri þurfi þeir að vera einhvern
tima á sjúkrahúsi. Það er stór-
furðulegt að geta fariö þannig
með þjóðfélagsþegna, sem
byggðu upp það þjóðfélag, sem
við nú búum við.
flUGLÝSIÐ I ALÞÝÐUBLAÐINU
AUGLÝSINGASÍMINN ER 14906
Útvarp
7.00 Morgunútvarp
12.00 Dagskrá. Tónleikar
Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir.
Tilkynningar. Við vinnuna:
Tónleikar.
14!30 Starfsemi á vegum
Reykjavikurborgar. Þáttur
um málefni aldraðra og
sjúkra. Umsjón: ölafur
Geirsson.
15.00 Miðdegistónleikar Paul
Crossley leikur Pianósönötu
f ffs-moll eftir Igor Strav-
inský. Narciso Yepes leikur
með spænsku útvarps-
hljómsveitinni i Madrid
Gitarkonserti þrem þáttum
eftir Ernesto Halffter: Odón
Alonso stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popp
17.30 Litli barnatiminn
17.50 Aö tafli Jón Þ. Þór flytur
skákþáttog gerir grein fyrir
lausnum á jólaskák-
þrautum. Tónleikar.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki.
Tilkynningar.
19.35 Rannsóknir i verkfræði-
og raun visindadeild
Háskóla tslands Páll
Theódórsson eölisfræöingur
talar um arðsemi rann-
sókna.
20.00 Strengjakvartett i C-dúr
op. 59 nr. 3 eftir Beethoven.
Am ade us-k var tettinn
leikur.
20.30 Otvarpssagan: „Sagan
af Dafnis og Klói” eftir
Longus Friörik Þórðarson
þýddi. öskar Halldórsson
les (6).
21.00 Kvöldvaka a. Einsöngur:
Elísabet Erlingsdóttir
syngux- islenzk þjóðlög i út-
setningu Fjölnis Stefáns-
sonar: Kristinn Gestsson
leikur á pianó. b. Skúli
Guðjónsson skáldbóndi á
Ljól unn: rstöðum, Pétur
Sumarliðaso i les þátt úr
bók hans „Biéfum úr
myrkri” og endurtekið
verður viðtal, sem Páll
Bergþórsson átti v,ð Skúla
1964 um Stefán frá Hvitadal
og kvæði hans „Fornar
dyggðir”. Páll les einnig
kvæðiö. c. „Þetta er orðið
langt líf”Guðrún Guðlaugs-
dóttir talar við aldraða
konu, Jóninu ólafsdóttur. d.
Haidið til haga Grimur M.
Helgason forstöðumaður
handritadeildar Lands-
bókasafnsins talar, e. Kór-
söngur: Arnesingakórinn
syngur islenzk lög. Söng-
stjóri: Þuriður Pálsdóttir.;
22.20 Lestur Passiusálma
Ragnheiður Sverrisdóttir
nemi I guöfræðideild les 7.
sálm.
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
22.50 Harmónikulög Larry
Norli og Egil Myrdal leika
með félögum sinum.
23.00 A hljóðbergiBókmennta-
verðlaun Noröurlandaráðs
1978. Ingeborg Donali lektor
les úr hinni nýju verðlauna-
skáldsögu, „Dalen Port-
land”, eftir Kjartan Flög-
stad og flytur inngangsorö
um höfundinn.
23.40 Fréttir. Dagskrárlok.
Sjónvarp
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.30 Handknattleikur Lands-
leikur Islendinga og Spán-
verja i heimsmeistara-
keppninni.
21.10 Kosningar i vor (L)
Umræðuþáttur i beinni út-
sendingu. Forystumenn
stjórnmálaflokkanna sitja
fyrir svörum. Ums jónar-
maður Kári Jónasson
fréttamaöur.
22.10 Sautján svipmyndir að
vori Sovéskur njósna-
myndaflokkur. 11. og næst-
siðasti þáttur. Efni tiunda
þáttar: Ket og Helmut flýja
inn i kjallara i rústum
Berlinar, eftir að Helmut
skaut Rolf til bana. Hann
sækir dóttur sína, sem er á
barnaheimili skammt frá,
og ætlar að flýja á náðir
móðir sinnar i Berlin. En
Muller yfirmaður Gestapó,
kimstá slóð þeirra og þegar
Hei.nut sér, að þau eru um-
x"Lif.d,: nýr hann til varnar
Ot íellu. fyrir byssukúlu.
Ket tekst að fela sig i neöan-
jarðargöngum, meðan leit-
að er I nágrenni barna-
I eimilisins. Stierlitz, sem
kominn er i vörslu Gestapo,
vegna þess að fingraför
hans fundust á tösku meö
rússneskum senditækjum,
tekst að sannfæra Muller
um, að hann hafi boriö tösk-
una yfir götu fyrir konu,
sem bjargaöist i rústunum.
Þýðandi Hallveig
Thorlacius.
23.15 Dagskrárlok.
Skák dagsins
Hvítur leikur og vinnur
1. Bc4!!, Dxc4 (Rxc4 2. Hxg7+ og mátar) 2. Hxg7 + , Kh8 (Kxg7
3. Bxe5+ og drottningin fellur) 3. Bxe5I, Dxc2 4. Hf8+!!, (Ekki
4. Hxg6 + ??, Hxe5) Hxf8 5. Hxg6+ og mát I næsta leik.
Umsjón Baldur Fjölnisson