Alþýðublaðið - 30.03.1978, Side 3

Alþýðublaðið - 30.03.1978, Side 3
Vextir af skuldum Akraborgar árið 1977 voru 39 milljónir króna 3 SSSST* Fimmtudagur 30. marz 1978 Þrátt fyrir fréttir af snjóflóOum og óáran Norðanlands er vorhugur komin i marga hér syðra. Ljósmyndari blaðsins rakst á þennan trillueiganda, sem var aö dytta að fleyi sínum við Reykjavikurhöfn I gær. Þjóöleikhúsið: Sýningum á Ödipusi konungi ad Ijúka Hinn frægi griski harmleikur öpipús konungur eftir Sófókles verður sýndur á laugardags- kvöldið i Þjóðleikhusinu og eru þá aðeins eftir tvær sýningar á verk- inu. Þetta er i fyrsta skipti sem leikritið er sýnt hérlendis og reyndar i fyrsta skipti að Þjóð- leikhúsið tekur griskan harmleik til sýninga. Þýðinguna gerði Helgi Hálfdánarson en leikstjóri er Helgi Skúlason. Titilhlutverk- ið, ödipús, er i höndum Gunnars Eyjólfssonar en konu hans og móður, Jóköstu, leikur Helga Bachmann. Rúrik Haraldsson leikur Kreon, bróður hennar. Flestir helztu leikarar Þjóðleik- hússins koma fram i sýningunni, |MÍR gengst fyrir fyrirlestrahaldi þeirra á meöal Valur Glslason, Baldvin Halldórsson, Róbert Am- finnsson, Þorsteinn ö. Stephen- sen, Ævar R. Kvaran o.fl. Ekki er liklegt að þetta fræga verk, sem talið er eitt merkasta verk leikbókmenntanna, verði sýnt hér aftur i bráð, svo að fólki er bent á þetta tækifæri til að kynnast þessu sigilda leikriti. Olympíuleikar, hljómlistarlíf og nýja stjórnarskráin i lok marzmánaðar og byrjun april gengst MÍR, Menningar- tengsl tslands og Raðstjórnar- rikjanna, fyrir erindaflutningi fyrir almenning i MiR-salnum, Laugavegi 178. Fyrsta erindið veröur flutt fimmtudagskvöldið 30. marz kl. 20.30. Þá ræðir Vladimir K. Vlassof verzlunarfulltrúi um við- skipti Islands og Sovétrikjanna. Laugardaginn 1. april kl. 15 ræðir Mikhail M. Bobrof, sovézk- ur iþróttaþjálfari sem starfar hér á landi, nú, um likamsrækt i Sovétrikjunum og undirbúning Olympiuleikanna i Moskvu 1980. Fimmtudaginn 6. april kl. 20.30 spjallar Ólafur Ag. örnólfsson loftskeytamaður um Síberíu fyrr og nú og laugardaginn 8. april kl. 15 ræðir Ragnar Björnsson org- anisti og hljómsveitarstjóri um tónleikaferðir sinar til Sovétrikj- anna og kynni af sovézku tónlist- arlifi. Laugardaginn 15. april kl. 15. flytur svo dr. jur. Alexander M. Jakovléf lokaerindið og fjallar það um hina nýju stjórnarskrá Sovétrikjanna. Dr. Jakovléf kem- ur hingað til lands i boði MIR frá Danmörku þar sem hann flytur fyrirlestra. Fyrirlestrarnir i MÍR-salnum eru öllum opnir. Kvikmyndir verða sýndar með hverjum fyrir- lestri. (FráMiR). Þegar við komu skipsins, 29.6. 1974, hefði skort á aðstöðu til aö nýta það, þar sem skilyrði til að aka bilum um borð hefði skort. Var þá einungis mögulegt að taka lObila um borð, en 40, eftir að aðstaða loks fékkst, 12.8. 1975. Þá vildi Þórður taka fram, aö skipið hefði á allan hátt reynst mjög vel og skilaö hlutverki sinu með prýði og þannig tekið Herjólfi fram, en á honum þurfti að framkvæma miklar styrk- ingar, vegna þess hve veik- byggður hann reyndist. Þá lof- aði hann áhöfn skipsins, sem veriðhefði hin sama frá upphafi og sérstaklega skipstjóra þess, Þorvald Guðmundsson. AM. Fjármálaráðherra neitar kröfu Ríkisábyrgðarsjóðs Styrkur Akraborgar og Herjólfs aðeins ætlaður til daglegs reksturs Að undanförnu hafa orðið talsverð blaðaskrif, vegna kröfu Rikisábyrgðarsjóðs á hendur útgerðum Akraborgar og Vest- mannaeyjaferjunnar Herjólfs, en sjóðurinn fór fram á að fjár- veitingar á fjárlögum til þess- ara skipa yrðu notaðar til greiðslu á skuldum þeirra. Fjármálaráðherra synjaði hins- vegar Rikisábyrgðarsjóði um þetta fé skipanna og ræddum við af þvi tilefni við Höskuld Jónsson, ráðuneytisstjóra i fjár- málaráöuneyti. Höskuldur sagði að rétt og eðlilegt hefði verið af fyrir- svarsmönnum Rikisábyrgðar- sjóðs að gera slika kröfu enda hlutverk þeirra og embættis- skylda að gæta hagsmuna sjóðs- ins og heimta þær skuldir sem hann ætti útistandandi. Hins væri þó að gæta, að þær 36 mill- jónir, sem Skallagrimi hf. eru ætlaðar og þær 57.5 milljónir, sem til Herjólfs renna, væru einkum hugsaðar til að styðja daglegan rekstur skipanna, en ekki til niðurgreiðslu á kaup- verði, en skuldir skipanna viö Rikisábyrgðarsjóð eru einkum vegna stofnkostnaðar. Þá sagði Höskuldur aö þvi færi alls fjarri, að þessi tvö skip heföu verið tekin sérstaklega fyrir og visaði til athugasemdar frá embætti sinu i Mbl. i gær, þar sem hann svarar aödróttun- um Guölaugs Gislasonar i þá veru. Hins vegar mætti lita á að þessi tvö skip stæðu ver á papp- irum Rikisábyrgðarsjóðs, en aðrar ferjur, svo sem Baldur, Fagranes og Drangur, sem öll eru miklu eldri. Fiskiskip stæðu og mjög misjafnlega gagnvart sjóðnum, en þau eru bundin aflakvöö, sem nokkuð er mishá eftir árferði, væri um þessar mundir 10% og stæðu sum skip- anna ágætlega og væru skuld- laus. am „Þetta hefði þýtt al- gjört stopp hjá okkur,” sagði Þórður Hjálms- son, forstjóri Skalla- grims, þegar við rædd- um við hann i gær um þá kröfu Rikisábyrgð- arsjóðs, að taka opin- bera styrki skipsins upp i greiðslu á skuld- um við sjóðinn. Um siðastliðin áramót mun gjaldfallin skuld Akraborgar hafa numið um 190 milljónum króna og sagði Þórður til marks um hve miklir vextir söfnuöust á þessar skuldir, að s.l. ár hefðu vextirnir • numið 39 milljónum króna,- Akraborg og Herjólfur væru að auki ný skip, sem kost- uðu óhemju fé og taldi hann að ekki væri óeðlilegt aö Vegasjóð-. ur tæki þátt i rekstri þeirra, þegar tillit væri tekið til þess hlutverks, sem þau gegndu i samgöngum innanlands. Eldri skipin, svo sem Drangur, sagði hann að væru rekin að mestu leyti af rikinu og t.d. Baldur, nyti mun hærra framlags af fé til slíkra skipa á fjárlögum, en t.d. Akraborg. Höfðu flutt 96.310 bila um siðustu áramót Ef ekki kæmtu til hinar þungu kvaðir vegna stofnkostnaöar sagði Þórður að afkomugrund- völlur Akraborgarinnar væri góður. Viðskiptafræöingur, sem reyndi að áætla grundvöll rekst- ursins, þegar hiö nýja skip var keypt, gerði sér vonir um að með ferjunni yrðu fluttir 15 þús- und bilar árlega, en raunin hef- ur orðið sú, að skipið flutti á ár- inu 1977 40 þúsund bila. Frá þvi er skipið kom, 1974, hefðu veriö fluttir með þvi 96.310 bilar, og 143 þúsund farþegar. Kvað Þórður þetta sýna, sem að framan segir, að skipið væri slikur þáttur í innanlandssam- göngum, að Vegasjóði væri meira en skylt að styðja rekstur þess. Vegasjódur styrki rekstur feijuskipanna forstjóri Skallagríms

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.