Alþýðublaðið - 25.02.1978, Page 2
2
Laugardagur 25. febrúar 1978
Samningana í gildi
Miðstjórn ASÍ:
Skorar á aðildar-
samtök og félags-
menn að leggja niður
vinnu 1. og 2. marz
A fundi miðstjórnar
Alþýðusambands islands
og 10 manna nefndar þess,
sem haldinn var í fyrra-
kvöld, 23. febr., var eftir-
farandi ályktun samþykkt
samhljóða:
„Með tilvisun til ályktana mið-
stjórnar 10. febrúar sl., for-
mannaráðstefnu ASl 15. febrúar
sl„ samráösfunda samtaka launa
fólks og þeirra ráðstefna sem
haldnar hafa verið i öllum lands-
hlutum undanfarna daga, sam-
þykkir miðstjórn Alþýðusam-
bands Islands og 10 manna nefnd
þess, að skora á öll aðildarsamtök
ASt og félagsmenn þeirra að
leggja niður vinnu 1. og 2. mars
næstkomandi, sem fyrstu aðgerð-
irtil að mótmæla þeirri gifurlegu
kjara- og réttindaskerðingu sem
felst i lögum þeim um efnahags-
ráöstafanir sem meirihluti al-
þingis hefur nýverið samþykkt
fyrir forgöngu rikisstjórnarinnar.
Kjörorö baráttunnar er: Samn-
ingana i gildi.”
1 ályktun miðstjórnar ASt frá
10. febr. sl., sem til er vitnað i of-
angreindri ályktun, segir meðal
annars:
„Það er staöfast álit miðstjórn-
ar Alþýðusambands tslands, að
það sé frumskylda stjórnvalda að
halda i heiöri löglega gerða
kjarasamninga aðila vinnu-
markaðarins og haga efnahags-
legum aðgerðum sinum i sam-
ræmi við það og að slikt sé ekki
Fjármálaráðherra og formaður BSRB undirrita samning til tveggja ára að viðstöddum samgöngu-
málaráðherra.
aöeins skylt heldur og fullkom-
lega fært nú, þrátt fyrir þau stór-
felldu mistök sem gerð hafa verið
og rikisvaldið ber ábyrgð á. En
um þessi efni hefur Alþýðusam-
bandið ásamt BSRB og fulltrúum
þriggja stjórnmálaflokka lagt
fram ýtarlegar og raunhæfar til-
lögur....”
t ályktun miðstjórnar frá 10.
febrúar sl. segir einnig:
„Þá lýsir miðstjórnin þvi yfir,
að hún telur að með þvi að allar
heiðarlegar leikreglur varðandi
sambúö verkalýðssamtakanna og
atvinnurekenda og rikisvaldsins
eru þverbrotnar með fyrirhug-
aðri lagasetningu, að verkalýðs-
félögin og allir einstaklingar inn-
an þeirra séu siöferðislega
óbundnir af þeim ólögum, sem
rikisvaldið hyggst nú setja”.
Formannaráðstefna Alþýðu-
sambands Islands, sem haldin
var 15. febrúar sl., samþykkti
ályktun, þar sem mótmælt var
harðlega lagasetningu þeirri sem
þá var fyrirhuguð. 1 þessari
ályktun segir meðal annars:
„Ráðstefnan itrekar fyrri
áskoranir verkalýðssamtakanna
til rikisstjórnarinnar um að
stöðva framgang frumvarpsins.
Verði ekki orðið við þeim ein-
dregnu tilmælum, samþykkir
ráðstefnan að fela miðstjórn
ásamt stjórnum eða fulltrúum
BSRB og FFl að skipuleggja
sameiginlega baráttuaðgerðir og
skal miða við að þær hefjist 1.
mars n.k.”
40 ára
afmælishátíð
Alþýðuflokks-
félags Reykjavíkur
Alþýðuflokksfólk. Fjölmennum á
afmælishátiðina, sem haldin
verður i Þórscafé sunnudaginn
26. febrúar nk., kl. 3.15 e.h.
Dagskrá:
Hátiðin sett, Emilía Samúels-
dóttir.
Ræða, Benedikt Gröndal.
Ávörp, Jóhanna Sigurðardóttir og
Sjöfn Sigurbjörnsdóttir.
Einsöngur, Sigriður Ella
Magnusdóttir. Undirleikari er
Carl Billich.
Gamanþáttur, Árni Tryggvason
og Sigurður Sigurjónsson.
Gylfi Þ. Gislason verður veislu-
stjóri og Guðlaugur Tryggvi
Karlsson mun stjórna f jöldasöng.
Miðaverð er kr. 1.000,- (innifalið:
kaffi og meðlæti) en miðarnir eru
seldir á skrifstofu Alþýðuflokks-
ins, Hverfisgötu 8-10 i dag kl. 10-12
og 1-6 e.h. Simi skrifstofunnar er
2-92-44 og 1-50-20. — Allir velunn-
arar Alþýðuflokksins eru vel-
komnir. ósóttar pantanir verða
afhentar i Þórscafé eftir kl. 1 á
sunnudag. Borðapantanir i Þórs-
café eftir kl. 3 i dag.
Stjórn Alþýðuflokksfélags
Reykjavíkur
Ávarp stjórnar BSRB til félaga sinna:
„Vegið er að frjálsum
samningsrétti launafólks”
— opinberir starfsmenn eiga fulla samstöðu
með öðrum launamönnum
Stjórn BSRB hefur sent fé-
lagsmönnum sínum eftir-
farandi ávarp:
„Formannaráðstefna BSRB
hefur faliö stjórn bandalagsins að
leita samstarfs við önnur samtök
launafólks um aðgerðir til að
hrinda þeirri árás á frjálsan
samningsrétt, sem hin nýju lög
um efnahagsaðgerðir fela i sér.
Er i samþykkt formannaráð-
stefnunnar bent á, aö launafólk
sé knúið til aðgerða til verndar
samningsréttinum nú og i fram-
tiðinni.
Siðan segir orðrétt:
„Ef nauðsyn krefur og sam-
staða næst við önnur launþéga-
samtök um aðgerðir, felur for-
mannaráðstefnan stjórn BSRB að
gangast fyrir viðtækri þátttöku
félagsmanna, Bandalags starfs-
manna rikis og bæja i þeim. —-
Komi til vinnustöövunar er stjórn
bandaiagsins falið að taka þátt i
stjórnun hennar af þess hálfu”.
Vinnustöðvun 1. og 2. mars
1978.
Þar sem meirihluti Alþingis
virti að vettugi allar aövaranir og
áskoranir launþegasamtaka um
að hætta við að samþykkja
ákvæði um riftun samninga þá er
það ákvörðun samtakanna að
boða til vinnustöðvunar á upp-
hafsdegi kjaraskeröingarákvæð-
anna.
Samstaða hefur tekist um, að
vinnustöðvun verði boöuð að
þessu sinni miðvikudaginn 1.
mars og fimmtudaginn 2. mars.
Stjórn BSRB hvetur alla til
þátttöku i aðgerðunum en getur
ekki fyrirskipað slikt. Hver ein-
stakur verður að taka ákvörðun
um hlutdeild sina og samstöðu
með öðrum.
Er vinnustöðvun lagabrot?
Nei — þvert á móti er hún yfir-
lýsing um, að fullkomlega skuli
staðið við lög um kjarasamninga
BSRB — en þau hafa ekki verið
numin úr gildi.
Samkvæmt ófrávikjanlegu skil-
yrði rikisstjórnarinnar er það
tekið fram i lögum nr. 29/1976, að
kjarasamningar skuli eigi gerðir
til skemmri tima en tveggja ára.
Gildistimi þess samnings, sem
fjármálaráðherra undirritaði f.h.
rikissjóðs og staðfestur var i nóv.
s.l., var til 1. júli 1979. — Með
flutningi frumvarps um skerð-
ingu visitöluákvæða löglegs
kiarasamnings hefur rikisstjórn-
in sjálf rofið þennan samning.
Það gæri meira að segja verið
úrskurðaratriði hjá óháðum dóm-
stólum, hvort hún hefur ekki með
þessu brotið 17. grein laganna,
sem ey þannig:
„Aöilar kjarasamnings bera fé-
bótaábyrgð á samningsrofum
þeim sem þeir sjálfir eða lögmæt-
ir fulltrúar þeirra gerast sekir um
i störfum sinum fyrir þá”.
Krafa BSRB er einfaldlega að
undirritaður kjarasamningur og
lögin um kjarasamninga haldi
fullu gildi.
Afstaða BSRB
BSRB setti fram þá kröfu við
gerð kjarasamningalaganna, og
endurtók hana i siðustu samn-
ingsgerð, að segja mætti upp
kaupliðum samnings, ef röskun
yrði á umsaminni visitölutrygg-
ingu eða veruleg rýrnun á kaup-
mætti.
Þessu var neitað af þeim sömu
stjórnvöldum, sem nú hafa rofið
samninga við opinbera starfs-
menn.
Vinnustöðvunin er algjör nauð-
vörn samtaka, sem meinað hefur
verið að semja við sina viösemj-
endur á jafnréttisgrundveili.
Takist ekki að hrinda þeirri
árás, sem nú er gerð á nýfenginn
samningsrétt BSRB og aðildarfé-
laga þess, þá virðist næsta til-
gangslitið að efna til viðræðna og
samningagerðar i framtiðinni viö
rikisvald og sveitastjórnir.
Þaö er þvi sjálf tilvera stéttar-
samtaka okkar sem er i húfi.
Neyðarréttur.
Með endurtekinni riftun lög-
mætra kjarasamninga er vegiö
að frjálsum samningsrétti alls
launafólks.
Opinberirstarfsmenn eiga fulla
samstöðu i þessum efnum með
öðrum launamönnum.
Allt launafólk er knúið til að
nota nú þann neyðarrétt sinn,
sem viðurkenndur er i lýðfrjáls-
um löndum, til að hrinda þeirri
árás, sem gerð er á frjálsan
samningsrétt.
— Stöndum órofa vörð um
samtökin okkar
— rjúfum ekki samstöð-
una með stéttasystkinum
— Sameinumst um kröf-
una:
Samningana í gildi!"
Launamálarád BHM: k
Takið þátt í
aðgerdunum
1. og 2. marz
Bandalag háskólamanna
hefur sent eftirfarandi frá
sér:
„Þegar frumvarp rikis-
stjórnarinnar um efnahagsráö-
stafanir hafði verið lagt fram á
alþingi sendi Bandalag háskóla-
manna frá sér áiyktun þar sem
fordæmd var óstjórn i efnahags-
málum undanfarin ár og mót-
mælt hugmyndum um einhliöa
skerðingu verðtryggingarákvæöa
kjarasamninga með valdboöi.
Jafnframt var bent á aö ekki
virtist hafa verið tekiö á kjarna
þeirra vandamála, sem rekið
hefðu stjórnvöld til að hefjast
handa um aðgeröir, sem virtust
beinast fyrst og fremst gegn laun-
þegum.
Föstudaginn 17. febrúar var
haldinn fundur launamálaráðs og
formanna BHM og voru þar rædd
lög um efnahagsráöstafanir. Þar
var samþykkt að visa þvi til
launamálaráðs rikisstarfsmanna
að taka ákvöröun um samstarf
viö samtök launþega um við-
brögð viðþeim ákvæðum laga um
Framhald af bls. 6