Alþýðublaðið - 22.03.1978, Qupperneq 7

Alþýðublaðið - 22.03.1978, Qupperneq 7
SKS1 Miðvikudagur 22. marz 1978. 7 Gamall Gaflari skrifar: Um þær mundir var mikið atvirtnuleysi. Verkamenn gengu með hendur í vösum frá því að komið var af síidarveiðum eða úr kaupavinnu úr sveitinni, allt haustið og fram á vertíð, og jafnvel þó vertið væri í fullum gangi og vel fiskaðist, þá var ekki vinna handa öllum. Þá gat komið sér vel að vera skyldur eða á einhvern hátt tengdur einhverjum verkstjóranum, einnig var það vænlegt að gera sig áberandi í stjórnmálaf lokk réttu megin. Til voru reyndar menn sem gengu fyrir vinnu, vegna framúrskarandi dugnaðar síns og atorku, en þeir fóru illa að ráði sínu, og eyddu líkamsorkunni fyrirfram. Þeir urðu gamalmenni á miðjum aldri, og svo kom fyrr en skyldi sá tími, að það var ekki not fyrir þá lengur. Verkfærir unglingar frá 15 ára aldri fram að tvitugu fengu ekkert að gera, nema þeir sem voru svo lánsamir að komast að í verslun til sendi- ferða, eða eitthvað hliðstætt. Um fé skattborgar- annaog Hafnarfjarðar Og á haustdögunum, þegar ekki var handtak að hafa, þá söfnuðust hálf svelcandi heimilisfeður undir húsgafla niður við höfn, og ræddu ástand og horfur. En hvernig sem þess- ir Gaflarar veltu hlutunum fyrir sér, og reyndu að rýna inn i framtiðina, sem hjá þeim var ekki nema nokkrir mánuðir, lengra náði ekki þeirra fram- sýni, þá sáu þeir ekkert annað en svart. En svo hélt verkalýðsföagið fund, reyndar marga fundi. Þangað fylktust allir Gaflarar, þvi það var ekkert annað að gera og það var fullt húsið út úr dyrum, og ekki sæti handa öll- um. Skritið að verkamenn skuli þurfa að vera soltnir, svo þeir hafi áhuga að mæta á fundi hjá sinu félagi. Og margir höfðu eitthvað að segja á fundunum, reyndar höfðu flestir eitthvað að segja. Þó það væru ekki nema tvö þrjú orð, þá var það innlegg til málefnisins. Fáir voru sammála og þó allir sammála: eitthvað varð að gera i málinu. Svo kom einhver eða einhverjir með tillögu, og sú tillaga var sam- þykkt. Og stjórnendum bæjar- félagsins var send áskorun um, að stofnuð yrði útgerð á vegum bæjarfélagsins. Þetta var jú út- gerðarbær, og útgerð var það eina sem verkamenn þekktu til. En fjárhirsla skattborgarans var tóm og timi viturra og dug- mikilla manna ekki kominn. En það var reynt að bjarga málun- um. Atvinnubætur hét bjarg- ráðið. Heimilisfeðrum var út- hlutað einni viku, og þeir sem höfðu sérlega þungt heimili, fengu kannski tvær vikur, og þeir voru sendir uppi hraun að rifa grjót, og stundum hafði snjóað það mikið um nóttina, að þeir voru hálfan daginn að moka sig niður að þeim stað, sem þeir voru daginn áður. Stundum voru þeir sendir til að grafa skurð, sem var reyndar lítið annað en klaka högg. En þegar þeir komu til að fá launin sin greidd, þá var þeim fengin i þeirra stað kvittun fyrir, að launin þeirra hefðu farið sem greiðsla upp i skatta og önnur kvittun fór niður i fjárhirslu skattborgarans þess efnis, að Jón Jónsson væri búinn að greiða tiltekna upphæð i skattana sina. Fjárhirsla skatt- greiðandans var full öðrumegin af kvittunum verkamanna fyrir unna vinnu, en hinumegin full af skuldakröfum ýmsra aðila, en litið fór fyrir reiðufé. Svo skeði atburður, atburður sem verkamenn þess tima hafa ef til vill ekki veitt athygli, at- burður sem verkamenn liðandi stundar nú, eru kannski búnir að gleyma. Bæjarfélagið samanstóð að yfirgnæfandi meirihluta af verkafólki. Þetta var sjávarþorp, og einhvern vegin æxlaðist svo, að synir verkafólks komust i meirihluta i bæjarstjórn, menntaðir dug- miklir menn, sem þekktu af eigin raun þau kröppu kjör, sem verkafólk átti við að búa. Þeir höfðu sjálfir alist upp við sult og allsleysi, en rifið sig upp til betri lifskjara, og þeir höfðu fullan hug á að bæta hag almennings. Að visu fór það hægt i fyrstu, en þokaðist i átt til betri lifskjara. En svo var kveðið upp úr með það. — ,,Við setjum á stofn út- gerð, góði”__En hvernig var það hægt, þegar f járhirsla skatt- greiðandans var tóm? Og hvort sem það var hægt, eða ekki hægt, kraftaverkið gerðist. Útgerð skattgreiðandans varð að veruleika, og það varð nóg vinna handa öllum, sem vildu vinna, og verkafólk greiddi sina skatta i fjárhirslu skattgreið- andans með reiðufé, og það var ekki lengur þörf að fara upp i hraun að rifa grjót eða berja klaka. En atvinnurekendur bæjar- félagsins og fulltrúar einstaklingsframtaksins litu þetta óhýru auga, og gerðu allt sem þeir gátu útgerð skatt- greiðandans til óþurftar, og jafnvel létu verkafólk gjalda þess. Óttuðust þeir kannski að missa tök á verkafólkinu? Mundi kannski koma sá timi, að fólk hætti að koma skriðandi til þeirra til aö biðja um vinnu? — Það varö hlé á vinnunni viö útskipunina, vegna þess að það stóð á bfl, og verkamennirnir tylltu sér niður. Einn ungu mannana tók upp pipu og kveikti i. Atvinnurekandinn var nærstaddur og kom með fasi miklu. „Ekki reykja hér, það tiðkast hvergi nema i Rússlandi og Bæjarútgerðinni! ” — Það voru erfiðir timar og illa gekk hjá allri útgerð, en það tókst samt að halda útgerð skattgreiðandans gangandi, og meira en það. „Við kaupum annan togara, góði.” Og hinir dugmiklu og framsýnu drengir, synir verkafólksins börðust um á hæl og hnakka. Svo kom striðið, blessað striðið. Þetta var indælt strið, sem bjargaði öllum vanda, og pappirarnir i fjárhirslu skatt- greiðandans breyttu um svip. N.ú voru þar ekki lengur kvittanir um greidd laun upp i skatta, heldur innstæðukvitt- anir frá ýmsum bönkum og þykkir bunkar af peningaseðl- um. Verkafólkið fór að hafa áhyggjulitla daga i allsnægtum. Ahyggjurnar snérust nú helst um það, hvernig það gæti veitt sér þennan eða hinn lúxusinn, nú — það urðu engin vandkvæði með það, bara taka lán út á morgundaginn. Það þarf sterk bein til að þola góða daga — svo segir gamalt máltæki. Mörgum finnst þetta afkáranlega til orða tekið og hljóma skritilega einhvernvegin neikvætt, og þeir hinir sömu vara sig ekki á góðu dögunum og detta um þá. Verkafólkið var eiginlega orð- ið fint fólk, sem stóð i sama þjóðfélagsþrepi og atvinnurek- endur, nema þegar það þurfti að fá hækkuð launin. Ansi hvað það vill gleymast við kjörborð- ið, að hagsmunir atvinnurek- enda og hagsmunir launþega viija rekast á, þegar til kast- anna kemur. Kynslóðin sem sá og tók þátt i að byggja upp út- gerð skattgreiðenda féll frá og önnur kynslóð tók við, og enn önnur kynslóð, þvi kynslóðir koma og kynslóðir fara. Og verkafólkið missti meirihlutann i stjórn sjávarþorpsins. Kannski var hinum nýju kyn- slóðum sama hverjir fóru með völd, eða kannski var það svo með verkafólk hinna nýju kyn- slóða, að það var búið að missa sjónar af gildi valdsins. En hinir nýju valdhafar, fóru að hafa á orði, að selja útgerð skattgreið- enda. Af þvi varð nú reyndar ekki, kannski það hafi ekki verið timabært, en það var hægt að reyna fyrir sér, hvað hægt væri aðkomastlangt. Skattgreiðendur áttu annað fyrirtæki að hálfu, á móti einstaklingsatvinnurekendum, og þeir ákváðu að selja sjálfum sér það fyrirtæki, en það urðu bölvuð vandræði. Endilega þurfti að koma fram á sjónar- sviðið, ungur framgjarn þrælduglegur lögfræðingur, sem splundraði öllu saman, svo þeir gátu ekki selt sjálfum sér eignir skattgreiðenda, en meðal annara orða, hvað varð um þann bráðefnilega dreng. Og timinn leið, hring eftir hring eftir hring, eða kannski hann fari ekki i hring, bara beint af auga, en sagan endur- tekur sig hefur heyrst. Og við erum komin i nútim- ann, eða er ekki rétt að fara að- eins til baka. Gamall Gaflari, sem hefur fylgst með þróuninni frá byrjun, stendur nú i miðri hringiðunni og starir galopnum augum og veltandi vöngum og dregur ályktanir, og vonandi eru þær flestar rangar. Hvað er að gerast i útgerð Skattgreið- enda? Getur það verið að einstaklingsframtakið notfæri sér útgerð skattgreiðenda sér til framdráttar. Hvað á gamall Gaflari aö láta sér detta i hug, þegar togari i eigu einstaklings- framtaks kemur i höfn, með 70 tonn af grálúðu og útgerð Skattgreiðanda er látin kaupa helminginn af grálúðunni, þrátt fyrir að það var allt fullt af fiski fyrir. Hverju eða hverjum var verið að bjarga? Var svona- mikið upp úr vinnslu grálúð- unnar að hafa? Fiskvinnsluhús i eigu einstaklingsframtaks var með mikinn fisk á miðju sumri, sem lá undir skemmdum. Hluta af þeim fiski var ekið i hús út- gerðar Skattgreiðenda og spyrt- ur þar af þess starfsfólki. Von- andi er hægt að sýna að greiðsla hafi komið fyrir frá einstaklingsframtakinu, en hvað veit gamall Gaflari um það? Og hvað á gamall Gaflari að halda, þegar togarar Skatt- greiðenda koma i höfn með fyrsta flokks hráefni, en það er sent út um hvippinn og hvappinn, og fær svo til baka það lélegt hráefni, að það er einungis hægt að nota það i skreið, ef til vill litils háttar af þvi saltað, en kannski fást skýr- ingar á þessu öllu, og allt sé með felldu, og væri það vel. 1977. Það er ártal, og er ekki svo mjög langt að baki. Var það ekki þá, sem dularfulli ungi maðurinn með vasatölvuna birtist i útgerð Skattgreiðenda. Gamlan Gaflara minnir það, og þar sem gamli Gaflarinn er afar næmur fyrir persónuleika þeirra, sem hann mætir á förn- um vegi, þá hlaut hann að veita þessum dularfulla unga manni athygli. En aldrei gat Gaflarinn áttað sig á, hvaða verkefni dularfulli maðurinn átti að inna af hendi, en það gátu reyndar allir séð, að hann var alltaf með blað og blýant i hendi og tölvu upp á vasann. En hver var til- gangurinn? En svo fóru að ger- ast ýmsir skritnir hlutir. Starfsfólkinu var sagt upp störf- um fyrirvaralaust, skritið að það skyldi ekki vera hægt með fyrirvara, svo fólk gæti ráðstaf- að sinu sumarleyfi. Þvi var sagt, að það ætti að breyta öllu fyrirkomulagi á rekstri hússins. Ötaf fyrir sig var ekkert at- hugavert við það. Það var nauð- syn, en átti að taka aðeins 6-8 vikur. Allir sáu að það gat ekki staðist, sem lika varð raunin á. Fólkið átti allt að endurráðast eftir þann tima, en það stóðst ekki heldur. Annar verkstjórinn var beðinn að segja upp störf- um, en þar sem hann var ekki alveg á þvi, þá var honum um- svifalaust vikið úr starfi og greitt kaup i þrjá mánuði fyrir að sitja heima, af fé Skattgreiðenda. Hinum verk- stjóranum sagt upp störfum. með þriggja mánaða fyrirvara, en beðinn að halda áfram störf- um og lofað endurráðningu, en var svikinn. Svo byrjaði grinið. Þeir fáu verkamenn, sem ekki var sagt upp, og áttu að aðstoða við breytinguna, höfðu að nógu að hlæja hvern dag. Brotnir voru veggir og boruð göt, steypt upp i það aftur, þvi það átti ekki vera þarna, heldur þarna, en það átti heldur ekki vera þar. Slegin voru upp mót fyrir lyftubotnum, rifin niður, slegin upp aftur, það hafðist i þriðja sinn. Trésmiðir voru fyrir járnsmiðum, járn- smiðir fyrir pipulagningar- mönnum, pipulagningarmenn fyrir rafvirkjum, rafvirkjar fyrir blikksmiðum og blikksmiðir fyrir trésmiðum, hringurinn lokaðist. Og iðnaðar- mennirnir hlógu meö verka- mönnunum, þvi þetta var ekki þeirra sök. Það virtist vanta heildaryfirlit, en öllu gamni fylgir nokkur alvara. Það var veriö að sóa fé skattgreiðenda. Svo byrjaði endurráðningin hjá stúlkunum, sem sagt hafði veriö upp, sú sérstæðasta endurráðn- ing sem þekkst hefur. Það skipti engu máli hvort stúlkurnar höfðu unnið stuttan tima, eða fleiri ár hjá þessu fyrirtæki skattgreiðenda, allar urðu þær að skrifa undir stórt skjal með mörgum spurningum, skuld- bindingu um að ganga i hvaða verk sem skipað yröi, þar byrjaði strax tortryggnin og óánægjan. Þá kom fljótlega i ljós, að ekki áttu allir sem upp hafði verið sagt vinnu, aðgang að endurráðningu. Þá vaknaði grunur um hvað hann hafði alltaf verið að gera með blað og blýant þessi dularfulli tölvutöff. Hann skyldi þó ekki hafa verið að draga fólkið i flokka: góður vinnukraftur, sæmilegur vinnu- kraftur og lélegur vinnukraftur. Og hver skyldi vera höfundur- inn að þessu furðulega undir- skriftarplaggi? Loks fékk starfsfólkið að sjá framan i hina nýju verkstjóra. Þetta reyndust ungir og mjög myndarlegir menn, það vantaði ekki, 'og efalaust allra bestu drengir — þegar þeir voru fyrir utan veggi fiskiðjuversins. Svo rann upp sú stóra stund, þegar átti að reynslukeyra allan þennan nýtisku útbúnað, sem átti að vera svo stór þáttur i rekstri fiskiðjuversins. Keyptur var heill togarafarmur, 100 tonn, eitt hundrað tonn, minna mátti það ekki vera til að sjá hvort útbúnaðurinn virkaði. Svo mikið lá á, að það var ekki timi til að biða eftir að annar hvor togarinn fiskiðjuversins kæmi að landi, heldur voru þessi 100 tonn keypt af togara utan af landi. Þá hófst gamanið, og verkstjóradrengirnir virtust skemmta sér vel, hlaupandi kallandi og hlæjandi um allt hús, en iðnaðarmennirnir vinn- andi innan um fiskinn, þvi þeirra verkum var ekki nærri lokið, en þvi miður, það virtist allt bila, sem bilað gat, og næstu nætur voru iðnaðarmenn að gera við það sem bilaði hvern dag. En eftir tæpa viku var fisk- urinn farinn að skemmast og var þá ýmist saltaður eða spyrt- ur og hengdur upp á hjalla, og það var rúmur helmingurinn af þessum aðkeyptu 100 tonnum. En nú var fiskiðjuverið opnað, og ekki var hægt að láta stúlk- urnar sitja heima á fullu kaupi. Þessvegna voru fengin 3 eða 4 bilhlöss úr Reykjavik af ufsa og honum öllum sturtað i stór kör, og lá hann allavega böglaður i körunum. Ekki fannst verk- stjórunum taka þvi að isa ufs- ann, enda átti hann að vinnast næsta dag, en svo illa tókst til, að það varð stórvægileg bilun, sem tók 3 daga að lagfæra, og þá átti að fara að vinna ufsann, en það var komið i veg fyrir það, og allur ufsinn fór upp á hjalla. Þannig er farið með fé skatt- greiðenda. Fiskvinnsluskólinn er efalaust gagnleg stofnun, og þessir ungu verkstjórar voru með þeim fyrstu, sem útskrifuð- ust þaðan, með ágætis einkunn vonandi. Gömlum Gaflara er ekki kunnugt, hvort kennd er verkstjórn i þeim skóla, en þó svo væri, þá er það vist, að verkstjórn lærist ekki af bókum. Það þarf meðfæddan hæfileika til. Enginn getur orðið listmál- ari, hvað marga myndlistar- skóla sem hann fer i gegnum ef hann hefur ekki meðfæddan hæfileika til að mála, og enginn getur orðið skáld, hvað marga háskóla sem hann fer i gegnum, hann verður að hafa meðfæddan hæfileika fyrst og fremst. Eins er það með verkstjóra, þeir þurfa að hafa meðfædda út- sjónarsemi, verklagni og siðast en ekki sist lagni til að umgang- ast fólk. Og eflaust er sá þáttur- inn stærstur og mestur. Sagan gegnum aldirnar getur um ýmsa persónuleika, sem virðast ekki hafa fæðst á réttum tima og réttum stað. Ef til vill er það kaldhæðnislegt aö láta sér detta i hug, að verkstjóradrengirnir hefðu sómt sér vel i Gestapó á timum Hitlers sálaða. Það er óþarfi að endurtaka það hér, sem búið er að skrifa um áöur i blöðum, og er á hvers manns vörum hér i bæ, og er reyndar orðið frægt viða um land, um öll þau ósköp sem gengið hafa á i Frh. á 14. siðu mmmmmmmmmmmmmmmm^mméJ

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.