Alþýðublaðið - 07.04.1978, Blaðsíða 12
alþýðu-
blaöið
Útgefandi Alþýðuf lokkurinn
Ritstjórn Alþýðublaðsins er að Siðumúla 1L sími 81866. Auglýsingadeild
blaðsins er að Hverf isgötu 10, sími 14906 — Áskriftarsími 14900.
FÖSTUDAGUR
7. APRÍL 1978
Þjóðviljirm og norskir
jafnadarmenn:
Aðstoðina má
meta
á milljónir króna
Alþýöublaöiö hefur tvo
siðustu daga greint að
nokkru frá þeirri aðstoð,
sem norskir jafnaðar-
menn veittu við skipu-
lagningu og stofnun
Blaðaprents hf., þar sem
Alþýðublaðið, Tíminn,
Þjóðviljinn og Vísir eru
prentuö.
Þessum upplýsingum hefur
veriö komið á framfæri vegna
fullyrðinga ritstjóra Þjóðviljans
um að Þjóöviljinn hafi aldrei
notið slikrar aðstoðar. t þvi
sambandi sögðu Þjóðviljamenn,
að þeir myndu fyrr hætta útgáfu
blaðsins en þiggja erlenda að-
stoö. Mun nú reyna á þessar
staðhæfingar.
Alþýöublaðið hefur getið að-
stoðar A-pressunnar norsku,
samtaka jafnaðarmannabiaða,
á tæknilega sviðinu, við þjálfun
starfsmanna Blaðaprents, við
kaup á tækjum og með margvis-
legrifyrirgreiðslu. Þessa aðstoð
má meta á milljónir króna.
Allur tæknilegur undirbúning-
ur Blaðaprents hf., sem byggð-
ist á reynzlu A-Pressunnar i
Noregi, var svo góður, að þaö
tók aðeins eina viku að hefja
prentun þriggja dagblaða. Það
fjórða fór í gang innan mán-
aðar. Eftir það gekk prentun
næsta áfállalitið.
Til samanburðar má geta
þess, að þegar Morgunblaðið
hóf prentun með sömutækniog
Blaöaprent, tók undirbúningur
allur um það bil ár og ýmis
tæknileg vandamál urðu blaðinu
kostnaðarsöm. Af þessu má
draga ýmsar ályktanir um
verðmæti þeirrar aðstoðar, sem
norska A-pressan veitti. —
Meira verður sagt frá þessu
máli siðar.
Ekkert á leið að segja mig
úr Alþýðubandalaginu segir
Höfuðstöðvar Bandalags starfsmanna rfkis og bæja eru fluttar f þetta hús, aö Grettisgötu 89.
BSRB flutt í
eigið húsnæði
Snorri Jónsson, varaforseti ASÍ
— Þessar fréttir, sem ég
sá í blöðunum þegar ég
kom heim, eru ekki eftir
mér hafðar og ég hafði
ekki óskað eftir því að
þetta væri tekið i blöðin,
sagði Snorri Jónsson,
varaforseti ASi í viðtali við
Alþýðublaðið í gær.
Nefnd frétt var frélt Alþýðu-
blaðsins á miðvikudaginn þess
efnis, að Snorri hafi sagt sig úr
uppstillingarnefnd Alþýðubanda-
lagsins vegna þingkosninga i
Reykjavik i vor. Svo sem Alþýðu-
blaðið skýrði frá var Snorri er-
lendis og þvi ekki hægt að bera
fréttina undir hann þá.
Spurningu fréttamanns, hvort
fréttin væri ekki rétt, svaraði
Snorri: — Ég vil ekki gefa neina
yfirlýsingu um það. Það er lang-
ur vegur frá þvi að ég sé neitt á
leið að segja mig úr flokknum, ég
ætla að halda áfram að vinna af
trúmennsku innan hans eins og ég
hef gert. Þarna var aðeins
skoðanaágreiningur á ferðinni,
sem ég hafði ekki ætlað að færi i
blöðin svona strax, og ég vil lýsa
undrun minni á þvi hvernig blöðin
hafa komizt yfir þetta. -ATA
Þann 8. marz flutti
Bandalag starfsmanna
rikis og bæja inn í nýbyggt
hús að Grettisgötu 89 i
Reykjavík. Áður hefur
BSRB haft aðsetur i leigu-
húsnæði við Laugaveg, en
þar var aðstaða slæm og
húsakynni rúmuðu engan
veginn nauðsynlega starf-
semi bandaiagsins.
Grettisgötuhús BSRB er skráð
eign sameignarfélags sem nefnist
Félagsmiðstöðin og er það eign
BSRB og sex bandalagsfélaga.
Eftirtalin félög munu hafa þarna
skrifstofur: Starfsmannafélag
rikisstofnana, Starfsmannafélag
Reykjavikurborgar, Samband isl.
barnakennara, Landssamband
framhaldsskólakennara, Póst-
mannafélag tslands og Lands-
samband lögreglumanna.
Ekki er lokið við innréttingar i
húsinu og búa leiðtogar opinberra
ennþá hálfgerðum „pappakassa-
búskap” á nýja staðnum. Eru
húsakynni þarna rúmgóð og björt
og hin glæsilegustu. Forráða-
menn BSRB sögðu i gær, að tvi-
mælalaust myndi þetta nýja hús
efla mjög félagslega aðstöðu
opinberra starfsmanna. Til dæm-
is er þarna fundarsalur, sem enn
er hálfkaraður, en hann rúmar
Nauðsyn að fresta tolla-
lækkunum á erlendum vör
um um næstu áramót!
— sagdi Davíd Scheving Thorsteinsson, formaður FÍI, á aðalfundi
félagsins f gær
í ræðu sinni fagnaði formaður
FÍI fyrirheiti um virðisaukaskatt
og stjórnarfrumvarpi um jöfnun-
argjald sem gilda á þar til virðis-
aukaskatturinn hefur vcrið tekinn
upp. Þá lýsti hann ánægju sinni
með fyrirhugað staðgreiðslukerfi
skatta, og einnig með jöfnuð
vaxtakjör höf uðatvin nuveganna
og bætta útlánagctu iðnlánasjóðs.
Þessi mál kvað hann þau einu
jákvæðu sem hann gæti bent á i
málefnum iðnaðarins.
Siðan vék hann að þvi sem hann
taldi að litið eða ekkert hefði
miðað með og var sú upptalning
lengri og meiri. Davið taldi þar
meðal annars til að aðgangur
iðnaðarins að forréttindalánum
með lægri vöxtum er mun tak-
markaðri en annarra atvinnu-
greina.
Þá taldi formaðurinn að breyta
verði efnahagsstefnu þeirri sem
rikt hefur hér á landi um langt
skeið. „Stöndum á eigin fótum,
höfnum rikisforsjá, en gerum
fyllstu kröfur um eðlileg starfs-
skilyrði”, sagði hann.
1 lok ræðu sinnar kvaðst Davið
vilja lýsaþvi yfir að islenzkir iðn-
rdtendur væru reiðubúnir að
greiða starfsfólki sinu verulega
hærri laun, — ef iðnaðurinn fengi
að njóta þess sem hann nefndi
„eðlileg starfsskilyrði.”
Það er engin tilviljun að semja
þarf heilan lagabálk um verk-
smiðjur, sem rikið og erlendir
aðilar reka, eða hyggjast reisa
hér á landi. Enginn erlendur aðili
mundinokkurn tima ljá máls á þvi
að hefja iðnrekstur á Islandi, ef
honum værigert að búa við sömu
rekstrarskilyrði og islenzkum
iðnaði eru búin i dag”, sagði
Davið Sch. Thorsteinsson, for-
maður Félags islenzkra iðnrek-
enda i ræðu sinni á aðalfundi
félagsins, sem haldinn var i gær.
Davið gat þess að nú væru
aðeins 20 mánuðir þar til
aðlögunartiminn að EFTA og
samningnum við EBE er liðinn.
Hann kvað þá sögu vel kunna,
hversu hörmulega illa aðlögunar-
timinnhefur verið nýttur. Ofan á
þá sorgarsögu bætist að sam-
starfsþjóöir okkar þverbrjóti og
sviki friverzlunarhugsunina með
endalausum styrkjum og niður-
greiðslum til ýmissa greina sins
iðnaðar. Taldi Davið að hér væri
mælirinn orðinn fullur.
Davið Scheving lýstí furðu sinni
á að rikisstjórnin skyldi að engu
hafa þá ósk iðnrekenda að frestað
yrði einhliða af tslands hálfu
þeim tollalækkunum sem taka
áttu, og tóku gildi um siðustu ára-
mót. Taldi hann nauðsynlegt eins
og málum væri nú komið að
fresta um næstu áramot þeim
samningsbundnu tollalækkunum
sem eiga að koma til greina þá,
og láta þá aðgerð gilda þar til
öllum styrkjaaðgerðum hefur
verið hætt hjá rikjum EFTA og
allt að 90 manns i sæti. Auk þess
er annað minna fundarherbergi.
Þá erlitil „prentsmiðja” i húsinu,
og herbergi með fullkomnum
tækjum til ljós- og fjölritunar til
sameiginlegra afnota fyrir ibú-
ana.
Kísiliöjan
Ný þró
kemur í
staö þriggja
eldri
i gær ræddi Alþýðublaðið
við Þorstein ólafsson, fram-
kvæmdastjóra Kisiiiðjunnar
við Mývatn, en þar er nú verið
að bjóða út byggingu nýs
þró arrýmis. Sagði Þorsteinn
að verkiðyrði boðið út i tveim-
ur áföngum. Frestur til þess
að skila tilboðum í fyrri
hlutann, sem felst I fram-
kvæmdum við jarðvinnu,
rennur út þann 18. nk. en
siðari hluti verksins, sjálf
þróargerðin, verður boðin út
siðar i mánuðinum. .
Astæða þess að ráðist er i
gerðhinnar nýju þróar er sú,
aö vegna jarðrasksins, eru
hinar þr jár þrær sem fyrir eru
að meira og minna ley ti
óstarfhæfar og er þeirri nýju
ætlað að koma i stað þeirra
allra. Er nýju þrónni ætlaður
staður i nær eins kilómetra
fjarlægð frá Kisiliðjunni, þar
sem henni er talið óhætt, þótt
gliðnun i jarðvegi ætti sér
stað. Mundi þessu að vísu
fylgja aukinn rekstrarkostn-
aður, þar sem nú mun þurfa
að dæla hráefninu á milli
þróarinnar og verksmiðj-
unnar en það ætti þó að borga
sig, ef menn losnuðu þannig
við óþægindi, sem fylgt hafa
fyrri staðsetningu.
Taldi Þorsteinn að verk-
smiðjan ætti að geta náð fyrri
afköstum um mitt sumar og
enn yrði hráefnið betra, þar
sem með tilkomu þróarinnar
yrði hægt að losna við ýmis
óhreinindi úr hráefninu.
Ekki kvaðst Þorsteinn geta
látið uppi áætlaðan kostnað
við þessar framkvæmdir, þar
sem það kynni að hafa áhrif á
gerð væntanlegra tilböða.