Alþýðublaðið - 22.03.1978, Side 16
alþýöu-
blaöiö
C'tgefandi Alþýöuflokkurinn MIÐVIKUDAGUR
Kitstjorn Alþyðublaösmns er aö Siöumula 11, simi 81866. Auglýsingadeild blaösins er aö
Hverfisgötu 10, simi 14906 — Askriftarslmi 14900. 22. MARZ 1978
Eldsvodi að Arnarholti
Eldvarnartæki
heimamanna
komu í gódar
þarfir
Kl. 11.30 i gærmorgun var
slökkviliö kvatt aö vistheimilinu
aö Arnarholti á Kjalarnesi.
Sendi slökkviliðið fjóra bfla
sinna á vettvang, en þegar
þangaö kom, höföru heima-
menn lokiö viö aö slökkva eld-
inn, sem logaöi i gamalli álmu,
sem áður var íverustaður vist-
manna, en var nú veriö aö
breyta I fönduraöstööu.
1 viötali viö slökkviliðsmenn i
gær kom fram að það, að svo vel
tókst til, mátti þakka þvi, að
fyrir mánuði hafði slökkviliöiö
unnið að þvi i samstarfi við
heimamenn I Arnarholti að
koma fyrir nýjum slökkvibún-
aði, slöngum, sem tengja mátti
við brunahana. Höfðu hand-
slökkvitæki verið reynd nú, en
ekki hrokkið til, þar sem dyr
voru opnar á herbergi þvi, þar
sem eldurinn logaði og hann þvi
tekinn að berast út um ganga
hússins.
Hinn nýi búnaður réöi þvi úr-
slitum I þessu dæmi og lögðu
slökkviliðsmenn áherzlu á að
þetta sannaði að heimavarnir
væru jafnan drýgsti kosturinn,
þegar eldur kemur upp.
AM
35 milljóna gróði hjá
Sam vi n n u ban kan um
Heildarinnl. 6.888 millj.í árslok
Aöalfundur Samvinnu-
bankans var haldinn 18.
marz s.l. Formaður banka-
ráös/ Erlendur Einarsson/
forstjóri/ flutti starfs-
skýrslu bankans fyrir áriö
1977 og sagði að árið hafi
verið „að mörgu leyti hag-
stætt". Aukning innlána
var hlutfallslega hin önnur
mesta frá stofnun bankans
og mikill vöxtur í öllum
viðskiptum. Haldið var
áfram framkvæmdum og
endurbótum á húseignum
bankans. Hins vegar var
rekstrarafkoman ekki eins
góð og áður.
Heildarvelta Samvinnu-
bankans 1977 var 150 millj-
arðar kr., eða 37.2% aukn-
ing frá fyrra ári. Við-
skiptareikningar bankans í
árslok voru rúmlega 50.000
og fjöldi starfsfólks 114.
Samvinnubankinn starfrækti 11
útibú viða um land og tvö i
Reykjavik. Fjölgaði þeim um eitt
á árinu, þegar opnað var útibú að
Suðurlandsbraut 18 i Rvik.
Heildarinnlán námu „6.888
millj. kr. I lok ársins, sem er nær
helmings aukning frá fyrra ári,
heildarútlán voru 5.503 millj. kr.,
sem er 38.8% aukning.
1 árslok 1977 var innstæða
bankans á viðskiptareikningi viö
Seðlabankann 345 millj. kr.
samanborið við 242 millj. yfir-
dráttarskuld i upphafiárs. Lausa-
fjárstaðan batnaði þvi um 587
milljónir á árinu. Inneign á
bundnum reikningi nam 1.427
millj. kr. i árslok.
Tekjuafgangur. til ráðstöfunar
var 35 milljónir, sem er verri af-
koma en fyrri ár, þegar tillit er
tekið til aukningar hlutafjár og
rýrnunar krónunnar. Aðalfundur-
inn samþykkti að greiða hluthöf-
um 10% arð á allt innborgað
hlutafé og jöfnunarhlutabréf.
Við stjórnarkjör voru endur-
kjörnir I bankaráð þeir Erlendur
Einarsson, forstjóri, Hjörtur
Hjartar, frkvstj. og Vilhjálmur
Jónsson, frkvstj. Til varaHall-
grímur Sigurðsson, Hjalti Páls-
son og Ingólfur Ólafsson. Endur-
skoðendur þeir Óskar Jónatans-
son, aðalbókari og Magnús
Kristjánsson, en Asgeir G. Jó-
hannesson skipaður af ráöherra.
Kirkjukvöld
í Dóm-
kirkjunni
Hið árlega kirkjukvöld Bræðra-'
félags Dómkirkjunnar verður á
skirdagskvöld kl. 20.30 I Dóm-
kirkjunni.
Efni kvöldsins að þessu sinni
veröur „Kærleikur og mannleg
samskipti”. Hilmar Helgason
formaöur S.A.A. verður aöal-
ræöumaöur kvöldsins. Kristinn
Bergþórsson syngur sálmalög
eftir Sigfús Halldórsson tónskáld
með undirleik Jónasar Dag-
bjartssonar fiðluleikara.
Lokaorð og bæn flytur séra
Hjalti Guömundsson, dómkirkju-
prestur.
Sklðamenn
flykkjast til
Akureyrar um
páskana
„Hér fyllist allt af fólki yfir
páskana,” sagði tvar Sigmunds-
son, hótelhaldari i Skiðahótelinu á
Akureyri i gær, þegar blaðið
ræddi við hann.
tvar sagði að allt hótelpláss á
Akureyri mundi nú upppantað og
að á morgun væru ráðgerðar tiu
eða ellefu flugferðir frá Reykja-
vik norður. A Akureyri er nú mik-
ill og góður snjór og veður hefur
verið þokkalegt.
„Þvi er likast sem páskarnir
hafi byrjað strax nú siðustu
helgi”, sagði Ivar, því skólafri
væru byrjuð og urmull af fólki viö
skiðaiðkanir i Hlíðarfjalli.
A Skiöahótelinu munu um pásk-
ana gista um það bil 60 manns og
átti tvar von á að kátt yrði á
hjalla, þvi margt væri af ungu
fólki, allt Reykvikingar, sem
ferðast á vegum ferðaskrifstofu
tilfars Jacobsen. Var tvar von-
góður um skemmtilegt páska-
leyfi, en sem fyrr byggöist allt á
þvi, að veðurguðirnir litu náöug-
um augum á þessá hraðfleygu
daga. * AM
Hljóðfæra-
leikarar
sömdu
Félag Isl. hljómlistarmanna af-
lýsti i gær verkfalli hljómlistar-
manna hjá tslandsdeild Alþjóða-
sambands hljómplötuframleiö-
enda, en verkfall hafði þá staðið
siöan 10. marz. Nýr kjarasamn-
ingur hljómlistarmanna var und-
irritaöur I fyrradag, en Bókaút-
gáfan Iöunn hafði áður samið við
Framhald á 14. slðu
■
m
I Bláfjöllum
er útivistarsvæði
fjölskyldunnar
um páskana ...
Lyftur eru opnar alla páskadagana (frá
Skírdag — 2. páskadags) frá kl. 10.00
— 18.00
Aðgangskort eru seld við lyfturnar.
Göngubraut 5 km. er merkt fyrir þá
sem iðka skíðagöngu.
Sætaferðir eru farnar frá Umferðarmið-
stöðinni alla dagana kl.10.00 og13.30.
Frekari upplýsingar eru hjá B.S.Í. í síma
22300.
Upplýsingar um ástand og verður í
Bláfjöllum er í símsvara 85568
ATH:
Snyrtiaðstaða er í Bláfjöllum, en engar
veitingar. Verið vel klædd og takið með
ykkur gott nesti og eitthvað heitt að
drekka.
Sýnið tillitssemi við lyfturnar og í skíða-
brekkunum, og gætió að eigin öryggi
og annarra.
HVERADALIR:
Lyfturnar veröa opnar alla páska-
dagana frá kl. 10.00—18.00.
Veitingasala er í Skíðaskálanum alla
hátíöardagana.
Sætaferðir frá B.S.Í.