Alþýðublaðið - 22.03.1978, Page 5
Miðvikudagur 22. marz 1978.
5
SKOÐUN
Vilmundur Gylfason skrifar:
Úrslit frönsku
þingkosninganna
úrslit Frönsku kosning-
anna
1 Frakklandi, eins og á ís-
landi, er smárekstur i heiöri
haföur. Miklum meirihluta
frönsku þjóöarinnar, eins og
miklum meirihluta islenzku
þjóöarinnar, þykir hjal um þaö,
aö allur ágóöi sé af hinu illa,
heldur þreytandi en er fyrst og
fremst ósammála þvi. Þaö
kemur i ljós aö mikill meirihluti
frönsku þjóöarinnar, eins og
mikill meirihluti Islendinga,
getur vel hugsaö sér aö hinn
stærsti rekstur sé þjóönýttur,
vill ekki auöhringa, hvort sem
þeir koma fram i nafni einka-
gróöa eða i nafni félagshyggju.
Mikill meirihluti frönsku þjóö-
arinnar vill hins vegar ekki aö
rikið yfirtaki miölungsrekstur
og þaöan af smærri rekstur. Og i
þeim efnum treystir mikill
meiri hluti franskra kjósenda
komúnistum alls, alls ekki.
Franskir kommar
Franski kommúnistaflokkur-
inn á sér sögu ósköp svipaöa
öörum slikum flokkum. Hann er
stofnaöur eftir lok fyrri heims-
styrjaldarinnar og var Moskvu-
hlýöinn. Slikur flokkur fékk eigi
aö siöur verulegt fylgi, hefö-
bundiö hefur hann haft um tutt-
ugu af hundraöi. Franskir
kommúnistar tóku virkan þátt i
andspyrnunni gegn nasistum,
og sem slikir unnu þeir aðdáun
margra fyrir fórnfýsi sakir.
Þeir, sem minnst höföu efnin,
horföu á gegnumspillt peninga-
valdiö i Frakklandi og þóttu
aðrir stjórnmálaflokkar ekki
taka nægilegt miö af hagsmun-
um sinum, kusu kommúnista.
Við bættist aö eftir striö lutu
jafnaöarmenn forustu Guy
Mollets, tóku þátt i margbreyti-
legum samsteypustjórnum
fjóröa lýöveldisins og glötuöu
sérstæöi sinu.
Þegar de Gaulle hófst til
valda i Frakklandi lék hann
leik, sem ekki var vitlaus frá
hans bæjardyrum séð. Hann
hamraöi stööugt á þvi, aö val
franskra kjósenda stæöi ein-
göngu um sig og kommúnista.
Kjördæmaskipan og kosninga-
fyrirkomulag i Frakklandi ýtti
mjög undir þetta. 491 þingsæti
eru kosin i tveimur umferðum.
Nái enginn hreinum meirihluta i
fyrri umferö veröur aö kjósa
aftur, og þá mynda frambjóö-
endur eölilega blokkir til þess aö
ná þó einhverju af slnu fram.
Þetta fyrirkomulag biður hins
vegar upp á það aö gert sé upp á
milli öfga, jafnvel þótt mikill
meirihluti vilji ekkert af þess-
um öfgum vita.
En meö þvi aö hamra á þvi, að
valiö stæöi milli sin og
kommúnista, þá bjó de Gaulle
sér til andstæðinga, sem hann
réö auöveldlega við. Þetta
styrkti frönsk peningaöfl varan-
lega i Frakklandi. Þaö er raun-
ar ekki fyrr en á allra siðustu
árum, sem Frakkland hefur
virzt stefna i aöra átt. Undir
forustu Mitterands óx franski
jafnaðarmannaflokkurinn mjög
og eftir 1970 var hann orðinn
stærri en franski kommúnista-
flokkurinn. Þar kom margt til,
bæði þaö aö æ fleirum var ljóst
aö kommúnistaflokkurinn var
ihaldssamur flokkur sem
stjórnaö var aö utan, þrælbund-
inn gamalli hugmyndafræði og
aö öllu leyti óliklegur til þess aö
geta leyst nútimaleg vandamál i
nútimalegu Frakklandi. Þyngra
vóg þó að æ fleiri franskir laun-
þegar sáu, aö undir forustu
kommúnista dæmdu þeir sig til
eilifrar útivistar i frönskum
stjórnmálum. Vonbrigöi með
stúdentauppreisnirnar 1968 áttu
drjúgan þátt i þessari breyt-
ingu. Franskir kommúnistar
höföu haft mikil itök meöal
menntamanna 1 Frakklandi allt
frá striöslokum. Þetta breyttist
og menntamenn settu æ meiri
svip á flokk jafnaöarmanna.
Kommúnistaf voru aö ein-
angrast, stöönun þeirra sem
auövitaö hafði veriö lengi viö
lýöi, varö æ’fleirum ljós. Hins
vegar litu margir svo á að
franska kosningakerfiö gerði
þaö nauösynlegt aö mynda
kpsningabandalag vinstri
manna. Þetta kosningabanda-
lag var myndaö áriö 1972.
Kommúnistar féllu frá
staliniskum slagoröum eins og
alræöi öreiganna, og milduðu
stefnuskrá sina, en allt kom fyr-
ir ekki. Bæöi var, aö þarna
héldu um valdataumana sömu
gömlu mennirnir og höföu leitt
flokkinn I gegn um refilstigu
stalinismans, og eölilega treysti
mikill meirihluti Frakka slikum
mönnum ekki. Eins var hitt að
það voru jafnaðarmenn sem
juku fylgi sitt statt og stööugt og
tóku ótviræöa forustu i þessu
bandalagi, meöan komúnistar
stóöu i staö eöa beinlinis misstu
fýlgi-
Þetta var vandamálið
Fyrir sex mánuðum var
bandalagi vinstri manna spáö
ótviræöum sigri i þeim kosning-
um, sem nú eru nýafstaönar. 1
þvi bandalag áttu jafnaðar-
menn, samkvæmt spám, aö
veröa miklum mun stærri og
þar meö hiö ráöandi afl. Þessu
undu kommúnistar ekki, og hófu
látlausan áróöur gegn jafnaðar-
mönnum. Aö þeim var sótt, bæöi
frá peningaöflunum, sem hafa
meira eöa minna stjórnaö
Frakklandi frá striöslokum, og
frá kommúnistum. Jafnvel þótt
kosningasamvinnan væri end-
urnýjuö i seinni umferö kosn-
inganna, þá segir sig sjálft aö
slik samvinna var byggö á
sandi. Og þvi fór sem fór, hægri
blokkin fékk meirihluta
atkvæða og mikinn meirihluta
þingsæta.
Mitterand, foringi jafnaöar-
manna, kennir kommúnistum
um, hvernig fariö hafi. Senni-
legt er, að samvinna jafnaöar-
manpa og kommúnista i Frakk-
landi veröi aldrei söm eftir
þetta áfall. Þaö varð ljóst löngu
fyrir kosningarnar, aö
kommúnistarætluöu sér ekki aö
lúta forustu jafnaöarmanna,
treystu þeim ekki. Sú skoöun er
rikjandi, aö engu sé likara en
þeir hafi ekki viljað stjórnar-
samstarf viö jafnaöarmenn og
þess vegna hafi þeir hagaö sér
svo sem raun ber vitni siöustu
mánuöina fyrir kosningar. Þeir
viröast heldur vilja halda utan
um sinn fámenna kjarna i
fámennri stjórnarandstöðu en
þurfa aö hlita þvi aö starfa und-
ir forustu jafnaðarmanna.
Lærdómar
Islenzkir jafnaöarmenn geta
marga lærdóma dregiö af þróun
mála i Frakklandi. Meöan
kommúnistar fóru meö forustu
á vinstri væng — höföu aö visu
sæg frambærilegra mennta-
manna en beittu sama gamla
frumstæöa skruminu, voru pen-
ingaöflin i Frakklandi örugg um
sig. Þaö var ekki fyrr en jafnað-
armenn undir forustu
Mitterands blésu aö nýju til
sóknar upp úr 1970 sem sigur
virtist vera i nánd. En sá sigur
gat ekki orðið ööru visi en undir
forustu jafnaöarmanna. Þessu
undu kommúnistar ekki, marg
sviku samkomulagiö og þvi fór
sem fór.
Launþegavængurinn I
islenzkri pólitík hefur fram-
stæöan drösul aö draga, engu
siður en launþegavængurinn i
franskri pólitik. Okkar draugur
segist hafa fundið Evrópu-
kommúnismann upp á undan
þeim frönsku og itölsku. Þaö
kann vel aö vera. En frumstæö-
iö er iöulega þaö sama, rót-
tæknin blendin og einatt skorö-
uö viö þjóönýtingu, meöan ann-
ars konar róttækni i lifsviöhorf-
um kemst ekki aö. Franskir
jafnaðarmenn hafa litiö haft út
úr samstarfi sinu viö kommún-
ista. Þetta hafa veriö rýtings-
stungur aftan frá, og þegar leiö
aö kosningum þar var sam-
starfiö oröið svo ótrúveröugt aö
svona hlaut aö fara. Lausnin er
ékki sú aö fylkja liöi meö
kommúnistum, hvorki þar né
hér.Lausnin ersú aö til forustu
eflist upplýstur flokkur jafnað-
armanna, sem spannar vitt
svið, lætur vinda lýöræöis leika
um sjálfan sig, og hafnar þar af
leiðandi stöönuðu hatri á ágóöa
og stöðnuöum hugmyndum um
aö þjóönýta alla skapaöa hluti,
en tekur þess i stað upþ nútima-
lega hugmyndafræði sem á er-
indi til nútimalegs fólks.
Nái slikur stjórnmálaflokkur
ótviræðri forustu á launþega-
væng stjórnmálanna, þá gæti
stöönuð imynd islenzkra stjórn-
mála gerbreytzt.
Þe,tta mistókst i Frakklandi
að þéssu sinni. Auövitaö var þaö
kosningakerfið i Frakklandi og
bandalag hægri manna sem
þvingaði Mittarnd til þess aö
taka upp þá samvinnu viö
kommúnista, sem jafnaöar-
menn kenna nú um ófarir sinar.
Lærdómurinn er samt sá, aö
flokkur kommúnista reyndist
þröngsynn og hræddur um aö
missa stööu sina, hræddur viö
breytingar. Og franskir kjós-
endur sem ætluöu aö kjósa jafn-
aðarmenn yfir 30 prósent fyrir
nokkrum vikum kusu I stórum
stil heldur miðflokka undir
forustu forsetans. Og margir
treystu ekki samvinnunni viö
kommúnista.
1 Frakklandi er mikill smá-
rekstur, alveg eins og á Islandi.
Þessar litlu einingar eru snar
þáttur af franskri þjóöarsál.
Kommúnistar leggja auövitaö
ekki lengur til aö þjóönýta þenn-
an rekstur, hvorki á Frakklandi
eöa á Islandi. En þjóönýtingar-
vofan, þessi kalda og hranalega
hugmyndafræöi, svifur þar um
of yfir vötnum.
Kópavigskaupstsður n
Útboð
Tilboð óskast i þakklæðningu úr stáli á
iþróttahús Digranesskóla við Skálaheiði.
útboðsgögn afhendast á skrifstofu bæjar-
verkfræðingsKópavogsfrá og með þriðju-
degi 28. mars.
Tilboð verða opnuð á Skrifstofu bæjar-
verkfræðings þriðjudaginn 11. aprilkl. 11.
Bæjarverkfr.æðingur Kópavogs
MÖMDLUIS®
MEÐ EKTA CALIFORNÍU MÖNDLUM
JbRDhRB€RJh IS
MEÐ MULDUM JARÐARBERJUM
P€RU IS®
RÖNDÓTTUR VANILLAÍS MEÐ PERUBRAGÐI