Alþýðublaðið - 04.02.1978, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 04.02.1978, Blaðsíða 7
JJJJS*’ j Laugardagur 4. febrúar 1978 7 yfir umferöargötu i London en hér heima, þar sem ég veit ekki hvort islenzkir bilstjórar viti hvaö hviti stafurinn táknar. 1 London er hins vegar tekiö afar mikiö til- lit td blindra. Mig langar svo til aö nefna þaö i framhaldi af þessu, aö blint fólk hefur afar gaman af þvi aö ferö- ast. Ég fór til dæmis ásamt 13 blindum og sjónskertum til Noregs siöastliöiö sumar og átti góöa daga. Feröalög hafa i fór meö sér nauösynlega hreyfingu, útiveru og breytingu á öllu umhverfi. Sjáandi fólk, sem er vant þvi aö umgangast blinda getur lýst umhverfinu fyrir blind- um, þannig aö hægt er að fá af þvi góöa mynd. Þaö Utheimtir mikinn iikamlegan styrk aö vera blindur og öll hreyfing og útivera styrkir mann. Umferðarvandamálið verst Eins og gefur aö skilja er umferöarvandamáliö erfiöast viðfangs fyrir blinda og þar verö- ur oft að reiða sig algerlega á sjá- andi fólk. Halldór sagði lika, aö i þessu sambandi og öðru mætti orða móttó blindra eitthvað á þá lund, að „samvinna er nauðsyn”. — Konan min lærði á bil i september s.l. og það hefur oröiö mér m jög gagnlegt. Þegar ég er i bfl með henni hér á götum Reykjavikur, þá þekki ég margar götur sem við ökum um og mér liður ekki vel nema aö vita hvar ég er staddur hverju sinni. Ég þekki Reykjavik mjög vel, aö Breiðholtinu undanskildu. Um London rata ég talsvert lika og man eftir þvi aö hafa einu sinni leiðbeint leigubilstjóra aö húsi ut- an við London! Blindir þurfa hvatningu A meöan á samtalinu stóö, sýndi Halldór blaöamanni ýmsa hluti sem hann notar sér til aðstoöar i hinu daglega lifi. Einn- ig dró hann upp nokkra muni úr tágum, leir og plastþráöum sem hann bjó tii i skólanum. Treystir undirritaður sér ekki til að gera betur, þrátt fyrir aö hafa sem næst 100% sjón! Aðalaðstoðar- tæki hans i lögræðingsstarfinu erusegulbönd, stór og smá og svo auðvitað siminn. Stafinn skilur hann aldrei viö sig og siöan eru alls kyns smáhlutir sem notaðir eru til hjálpar. Sýndi hann blaða- manni litinn glugga úr plasti, sem hægt var aö leggja yfir ávisanaeyöublaö til aö fylla þaö út. Þannig getur ómerkiiegur hlutur i sjálfu sér oröiö aö mikil- vægu h jálpartæki. En kemur ekki stundum fyrir aö Halldór óski eft- ir þvi aö vera oröinn sjáandi á ný? Tækiðtil hægriá skrifborði Halldórs Rafnar er biindraritvél. Hana notar hann til þess að skrifa stuttar athugasemdir ogýmsa minnispunkta. — Jú, auövitaö er undir vissum kringumstæöum pirrandi að vera blindur. Til dæmis þótti mér afar gaman aö þvi að fara á málverka- sýningar. Nú er þaö búiö — og þó ekki alveg. Nú og svo getur mað- ur ekki tekiö undir, ef einhver hefur orð á þvi hve falleg einhver stúlka sé sem gengur fram hjá! — Viö þurfum hvatningu til aö bjarga okkur sjálf og viö þurfúm fyrstogfremst aö treysta okkur á eigið afl. Þvi getur fylgt töluverö spenna aö vera blindur. Þaö getur veriö kominn maöur eöa kassi á gangveginn, þar sem ekkert var fyrireinni minútu. Nú og svo þarf blint fólk að vinna sin verk mun skipulegartil aö halda þræðinum. En vissulega er hægt aö bæta sér upp blinduna á margan hátt, til dæmis með stundvisi og jákvæðri afstöðu til umhverfisins. Og þar meö var kominn timi til aö kveðja Halldór Rafnar. Viö- dvölin var oröin lengri en ætlunin var i upphafi og örugglega marg- ir sem biöu á simalinum i skipti- borði öryrkjabandalagsins eftir aö bera vandamál sin undir lög- fræðing sinn. Einni ábendingu bað hann blaöamann aö koma á framfæri og hún er sú, að benda sjónskertum, og fólki sem verður fyrir þvi að tapa sjón, aö snúa sér til Elinborgar Lárusdóttur, blindrafulltrúa, en hún hefur aö- setur að Hamrahlið 17 i Reykja- vik. Litid inn hjá lögfræ&ilegri upplýsingaþjónustu öryrkja: Þar er öryrkjum veitft ókeypis lögfrædiaösftod iór lærði að laga slg að nýjum aðstæöum 1975. 13. desember 1976 stefnaði Öryrkjabanda- lag íslands lögfræðilega unriýsingaþ}ónustu fyrir öryrkja og var Wán fyrst til húsa i húsnæði toHstjérskembættisins vii Tryggvagötu f Reykjavflc. Var banáa- lagið með húsnæðið til ékeypis afnota i tvö ár, efla þar til lögfræðiþjón- istan var fiutt I eina af Makkum Öryrkjabanáa- lagsins við Hátún 16 — um áramótin síðustu. Uppiýsingaþ jónustan veftir öryrkjum um land aflt ékeypis iögfræði- þjémistN ©g er starfs- maiur hennar einn HalMér Rafnar, lög- frmflingnr, en hann er Mméur og hefur verið þafl frá þvi i byrjun árs 1974. Nú um áramótin flutti upplýs- ingaþjónustan I Hátún 10, eins og fyrr segir, og þar hitti blaðamað- ur Halldór að máli á dögunum og baö hann segja I stuttu máli frá starfi sinu sem lögfræöings ör- yrkja. — Þaö eru auövitaö margs konar vandamál sem menn leita til min með, en I upphafi var mikill meirihluti þeirra tengdur kærum vegna álagöra skatta. Þaö var stundum lagt á fólk þegar þaö var ifullu fjöri, en siöan kom eitthvaö fyrir og þegar fólk var oröiö ör- yrkjar að meiru eöa minna leyti gat skattabagginnoröiöóbærileg- ur og þvi leitaði fólk til min. tir þessu hefur venjulega veriö leyst meö góöri sanvinnu viö skatt- yfirvöld. Þá veitum viö aöstoð viö gerö erföaskrár fyrir öryrkja, sækjum um leyfi til aö sitja i óskiptu búi eftir aö maki hefur látist, sinnum skilnaöarmálum, vandamálum i sambúö og svo mætti lengi telja. Stundum eru vandamál viökom- andi leyst einfaldlega meö sam- tali og ráðleggingum því oft er það aö fólk skortir aöstöðu til aö geta tjáö sig um margt s«n þvi liggur á hjarta. Mitt starf er þess vegna sambland af félagsráögjöf og lögfræöiráöieggingum, ef svo mætti segja. Óánægja með örorku- matið Talsverter um aö fólk utan af landi komi til Reykjavikur til aö nýta starfskrafta Halldórs, eöa þá aö þaö hefur simasamband viö hann og kemur áhugamálum sin- um áframfæriþannig,—-Mikiöaf minu starfi fer fram i gegn um sima. Siminn er min liftaug viö umheiminn, segir hann. Þá nefndi Halldór þaö, aö menn væru stundum óánægöir meö sitt örorkumat, en samkvæmt lögum eru þaö tryggingarlæknar sem leggja mat á örorku og er þaö mat i reynd algilt. — Ég reyni meö vinsamlegum tilskrifumaöfá mál tekin uppaft- ur, þegar um óánægju meö ör- orkumat er að ræöa, enstundum er óánægjan byggöá mfeskilningi sem leiöréttistá milli min og viö- komandi. En ég get ekki neitaö þvi, aöþaö mætti taka fyrirkomu- lagiö á örorkumati til endurskoö- unar. Þaö vantar til dæmis örorkudómstél á Islanái, sem hægt væri aö skjóta örorkumati til. Slikir dómstólar eru til víöa 1 nágrannalöndunum. ónefnt er svo þaö, aö Halldór bendir oftöryrkjum á rétt þeirra, sem þeir hafa ef til vill ekki vitaö um og þvi ekki notfært sér. Er sá þáttur ekki litilvægastur I starfi upplýsingaþjónustunnar. Aö lok- um má geta þess aö kostnaður viö rekstur upplýsingaþjónustunnar er greiddur af öryrkjabandaiag- inu meö styrk úr rfkissjóði.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.