Alþýðublaðið - 25.02.1978, Qupperneq 4
4
Laugardagur 25. febrúar 1978
32»
Útgefandi: Alþýöuflokkurinn.
Rekstur: Reykjaprent h.f. Ritstjóriog ábyrgöarmaöur: Arni Gunnarsson. Fréttastjóri: Éinar Sigurös-
son. Aösetur ritstjórnar er i Siöumúia 11, simi 81S66. Kvöldsimi fréttavaktar: 81976. Auglýsingadeild,
Alþýöuhúsinu Hverfisgötu 10 — simi 14906. Askriftar- og kvartanasimi: 14900. Prentun: Blaöaprent h.f.
Askriftaverö 1500 krónur á mánuöi og 80 krónur i lausasölu.
Alþýduflokksfélag
Reykjavíkur 40 ára
Alþýðuf lokksfélag
Reykjavíkur mun á
sunnudag minnast 40 ára
af mælis síns með veglegu
kaf f isamsæti. Það er
langstærsta f lokksfélagið
og hefur verið eins konar
móðurskip Alþýðuflokks-
ins allt frá stofnun.
Nokkur fleiri samtök
innan Alþýðuf lokksins
hafa minnst 40 ára af-
mæla undanfarnar vikur,
og er stofnun þeirra allra
að meira eða minna leyti
tengd þeim miklu um-
svifum, sem urðu á
vinstri væng íslenskra
stjórnmála 1937—38. Þá
voru gerðar tilraunir til
að sameina Alþýðuflokk-
inn og Kommúnistaflokk
íslands, en þær báru ekki
árangur. Afleiðingin varð
sú, að hópur Alþýðu-
flokksmanna undir for-
ustu Héðins Valdimars-
sonar stofnaði með
kommúnistum Samein-
ingarflokk alþýðu-Sósíal-
istaflokkinn, en sterkur
kjarni hélt starfi Alþýðu-
f lokksins áfram og stofn-
aði ný f élög, þar sem þess
var þörf. Alþýðuflokks-
félag Reykjavíkur varð
sterkasta vígið í þessum
átökum og hefur átt mik-
inn þátt i að Alþýðuflokk-
urinn hélt merkjum frels-
is og lýðræðis á lofti og
var þýðingarmikið afl í
islenskum stjórnmálum
eftir sem áður.
AAeginafleiðing atburð-
anna 1937—38 varð sú, að
vinstri armur stjórnmál-
anna og launþegahreyf-
ingin klofnuðu og hafa
starfað klofin allar götur
siðan. Ekki var grunlaust
um, að íhaldið hafi á
þessum árum ýtt undir
þessa þróun og veitt
kommúnistum ýmis kon-
ar stuðning við að kljúfa
Alþýðuflokkinn, sem þá
gat einn ögrað valdastöðu
Sjálfstæðisf lokksins er
var orðinn stærsti f lokkur
landsins. Það var ekki
mörgum árum seinna, að
formaður Sjálfstæðis-
flokksins leiddi kommún-
ista inn í rikisstjórn í
f yrsta sinn hér á landi, og
sýndi þar í verki þann
draum ihaldsaflanna að
geta stjórnað landinu
með hinum flokkunum til
skiptis, otað þeim hverj-
um gegn öðrum — sem
sagt deilt og drottnað.
Þetta hefur að verulegu
leyti tekist, að undan-
teknum tveim skammlíf-
um vinstristjórnum, sem
ekki náðu árangri af því
að stjórnarflokkar voru
þrír og samkomulag því
erfiðara, svo og vegna
þess að Framsóknar-
flokkurinn hefur gerst
stöðugt tækifærissinn-
aðri.
Flokkaskipting hefur
hér á landi verið í stórum
dráttum óbreytt siðan
1938 nema hvað einstaka
sinnum hafa komið fram
smáflokkar, er allir hafa
þó reynst skammlífir. Af
þessu hef ur leitt, að áhrif
jafnaðarstefnunnar, sem
hafa verið svo mikil i ná-
grannalöndum okkar,
hafa orðið mun minni hér
á landi, enda þótt aðrir
flokkar hafi tileinkað sér
og fallist á ýmis megin-
atriði velferðarríkis. Sér-
staklega er athyglisvert,
hvaða áhrif kjósendur
Sósíalistaf lokksins og nú
siðast Alþýðubandalags-
ins hafa haft á þróun
mála. Það er næsta lítið,
því þessir flokkar hafa
ekki sýnt virkan áhuga á
lýðræðislegum umbótum
i félagsmálum, eins og
jaf naðarmenn, heldur
hafa þeir að kommúnist-
ískum hætti lagt mesta á-
herslu á aðstöðu til valda-
tafls, beitt verkalýðsfé-
lögum í árangurslítiIIi
verkfallsbaráttu, fundið
upp ,,Alþingi götunnar"
og farið aðrar troðnar
leiðir eftir kokkabókum
erlendra kommúnista.
Alþýðuf lokkurinn hef-
ur hins vegar gert þjóð-
inni mikið gagn með því
að boða og koma f ram fé-
lagslegum breytingum til
aukins jafnréttis og
tekjuskiptingar og með
raunhæfri kjarabaráttu.
Almannatryggingar,
sjúkratryggingar, at-
vinnuleysistryggingar og
fleiri slíkar umbætur
hafa ekki verið teknar
aftur og hafa ekki horf ið í
hringiðu verðbólgu.
Alþýðuf lokkurinn er nú
i nýrri sókn, þar sem ný
kynslóð hefur forustu.
Flokkurinn hefur ráðist á
verðbólguspillingu, fjár-
málaóreiðu og aðrar
meinsemdir í þjóðfélag-
inu og þá sérstaklega yf-
irbyggingu þess. Lækn-
inguna er að f inna í nýrri
stefnuskrá flokksins, þar
sem hugsjónir jafnaðar-
stefnunnar eru túlkaðar í
Ijósi islenskra aðstæðna.
Alþýðuf lokksfélag
Reykjavíkur hefur gegnt
mikilvægu hlutverki í 40
ár og f lokkurinn stendur í
þakkarskuld við alla þá,
sem þar hafa gegnt og
gegna nú forustuhlut-
verkum. En framundan
eru meiri verkefni en
nokkru sinni: að breyta
flokkaskiptingunni veru-
lega og gera Alþýðu-
flokkinn að stórum og
öflugum flokki.
BGr
Til ad koma í veg
fyrir misskilning
„Vegna misskilnings, sem risið
gæti, út af skrifum i Alþýðu-
blaðinu um vinnumál á Grundar-
tanga, nú siðustu daga, viljum við
gjarnan koma fáeinum athuga-
semdum á framfæri. 1 fyrsta lagi
höfum við reynt að koma öryggis-
málum i eins gott horf og kostur
er, leggjum til öryggishjálma og
öryggisbelti, þeim mönnum er
vinna störf sem kalla á belti, i
öðru lagi höfum við reynt að
koma á launahvetjandi kerfum
við vinnu sem flestra starfs-
manna á okkar vegum, til að
minnka launamuninn, og i þriðja
lagi er verið að reyna að brúa
bilið með hlifðarföt og annan
slikan búnað og stendur þar ekki
á okkur”, sagði Ólafur Gislason,
staðarstjóri ístaks á Grundar-
tanga i viðtali við Alþýðublaðið i
gær.
Ólafur hafði samband við
blaðiö vegna greina um verka-
menn, afkomu þeirra og aðstæður
við vinnu á Grundartanga. Taldi
hann þar ónákvæmlega um
fjallað.
Einkum var það þrennt sem
Ólafur taldi villandi. Það voru
skrif um öryggismál, þar sem
skýrt var frá þvi að verkamenn
og iðnaðarmenn ynnu þarna i
stálgrindum, án þess að nota
öryggisbelti. Tekið var fram að
beltin væru fyrir hendi, en hins
vegar væru þau svo þung i vöfum
og tefðu svo vinnu, að menn
notuðu þau litið.
Ólafur vildi taka fram að ístak
legði mönnum sinum til öryggis-
belti og leggði áherslu á að þau
væru notuð. Hins vegar væri ekki
hægt að fylgja þvi verulega eftir.
Beltin væru vissulega þung i
vöfum, enda yrðu þau að vera
það, til þess að bjarga einhverju,
ef menn misstu jafnvægið.
Lagði ólafur áherslu á, að
unnið væri eftir timalaunakerfi,
þannig að menn töpuðu ekki fé á
þvi að vinnu seinkaði vegna
beltanotkunar.
t öðru lagi væru svo launamál.
Ólafur kvað að visu mikinn mis-
mun, þótt hann teldi hann nokkuð
ýktan i téðum skrifum i AB, en
hins vegar reyndi tstak aö brúa
þennan mismun, með launahvetj-
andi vinnukerfum og nú væru
milii 70 og 80% starfsmanna ts-
taks á slikum bónuskerfum. Rétt
væri að möguleikar manna til
tekjuöflunar væru mjög misjafn-
ir, en hins vegar væri það ein-
kenni á byggingariðnaðinum sem
slikum, en ekki á tstak einu.
1 þriðja lagi vildi Ólafur taka
fram, að það stæði alls ekki á
tstaki að samkomulag náist um
hlifðarfatnað og annan slikan
búnað. Þar stæði á lands-
samböndum launþega og vinnu-
veitenda, sem ekki hefðu lokiö
frágangi svæðissamninga og til
þess tima að frá þeim verður
gengið mætti tstak ekki gera neitt
i málinu. Það væri rétt að
óánægju hefði gætt vegna þessara
mála en það strandar ekkert á
tstak.
t tengslum við öryggismál kvað
Ólafur mega koma fram að
pryggiseftirlit rikisins hefði
skoðað allt hjá þeim á Grundar-
tanga og talið allt fullnægjandi. 1
sambandi við launamál mætti
skýra frá þvi að ýmis landssam-
bönd launþega og verkalýðsfélög
hefðu iýst þvi yfir að þau teldu
allt slikt i góðu lagi hjá tstak.
Góð veiði
Samkvæmt upplýsingum
Loönunefndar mun loönu-
veiði hafa gengiöallvel s.l.
viku og þá sérstaklega
laugardaginn 18. þ.m.
Var það metdagur á loönuver-
tiöinni, 20 þúsund tonn veiddust.
Sunnudagurinn kom einnig vel út,
s.l. viku
en heldur dró úr veiði þá er liða
tók á vikuna. Loðnuaflinn mun nú
nema alls 260 þús. tonnum frá
upphafi vertiðar.
Mestur hluti loðnuaflans fæst
nú um 20-30 sjómilum fyrir S-A
Hvalbak. S.l. laugardag höföu,
samkvæmt upplýsingum Fiski-
félags Islands, 69 bátar fengið
afla þann dag.
—hv
Félagsfundur
Verzlunarmannafélag Keykjavikur
heldur félagsfund að Hótel Sögu, Súlnasal
mánudaginn 27. febrúar kl. 20.30.
Fundarefni:
Uppsögn kaupgjaldsákvæða kjarasamn-
ings félagsins.
Breytingar á reglugerð Lifeyrissjóðs
verzlunarmanna.
Verzlunarmannafélag
Reykjavikur
Volkswagen
Höfum fyrirliggjandi: Bretti — Hurðir —Vélarlok —
Geymslulok á Wolkswagen I allflest'um litum. Skiptum á
einum degi með dagsfyrirvara fyrir ákveðið verð. Reyniö
viðskiptin.
Bilasprautun Garðars Sigmundssonar.
Skipholti 25 Simar 19099 og 20988.