Alþýðublaðið - 22.03.1978, Side 2
2
AAiðvikudagur 22. marz 1978. !K&“-
Costa del Sol Kanaríeyjar
Irland Jugóslavía
Sumaráætlunin tilbúin!
mLANDSÝN
Ifjlr SKÓLAVÖRÐUSTÍG 16 SÍMI 2E
Borgfirðinga-
vika á döfinni
Dagana 19.-23. apríl n.k.
verður Borgfirðingavakan
haldin í fimmta sinn.
Hefst hún með tónleikum Sv n -
fóniuhljómsveitarinnar i Loga-
landi siðasta vetrardag og verður
hljómsveitin undir stjórn Páls P.
Pálssonar. Kvöldvökur verða
haldnará þrem stöðum: að Lyng-
brekku, Heiðarborg og i Loga-
landi. Þá verða haldnar tvær sýn-
ingar á Borgfirðingavökunni,
önnur á grafik og teikningum i
eigu Listasafnsins i Borgarnesi
og bilasýning á vegum hins ný-
stofnaða Bifreiðaiþróttaklúbbs
Borgarfjarðar. Verða þar sýndir
gamlir og nýir bilar af ýmsum
gerðum.
Borgfirðingavaka er sameigin-
legt verkefni Ungmennasam-
bands Borgarfjarðar, Búnaðar-
sambands Borgarfjarðar, Kven-
félagasambands Borgarfjarðar
og Tónlsitarfélagsins.
Páskasýning Sfeingríms
I kvöld kl. 21. opnar
Steingrímur Sigurðsson
listmálari málverkasýn-
ingu i Eden í Hveragerði.
Þetta er 34. málverkasýn-
ing Steingrims/ en sú
fimmta sem hann heldur i
Eden í Hveragerði.
Sem kunnugt er hefur Stein-
grimur löngum kennt sig við Roð-
gúl á Stokkseyri, en undanfarin
Verð kr. 19.980
Verð kr. 38.500
Verð kr. 56.930
Verð kr. 98.115
Eigum nú mikið urval
h frábærum
ferðaútvarpstækjum
SKIPHOLTI 19 R.
SIAAI 29800 (5 LINUR)
27 ÁR I FARARBRODDI
ár hefur hann verið búsettur i
Hveragerði.
A þessari páskasýningu Stein-
grims sýnir hann 40 nýjarmyndir
sem aðallega eru frá sjávarsið-
unni, eru þær flestar vatnslita-
myndir, en einnig i oliu og pastel,
allar myndirnar eru til sölu.
Sýningin er opin alla daga til kl.
23.30 og stendur til 2. april.
-KIE
Mótmæli við
kjararáni
33 starfsmenn Rannsóknar-
stofnunar landbúnaðarins, 3/4
hlutar starfsliðsins, hafa undir-
ritað mótnnæiiviðrof rikisvaldsins
á kjarasamningunum. Mótmæla-
yfirlýsingin hljóðar þannig:
„Við undirrituð, starfsfólk
Rannsóknarstofnunar landbún-
aðarins á Keldnaholti, mótmæl-
um harðlega þeirri ákvörðun
rikisvaldsins að rjúfa nýgerða
kjarasamninga, sem áttu að
tryggja okkur langþráða kjara-
bót. Við teljum, að það eigi að
vera réttindi launafólks að hafa
samningsrétt um launakjör sin til
jafns við gagnaðila. Knýjum al-
þingi til að draga óréttmæt lög sin
til baka og stöndum vörð um
samningsréttinn”.
Kvennadeild
Styrktarfé-
lags lamadra
og fatlaðra
heldur
Kabarett-
Bingó
Kvennadeild Styrktarfélags
lamaðra og fatlaðra heldur
kabarett-bingó i Sigtúni á skir-
dag kl. 20.00 og veröur fjöldi
glæsilegra vinninga i boði og eng-
inn vinningur undir 50 þús. aö
verðmæti. Alls er verðmæti vinn-
inga 1 milljón.
Þrjár utaniandsferðir cru i
boði, ein til Mallorca, en tvær til
Chicago, ennfremur dvöl i Skiða-
skálanum i Kerlingafjöllum, mál-
verk og fjölmargt fleira.
Á skemmtuninni koma fram
þeir ömar Ragnarsson og
Jörundur Guömundsson.
Kvennadeildin ákvað nýlega að
ráðstafa einni og hálfri milljón af
fé sinu til tækjakaupa handa
sumardvalarheimilinu i
Reykjadal, leikskólanum Múla-
borg og handa æfingastöð
Styrktarfélagsins. Er vonandi aö
sem flestir sæki kabarett-bingóið
og styðji gott málefni um leið.