Alþýðublaðið - 04.02.1978, Síða 3

Alþýðublaðið - 04.02.1978, Síða 3
Laugardagur 4. febrúar 1978 ,, F attiggubbar’' Ljósmyndasýning eftir finnska Ijósmynd arann Markus Leppo Finnsku tréskurðar- myndirnar „Fattiggubb- arna" sem mætti þýða með ölmusumenn eða fátækl- ingar, eiga sér enga hlið- stæðu i alþýðulistasögunni. Þetta eru tréskurðar- myndir, sem hafa haft því hlutverki að gegna að safna peningum fyrir fá- tæka og sjúka. Uppruna þeirra má rekja til ka- þólsku Guðskistunnar, eða ölmusustokkanna, sem voru bannaðir þar í landi við siðaskiptin. En á 17. öld var siðurinn tekinn upp að nýju: Kristína drottning fyrirskipaði árið 1649 að söfnunarbaukar skyldu settir upp á opinberum stöðum, en nú án helgi- mynda, og var mönnum gert að gefa í þá til fá- tækra og sjúkra. Með tím- anum tók stokkurinn á sig mannsmynd, sem oftast stóð með útrétta hönd við kirkjudyr. Tréskurðar- myndirnar voru oftast málaðar. Heimildir greina frá að minnsta kosti 130 slikum tréskurðarmynd- um. Nokkrar hafa glatast á siðustu áratugum, en nú munu vera til 118 slíkar styttur við finnskar kirkj- ur. Finnski ljósmyndarinn og rit- höfundurinn Markus Leppo hefur ljósmyndaö allar stytturnar og safnað um þær heimildum. Hann gaf út bók um þær 1967, sýndi hluta af myndunum á listahátið i Helsinki 1973, og bjó út lit- skyggnusýningu i Amos Ander- sons-listasafninu 1975. Norræna sýningarráðið hefur beitt sér fyr- ir þvi að þessi ljósmyndasýning verði sett upp allsstaðar á Norð- urlöndunum, og hefur fengið til þess styrk frá Norræna menning- arsjóðnum. Norræna húsið i Reykjavik er fyrsti staðúrinn sem hýsir sýninguna. Markus Leppo setur sýninguna sjálfur upp og kynnir hana. Sýningin verður i bókasafni og anddyri Norræna hússins 2.-12. febrúar 1978. Jafnframt verða sýndar finnskar kvikmyndir og litskyggnur i samkomusal. Flugleidir: Millilandaflugid hefur taf ist af vetrarveðrum „Við erum að vona að veðráttan verði betri við okkur nú, með hækkandi sól og komandi vori", sagði Sveinn Sæmundsson, blaðafulltrúi Flugleiða hf., i viðtali við Alþýðublaðið i gær, „en þessi vetur hefur verið okkur töluvert þung- ur í þeim efnum." Tiltók Sveinn sérstaklega að Luxembourg hefði verið erfiö við að eiga og heföi nokkuö oft komið fyrir að flugvélar, sem þar áttu aö lenda, samkvæmt áætlun, heföu orðið að snúa til Brússel eða Frankfurt. Sömu sögu hefði verið að segja af Skandinaviu, þvi þar hefði ekki alltaf verið hægt að lenda á áætluöum völlum. íslandsmót unglinga í badminton i dag hófst Islandsmót unglinga í badminton. Mótið byrjaði klukkan 9:30 í morgun en úrslita- leikir verða leiknir klukkan 14 á morgun, sunnudag. Þetta er eitt fjölmennasta mót sem haldið hefur verið i badminton hér á landi. Kepp- endur eru um það bil 150 og alls verða 208 leikir leiknir. Keppendur eru frá eftirtöld- um félögum: BH (úr Hafnar- firði), IBV (Vestmannaeyj- ar), KR (Reykjavik), TBR (Reykjavik), TBS (Siglufjörð- ur) Stjörnunni (Garðabæ) og Val (Reykjavik). Keppni i unglingamótum er yfirleitt mjög spennandi og skemmtileg og eru iþrótta- áhugamenn hvattir til að leggja leiö sina i TBR-húsið við Gnoðarvog núna um helg- ina. Sagði Sveinn að Keflavikur- flugvöllur heföi verið einna bezt- ur þennan veturinn, en þó hefði ófærö þar stundum skapað tafir. Rauno Vell- ing med fyriiiestur Finnski bókmennta- fræðingurinn Rauno Velling (f. 1937) heldur fyrirlestur á sunnudag- inn kemur 5. febrúar — Runebergsdaginn —. Fyrirlesturinn nefnir hann „FrSn skogen till stan, — Ný finsk prosa söker efter sig sjálv." Þar mun hann leitast við að skýra hvaö það er i finnskum nútimabókmenntum, sem er sér-finnskt og hvaö alþjóðlegt. Þetta samspil milli hins þjóð- lega og hins alþjóðlega i bók- menntum litilla málsvæöa er i raun svo viðtækt viðfangsefni, að Rauno Velling, sem er deildarstjóri og ráðunautur við Werner Söderströms bóka- forlag, eitt stærsta og virtasta bókaforlag Finnlands, er hér að fást við atriði, sem veröur einnig að telja að eigi viö um ísland. 3 Sveinafélag pípulagningamanna Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjar- atkvæðagreiðslu um kjör stjórnar og trún- aðarmannaráðs. Framboðslistum skal skila á skrifstofu fé- lagsins fyrir kl. 17 þriðjudaginn 7. febrúar 1978. Kjörstjórn. Hagræðingarráðunautur Vinnumálasamband samvinnufélaganna óskar eftir að ráða hagræðingarráðunaut til starfa. Verkefni verða m.a. uppsetning og eftirlit með hvetjandi launakerfum, einkum i fiskiðnaði, svo og almenn vinnu- rannsókna- og hagræðingarstörf. Umsóknir ásamt upplýsingum um mennt- un og fyrri störf óskast sendar fyrir 15. febrúar n.k. til starfsmannastjóra Sam- bands isl. samvinnufélaga, Sambandshús- inu við Sölvhólsgötu, sem veitir nánari upplýsingar. KópavogskaivstalHr K! ..............i..... Félagsmálastofnun Kópavogs óskar að ráða starfsfólk á nýtt dagheimili við Furugrund I Snælandshverfi sem tekur til starfa í vor. A. Fóstrur. B. Matráðsmann. C. Áðstoðarfólk við uppeldisstörf og eldhúsverk. D. Starfsfólk við ræstingar. Laun samkvæmt kjarasamningum Starfsmannafélags Kópavogskaupstaðar. Umsóknum á þar tii gerðum eyðublöðum sé skilað á Fé- lagsmálastofnunina,Alfhólsvegi 32,fyrir 21. febrúar n.k. Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður dagheimilisins á Félagsmálastofnuninni f sima 41570 kl. 13 — 15 daglega og þar liggja einnig frammi umsóknareyðublöð. Félagsmálastofnun Kópavogskaupstaðar Sunnud. 5. febrúar Kl. 15:00 Finnskar kvikmyndir. Kl. 16:00 Fyrirlestur um finnskar bók- menntir: Rauno Velling bókmenntafræð- ingur frá Finnlandi. „Fattiggubbar” ljósmyndasýning um finnskan tréskurð i bókasafni og anddyri opin daglega til 12. febrúar. Verið velkomin. NORRÆNA HUSIO

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.